Morgunblaðið - 24.06.1978, Page 3

Morgunblaðið - 24.06.1978, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1978 Formaður sjómannadeildarinnar á Ólafsfirði: Pétur verður áð fara á þing” svo við missum ekki þau ítök sem við sjómenn höfum haft GÍSLI Friðriksson formaður sjómannadeildar Ólafsfjarðar, sem var í framboði fyrir vinstri menn til sveitarstjórnar þar, segir að Pétur Sigurðsson verði að halda sæti sínu á þingi. „Ef við sjómenn missum þau sterku ítiik sem við höfum haft á Alþingi fyrir tilstuðlan Pét- urs Sigurðssonar, þá er illa komið fyrir okkur, þar sem enginn verður þá inni sem hægt er að ræða við sem sjómann. Pétur hefur verið okkur sjómönnum sérstaklega þarfur á þingi og má nefna sem lítið dæmi frumvörp hans um tilkynningaskylduna og um gúmbjörgunarbáta. — Því verður Pétur „absolut“ að fara á þing næsta kjörtímabil,“ sagði Gísli Friðfinnsson, for- maður sjómannadeildar Ólafs- fjarðar, í stuttu viðtali við Mbl. um sfðustu helgi. „Það var mjög slæmt þegar prófkjörið fór fram fyrir sunnan að mörgum sjómönnum gafst ekki kostur á að taka þátt í því, Gfsli Friðfinnsson t.d. sjómönnum á millilanda- skipum, en á þetta hefur mikið verið deilt í dagblöðunum. Pétur hefur hjálpað sjómönn- um afar mikið og við þá aðstoð sína hefur hann aldrei látið pólitíska afstöðu sína ráða. Já, það er ekki hægt að neita því að Sjálfstæðisflokkurinn hefur fylgt landhelgismálinu vel eftir. Eftir að erlendir togarar hafa horfið héðan af miðunum hefur afli fyrir Norðurlandi glæðzt mjög og síðast liðnar tvær vertíðir verið mjög góðar. I fyrstu líkaði mér illa hvernig staðið var að friðun á miðunum en þær aðgerðir hafa breyst mjög til batnaðar. Ráðstafan- irnar um fjölda manna á net núna um páskana voru mjög góðar, en það var engin hemja hvernig þetta var áður.“ — Hvað segirðu um hafnar- aðstöðuna hér á Ólafsfirði og önnur málefni staðarins. „Hafnaraðstaðan mætti vera betri. Fjörðurinn er að grynnast af sandburði þannig að stórátak þarf að gera í höfninni, en okkur hefur verið lofað sanddæluskipi hingað. Hér áður brotnaði báran seinna en í dag. Bæta þarf aðstöðuna fyrir skipin okkar og stór skip, en á döfinni er að bæta aðstöðuna fyrir skuttogar- ana og er það einna brýnast. Samgöngurnar eru hér ekki nógu góðar. Vegsvalir þarf að byggja fyrir Múlann, en við sum gilin eru snjóflóð tíð. Lárus Jónsson hefur mælt fyrir þessu máli, sem er mjög brýnt vegna Pétur Sigurðsson hættunnar sem þarna er á ferðum. Vegurinn yfir Lágheið- ina er í ólestri. Hann er niðurgrafinn, var lagður á sín- um tíma á sem auðveldastan hátt, því er þörf á að hefja endurbætur á honum. Varðandi tannlæknaþjónustu þá hefur hún verið mikið vanda- mál hérna hjá okkur. Það er illt fyrir börnin að hingað fást ekki tannlæknar, en tannlæknastól- arnir sem við höfum eru úr sér gengnir og tannlæknar líta ekki við þeim. Þó er það mál komið á nokkurn rekspöl, en slysa- varnadeild kvenna hér hefur veitt milljón króna lán úr eigin sjóði til kaupa á stól. Kostnaður af ferð suður til tannviðgerða er mikill og á Akureyri er erfitt að komast að, svo þetta hefur verið töluvert vandamál fyrir okkur Ólafsfirðinga. „Flokka- flæking- ar” sækja í framboð á Aust- urlandi í KOSNINGABARATTUNNI í Austur- landskjördæmi hefur athygli beinzt að Því, að „flokkaflækingar“ sækja mjög í framboð í pví kjördæmi. Frambjóðandi Alþýðuflokksins í Aust- urlandskjördæmi er nú Bjarni Guðna- son, prófessor, sem á að baki fjölbreytilegan stjórnmálaferil. Talið er, að Alpýðuflokkurinn sé fimmti stjórnmálaflokkurinn, sem Bjarni Guðnason á aðild að eða styður. í upphafi mun hann hafa stutt Samein- ingarflokk alpýðu—Sósíalistaflokk- inn, pá Þjóðvarnarflokkinn, síðan Samtök frjálslyndra og vinstri manna, eftir Það Frjálslynda flokkinn og nú Alpýðuflokkinn. I síöustu kosningum var annar „flokkaflækingur" í framboöi á Aust- fjörðum, Ólafur Ragnar Grímsson, prófessor. í upphafi var hann flokks- bundinn í Framsóknarflokknum og áhrifamaður þar. Síðan fór hann í framboð fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna og Mööruvallahreyfing- una í kosningunum 1974 og þá í Austurlandskjördæmi. Nú er Ólafur Ragnar í framboði fyrir þriöja stjórn- málaflokkinn, sem hann á aðild aö, Alþýöubandalagiö og aö þessu sinni í Reykjavík. Lúðvík Jósepsson um stjórnarmyndun: Meginskilyrði að febrúarlögin verði numin úr gildi „ÉG ER ekki tilhúinn til þess að ræða neina möguleika á stjórnarmyndun eftir kosningar, því að íyrst þurfa ákveðnar forsendur að liggja fyrir,“ sagði Lúðvík Jósepsson, alþingismaður og formaður Alþýðubandalagsins í gær er Morgunblaðið spurði hann, hvort Alþýðubandalagið myndi gera að skilyrði fyrir stjórnarmyndun eftir kosningar, að febrúarlögin yrðu numin úr gildi og fullar vísitölubætur greiddar. » „Hins vegar get ég svarað hinu algjörlega afgerandi,“ sagði Lúð- vík, „að við munum setja það sem meginskilyrði að þessi lög verði numin úr gildi. Það er ljóst, að það er meginskilyrði fyrir þátttöku okkar í ríkisstjórn. Afleiðingar af því verða þá auðvitað, að þeir samningar, sem eru í gildi verða að gilda. Með því erum við þó ekki að segja neitt um afstöðu okkar til þeirra samninga, sem kunna að hafa verið gerðir." í sjónvarpsþætti fyrir nokkrum kvöldum sagði Lúðvík Jósepsson, að sér fyndist eðlilegt að verka- lýðsflokkarnir hefðu samstöðu vegna þeirra miklu deilna, sem uppi hafi verið um launamálin og samstöðu þeirra í þeim málum. Morgunblaðið spurði Lúðvík, hvort þar ætti hann við Sjálfstæð- isflokkinn, þar sem hann væri næststerkasti stjórnmálaflokkur- inn á t.d. Alþýðusambandsþingum. „Nei það sem ég á þar við eru Alþýðuflokkur og Alþýðubanda- lag. Ég á eingöngu við þessa tvo flokka, þegar ég tala um þá sem verkalýðsflokka. Mér er hins vegar alveg ljóst, að það eru margir menn í forystuliði verkalýðsfélaga í Sjálfstæðisflokknum og Fram- sóknarflokknum, en þrátt fyrir það kalla ég þá ekki verkalýðs- flokka," sagði Lúðvík Jósepsson. Þá lagði Morgunblaðið þá spurn- ingu fyrir Benedikt Gröndal, formann Alþýðuflokksins, hvort flokkur hans myndi setja það skilyrði fyrir stjórnarmyndun að febrúarlögin yrðu afnuminn og greidd yrði óskert vísitala. „Alþýðuflokkurinn hefur mark- að þá stefnu, að það beri að greiða fullar vísitölubætur á laun, en hins vegar höfum við ekki lagt fram ákveðnar tillögur um hvernig eigi að gera það. Reykjavíkurborg hefur nú samið við sína starfs- menn um greiðslu vísitölubóta í áföngum," sagði Benedikt Gröndal formaður Alþýðuflokksins þegar Morgunblaðið spurði hann hvort Alþýðuflokkurinn myndi setja það. sem algjört skilyrði við stjórnar- myndun að fullar vísitölubætur yrðu greiddar strax á laun. „Ég hef ekki svarið á reiðum höndum, en Alþýðuflokkurinn hefur sitt markmið í þessu máli. Aðstæðurnar verða að ráða því hversu snöggt er hægt að koma fullum verðbótum á launin." Ljósmyndi Varnarliðið Rússar stórauka njósnaflug til íslands MIKIL aukning hefur orðið und- anfarna daga á flugi rússneskra hervéla til íslands. Oftast koma þær ein og ein í senn en síðustu daga hafa þær iðulega komið tvær saman. Sl. fimmtudag hafði varnarliðið afskipti af rússnesku ' vélunum í 100. sinn frá áramótum og var þá þessi mynd tekin af tveimur sprengjuvélum af Bjarnar-gerð í njósnaflugi til íslands. Þann 13. júní sl. höfðu þotur varnarliðsins alls flogið 60 sinn- um í veg fyrir rússnesku vélarn- ar, en upp úr því stórjukust íslandsferðir þeirra. A sl. 10 dögum hefur varnarliðið þurft að hafa afskipti af þeim fjörutíu sinnum til viðbótar. Kaupmáttur ráðstöfunartekna: Hærri hjá elli- og örorkulifeyrisþegum og verkamönnum en nokkru sinni fyrr • KAUPMÁTTUR ráóstöfunar- tekna elli- og örorkulífeyrispega hefur frá árinu 1970 hækkað um 160%. Kaupmáttaraukning verkamannakaups er á sama tíma 60%. Þessar hækkanir hafa orðið á sama tíma og pjóðartekj- ur hafa hækkað um 35%. Þá hafa ráðstöfunartekjur almennings hækkað á Þessum tíma um 47%. • Á síðastliðnu hálfu priðja ári hefur lífeyrir aldraöra í verkalýðs- félögum almennt sjöfaldazt. Þeir lifeyrisÞegar, sem fengu um 8.000 krónur í ársbyrjun 1975 fá nú um 52 Þúsund krónur mánaðarlega. Ástæður Þessa er samkomulag, sem varð milli aðila vinnu- markaöaríns og bráðabirögalög, sem ríkisstjórnin setti í kjölfar samninganna. • Kaupmáttur ráðstöfunar- tekna verkamannalauna er nú 2% til 3% hærri en hann hefur nokkurn tíma áður orðið. Hæsta mark, sem pessi kaupmáttur náöi, var á árinu 1974. Framan af árinu í ár var kaupmáttur launa 15% til 16% meiri en hann var fyrir kjarasamingana í fyrra og Lífeyrir hefur sjöfaldast hann veröur nokkuð stöðugur út Þetta ár eða um 6% meiri en á öllu árinu í fyrra. Aukning kaup- máttar á tveimur árum er um 16% til 17%. • Efnahagsráöstafanir ríkis- stjórnarinnar, sem gerðar voru í febrúar og aftur í maí, voru launajöfnunarstefna í reynd, par sem láglaunum voru tryggöar mestar hækkanir en hátekjufólk Framhald á bls. 26.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.