Morgunblaðið - 28.01.1978, Page 33

Morgunblaðið - 28.01.1978, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978 33 Pálína Þorsteinsdótt- ir Akranesi — Sjötug Pálína Þorsteinsdóttir húsmóð- ir, Jaðarsbraut 9, Akranesi, er sjötíu ára í dag. Hún er fædd á Stöðvarfirði 28. janúar 1908, dótt- ir hjónanna Þorsteins Mýrmanns bónda á Öseyri og konu hans, Guðriðar Guttormsdóttur frá Stöð. Fyrir nær 40 árum dvaldi ég um eins árs skeið á Akranesi. Kom ég þangað öllum ókunnugur, borðaði á hótelinu og svaf á skrifstofu kaupfélagsins. Hjónin Pálína Þor- steinsdóttir og Guðmundur Björnsson kennari, sem þá bjuggu á Suðurgötunni á Akra- ensi vissu einhver deili á mér og ekki liðu margir dagar frá komu minni þar til Guðmundur kennari tók mig með sér heim í sunnu- dagsmat, og nokkur skipti sótti hann mig í kvöldkaffi og upp úr því fór ég sjálfur að rata á Suður- götuna og var eftir það löngum heimagangur hjá Pálínu og Guð- mundi meðan ég dvaldi á Akra- nesi. í fyrstu mun hafa flögrað að mér, að ég kynni að gjöra hjónun- um ónæði, en þær áhyggjur hurfu fljótlega vegna einlæga hlýja við- mótsins, sem ég mætti í hvert sinn, sem mig bar að garði þeirra. Heimilið var svo hugþekkt og skemmtilegt, að það var líka mjög freistandi að vilja líta á sig þar sem heimamann. Guðmundur kennari var alltaf ljúfur og hlýr, greindur og ræðinn. Og Pálína með fallega brosið sitt var sól á sínum stað. Hún hafði sjálfstæðar skoðanir og yfir henni var reisn, sem tekið var eftir. En minnis- stæðast er mér, hvað mér fannst hún mikil og góð húsmóðir, sem i huga mínum er kona, sem með þjónustu sinni og leiðsögn tekst að búa fjölskyldu sinni heilbrigt og ánægjulegt umhverfi, heimili þar sem öllum líður vel, þykir vænt um og hljóta þar þroska. Pálína með sina góðu greind og dugnað hefði trúlega orðið mikils metinn starfskraftur á almenna vinnumarkaðnum, ef hún hefði farið þá leið. En góð örlög leiddu saman hugi Pálínu og Guðmund- ar. Þau gengu í hjónaband vorið 1935. Síðan hefir húsmóðurstarfið verið aðal vettvangur Pálínu. Ár- ið, sem ég var á Akranesi, voru tvö elstu börn Pálínu og Guð- mundar fædd, heilbrigð, frjálsleg ög yndisleg. En alls eignuðust þau 5 börn, sem öll eru mikið mann- dómsfólk. í hinni dásamlegu hringrás til- verunnar hefur hver árstími sér til ágætis nokkuð, en flest murium við þó vilja sem lengst í vor og sumar. Talað er um sumarauka þegar gott og fallegt haust tekur við af sumri. Vil ég óska vinum mínum Pálínu og Guðmundi slíks sumarauka um leið og ég þakka af alúð alla vinsemdina, sem ég naut á heimili þeirra á sinum tíma. Vió hjónin biðjum þér, Pálina mín, allrar biessunar í tilefni dagsins. Björn Stefánsson. Fyrir réttum sjötiu árum, riánar tiltekið 28. janúar, fæddist i þenn- an heim hnátintáta austur á fjörð- um, á Stöð við Stöðvarfjörð. Fljót- lega var hún vatni ausin og hlaut nafnið Pálína. Foreldrar hennar voru þau sæmdarhjón Þorsteinn Mýrmann, kaupmaður og útvegs- bóndi, og hans ágæta kona Guð- ríður Guttormsdóttir. Þó að okkur Pálinu vinkonu minni sé vel til vina, tel ég mig ekki kjörinn til ævisagnargerðar hennar. Þetta verður einungis vinarkveðja á merkum tímamót- um mikillar ágætiskonu. Við Pálina kynntumst fyrir rúmum fjörutiu árum, og voru þau kynni mér afar kær, að ann- arra sögn. Hampaði hún mér á fyrsta ári, þá sambýliskona for- eldra minna. Var hún þá nýgefin þeim afbragðsmanni Guðmundi Björnssyni, nýútskrifuðum kenn- Framhald á bls. 31 Andrés Karlsson byggingaeftirlits- maður — Sjötugur 1 aprílmánuði árið 1927 steig ungur Þjóðverji Kurt Blumen- stein á land í Reykjavik. Hann hafði þá nýlokið prófi í húsgagna- smíði í heimalandi sínu með ein- staklega góðum árangri. Byrjaði hann þegar eftir komu sína til Reykjavikur að vinna við smíðar og varð brátt þekktur fyrir dugn- að og vandvirkni. Fyrir allmörgum árum hiaut hann islenzkan ríkisborgararétt og tók sér nafnið Andrés Karls- son. Nokkru eftir komu sína til ís- lands kynntist hann ungri síma- stúlku, Jóninu Jósefsdóttur. Felldu þau hugi saman og gengu í hjónaband sem nú mun hafa var- að í nær hálfa öld. Andrés Karlsson er einn bezti og fjölhæfasti iðnaðarmaður sem ég hef kynnst, vandvirkur og út- sjónarsamur, enda mjög eftirsótt- ur til starfa af einkaaðilum og opinberum stofnunum, en siðast- liðin 20 ár hefur hann haft um- sjón og eftirlit með smiði og við- haldi bygginga á vegum Reykja- víkurborgar. Hefur hann þar eins og annars staðar reynst hollráður og traustur starfsmaður. Þjóðverjar hafa lengi verið rómaðir fyrir nákvæmni og skyldurækni í starfi, og hefur Andrés frá fyrstu tíð tileinkað sér þennan framúrskarandi góða kost þjóðar sinnar. Að lokum þakka ég Andrési Karlssyni vináttu og samstarf um áraráðir og óska honum og fjöl- skyldu hans innilega til hamingju með sjötugsafmælið. Þorsteinn Hjálmarsson. Bridge Umsjón ARNÓR RAGNARSSON Frá Bridgefélagi Reykjavíkur Um Stórmótið 4. og 5. marz á Hótel Loftleiðum Mótið verður sett kl. 13.30 laugardaginn 4. marz af borgar- stjóranum í Reykjavík, Birgi ísl. Gunnarssyni. Tveir erlendir bridgemeistar- ar hafa þegið boð um þátttöku. Eru það sænsku Evrópumeist- ararnir Morath og Göthe. Er þá ráðstafað þrettán sætum af tuttugu og átta í keppninni, þar sem Butler-mótið síðastliðið haust ákvarðar tólf pör. Öllum bridgespilurum er heimilt að sækja um þátttöku í Stórmótinu en gera verður það fyrir 2. febrúar. Verða þær um- sóknir hafðar til hliðsjónar við endanlegt val para i þau fimmtán sæti, sem laus eru. Endanlegur listi yfir þátttak- endur verður birtur um miðjan febrúar ásamt hugsanlegum varapörum. Há peningaverðlaun verða Bridgedeild Breiðfirðinga- félagsins 12. janúar sl. var spilað I Landstvfmenningi BSt og var spilað f einum 14 para riðli. Urslit urðu þessi: Sigriður Pálsdóttir — Eyvindur Valdimarsson 183 Vilhjálmur Guðmundsson — Kristján Jóhannsson 178 Ingibjörg Halldórsdóttir — Sigvaldi Þorsteinsson 165 Erla Sigvaldadóttir — Lovisa Jóhannsdóttir 164 Guðrún Jónsdóttir — Jón Halldórsson 160 Meðalárangur 156 19. janúar lauk aðalsveita- keppni félagsins með sigri sveitar Jóns Stefánssonar sem hlaut 30 stig yfir næstu sveit. Með Jóni eru f sveitinni: Þor- steinn Laufdal, Vilhjálmur Einarsson, Olafur Gfslason. Þórarinn Arnason ogGfsli Vfg- lundsson. 1 öðru sæti varð sveit Magn- úsar Oddssonar, en ásamt hon- um eru í sveitinni: Magnús Halldórsson, Þorvaldur Matt- hiasson og Guðjón Kristjáns- son. Röð sveitanna varð þessi: Jóns Stefánssonar 153 Magnúsar Oddssonar 123 Sigríðar Pálsdóttur 120 Elísar Helgasonar 113 Cyrusar Hjartarsonar 108 Guðbjörg Jónsdóttir 18 Hreinn Hjartarson 18 Barðstrendinga- félagið — bridgedeild Þremur kvöldum er lokið í barometer-tvimenningskeppni félagsins og er staða efstu para þessi: stig Gísli Benjamínsson — EinarJónsson 64 Finnbogi Finnbogason — Þórarinn Árnason 57 Ölafur Hermannsson — Hermann Finnbogason 56 Sigurður Kristjánsson — Hermann Olafsson 48 Guðrún Jónsdóttir — JónJónsson 33 Kristinn Öskarsson — Einar Bjarnason 31 Þórður Guðlaugsson — Þorsteinn Þorsteinsson 29 Gunnlaugur Þorsteinsson — Stefán Eyfjörð 21 Viðar G uðmundsson — Birgir Magnússon 5 Ragnar Þorsteinsson — Eggert Kjartansson 2 Vil viljum minna á AÐAL- SVEITAKEPPNINA sem hefst 30. janúar kl. 19/45 stundvis- lega. Upplýsingar gefa Ragnar sima 41806 og Sigurður i sima 81904. Hann virðist undrandi hann Gísli Guðmundsson lögregluþjónn eftir síðustu sögn meðspilara síns, sem tekur lífinu létt og fær sér að drekka. Andstæðingarnir íhuga málið. veitt þremur hæstu pörunum i keppninni. Monrad-sveita keppnin Að loknum sex umferðum af átta er staða efstu sveita þann- ig: Sveit stig. 1. Hjalta Elíassonar 84 2. Guðmundar Hermannss. 83 3. Stefáns J. Guðjohnsens 76 4. Jóns Hjaltasonar 74 5. Sigurjóns Tryggvasonar 72 6. Magnúsar Torfasonar 63 Keppninni lýkur á miðviku- daginn kemur. Baráttan um hin eftirsóttu réttindi, að spila i meistaraflokki aðalsveita- keppninnar, er hörð eins og sjá má af upptalningu þessari. Keppnin veitir tveimur sveit- um rétt þennan en af þessum sveitum hefur aðeins sveit Hjalta þegar náð þeim áfanga, enda félagsmeistarar 1977. I síðustu fréttum frá félaginu var frá því skýrt, að sv. Stefáns J. Guðjohnsens hefði þegar áunnið sér réttindi þessi en það var ekki rétt. 1 fyrra náði sveit Eiríks Helgasonar 2. sæti I meistarakeppninni og tryggði sér þar með réttindi þessi. Eru þeir félagar beðnir velvirðing- ar á mistökum þessum. Skráning i næstu keppni félagsins, Board A Match, er hafin. Hún byrjar þann 8. marz í Domus Medica. Magnúsar Björnssonar 98 Þórarins Alexanderssonar 93 Öskars Þráinssonar 87 Kristjáns Jóhannssonar 86 HansNielsens 85 Erlu Sigvaldadóttur 80 Haralds Briem 62 Laufeyjar Ingólfsdóttur 29 Jóhönnu Guðmundsdóttur 25 Baronietertvímennings- keppni hófst hjá okkur sl. fimmtudag og mun hún standa í átta kvöld. 40 pör spila i keppninni. Spilin eru gefin fyr- irfram. Væntanlega verða fyrstu tölur í keppninni birtar í þættinum á morgun. Bridgefélag Breiðholts Aðalsveitakeppni félagsins stendur yfir og taka 10 sveitir þátt 1 keppninni. Spiluð eru 28 spil I leik. Urslit annarrar umferðar sem spiluð var sl. þriðjudag: Ölafur Tryggvason — LárusJónsson 15—5 Sigurbjörn Ármannsson — Hreinn Hjartarson 20—0 Guðbjörg Jónsdóttir — Pálmi Pétursson , 18—2 Atli Hjartarson — Baldur Bjartmarsson 15—5 Heimir Tryggvason — Eiður Guðjohnsen frestað Staðan eftir tvær umferðir: Sigurbjörn Ármannsson 40 Baldur Bjartmarsson 25 Bridgefélag Stykkishólms Landstvípienningur var spil- aður á spilakvöldi félagsins 10. janúar s.l. Þrettán pör tóku þátt i keppninni. Röð efstu para varð þessi: stig. 1. Ellert og Halldór M. 213 2. Kristinn og Guðni 172 3. Iris og Sigurbjörg 166 4. Leifur og Gisli 164 5. Sigfús og Snorri 163 Miðlungur var 156 stig. Bridgesamband Vesturlands Ákveðið hefur verið að Vesturlandsmót í sveitakeppni verði haldið í Borgarnesi helg- ina 25.—26. febrúar n.k. Þátt- tökuréttur vinnst með undan- keppni innan félaganna á svæð- inu, en þau eru á Akranesi, Borgarnesi, Borgarfirði, Stykkishólmi og Ölafsvík. Tvær efstu sveitir á Vesturlandsmóti öðlast rétt til keppni i undan- rásum Islandsmóts. Vesturlandsmót i tvimenn- ingi verður haldið í Stykkis- hólmi helgina 1.—2. apríl n.k Mótið verður opið fyrir alla félagá i bridgefélögum á Vesturlandi, en þátttöku ber að tilkynna til formanns við’.om- andi félags fyrir 10. marz.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.