Morgunblaðið - 28.01.1978, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978
27
Sovétmenn salta
makríl í tunnur
UNDANFARIÐ hafa tvö 14.000
tonna sovézk verksmiðjuskip,
„Rybak Latvii“ og „Antarktika",
verið undan suðvesturströnd
Bretlands og keypt makríl af 20
brezkum veiðiskipum, togurum
og hringnótabátum. 1 upplýsinga-
bréfi Síldarútvegsnefndar segir,
að sovézku skipin geti tekið til
vinnslu samtals um 500 tonn af
hráefni á dag.
Upplýsingabréf Síldarútvegs-
nefndar skýrir frá því, að stærsti
makríllinn, sem verið hefur
5—6% af aflamagninu, sé flakað-
ur og hraðfrystur, millistærðirnar
séu saltaðar i venjulegar trétunn-
ur en smæsti makríllinn sé heil-
frystur og fluttur til Sovétríkj-
anna til niðursuðu eða reykingar.
Þá segir að í báðum skipunum séu
litlar fiskimjölsverksmiðjur, sem
geti tekið við 40 tonnum á dag og
framleitt mjöl og lýsi.
I sambandi við þessa frétt skal
þess getið, að Sildarútvegsnefnd
hafa áður borizt fréttir af því að
farið sé að selja „tunnusaltaðan"
makríl á sovézkum markaði, en
ekki sé kunnugt um hvernig fólki
falli þessi nýja vörutegund, né
heldur hvort hér sé um að ræða
alvarlega samkeppni við saltsíld-
ina.
Fréttir frá Patreksfirði:
Sæmilegur afli þrátt
fyrir rysjótt veður
TlU stórir vélbátar eru gerðir
héðan út f vetur. Níu þeirra eru á
lfnu en 1 fiskar í net. Hjá Hrað-
frystihúsinu Skildinum landa
fjórir bátar, örvar, Birgir, Jón
Þórðarson og María Júlía, auk
skuttogarans Trausta, sem keypt-
ur var hingað s.l. sumar frá Súg-
andafirði. Hjá Hraðfrystistöðinni
Odda landa 3 bátar, Vestri og
Garðar og aðkomubáturinn Verð-
andi, sem fiskar í net. Hjá Hrað-
frystihúsi Patreksfjarðar ianda
Gylfi og Þrymur auk Dofra sem
er nýkeyptur hingað af hluta-
félaginu Hafnarnesi. Aðaleigend-
ur eru Hraðfrystihús Patreks-
fjarðar og Gísli Snæbjörnsson.
Yfirmenn á Dofra eru synir Gísla,
Snæbjörn Skipstjóri og Guð-
mundur stýrimaður.
Fyrirsjáanlegt er því að hér
verður mikil vinna í vetur ef
sæmilega aflast. Allmargt að-
komufólk er komið hingað, flest
ástralskar og nýsjálenzkar stúlk-
ur sem þykja góður vinnukraftur.
Veðurfar hefur verið afar rysjótt
í þessum mánuði, mjög storma-
samt og illviðri tið. Komið hefur
Keisari
og smiður
í Nýja
bíói í dag
Óperukvikmyndin Keisari og
smiður eftir samnefndri óperu
eftir Albert Lortzing verður sýnd
á vegum Germaníu og Tónleika-
nefndar háskólans í Nýja biói í
dag. Sýningin hefst kl. 14 og er
öllum heimill ókeypis aðgangur.
fyrir að bátar hafi verið á sjó i allt
að 11—12 vindstigum. Afli hefur
þó verið sæmilegur frá 4 til 10
lesta í sjóferð.
Þorrablót
Síðast liðinn laugardag hélt
Kvenfélagið Sif sitt árlega þorra-
blót. Gestir voru á þriðja hundrað
og urðu margir frá að hverfa. Fór
mannfagnaður þessi hið bezta
fram og var konunum til sóma að
venju. Fyrir þá sem ekki komust
að bætir það úr skák, að fleiri
þorrablót eru haldin hér af ýms-
um aðilum, s.s. fiskvinnslustöðv-
unum, starfsfólki sjúkrahússins
og fleirum.
Ennfremur eru þorrablót
nágranna okkar nokkuð sótt, sér-
staklega er eftirsótt að sækja
þorrablót Rauðsendinga, en
þorramatur þeirra hefur verið tal-
inn mpð eindæmum góður.
Félagsmál
Alltaf er eitthvað um að vera í
félagsmálum. Lionsmenn og
Junior Chamber halda sína reglu-
legu fundi, gömludansaklúbbur
heldur dansleiki öðru hverju,
bridge-félagið spilar á föstudags-
kvöldum og stendur nú yfir
þriggja kvölda mót. Línuklúbbur-
inn fer i gang á morgun eftir
jólahléið og fjúka þá mörg auka-
kílóin sem menn bættu á sig þá.
Unglingaklúbburinn 14—20 hef-
ur opið hús annan hvern föstudag
og Slysavarnafélag Patreksfjarð-
ar er farið að hyggja að árshátið,
sem jafnan er fjölsótt.
Samgöngur
Samgöngur á landi hafa verið
nokkuð góðar þrátt fyrir illviðri
en aðeins hér um nærsveitir.
Vegasambandið við norðanverða
Vestfirði og þjóðvegurinn austur
um sýslu eru aldrei færir að vetr-
Framhald á bls. 39.
Frá vinstri: Hermann Einarsson, Páll Zóphóníasson, Reynir Guðsteinsson, Björn Bergsson, Jóhann
Björnsson og sitjandi til hægri er Hákon Torfason. Ljósmynd Mbl. Sigurgeir.
011 framhaldsmenntun
í Eyjum samræmd
Miðvikudaginn 25. janúar var
formlega staðfestur samningur
milli menntamálaráðuneytisins
og Vestmannaeyjakaupstaðar um
rekstur samræmdrar framhalds-
kennslu I Vestmannaeyjum.
Öll framhaldsmenntun f Vest-
mannaeyjum hefur verið sam-
ræmd á yfirstandandi skðlaári og
eru eftirtaldar námsbrautir starf-
ræktar: Almenn bóknámsbraut,
uppeldis- viðskipta- og heilsu-
gæslubraut, iðnnám, vélstjóra-
nám og stýrimannanám. Kennsla
á fiskvinnslubraut er fyrirhuguð
í haust.
Lokagrein samnings þessa felur
í sér ákvörðun um formlega stofn-
un Framhaldsskóla i Vestmanna-
eyjum fyrir skólaár 1978—1979.
Hákon Torfason, fulltrúi úr
verk- og tæknimenntunardeild
menntamálaráðuneytisins kom
með samninginn fyrir hönd
menntamálaráðherra, Vilhjálms
Hjálmarssonar, en Páll
Zóphóníasson bæjarstjóri undir-
ritaði samninginn fyrir hönd
Vestmannaeyjakaupstaðar, að
viðslöddum forseta bæjarstjórn-
ar, Reyni Guðsteinssyni, Jóhanni
Björnssyni, form. skólanefndar,
Birni Bergssyni, form. undirbún-
ingsnefndar um stofnun fjöl-
brautaskóla í Vestmannaeyjum
og Hermanni Einarssyni, skóla-
fulltrúa i Vestmannaeyjum.
Síldarsaltendur á Suðvesturlandi:
Vilja síldarleit
A AÐALFUNDI Félags síldar-
saltenda á Suðvesturlandi fyrir
skömmu, var samþykkt að fara
þess eindregið á leit, að rann-
sóknaskip verði við sfldarleit við
Suðvesturland á næsta hausti.
Aðalfundur Félags sfldarsaitenda
á Suðvesturlandi var haldinn í
Reykjavfk 16. janúar s.l. Ólafur
B. Ólafsson. formaður félagsins,
gerði grein fyrir störfum F.S.S. á
s.l. ári og Gunnar Flóvenz, fram-
kvæmdastjóri Síldarútvegsnefnd-
ar, skýrði frá sölu- og markaðs-
málum saltsfldar og skyldum
málum. A fundinum urðu miklar
umræður um ýmis hagsmunamál
saltsfldarframleiðslunnar, að því
er segir í nýútkomnu upplýsinga-
bréfi Sfldarútvegsnefndar.
A fundinum voru gerðar eftir-
farandi samþykktir:
„Aðalfundur Félags sildarsalt-
enda á Suðvesturlandi, haldinn
16. janúar 1978, lýsir óánægju
sinni með það að engin skipulögð
sfldarleit fór fram á síldveiði-
svæðinu fyrir Suður- og Vestur-
landi á siðustu sildarvertið. Fund-
urinn fer þess eindregið á leit, að
rannsóknaskip verði látið stunda
skipulagða síldarleit á þessu
svæði á næstu síldarvertíð."
Þá var ennfremur samþykkt á
fundinum að fara þess eindregið
á leit að tímanlega fyrir næstu
sildarvertíð verði gefin út reglu-
gerð um gæðamat á ferskri síld.
Einnig kom fram tiliaga um að
fela stjórn félagsins að kanna
möguleikana á sameiningu F.S.S.
og Félags síldarsaltenda á Norð-
ur- og Austurlandi, en tillaga
þessi var felld.
Auglýsingaherferðin með
MagnúsiMagnússyni slær í gegn
EINS og frá var skýrt i Morgun-
blaðinu sfðla á sfðasta ári hóf
skrifstofu Flugleiða í London
sérstaka auglýsingaherferð til
þess að hvetja brezka þegna til
Islandsfarar á komandi sumri.
Fékk Jóhann Sigurðsson, for-
stjóri Flugleiðaskrifstofunnar,
til liðs við sig Magnús Magnús-
son, hinn góðkunna sjónvarps-
mann f Bretlandi, sem sérstak-
lega hvatti Breta í auglýsingum
til lslandsferðar. Arangur
þessarar auglýsingaherferðar
er nú að koma I Ijós og fer fram
úr björtustu vonum. Prentaðar
voru sérstakar upplýsinga-
möppur f 1.000 eintökum, en
strax og herferðin fór af stað
kom f Ijós að upplagið var allt
of Iftið og varð að tvöfalda það.
Jóhann Sigurðsson, sem hér
er staddur um þessar mundir,
sagði í samtali við Morgunblað-
ið, að búizt væri við að ferða-
mannastraumur Breta til ís-
Jóhann Sigurðsson og Magnús Magnússon ræða auglýsingaherferð-
ina. Yfir þeim stendur Richard Rawlings, forstjóri Hyde &
Partners Ltd., sem er auglýsingaskrifstofan, sem séð hefur um
herferðina.
Be a guest in my country.
I prnmise you a unique experience:
an aduenture instead of
a mere holiday
jiííiAaD
THBINCFWIBU /SLANV
Spjaldið, þar sem Magnús
hvetur Breta til Islandsferðar.
„Heimsækið land mitt. Ég lofa
ykkur sérstæðri reynslu —
ævintýri í stað venjulegs
sumarleyfis."
lands yrði i ár meiri en nokkru
sinni fyrr. Hann sagði að fyrsta
auglýsingin fyrir almenning
hafi birzt í Sunday Times 1.
janúar og fyrir þremur dögum
höfðu borizt 1.400 fyrirspurnir
frá einstaklingum. Einnig var
auglýst hinn 5. og 6. janúar í
sérstökum ferðablöðum, Travel
Trade Gazette og Travel News,
heilsíðuauglýsingar í báðum
blöðunum. Jafnframt var aug-
lýsingin sérstaklega send til
3.500 ferðaskrifstofa um allt
England. Síðastliðinn þriðju-
dag, er Jóhann fór frá London,
höfðu borizt svör frá rúmlega
600 ferðaskrifstofum, sem báðu
um eintök af möppu Magnúsar
Magnússonar, svo og sérstakt
auglýsingaspjald, sem gert hef-
ur verið í tilefni herferðarinn-
ar.
Jóhann sagði að þessi auglýs-
ingaherferð væri helmingi
áhrifameiri en hann sjálfur
hefði vonazt til í upphafi. Aður
en ferðamannastraumur frá
Bretlandi til Islands varð f.vrir
því áfalli, sem hann varð fyrir.
komu til Islands tæplega 8 þús-
Framhald á hls. 39.