Morgunblaðið - 11.04.1978, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 11.04.1978, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGTJR 11. APRÍL 1978 Leiðtogar byltingartilraun- arinnar í Sómalíu handteknir Mogadishu 10. aprfl. Reuter. AP. TALSMENN Sómalíustjórnar til- kynntu í dag að leiðtogar bylting- artilraunarinnar sem „ungir liðs- foringjar og hermenn“ gerðu í ga“r. hefðu allir verið handteknir og myndu síðar koma fyrir rétt. í fréttum útvarpsins í Moga- dishu í gærkvöldi sagði að nokkr- ir byltingarmannanna hefðu ver- ið felldir. aðrir handteknir og enn aðrir væru á flótta. Talið er líklegt að byltingin hafi hafist þegar lítill hópur hermanna reyndi að ná á sitt vald herbúðum rétt við háskólasvæði við veginn til Afgoi við Shabeleá. Byltingarsinnarnir virðast þó hafa átt litlu fylgi að fagna og eftir nokkurra tíma blóðuga bar- daga var byltingartilraunin farin út um þúfur. Mestir urðu bardag- arnir við lögregluvarðstöð við veginn til Afgoi. Skothvellir heyrðust í vestur- hluta höfuðborgarinnar í gær- kvöldi og öflugur hervörður gætti forsetasetursins, en í dag var daglegt líf í Mogadishu komið í eðlilegt horf. „Þetta er aðeins venjulegur mánudagsmorgun," sagði starfs- maður við Vestrænt sendiráð, „allar verzlanir og skrifstofur eru Flúðu í flugvél tíl Berlínar opnar, og við verðum ekkert varir við aukna öryggisgæzlu." Ekkert hefur enn verið látið uppi um fjölda hinna handteknu, né heldur hvaða hersveitir tóku þátt í byltingartilrauninni. Tilraunin kom fæstum á óvart, því allt síðan Sómalíuher dró sig til baka úr stríðinu í Ogaden, hafa heyrzt óánægjuraddir í hernum. Flestir herdeildanna sem börð- ust á Ogaden voru staðsettar í Norður-Sómalíu, er stríðinu lauk. Var það gert til að koma í veg fyrir að óánægja Ogaden-hermannanna breiddist út til annarra herdeilda. Þó herma áreiðanlegar heimildir að nokkrir hermenn hafi komið til Mogadishu og gætu þeir hafa reynt að æsa hermenn þar til byltingar. Engar fréttir hafa borizt um óróa í öðrum landshlutum, og talsmaður stjórnarinnar sagði að stuðningsyfirlýsingar við Siad Barre forseta og stjórn hans streymdu hvaðanæva að af land- inu. Þá barst forsetanum skeyti frá Anwar Sadat Egyptalandsforseta, þar sem Sadat skýrði frá ánægju sinni með að byltingartilraunin hefði misheppnazt. Fréttaskýrendur telja líklegt að vinstrisinnaðir hermenn hafi stað- ið fyrir valdaránstilrauninni, og að þeir hafi viljað sýna stuðning sinn við Sóvétríkin og Kúbu með henni. Sómalíustjórn sleit stjórn- málasambandi við Kúbu í nóvem- ber í fyrra og rak úr landi alla sovéska hernaðarráðuneyta vegna stuðnings Kúbumanna og Sovét- manna við Eþíópíu. Kona Benigno Aquino, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, greiðir atkvæði á kjörstað í Manila á föstudag. Aquino situr nú í fangelsi og á yfir höfðu sér dauðadóm fyrir byltingartilraun. Marcos segir bylting- aröflin snúa aftur til ofbeldisaðgerða Manilla. Filippseyjum 10. apríl. Reuter. AP. Berlín 9. apríl. AP. BREZK yfirvöld tilkynntu í dag, að tveir Austur-Þjóð- verjar hefðu flúið yfir landa- mæri Austur- og Vest- ur-Þýzkalands í lítilli eins hreyfils flugvél. Flugvélin lenti á brezka herflugvéllin- um Gatrow rétt vestan við Berlínarmúrinn. Talið er líklegt, að Aust- ur-Þjóðverjarnir séu bræður, en þeir voru afhentir borgar- yfirvöldum Vestur-Berlínar. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem flóttamönnum heppnast að fljúga yfir Berl- ínarmúrinn. Árið 1969 rændu tveir Austur-Þjóðverjar pólskri farþegaflugvél og neyddu flugstjórann til að lenda á Tempelhof-flugvelli í Berlín. FORYSTUMENN Efnahags- bandalags Evrópu (EBE) settu sér 90 daga frest til að semja áætlun um aðgerðir til að auka hagvöxt í löndum EBE, minnka atvinnuleysi og koma í veg fyrir viðskiptahömlur á fundi sfnum í Kaupmannahöfn um helgina. Samþykktu ráðherrarnir þessa leið til að sýna samstöðu banda- lagsins á fundi sjö helztu iðnríkja heims í Bonn í sumar. Forystumennirnir samþykktu í upphafi fundar síns að sýna samstöðu um aðgerðir í efoahags- og gjaldeyrismálum þar sem að FORSETI Filippseyja, Ferdinand Marcos, sagði í dag, að byltingar- öfl í landinu hygðust grípa til vopnaðra aðgerða í kjölfar kosn- inganna sem haldnar voru þar á föstudag. Kosningarnar voru þær fyrstu á Filippseyjum í sex ár, en þann tíma hafa herlög verið í gildi. öðrum kosti blasti við efnahags- öngþveiti, í kjölfar þess umróts sem verið hefur í alþjóðagjaldeyr- ismálum. Samþykkt var á fundi leiðtog- anna að vinna að endurreisn efnahagsmála með því að auka hagvöxt, koma stöðugieika á gjald- miðla bandalagslandanna gagn- vart breytingum á Bandaríkjadal, hafa nákvæmt eftirlit með flutn- ingi fjármagns innan EBE, þar á meðal aðstoð við þróunarlöndin, auka olíu- og orkusparnað og auka utanríkisviðskipti til að koma í veg fyrir viðskiptahömlur. Ráðherrarnir settu sér það Fyrstu tölur benda til þess að stjórn Marcosar hafi unnið nokk- urn sigur í kosningunum. Marcos sagði í yfirlýsingu til stjórnarinnar að stefna hans að leyfa frjálsa kosningabaráttu hefði beðið hnekki og nú yrði aftur hert að stjórnarandstæðingum. „Það er augljóst að byltingaröfl- in hafa aftur snúið til ofbeldisað- takmark að hagvöxtur skyldi vera 4,5% í júlí á næsta ári. Þeir telja það algjört lágmark svo að vinna megi bug á því atvinnuleysi sem ríkir í löndum EBE. Sex milljónir manna eru atvinnulausar meðal 250 milljóna íbúa bandalagsins. Talsverðs uggs gætir meðal leiðtoga EBE um að þeir verði að takmarka innflutning sinn ef Japanir auka ekki viðskipti sín við lönd bandalagsins. Lönd EBE skulda Japönum nú 5.2 milljarða Bandaríkjadala. Á fundi leiðtoga EBE var samþykkt hörð ádeila á hryðju- verkamenn. gerða og áróðurs, til að hafa áhrif á íbúa landsins og til að koma byltingarástandi á,“ sagði Marcos. „Næst reyna byltingaröflin að hrifsa til sín stjórn landsins með vopnaðri byltingu." Þrátt fyrir vísan sigur stjórnar- innar hrósaði leiðtogi stjórnarand- stöðunnar, Benigno Aquino, sið- ferðislegum sigri í kosningunum í dag, og ásakaði stjórnina um að hafa svindlað við talningu atkvæð- anna. Aquino situr nú í fangelsi, en hann var handtekinn 1972 er herlög gengu í gildi. í nóvember var hann dæmdur til dauða fyrir byltingartilraunir, en mál hans er nú í athugun. Þegar lokið var við að telja atkvæði á 1.480 kjörstöðum í Manilla, hafði stjórn Marcos hlotið 60% atkvæða, en hafði 90%. Um 11.000 kjörstaðir eru í Manilla. Ljóst þótti þá að stjórnarflokk- urinn myndi fá öll 21 þingsæti borgarinnar, en meðal þeirra sem þar voru í framboði var kona Marcosar. Kosið er nú um 165 þingsæti af 200. Sagðist Marcos búast við að stjórnin fengi 152 þingsæti, en stjórnarandstæðingar fengju 13. Síðar verða hinir 35 þingmennirn- ir valdir og er gert ráð fyrir að Marcos velji þá sjálfur. Á sunnudag fóru tæplega 600 manns í mótmælagöngu um götur Framhald ábls. 31. EBE ráðgerir miklar efnahagsráðstafanir Kaupmannahofn. 10. apríl. Reuter. Lyf til fóstur- eyðinga New York. JAPANSKIR vísindamenn hafa fundið upp lyf sem veldur fóstureyðingu. í tilraunum hef- ur lyfið virkað í 86% tilfella. Alþjóðaheilbrigðismálastofnun hefur mælst til um að frekari rannsóknir fari fram. Mafíu- foringi dæmdur Sikiley. HÖFUÐPAUR ftölsku mafíunnar. Luciano Liggio, var á mánudag dæmdur til fimm ára fangelsisvistar fyrir aðild að glæpaverkum. Liggio hefur verið í fangelsi frá 1974 og afplánar nú dóm upp á 18 ára fangelsisvist fyrir að skipu- leggja mannrán. Vinsœldir Carters óbreyttar Washington. 50% Bandaríkjamanna eru ánægðir með störf Carters forseta samkvæmt sfðustu skoðanakönnun Gallup. Er það sama hlutfall og í tveimur siðustu könnunum Gallup. Óánægðir voru 35%, en 15% tóku ekki afstöðu. lOOOsaknað Kalkutta. ÓTTAST er að um 1.000 manna hafa drukknað þegar mikið hvassviðri sökkti um 100 salt- flutningahátum á Bengal-flóa í sfðustu viku. 16 fórust í eldsvoða Massachusettes. SEXTÁN manns fórust í elds- voðum í Lawrence í Massa- chusettsfylki og New York- fylkl á sunnudagsmorgun. Meðal þeirra sem létust var móðir og fimm börn hennar. 5 bœndur féllu Nýju Dehlí. FIMM hændur féllu fyrir kúlum lögreglu á Suðurlnd- landi á sunnudag. Lögregla hóf skothríð þegar bændur sem voru í mótmælagöngu neituðu að leysa upp fund sinn. Bændurnir voru að mótmæla handtöku leiðtoga landssam- taka bænda. Skipshöfn bjargað Canberra. ÁHÖFN norsks flutningaskips hjargaði á mánudag áhöfn og farþcgum grfsks flutninga- skips undan vesturströnd Astralíu. Kviknað hafði í skip- inu og það oltið á hliðina skömmu síðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.