Morgunblaðið - 24.06.1978, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1978
5
Viðgerð á Rauðanúp
lýkur í næstu viku
SKUTTOGARINN Rauðinúpur
var tekinn niður úr slipp í
gærkvöldi, en þangað fór hann
19. apríl s.l. eftir strandið við
Raufarhöfn og hófst viðgerð 5.
ntaí.
Gunnar H. Bjarnason fram- ■
kvæmdastjóri Stálsmiðjunnar
h.f. sem annast viðgerðina á
Rauðanúp ásamt vélsmiðjunum
Hamri og Héðni, sagði Mbl. að
auk botnviðgerðarinnar hefðu
fyrirtækin tekið að sér viðgerð
á tveimur eldri síðuskemmdum
fyrir um 11.8 milljónir króna,
þannig að heildarviðgerðar-
kostnaður yrði 63—64 milljónir
króna.
Gunnar sagði að stefnt væri
að því að viðgerð á skipinu lyki
í næstu viku og að fyrirtækin
gætu afhent hann eigendum
aftur laugardaginn 1. júlí.
Rauðinúpur sjósettur í gær. Ljósm. Mbl.i Kristinn.
Hreppsnefndarkosn-
ingar í 168 hreppum
HREPPSNEFNDIR verða kosnar í
168 hreppum á sunnudaginn. í 153
hreppum eru hreppsnefndarkosn-
ingarnar óhlutbundnar, en í 15
hreppum veröa listakosningar sam-
kvæmt upplýsingum Sambands
íslenzkra sveitarfélaga.
I Kjalarneshreppi eru framboðslist-
ar tveir; H-listi óháöra og launafólks
og J-listi lýðræðissinna. I Laxárdals-
hreppi eru þrír listar; B-listi Fram-
sóknar og annarra vinstri manna,
D-listi Sjálfstæöismanna og óháðra
kjósenda og G-listi Alþýöubanda-
lags. I Svarfaöardalshreppi eru tveir
listar; l-listi borinn fram af 15
kjósendum og H-listi Framsóknarfé-
lags Svarfaöardals og óháðra kjós-
enda. í Hálsahreppi S-Þing. eru tveir
listar; l-listi lýöræöissinnaöra kjós-
enda og H-listi óháöra kjósenda. í
Ljósavatnshreppi S-Þing eru listarnir
L-listi og M-listi, í Aöaldælahreppi
H-listi og l-listi, í Tjörneshreppi H-listi
utanflokka og l-listi utanflokka, í
Skútustaðahreppi eru H-listi, l-listi og
S-listi, í Vopnafjarðarhreppi eru
B-listi Framsóknarmanna, D-listi
Sjálfstæöisflokks, G-listi Alþýöu-
bandalags og H-listi óháðra. í
Hvammshreppi — Vík í Mýrdal, eru
D-listi Sjálfstæöisflokksins og H-listi
vinstri manna og óháðra, í Dyrhóla-
Framhald á bls. 26.
Frá fundinum í Hnífsdal.
Sjálfstæðismenn á Vestfjörðum:
Þekki varla ann-
an eins einhug
— segir Guðfinnur Magnússon
„ÞETTA haía allt verið mjög
góðir fundir. Ég er nú búinn að
flækjast í þessu allt frá 1949 og
ég þekki varla annan eins einhug
og þann sem nú ríkir,“ sagði
Guðfinnur Magnússon á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins á ísa-
firði í samtali við Mbl. í gær, en
í fyrrakvöld héldu stuðnings-
menn D-listans fund í Hnífsdal og
sagði Guðmundur að um 250
manns hefðu sótt fundinn og var
„troðfullt hús“.
Hólmavík, Patreksfirði og Reykja-
nesi, en fundurinn í Hnífsdal var
fyrir íbúa ísafjarðarsýslnanna,
Bolungarvíkur og ísafjarðar.
Á fundinum í Hnífsdal töluðu
Matthías Bjarnason, sjávarútvegs-
ráðherra, þingmennirnir Þorvald-
ur Garðar Kristjánsson og Sigur-
laug Bjarnadóttir og Guðmundur
H. Ingólfsson, Isafirði.
í dag klukkan 14 efnir Matthías
Bjarnason til hringborðsumræðna
fyrir sjómenn og útgerðarmenn í
húsakynnum Norðurtanga á Isa-
firði.
Axel Jónsson og Guðni Stefánsson:
iskoran tíl Kópavogsbna
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt eftirfarandi áskor-
un frá Axel Jónssyni
alpingismanni og bæjar-
fulltrúa í Kópavogi, sem
var í 1. sæti D-lista
Sjálfstæöisflokksins viö
byggðakosningarnar, og
Guðna Stefánssyni bæj-
arfulltrúa, sem var í 1.
sæti S-lista Sjálfstæöis-
fólks.
Vinstri stjórn undir for-
ystu Alþýöubandalagsins
er tekin viö í Kópavogi. í
tveimur fjölmennustu
byggöum landsins,
Reykjavík og Kópavogi,
eru vinstri stjórnir undir
forystu Alþýðubandalags-
ins eftir byggöakosning-
arnar. Og báöar hafa þær
svikið kosningaloforöiö al-
ræmda; „Samningana í
gildil". Þessar staðreyndir
Axel Jónsson
eru vísbendingar um þaö,
sem koma skal í landsmál-
unum, ef vinstristjórnar-
flokkarnir sigra í þing-
kosningunum á morgun.
Guóni Stefánsson
Viö skorum á alla Kópa-
vogsbúa að taka ákvörö-
un á morgun af ábyrgöar-
kennd, hugsa um þessar
staöreyndir af fullri alvöru.
í þingkosningunum á
morgun er kosið um stjórn
undir forystu Sjálfstæöis-
flokksins og vinstri stjórn
undir forystu Alþýöu-
bandalagsins, þaö er kos-
iö um variö land eöa
varnarlaust, um samvinnu
eöa sundrung í glímunni
viö verðbólguvandann.
Sérhvert atkvæði, sem
greitt er öörum flokkum
en Sjálfstæðisflokknum,
er í rauninni krafa um
vinstri stjórn undir forystu
Alþýðubandalagsins.
StórFeLI(I
VERÖl/EkkuN
Vörubíktjórar athugió — vió höfum takmarkaóar
birgdir af hinum vióurkenndu BARUM vörubíla-
hjólbördum til afgreióslu nú þegar á ótrúlega
lágu verói
1200X20/18 verðkr.
1100X20/16 verófrákr
1000X20/16 ------
900X20/14 -----
825X20/14 -----
89.350
72.500
67690
61.220
47920
JÖFUR hf
AUÐBREKKU 44-46 - KÓPAVOGI
- SÍMI 42600
Aðrir slíkir fundir hafa verið á