Morgunblaðið - 28.01.1978, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1978
Kvikmynda-
hátíðin 1978
Fimnitudugur 2.2.
Háskólabíó kl. 15.30 Opnun hátíðarinnar
1 láskólabíó kl. 19.00 Ætllciðing
Háskólabíó kl.21.00 Kona undir áhrifum
Föstudagur 3.2
Háskólabíó kl. 17.00 Fjölskyldulíf
Háskólabíó kl. 19.00 Frissi köttur
Háskólabíó ki.21.00 Amcríski vinurinn
Háskólabíó kl. 23.30 Frissi köttur
Tiarnarbíó kl. 19.00 í tímans rás
Laugardagur 4.2.
Háskólabíó kl. 14.00 Kona undir áhrifum
Háskólabíó kl. 17.00 Sæt mynd
Háskólabíó kl. 19.00 Frissi köttur
Háskólabíó kl.21.00 Sao Uernardo
Háskólabíó kl. 23.00 Frissi köttur
Tjamarbíó kl. 19.00 Hræðsla markvarðarins
við vítaspyrnu
Sunnudagur 5.2.
Háskólabíó kl. 15.00 Sirius
Háskóiabíó kl. 17.00 ’Óðurinn utn Chile
Háskólabíó kl. 19.00 Amcríski vinurinn
Háskólabíó kl.21.00 Ættlciðing
Háskólabíó kl.23.00 Kona undir áhrifum
Tjarnarbíó kl. 14.00 Afleikur
Dagskrá kvikmyndahátíóar
fyrstu 4 dagana.
Hobbv: Úr einni af pólsku teiknimyndunum.
Fyrsta kvikmyndahátíð-
in á íslandi er nú aö verða
að veruleika. Það er Lista-
hátíð í Reykjavík, sem
stendur aðv þessum við-
burði en dagskrá hátíðar-
innar er ótrúlega fjöl-
breytt, miðað við þá erfið-
leika sem við er að etja,
þegar svona hátíð er sett
upp i fyrsta sinn. í undir-
búningsnefnd hátíðarinn-
ar eru þeir Thor Vilhjálms-
son og Hrafn Gunnlaugs-
son af hálfu Listahátíðar
’78 og Gisli Gestsson og
Þrándur Thoroddsen af
hálfu Félags kvikmynda-
gerðarmanna. Starfsmaður
hátiðarinnar, ritari og rit-
stjóri dagskrár er Friðrik
Þór Friðriksson, en hann
var í mörg ár fram-
kvæmdastjóri Fjalakattar-
ins, kvikmyndahlúbbs
framhaldsskólanna.
Eins og áður hefur kom-
ið fram, stendur hátíðin
dagana 2.—12. febrúar og
meðal gesta á hátíðinni
verður þýzki kvikmynda-
gerðarmaðurinn Wim
Wenders, einn af þekktari
höfundum þýzku ,,ný-
bylgjunnar“, sem kemur
hingað með fjórar af
myndum sínum. Þessar
myndir eru: Die Angst des
Tormanns bein Elfmeter,
1971 (Hræðsla mark-
varðarins við vítaspyrnu),
fyrsta myrid Wenders eftir
að hann lauk skólanámi,
sem vakti um leið mikla
athygli á honum; Falsche
Bewegung, 1975 (Af-
leikur) var talin ein af
bestu myndum þessa árs
(’75) í Þýzkalandi og hún
varð til fyrir samvinnu
bókmennta, kvikmynda og
sjónvarps. Peter Handke
skrifaði handitið, sem er
nútímaleg útfærlsa á
„Willhelm Meister” eftir
Göethe og lýsir ferðalagi
tilvonandi rithöfundar um
Þýzkaland nútímans; Im
Lauf der Zeit, 1976 (í
tímans rás) segir frá tveim
mönnum um þrítugt, sem
einnig eru á ferðalagi, nú
um strjálbýlli héruó Þýzka-
lands. Myndin segir frá
samskiptum og vináttu
þessara tveggja manna,
sem smám saman gera sér
ljóst, að þeir eru ófærir um
að mynda nokkur varanleg
tengsl. Þessi mynd deildi
verðlaunum gangrýnenda í
Cannes 1976 með mynd
Alexanders Kluge, og
hlaut gullverðlaun í
Chicago, 1976; Ferdinand
der Starke; Der Amerikan-
ische Freund, 1977
(Ameríski vinurinn) fjall-
ar enn um vináttu tveggja
manna, en í nokkru öðru
samhengi. Myndin er
byggð á sakamálasögu eftir
Patricia Highsmith,
„Ripley’s Game“, og fjallar
um glerskera, sem þjáist af
hvítblæði og á skammt eft-
ir ólifað. Þegar Mafían
biður þann um að fremja
morð gegn álitlegri pen-
ingaupphæð, sér hann
möguleika á að afla fjöl-
skyldunni fjár til fram-
tíðarinnar og tekur verkið
að sér. En þegar hann hef-
ur. klúðrað verkinu sökum
vankunnáttu sinnar berst
honum óvænt hjálp frá
bandaríkjamanninum
Ripley (Dennis Hopper),
og með þeim tekst nokkur
vinátta, en Ripley er einn-
ig flæktur í glæpamál, sem
hann ræður ekki við.
Myndin vakti mikla athygli
í Cannes síðastliðið vor og
var af ýmsum talin eiga
verðlaun skilið.
Kvikmyndahátíðin fer að
mestu fram í Háskólabíói
og þar verður nýjasta
mynd Wenders, Der
Amerikanische Freund
sýnd 2. feb. sem liður í
opnun hátíðarínnar og
mun Wenders flytja að |
henni inngangsorð. Eins og !
sjá má af dagskrá hátíðar-
innar fyrstu fjóra dagana,
sem hér er birt, verður
þessi mynd sýnd aftur í
Háskólabíói 3. feb. kl. 9. og
5. feb. kl. 7. Hinar myndir
Wenders verða sýndar í
Tjarnarbíói, hver um sig
einu sinni og verður
Wenders viðstaddur með
það fyrir augum, að um-
ræður um myndirnar geti
orðið á eftir.
Á hátíðinni verður einn-
ig sérstök sýning á einum 7
íslenskum kvikmyndum og
mun sérstök dómnefnd,
með Wenders í forsvari,
veita einni þeirra viður-
kenningu og verðlaun að
upphæð 200.000 krónur.
Erlendar myndir á hátíð-
inni verða um 20 og auk
þess verða sýndar 7 pólsk-
ar stuttmyndir, bæði sem
aukamyndir og einu sinni
allar í heild sem ein
sýning. Vegna þess að enn
eru ekki öll kurl komin til
grafar hvað varðar einstök
smáatriði dagsskrárinnar
verður hér aðeins getið
þeirra mynda, sem sýndar
verða fyrstu fjóra dagana.
Um myndirnar
Örökbefogadás (Ættleið-
ing), 1975, er ungversk,
gerð af Márta Mészáros,
eiginkonu Miklos Jancsó.
Myndin segir frá barn-
lausri ekkju, Kötu, sem
langar til að eignast barn,
en elskhugi hennar, sem er
giftur, má ekki heyra á það
minnst. Kata kynnist ungri
stúlku, önnur sem dvelst á
uppeldisstofnun skammt
frá heimili Kötu og með
þeim tekst mikil vinátta. í
kynnum sínum við Önnu
kemst Kata að hatri þess-
ara unglinga á foreldrum
sinum, sem hafa brugðist
börnunum. Hún hefur hug
á að ættleiða Önnu, en
Anna er í giftingarhugleið-
ingum og Kata hjálpar
henni við þau áform.
Myndin er gerð df tilfinn-
inganæmi og lýsir á mann-
legan hátt höfuðpersónun-
um. Myndin hefur hlotið
fjölda verðlauna á kvik-
myndahátiðum og
Mészásos hefur nú lokið
við sjöttu mynd sína, sem
nefnist Níu mánuðir.
A Woman under the
Influence (Kona undir
áhrifum), 1974, er banda-
rísk, gerð af leikaranum og
leikstjóranum John Cass-
vetes. Cassavetes er einn
af fáum leikstjórum, sem
hefur framleitt myndir
sínar sjálfur, ráðið efni
þeirra og útliti og jafnvel
dreift þeim sjálfur. A
Woman under the
Influence er af flestum tal-
in besta mynd hans, einnig
af honum sjálfum. I mynd-
inni skoðar Cassavetes inn-
viði hjónabands miðaldra
fólks. Eiginkonan, sem
Gena Rowlands, eiginkona
Cassavetes leikur, er þjök-
uð af minnimáttarkennd i
hjónabandinu og eigin-
maðurinn, sem Peter Falk
(betur þekktur hér sem
Colombo), leikur sýnir
henni engin merki sam-
úðar.
Zycie Rodzinne (Fjöl-
skyldulíf), 1971, er pólsk,
gerð af Krzysztof helstu
kvikmyndaleikstjórum
Póllands. 1 þessari mynd
fjallar Zanussi um heim-
komu ungá manns til fjöl-
skyldu sinnar og dregur
frarri andstæður nútíðar og
fortíðar og tengsl þessara
tíma, sem virðist erfitt að
rjúfa.
Fritz the Cat (Frissi
köttur), 1971, er banda-
rísk, gerð af Ralph Bakshi.
Þetta er að sögn fyrsta
teiknimyndin, sem hefur
verið bönnuð börnum, en
Frissi er nútímalegur
breimaköttur, sem heldur
út í hinn spillta heim með
sínar eigin siðferðisreglur.
Allar persónur myndarinn-
ar hafa fengið á sig dýra-
líki, en umhverfið er það
sama og við þekkjum, borg-
ir og bílar, barir og brenni-
vin.
Sweet IWovie (Sæt
mynd) 1974, er frönsk
kanadísk gerð af júgóslav-
neska leikstjóranum
Dusan Makavejev. Hann er
þekktur hér fyrir tvær
myndir, Switchboard
Operator og W.R.:
Mysteries of the Organism.
Makarvejev hefur verid
mjög umdeildur leikstjóri
og seinni myndin, ásamt
Sweet Movie, hafa verið
bannaðar i heimalandi
hans. Bæði er, að myndirn-
ar hafa þótt mjög erótiskar
og hafa túlkað óánægju
með framkvæmd sósíalis-
mans. En Makavejev vegur
í báðar' áttir og Sweet
Movie er sögð deila á hug-
myndafræði kapítalisma
og kommúnisma á gaman-
saman en um leið átakan-
legan hátt. Sao Bernardo,
1974, er brasilísk, gerð af
Leon Hirszman, en hann er
einn af félögum Glauber
Rocha og tilheyrir
„Cinema Novo“ stefnunni i
Brasilíu. Ekki liggja fyrir
frekari upplýsingar um
myndina.
Sirius, 1974, er tékkó-
slóvakísk barnamynd, gerð
af Frantisek Vlacil. Mynd
þessi, sem hlaut gullverð-
laun á barnakvikmyndahá-
tíðinni í Theheran 1976,
gerist í Tékkóslóvakiu i
seinni heimsstyrjöldinni.
Landið er hersetið af þjóð-
verjum og þýzkar
flutningalestir fara iðulega
framhjá litlu varðhúsi í
skógi einum, þar sem lítill
drengur, Frank að nafni,
býr ásamt foreldrum sín-
um. Frank á hund sem
heitir Sirius og þeir eru
nær óaðskiljanlegir vinir.
En einn góðan veðurdag
tilkynnir þýzki herinn, að
hann þurfi á öllum hund-
um í nágrenninu að halda i
hernaðarskyni og Frank er
neyddur til að taka erfiða
ákvörðun. Þvi miður er
myndin Sirius með dönsk-
um skýringartextum og
eru foreldrar því hvattir til
að fara með börnunum og
útskýra, ef með þarf.
Cantata de Chile
(Oðurinn um Chile), 1976,
kemur frá Kúbu og er gerð
af Humberto Solas, sem er
einn af þekktustu leik-
stjórum þar í landi. Efni
þess'arar myndar er verk-
fall námumanna í Chile
1907. í myndinni er reynt
að blása nýju lífi í þessa
atburði og lýsa sögulegum
bakgrunni þeirra, með tón-
list, ljóðum og ritgerðum.
SSP.
Fjölskyldulíf: Daniel Olhryehski or Maja
Komorowska.