Morgunblaðið - 28.01.1978, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978
— Fréttabann
Framhald af bls. 1.
KÖngumaður cn hann var sagöur
hafa farið frá París í dag í „við-
skiptaferð“.
Talsmaður innanrikisráðuneyt-
isins bar í dag tíl baka þá fregn
France Soir, að mannræningjarn-
ir hefðu sent fingur af baróninum
til fjölskyldu hans. Sagði talsmað-
urinn þetta uppspuna frá rótum.
Ekki hefur verið gefið upp
hversu hárrar upphæðar er kraf-
izt, en getgátur hafa verið um að
ræningjarnir muni fara fram á
allt að 10—12 milljónir dolfera.
þótt hærri upphæðir hafi heyrzt.
— Túnis
Framhald af bls. 1.
þeirra ná ekki fram að ganga á
stjórn Bourgiba.
1 Túnis búa um sex milljónir
manna. Það fékk sjálfstæði frá
Frökkum fyrir rúmum tuttugu ár-
um. Bourgiba forseti sem er nú á
áttræðisaldri er heilsuveill og tal-
inn lítt fær um að taka virkan
þátt í stjórnun landsins. Hefur
þetta og orðið til að auka öryggis-
leysi manna á meðal, svo og í
röðum stjórnmálamanna, þar sem
méð öllu er óljóst hver gæti orðið
eftirmaður hans þó að samkvæmt
stjórnarskránni sé það forsætis-
ráðherrann, Hedi.fiouira. Sá nýt-
ur aftur á móti mjög takmarkaðr-
ar lýðhylli, en af henni hefur
Bourgiba lengst af getað státað.
— Engin geisla-
virkni...
Framhald af bls. 1.
un sem kynni að koma fram á
mælitækjum gæfi til kynna úraní-
um í jörðu áður óþekkt, en ekki í
þeim mæli sem áður hafði verið
sagt. Þá hafði sérfræðingur látið
hafaeftir sér að á ákveðnu svæði
skammt frá Bakervatni hefði
geislun mælzt svo mikil að annað-
hvort væri þar stærstu úraníu-
námur í heimi ellegar geislavirkt
ryk hefði fallið þar niður. Síðdeg-
is í dag fjölgaði um tima leitar-
mönnum og flugvélum sem könn-
uðu svæðið og Sovétmenn ítrek-
uðu aðstoð ef með þyrfti.
Skömmu seinna var tilkynnt að
geislunarsvæðið virtist skyndi-
lega hafa horfið og við nánari
rannsókn kom svo í ljós að það
hafði aldrei verið um geislun að
ræða.
— Fundir her-
málanefnda...
Framhald af bls. 1.
orðsendingu þar sem visað er ein-
dregið á bug tillögum Sadats um
framtíð Vesturbakkans og Gaza-
svæðisins. Var gefin út tilkynning
þessa efnis að loknum löngum
fundi yfirstjórnar PLO.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Bandarfkjanna, Alfred Atherton,
kom til Amman í Jórdaínu síðdeg-
is í kurteisisheimsókn til
Husseins kónungs að þvf er sagt
var. Mun aðstoðarutanríkisráð-
herrann einnig ávarpa ráðstefnu
bandarískra sendiherra í Miðaust-
urlöndum. Atherton fór um
Allenbybrúna yfir Jórdaná ásamt
sendiherra Bandaríkjanna í
Israel, Líbanon, Sýrlandi, Saudi-
Arabíu og Egyptalandi. Mun
Atherton hitta Hussein á morgun
og er ætlunin að hann hleri hjá
konungi hvort hann sé reiðu-
búinn að taka þátt í fundum
Egypta og Israela ef og þegar þær
hefjast á ný fyrir alvöru. Ráðherr-
ann kemur til Israels aftur á
sunnudag og síðan heldur hann
til Kairó á mánudag.
Samkvæmt frásögn bandaríska
stórblaðsins New York Times á
samkomulag Israela og Egypta að
vera á næsta leiti, þrátt fyrir
tregðu þá og gremju sem ein-
kenndi síðustu opinbera fundi
aðilanna. Ekki hefur þetta verið
staðfest en fréttaskýrendum ber
saman um að í egypzkum blöðum
í dag kveði við betri og hlýlegri
tón í garð Israela en áður og þar
sé í öllu gætt þess að segja ekki
styggðaryrði um Begin forsætis-
ráðherra Israels. Sé þetta ótvirætt
merki um að allt sé að komast í
betra horf.
Fréttin um að fundur hermála-
nefndarinnar í Kairó sé ákveðinn
á nýjan leik þótti og augljóst
merki þess að samkomulag milli
fulltrúa landanna tveggja af ein-
hverjum toga, hefði náðst í opin-
berum viðræðum uppá síðkastið.
Þá var aðstoðarutanríkisráð-
herrann bandariski Atherton
nokkuð bjartsýnn í tali í dag og
taldi horfur betri en áður á því að
stjórnmálanefndin kæmi senn
saman aftur og þá gæti upp úr því
farið að komast skríður á málin.
— Mikil og af-
dráttarlaus...
mönnum enn of
snemmt að spá um
hvernig málum vindur
fram,“ sagði Kirsten en
hún bætti við, að staða
þessarar stjórnar væri
vitanlega mun sterkari,
þar sem hún hefði all-
traustan þingmeiri-
hluta.
Vitor Sa Machado er
44 ára gamall, doktor í
lögum. Hann er fæddur
í Angola en stundaði há-
skólanám sitt i borginni
Coimbra í Portúgal.
Hann var einn af stofn-
endum Miðdemokrata-
flokksins eftir bylting-
una 1974. Sá flokkur
átti síðan mjög erfitt
uppdráttar er kommún-
istar voru hvað aðsóps-
mestir i landinu og voru
fylgismenn CDS ofsóttir
og hraktir úr stöðum og
margir fluttust úr landi
á árinu 1975 er ástandið
var sem alvarlegast. Sa
Machado var þá meðal
annars sagt upp starfi
sem forstjóra Gulbenk-
ianstofnunarinnar í
Lissabon sem hann
hafði gegnt árum
saman. Kirsten sagði að
skipan miðdemókrata í
ráðherrastöður nú væri
mikil uppreist fyrir
flokkinn og flokksmenn
hans og fylgisaukning
hans í kosningunum
1976 sýndi og að fólk
hefði ektfi látið áróður
kommúnista gegn
flokknum ráða afstöðu
sinni.
Kirsten Th. Sa
Machado er eftir því
sem Mbl. veit bezt eina
íslenzka konan sem er
búsett í Portúgal. Hún
er fædd í Kaupmanna-
höfn og faðir hennar er
danskur. Hún og bróðir
hennar, Fleming, sem
lézt fyrir rúmu ári af
slysförum, fluttust ung
með móður sinni, Mar-
gréti Thorberg, til Is-
lands og ólust hér upp.
Að loknu verzlunar-
skólaprófi stundaði hún
síðan ýmis skrifstofu-
störf og var um hríð
flugfreyja hjá Flug-
félagi Islands. Þau
Kirsten og Vitor eiga
þrjú börn, Paulo 14 ára,
Margréti 13 ára og
André 8 ára.
I AP-frétt frá Lissa-
bon sagði að nýja stjórn-
in hefði haldið fyrsta
fund sinn í dag. I stjórn-
inni sitja ellefu fulltrú-
ar Sósíalistaflokksins,
þrír miðdemókratar og
2 óháðir.
Þá'segir í sömu frétt
að hernaðarráðgjafar
Eanesar forseta, en þeir
eru jafnframt hæstráð-
endur hæstaréttar
landsins, að brottvísun
Spinola hershöfðingja
og 18 annarra herfor-
ingja, sem flúðu Portú-
gal eftir tilraun til
valdaráns í marz 1975,
úr hernum hefði brotið
í bága við stjórnarskrá
landsins. Einnig var
lýst yfir að sams konar
brottvísun nokkurra
vinstri sinnaðra herfor-
ingja úr hernum eftir
aðra slíka tilraun um
haustið væri heldur
ekki í anda stjórnar-
skrár landsins.
Anne-Marie drottning með börnin sín. Nichoias. Paul og Alexiu
Hjóna-
bandið
í upp-
lausn?
Að sögn franska vikurits-
ins „Points de Vues" er
Anne-Marie fyrrum Grikk-
landsdrottning nú að hugsa
um að flytjast með börn sin
frá London og setjast að hjá
systur sinni Margréti Dana-
drottningu i Kaupmanna-
höfn. Á Anne-Marie að hafa
sagt: „Hjónaband mitt er
farið út um þúfur. Ég er
orðin leið á hliðarsporum
mannsins míns." Þau
Anne-Marie og Konstantin
II fyrrum konungur Grikk-
lands eiga þrjú börn, en þau
eru Alexia. 12 ára, Paul, 10
ára, og Nicholas, sem er
níu ára.
Það var fyrir fjórtán árum
að Konstantín tók við kon-
ungdómi í Grikklandi eftir lát
föður síns, og var Konstantín
þá rétt orðinn 23 ára. Við
það tækifæri sagði konung-
urinn ungi: ,,Ást þjóðarinnar
er styrkur minn." Aðeins
þremur árum síðar gerði her-
inn byltingu og hrifsaði til sín
völdin í landinu. Ellefu dög-
um fyrir jól 1967 yfirgáfu
konungshjónin Grikkland og
héldu flugleiðis til Rómar.
Þar bjuggu þau um skeið, og
naut Konstantin lifeyris frá
grísku stjórninni, sem nemur
um 235 milljónum króna ár-
lega miðað núverandi gengi
í Róm beið Konstantín í
voninni um að fá að hverfa
heim og taka við völdum á
ný. Haft er fyrir satt að á
þessum árum hafi hjóna-
bandið farið versnandi, þvi i
aðgerðarleysinu hafi konung-
ur snúið sér i æ rikara mæli
að hinu Ijúfa lifi Rómar, En
Anne-Marie gerði tíðreist
heim til Danmerkur.
Sumarið 1973, tæpum
sex árum eftir flóttann frá
Aþenu, sökuðu herforingj-
arnir grísku Konstantín um
að hafa staðið að baki mis-
heppnaðri byltingartilraun.
Var hann því sviptur lífeyri
sínum, og eignir hans i
Grikklandi gerðar upptækar,
en þær voru metnar á sem
svarar 50 milljör^um króna á
núverandi gengi Sjálfurfékk
hann að halda eftir upphæð,
sem nemur um tveimur millj-
örðum. Virtust nú allar vonir
Ljósmyndafyrirsætan Mynah Bird,
sem konungurinn er nú bendlaður
við.
Konstantin fyrrum
Grikkjakonungur.
Konstantins að engu orðnar,
og keypti hann sér þá hús í
London, og þangað fluttist
fjölskyldan.
Haustið 1974 kviknaði von-
arneisti á ný þegar herfor-
ingjastjórnin heimilaði starf-
semi stjórnmálaflokka í
Grikklandi og boðaði til þjóð-
aratkvæðagreiðslu um það,
hvort taka ætti upp konungs-
stjórn á ný Atkvæði voru
greidd í desemberbyrjun
1974, og 69,2% þjóðarínn-
ar höfnuði konungi.
I London hefur Konstantín
æ sjaldnar sézt i fylgd eigin-
konunnar, en verið bendlað-
ur við aðrar, sem hafa verið
förunautar hans í samkvæm-
um. Fyrst var það prinsessa
nokkur, Margarita von Bad-
en, sem er tíu árum eldri en
Konstantín, svo tók við von
Brecknock greifynja, og nú
síðast ung blökkukona frá
Nigeriu, Mynah Bird, sem er
26 ára gömul Ijósmyndafyrir-
sæta i London, en faðir henn-
ar er flóttamaður af Ibo-
ættflokknum frá Biafra.
(Úr Welt am Sonntag)