Morgunblaðið - 28.01.1978, Side 45

Morgunblaðið - 28.01.1978, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10 — 11 FRÁ MANUDEGI a^'u if % Of hratt ekið „Hinn 29. des. var birt í Vel- vakanda grein eftir mann sem kailaði sig borgara, en í þeirri grein vitnar hann í grein sem ég skrifaði til Velvakanda og var birt 7. des. en hún hét Akstur lang- ferðabíla. Ég er sammála þessum borgara að skv. lögum mega bif- reiðar yfir ákveðnum tonnafjölda og þar eru strætisvagnar engin undantekning, ekki aka yfir 60 km hraða á Keflavíkurveginum en bflstjórar þessara bíla eru oft á um 100 km hraða. Löggæzlan er ekki góð á þessari leið, en stöku sinnum sést iögreglan þar sem hún er að mæla ökuhraðann, en væri nú ekki eðiilegra að nota venjulegar bifreiðar við slík tæki- færi, en ekki vel merkta lögreglu- bíla í bak og fyrir, eins og gert er. Og hvers vegna er svo oft hægt að fara kringum lögin; þarf ekki að auka þetta umferðareftirlit bæði á Keflavlkurveginum og víðar? E.K. 1730 — 6804“. % Verðið vantar „Hvernig stendur á því að þeir sem auglýsa vöru sína í dag- blöðunum, láta nær aldrei verð vörunnar fylgja með í auglýsing- unni? Eru ekki einhversstaóar til lög um verðmerkingu á vörum i sýningargluggum verzlana? Hversvegna gildir ekki það sama um auglýsingar I dagblöðum? Ein ágæt verzlun i Reykjavik auglýsir gallabuxur, það fylgir mynd af buxum, tafla yfir mittis- mál, skálmasídd og vidd, tegund efnis og miði fyrir nafn og heimil- isfang væntanlegs kaupanda, sem yill fá buxurnar sendar i póst- kröfu. En verðið, það er eins og það skipti ekki nokkru máli. Þessi auglýsingamáti er léleg þjónusta við fólkið úti á lands- byggðinni, þvi það er bæði mjög dýrt og oft á tíðum afar seinlegt að hringja til Reykjavikur, vilji maður panta eitthvað eftir öllum þeim auglýsingum sem birtast i dagblöðunum. Ég þori að fullyrða, að meira yrði pantað eftir auglýsingum í blöðunum, ef verð vörunnar væri látið fylgja með auglýsingunni. Z.“ Þessir hringdu . . . % Ekki viðeigandi H.Þ.: — Nýlega birtist ein mynda Sigmunds i Morgunblaðinu og var hún af krossfestri kú og var eitt- hvað verið að skjóta á málefni bænda þar sem minnt var á grein er nefnd var Krossferðin mikla. Ég verð að segja að mér finnst það litið viðeigandi að taka þann- ig krossinn og gera grín af hon- um, krossin, sem er tákn fyrir kristna menn, um það sem gerðist á krossinum. Finnst mér að fara verði varlega i að leika sér þannig með hluti sem eru mjög mörgum heilagir, þetta særir fólk og er alls ekki viðeigandi. Það er ekkert á móti því að gera grin að hlutun- um, en sumir hlutir mega kyrrir liggja. % Slæmt ástand Sfmnotandi: — Á undanförnum vikum hafa dagblöð skipst á um að segja okkur fréttir af slæmu ástandi simamála. A það við um Reykja- vikursvæðið, þ.e. nágrannabæina og nokkra staði úti á landi. Sagt er að ekki sé til fjárveiting til að kaupa ný tæki er þarf til að stækka simstöðvarnar og ekki fá- ist fjárveiting heldur til að reisa hús utan um þær. Þannig fást SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson í Bikarkeppni T.R. í vetur kom þessi staða upp i skák þeirra Guð- mundar Agústssonar, sem hafði hvítt og átti leik, og Magnúsar Sólmundarsonar: 30. Bxa5! — Hxdl 31. Bx*. Hxbl 32. Bxe7 og hvitur vann le«... Bikarmeistari T.R. 1977 varð Benedikt Jónasson. Umhugsunar- tími var hálftími á skákina og voru keppendur úr leik eftir fimm töp. ekki nýir símar og þeir sem vilja flytja milli bæjarfélaga hér á Reykjavíkursvæðinu geta þurft að bíóa æði lengi eftir sínum simaflutningi. Þvi er ástæða til að spyrja að því og hvetja ráðamenn simamála til að svara: hvenær og hvernig á að leysa þennan vanda? Á það virkilega að taka allt að því 2 ár, eins og sagt hefur verið i þessum fréttum, eða er hægt að láta málið hafa algjöran forgang? H0GNI HREKKVISI / /a © 1»78 • McNaught Synd., Iae. Þú getur ekki fengið aö tala við hann í dag — ’ann var settur í einangrun! Félag járniðnaðarmanna Allsherjar- Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar- atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trún- aðarmannaráðs Félags járniðnaðarmanna fyrir næsta starfsár. Frestur til að skila tillögum rennur út kl. 1 8.00 þriðjudaginn 31. janúar n k. Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn félagsins og auk þess um 14 menn til viðbótar í trúnaðarmannaráð og 7 vara- menn þeirra. Tillögum skal skila til kjörstjórnar félags- ins í skrifstofu þess að Skólavörðustíg 1 6, 3 hæð, ásamt meðmælum, a.m.k 77 fullgildra félagsmanna Stjórn Félags járniðnaðarmanna. Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins verða til viðtals í Sjálf- stæðishúsinu Háaleitisbr. 1 á laugardög- um frá klukkan 1 4:00 til 16:00 Erþar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa Laugardaginn 28 janúar verða til viðtals Ragn hildur Helgadóttir, alþingismaður, Elín Pálma dóttir, borgarf ulltrúi, Bessi Jóhannsdóttir, VIÐTALSTIMI Alþingismanna og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavfk Morgunblaðið óskar eftir blaðburðarfólki VESTURBÆR Ægissíða, AUSTURBÆR Sóleyjargata Ingólfsstræti, Lindargata, Hverfisgata 63—125 Háteigsvegur oruxmXíIafoifo —. Upplýsingar í síma 35408.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.