Morgunblaðið - 29.03.1978, Side 22

Morgunblaðið - 29.03.1978, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978 Þetta kemur upp hjá okkur aftur - segir Bragi Magnússon frá Siglufirði í KÖnjfu «K stökki frá SÍKlfirðinKar hafa áður verið fáliðaðir á lands- móti «k mætt svo sterkir til leiks ok þetta mun koma upp hjá okkur aftur.“ sagði Bragi MaKnússon frá Siglufirði. sem var aðaldómari landsmótsins, en aðeins tveir Siglfirðingar voru meðal keppenda á lands- mótinu nú í stökki, o>? þótti mönnum slíkt fámenni frá Sinlufirði skjóta nokkuð skiikku við á Skíðamóti Is- lands. „Það er dálítið slæmt hjá okkur, hvað við missum mikið af mönnum, þegar þeir eru að ná því að verða KÓðir," sagði Bragi. „Þá missum við menn úr bæn- um; í atvinnu eða skóla. Sumir koma ekki aftuf og hinir hafa oft á tíðum týnt of miklu niður. En við eigum nú margar mjög efnilega krakka í öllum grein- um, nema stökkinu. Því er ekki sinnti sem skyldi og einhvern veginn er það að detta upp fyrir hjá okkur.“ SKÍCftSAWBAND Skíðasambandið fær merki A Skíðaþingi voru lagðar fram og kynntar tillögur að merki Skíðasambands Islands. Stjórnin mun svo á næstunni velja það merki, sem framvegis verður einkenni sambandsins. BRUN AFTUR Á LANDSMÓT ALLT útlit er fyrir a brun verði innan skamms aftur keppnisíþrótt á landsmóti, en brun var síðast á dagskrá Skíðamóts íslands 1960. Á Skíðaþingi sem haldið var föstudaginn langa, var samþykkt að árlegt brunmót Akureyringa skyldi tekið með í Islandsbikarkeppnina og má þá búast við að menn annars staðar fari að hugsa sér til hreyfings með brunið. Sæmundur Óskarsson, formaður Skíðasambands Islands, sagði í samtali við Mbl., að hann byggist við að brunið færi rólega af stað og yrði varla á landsmóti fyrr en eftir 1980. Reglum samkvæmt er ekki skylt að halda keppni á landsmóti í grein, nema til hennar mæti keppendur frá minnst tveimur stöðum. Næsta landsmót á ísafirði NÆSTA Skíðamót íslands, landsmótið 1979, verður haldið á ísafirði og unglingameistaramótið í Siglufirði. Siglfirðingar voru einir um að vilja halda næsta unglingamót, en Akureyringar sýndu áhuga á að halda næsta landsmót, þar sem þeir ætla að halda mikla íþróttahátíð 1980 og vildu síður fá landsmótið 3á, en samkvæmt hefðinni er hringurinn Reykjavík, ísafjörður, Akureyri, Siglufjörður. Á Skíðaþingi komu þá fram raddir um að einhverjir aðrir gætu tekið að sér landsmótið 1980, en rétt væri að ísfirðingar fengju næsta mót, eins og þeir -vildu og ættu hefðbundinn rétt til. Akureyringar lýstu því þá-yfir, að þeir myndu taka landsmótið 1980. - I / > / v-i $KÍÐfiS*MmiD ÍSIANDS ^^éÍ^HísianIds IhhvKI ..Þetta er í öldudal í bili hjá okkur. Og svo voru nú Islands- meistararnir okkar frá í fyrra Bragi Magnússon Sigursveitir Akureyringa í flokkasvigi karla og kvenna. Frá vinstrii Tómas Leifsson, Nanna Leifsdóttir, Karl Frímannsson, Margrét Baldvinsdóttir, Árni Óðinsson, Guðrún Leifsdóttir og Haukur Jóhannsson. Stundum heill veðbanki í gangi um hvort ég stæði báðar ferðimar - segir Jóhann Vilbergsson ..JÁ. já. Ég er aíltaf að hætta. hað bara gengur ekkert,“ sagði Jóhann Vilbergsson, er Mbl. ræddi við hann. en Jóhann keppti nú á sfnu 25. landsmóti. „Eg var fyrst með á lands- mótinu á Akureyri 1952, þá 15 ára gamall og fékk því bara að vera með í flokkasviginu," sagði Jóhann. „Svo fjölgaði þessu nokkuð ört, en nokkur mót missti ég úr af ýmsum ástæðum. Svo var ég hættur, en stóðst ekki mátið, þegar mótið var haldið „heima í Siglufirði" í fyrra. Þá sagði ég nú, að það væri mitt síðasta landsmót, en svo stóðst ég heldur ekki mátið, þegar mótið var haldið „hér heima í Reykjavík" nú. Þannig er alltaf eitthvað sem teymir mann áfram.“ — Hefur þetta eitthvað breytzt á þessum árum? Jóhann Vilbergsson á fullri ferð fyrir 10 árum. „Það er orðin miklu meiri breidd í þessu núna. Og græjurnar eru orðnar svo fínar, að nú er til dæmis ekki hægt að detta á rassinn lengur. Annars eru keppendur oft færri nú en áður var, en nú eru fleiri jafngóðir í toppnum." Jóhann var sjálfur lengi i toppnum. Islandsmeistari í stór- svigi 1962 og í svigi, stórsvigi og alpatvíkeppni 1963. Annars var Jóhann frægastur fyrir að ljúka ekki keppni. „Já, Ég hef oft unnið aðra brautina," segir Jóhann. „Ætli það hafi ekki veið í ein 15 ár, sem ég var meö bezta tímann í annarri ferðinni og keyrði mig út úr öllu saman í hinni. Maður var orðinn frægur af endemum af þessu öllu saman og stundum var heill veðbanki í gangi í kringum þetta. En það var óskaplega gaman." — En ertu þá hættur núna? „Ætli þetta hafi ekki verið mitl allra síðasta landsmót. Ég hef þá allra allra síðasta skiptið upp á að hlaupa," sagði Jóhann Vilbergsson og hló við Sautján unnu til fleiri en einna verðlauna - fengu 53 verðlaun af 68 SÁ kcppandi. sem vann til flestra verðlaunapeninga á landsmótinu (fleir- og flokkakeppnir meðtaldar) var Guðmundur Garðarsson, Ólafsfirði. sem vann fi verðlaunapeningat fjóra gullpeninga og tvo bronspeninga. Guðmundur varð íslandsmeistari í 10 km göngu 17—19 ára, boðgöngu. stökki 17—19 ára og norrænni tvikeppni. í 15 km göngu 17 — 19 ára varð hann þriðji og einnig í tvíkeppni í göngu 17 — 19 ára. Haukur Sigurðsson Ólafsfirði vann til fjögurra verðlaunapenihgat allt voru það gullverðlaun og var Ilaukur sá eini. sem vann til gulls í öllum sínim keppnisgreinum á landsmót’nU. Fleiri en einn verðlaunapening fengu einrig; Jón Konráðsson, Ólafsfirði, fékk 4, þar af 3 gullpeninga, Jón Björnsson, ísa- firði, hlaut fjögur silfurverðlaun, Halldór Matthíasson, Reykjavík, vann fjögur verðlaun, þrjú silfur og eitt Sorns, Sigurður Jónsson, ísafirði, og Steinunn Sæmunds- dóttir Reykjavík, unnu þrjú gull- verðlaun hvort, Ingólfur Jónsson, Reykjavík, fékk 3 bronspeninga, Margrét Baldvinsdóttir, Akureyri, vann til þriggja verðlauna; Haukur Jóhannsson, Akureyri, vann þrjú verðlaun; eitt gull, eitt silfur og eitt brons, Margrét Baldvinsdóttir, Akureyri, vann eitt gull og tvö brons. Ingólfur Jónsson, Reykjavík, fékk þrjá bronspeninga, Björn Þór Ólafsson, Ólafsfirði, vann tvö gullverðlaun, Árni Óðinsson, Akureyri, fékk ein gullverðlaun og ein silfurverðlaun, Þorsteinn Þorvaldsson, Ólafsfirði, fékk tvö silfurverðlaun, Kristinn Hrafnsson, Ólafsfirði, fékk tvö silfurverðlaun, Ása .Hrönn Sæmundsdóttir, Reykjavík, vann silfurverðlaun og bronsverðlaun og Hafþór Júlíusson, ísafirði, fékk tvö bronsv.erðlaun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.