Morgunblaðið - 29.03.1978, Side 7

Morgunblaðið - 29.03.1978, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978 7 Greinar á sama meiði í júnímánuði 197B komu fulltrúar nær þriggja tuga kommún- istaflokka — víðs vegar að úr heiminum — saman til fundar í skugga Berlínarmúrsins. Hápunktur þessarar ráð- stefnu var stefnumark- andi ávarp sovézka f lokksleiðtogans, Leonids Brezhnev. Meginþættir stefnumörkunar hans vóru tveir, efnislega á þessa leið. • 1) Allir kommúnista- flokkar heims eru greinar á sama meiði og stefna að sama loka- marki. „Við tilheyrum allir sömu hreyfingunni og stefnum að sameigin- legu marki“, sagói hann. • 2) Hins vegar ber einstökum kommúnista- flokkum að haga störfum og yfirbragði cftir að- stasium, hver a sinum heimavettvangi. Slegið á nýja strengi Kommúnistaflokkar V- Evrópu hafa keppzt um það hin síöari ár að setja upp þjóðlegt yfirbragð, íklæðast „þjóðlegum sósíalisma" og sverja af sér öll tengsl við „óska- landið". bessi viðleitni hefur smám saman þróazt í „nýja" kenningu, sem kölluð hefur verið „Evrópukommúnismi". Hún hefur leitt til aukningar á kjörfylgi kommúnistaflokka, eink- um á Ítalíu og í Frakk- iandi, þar sem „Evrópu- kommúnisminn" er tal- inn eiga rætur. Kommún- istafl. Frakklands varð þó fyrir miklum von- brigðum í nýafstöðnum kosningum þar í landi. Sú staðhæfing hefur fengið fætur hér á landi, að „Evrópukommúnis- minn" sé íslenzk uppfinn- ing og flutt út héðan af framleiðendum. Alþýðu- bandalaginu. Hvort sú staðhæfing er rétt eða röng skal hér ósagt látið. Alla vega ber hún þó nokkurri óskhyggju vitni. Meginatriði breyttra viðhorfa „Evrópukommúnism- inn eins og hann er boðaður á Ítalíu, hefur þrjú höfuðeinkenni, er gera hann frábrugðinn fyrri framsetningu. • 1) Að stefna beri að samstarfi við kristilega demókrata, sem er sterk- ur hægri/mið-flokkur, sérstaklega með hliðsjón af efnahagsvanda þar í landi. Nú er svo komið að ítalski kommúnista- flokkurinn styður nýlega myndaða stjórn kristi- legra þar í landi. • 2) Italía á tvímæla- laust að vera áfram aðili að Atlantshafsbandalag- inu (Nato). Þar er öryggi landsins bezt tryggt, úr sögn úr Nato myndi raska nauðsynlegu valda- jafnvægi í álfunni og hægara væri að fram- fylgja „frjálsum sósíalisma" innan en utan þessa öryggisbanda- lags. • 3) Ekki bæri að stefna að frekari þjóðnýtingu í ítölskum iðnaði. Römm er sú taug.... Þessi gjörbreyttu við- horf vekja óneitanlega spurningar um. hvort hliðstæðra viðbragða sé að va-nta hjá „Alþýðu- bandalaginu". sem á stundum telur sig hafa fl'utt út „Evrópu- kommúnismann". Er af- staða þess til íslenzkrar aðildar að Nato að þróast yfir í hina „sögulegu málamiðlun"? Ilver er afstaða þess til hugsan- legrar stjórnarsamvinnu við aðra flokka — með' hliðsjón af efnahags- vanda íslenzku þjóðar innar. Er það orðið frá- hverft hugsanlegri þjóð- nýtingu íslenzkra at- vinnuvega? Spurningar geta og beinzt í öndverða átt. Getur það verið að „Al- þýðubandalagið", sem fáu reiðist meir en vera kallað kommúnistaflokk- ur. sé gerzkara í afstöðu sinni til framangrcindra málaflokka en kommún- istaflokkar V-Evrópu? Er sú taug, sem bindur flokkinn sovézkum sjónarmiðum svo römm. að hún dragi rekka hans, skoðanalega séð. í föður- tún sovézk? Enn má spyrjai hver er afstaða Alþýðubanda- lagsins tii þessara afger- andi og stefnumarkandi þátta „Evrópukommún- ismans". sem hér hafa verið gerðir að umtals- efni? Er það ekki sið- ferðileg skylda þess að gera hreint fyrir dyrum sínum í þessu efni nú. þegar tvennar kosningar eru framundan? Á ekki hinn almenni kjósandi skýlausan rétt á því að vita hver cr sá skoðana- legi valkostur, sem „út- flytjandi Evrópu- kommúnismans" hefur upp á að bjóða? Eða samrýmist það máske bezt sjónarmiðum félaga Leonids, um að haga störfum og yfirbragði eftir aðstæðum á heima- vettvangi. að þegja um það er máli skiptir. eða hafa tungur tvær og tala sitt með hvorri. Að mörgu er að hyggja, er þú þarft að tryggja ------------— \ Brunar og slys eru of tíóir vióburóir í okkar þjóófélagi. Þegar óhapp skeóur er hverjum manni nauósyn, aó hafa sýnt þá fyrirhyggju, aó fjárhagslegu öryggi sé borgió. Hagsmunir fyrirtœkja og einstaklinga eru þeir sömu SJÓVÁ tryggt er vel tryggt SUÐURLANDSBRAUT 4 -SÍMI 82500 Spónlagðar lakkaðar viðarþiljur, gullálmur, eik og fl. Fæst enn á gamla verðinu Timburverzlunin Volundur hf. KLAPPARSTIG 1. SIMI 18430 GRAFÍSKA SVEINAFÉLAGIÐ Skrifstofa félagsins aö Bjargi, Óöinsgötu 7, verður opin á miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 16.15 til 19.00. Símanúmer skrifstofunnar er 19945. SKIPHOLTI 19 R. SIMI 29800 (5 LINUR) BUÐIN 27 ÁR í FARARBRODDI T-bleian með plastundirlagi frð Mölnycke er sérlega hentug. Fæst I öllum apótekum og stœrri matvöruverzlunum. NYTT SHAMPOO ! HÁR ÍBALSM! vus> NORMAl. M 4 mMPo<) nuv.t'm;i IRHmS I « 1 Vo 5 gæða shampoo fyrir allar hártegundir, ásamt viðeigandi hárnæringu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.