Morgunblaðið - 11.04.1978, Side 31

Morgunblaðið - 11.04.1978, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. APRIL 1978 31 — Skip Framhald af bls. 47. Eystrasalti. Ekki var sagt hvenær atburðurinn átti sér stað. Skipið var fært til hafnar í Gdynia, en á því var fjögurra manna áhöfn. Þetta er í fyrsta sinn sem skip er tekið í landhelgi Póllands í Eystrasalti frá því hún var færð út 1. janúar. Landhelgin miðast nú við miðlínu í Eystrasalti. — Nýtt’ dagheimili Framhald af bls. 3. Með tilkomu hins nýja dag- heimilis verður nú ráðinn fulltrúi að félagsmálastofnun Kópavogs í hálft starf er annast á alla innritun á dagheimili svo og önnur málefni er þau snerta og málefni gæzluvalla og sumardvalar- heimilisins í Lækjarbotnum. For- stöðukona dagheimilisins er Jóhanna Thorsteinsson og vinna þar auk hennar 5 fóstrur, aðstoðarstúlkur og matráðskona. — Marcos Framhald af bls. 46. Manilla og voru ailir mótmælend- urnir handteknir. Lögregla sagði að göngumennirnir hefðu borið mótmælaspjöld, þar sem á voru letruð slagorð um byltingu, og hrópað vígorð. Vitnum ber þó saman um að gangan hafi farið friðsamlega fram, engin spjöld hafi verið sýnileg, en hins vegar hafi mótmælendurnir borið tvær líkkistur skreyttar blómum. Var vafinn borði um kisturnar sem á stóð „Dauði lýðræðisins syrgður". Meðal þeirra sem handteknir hafa verið er áróðursstjóri stjórn- arandstæðinga Lorenzo Tanada, fjórir frambjóðendur Stjórnarand- stöðunnar, sex nunnur og lögfræð- ingur. Nunnunum var sleppt skömmu síðar. — Niður með ... Framhald af bls. 20 sem annarra. Kommúnistar hefðu setið í tveimur ríkis- stjórnum án þess að reka varnarliðið úr landi. Deilt hefði verið á viðreisnarstjórnina fyrir vanrækslu, en Vest- firðingar vissu það, að afla- sælustu skuttogarar þeirra, Sæbjörg, Júlíus Geirmundsson og mörg fleiri, hefðu verið keyptir á viðreisnarárunum. Deilt væri á Sjálfstæðisflokk- inn fyrir orkusölu til út- lendinga, en Magnús Kjartans- son hefði skrifað frægt bréf til „Mr. Malone" og staðið að samningum um slíka orkusölu. Orkusala væri sjálfsögð, ef hagstæðir samningar næðust. Deilt væri á ríkisstjórnina núverandi fyrir ráðstafanir hennar í efnahagsmálum, én ráðstafanir vinstri stjórnar- innar og Alþýðubandatags- manna 1974 hefðu verið miklu harkalegri. Allar þessar ádeil- ur væru því rakalausar. Ungir kommúnistar væru án hug- mynda, án raunhæfrar stefnu, þeir kysu ekki þróun og um- bætur eins og ungir Sjálf- stæðismenn, heldur kyrrstöðu. Mestu máli skipti, að íslenzka þjóðin leysti vanda sinn sjálf og sameinuð. Sjálfstæðis- flokkurinn væri flokkur stétta- samvinnunnar. Hann væri flokkur allra stétta. Hann væri sameiningaraflið í íslenzkum stjórnmálum. Unnar Þór sagði, að risa- veldin hefðu skipt heiminum í áhrifasvæði eftir síðari heims- styrjöldina. ísland væri á áhriasvæði Bandaríkjanna, og bæði risaveldin hefðu hag af óbreyttum aðstæðum. Sóðaleg starfsemi þeirra, sem lifðu á hernum, væri til vansæmdar. Braskaralýðurinn í Sjálf- stæðisflokknum hefði engan skilning á þjóðlegum verðmæt- um, sannir Islendingar væru Alþýðubandalagsmenn. Sjálfstæðismenn voru í nokkrum meiri hluta á fundin- um, en fulltrúar beggja kváðust ánægðir með aðsókn- ina og undirtektirnar. — Jón Armann Framhald af bls. 19 mögulegt, að leggja fram frv. sem felur í sér breytingu á kosninga- lögum. Breytingin er fólgin í því, að horfið verði frá þeirri reglu að úthluta uppbótarsætum eftir hlut- falli og að heimilt verði að fleiri en einn frambjóðandi hvers flokks geti hlotið landskjör í sama kjördæmi. Frumvarpiðer ekki sú allsherj- arlausn, sem flutningsmenn telja nauðsynlega. En það er spor í þá átt og dregur að nokkru leyti úr því hróplega ranglæti sem nú ríkir. Með þessu frumvarpi vilja flutn- ingsmenn gera úrslitatilraun nú á síðustu stundu til að fá AÍþingi til að gegna þeirri frumskyldu sinni að leiðrétta kosningalög til sam- ræmis við lýðræðislegar leikreglur og tryggja meiri hluta kjósenda þann atkvæðisrétt sem þeim ber. Athugasemd við 1. gr. Svo sem sjá má eru hér gerðar tvær breytingar á núgildandi ákvæðum 122. gr. Hlutfallstala við útreikning uppbótarsæta er felld brott, og í öðru lagi er heimilað að fleiri en einn frambjóðandi hvers flokks geti hlotið landskjör í sama kjördæminu. Ahrif þessara breytinga, miðað við kosningaúrslitin 1974, má glögglega sjá á yfirliti því, sem Hagstofa íslands hefur gert og fer hér á eftir. Breytingar þessar munu ekki hafa áhrif á þing- mannatölu flokkanna í þingkosn- ingunum, heldur einungis á það hvaða frambjóðendur verða upp- bótarþingmenn hvers flokks. Ef ákvæðið hefði verið í lögum 1974 hefðu uppbótarþingmenn orðið 8 í Reykjavík, en voru 4, og 3 í Reykjaneskjördæmi, eða jafn- margir og nú. Önnur kjördæmi hefðu ekki hlotið uppbótarþing- menn. Þetta getur og mun að sjálfsógðu breytast að einhverju leyti eftir næstu kosningar þar sem íbúafjöldi hefur enn breyst verulega á kjörtímabilinu. Með þessari aðferð er unnt að draga mjög úr misvægi frá því sem það var 1974 milli hinna ýmsu kjördæma, að því er gildi atkvæð- isins varðar, og fá út hlutfall, sem er almennt nálægt því að vera 1:2.5. Til glöggvunar er hér birt tafla miðað við kosningatölur 1974, ef farið hefði verið eftir þeirri reglu sem frv. þetta gerir ráð fyrir. Kjósendafjöldi að baki hverjum þingmanni hefði þá orðið þessi: Reykjanes ................ 2 876 Reykjavík ................ 2 653 Vesturland ............... 1 567 Vestfirðir ............... 1 119 Norðurland vestra ........ 1 205 Norðurland eystra ........ 2 235 Austurland ............... 1 360 Suðurland ................ 1 775 FYRIRFERÐALÍTIL EN FULLKOMIN Olympia SGE 45 rafritvélin hefur kosti stórrar skrifstofuvélar þótt hún sé bæði minni og ódýrari. Fram og jor aftur dálkaval, 44 lyklaborð, 8 endurtekn - mm ingalyklar, hálft stafabil til r . &j&*iiíasssssssaB^ .. .............. leiðréttinga o.m.fl. Rétt vél fyrir þann sem hefur lítió pláss en mikil verkefni. Leitið nánari upplýsinga. Olympia Intemational KJARAN HF skrifstofuvélar & verkstæði — Tryggvagötu 8, simi 24140 Verðlaun í áskrifendaleik Dagblaðsins. Láttu ekki happ úr hendi sleppa. BIAÐIÐ frfálst, úháð dagblað Bfður hann þín ? Chevrolet Nova 1978 bíður afhendingar 15. apríl n.k. Sértu áskrifandi, þá andaðu rólega. Ef ekki, þá hringdu strax og pantaðu áskrift að Dagblaðinu í síma 27022.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.