Morgunblaðið - 24.06.1978, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1978
19
Kommúnistaflokkur íslands:
„Alþýðubandalagsforystan
hefin*með ráðnum hug notfært
sér kjarabaráttu íslensks
verkalýðs í eigin tilgangi”
„Verkalýðsforingjar Alþýðu-
bandalagsins létu hátt í vetur
þegar kaupránslögin voru sett
og kröfðust: SAMNINGANA í
GILDI. Nú hafa þessir sömu
forkólfar varla orðaforða til að
lýsa með ánægju sinni með
ákvörðun borgarstjórnarinnar
og ekkert heyrist lengur minnst
á að samningana eigi að fá í
gildi. Sannleikurinn er sá að
Alþýðubandalagsforystan hefur
með ráðnum hug notfært sér
kjarabaráttu íslensks verkalýðs
í eigin tilgangi, þeim tilgangi að
afla sjálfri sér ráðherrastóla og
feitra embætta innan ríkis-
valdsins. íslensk verkalýðsstétt
hefur einskis að vænta úr hendi
Alþýðubandalagsins og verka-
lýðsforingja þess nema svika og
aukins kaupráns. Verkalýðs-
stéttin verður að taka upp
sjálfstæða baráttu með virkri
þátttöku alls þorra verkalýðsins
ef einhvers árangurs á að vænta
úr baráttunni."
Þannig er komist að orði í
leiðara Stéttabaráttunnar, mál-
gagni Kommúnistaflokks Is-
lands, Marxista — Lenínista en
sá flokkur býður nú fram við
alþingiskosningarnar á sunnu-
dag í Reykjavík undir bókstafn-
um K. í leiðaranum segir að að
undanförnu hafi landsmenn
fengið að heyra útlistanir
stjórnmálaflokkanna, „þar sem
hver kennir öðrum um hvernig
í pottinn er búið í íslensku
efnahagslífi í dag. Einna hæst
hefur galað Alþýðubandalagið,
sem hefur nú að eigin sögn
grafið upp úr pússi sínu hinar
einu sönnu og óbrigðulu lausnir
á efnahagsvandanum."
í framhaldi af þessum orðum
er í leiðaranum spurt, við hverju
megi búast eftir kosningar og
bent á að menn þekki aðgerðir
ríkisstjórnarinnar og aðferðir
hennar til að leysa vandamálin.
Þá er spurt, „er einhvers annars
og betra að vænta frá Alþýðu-
flokknum og Alþýðubandalag-
inu? Svar okkar er hiklaust
neitandi. Við höfum nú þegar
fyrir okkur stikkprufu af því
sem koma skal ef þessir flokkar
komast í rikisstjórn. Þessa
stikkprufu höfum við úr aðgerð-
um nýja borgarstjórnarmeiri-
hlutans, þar sem mörkuð var
stefnan um áframhaldandi
kauprán í fótspor íhaldsstjórn-
Undir lok leiðarans segir:
„Kosningar eru ekki kjarabar-
átta en þingmenn geta veitt
stuðning baráttu verkalýðsins
með starfi sínu á Alþingi.“
Neisti blað Fylkingarinnar,
sem einnig býður fram til
Alþingis í Reykjavik undir
bókstafnum R, segir í forsiðu-
grein að nýkjörinn meirihluti í
borgarstjórn Reykjavíkur hafi
séð til þess að krafan „Samning-
ana í gildi" var bara krafa,
táknræn mótmæli að sögn
verkalýðsforystunnar (nema
BSRB). Grein þessi ber fyrir-
sögnina: „Verða kjarabætur
eftir í kjörkössunum?"
Sveinn Björnsson nja mynd sinni
„Þeir hala veitt hval“.
(myndi Ól.K.Mag.)
Sveinn Bjömsson með
sýningu í Norræna
húsinu og í Bogasal
31. umdæmisþing
Rotaryklúbbanna
haldið á Þingvöllmn
Stefán frá
Möðrudal
sjötugur
STEFÁN Jónsson listmálari frá
Möðrudal er sjötugur í dag, 24.
júní. Stefán er löngu þekktur
maður. Um hann hefur Ólafur
Runólfsson þetta ort, en hann
vann með listamanninum í Breta-
vinnu á Heiðarfjalli hér fyrr á
árum.
Mikið hvað sá maður getur,
málar bæði haust og vetur,
fagrar listir mjög hann metur,
margir tigna verkin hans.
Vorleik upp á voð hann færði,
varla nokkur á sér bærði,
fyrr en löggan kom og kærði,
kunnast verk þess listamanns.
ÍSLENZKU. Rotaryklúbbarnir
munu halda 31. umdæmisþing sitt
og fræðslumót í Valhöll á Þing-
völlum dagana 23.-25. júní n.k.
Allmargir erlendir gestir munu
sækja þingið, þar á meðal verða
fulltrúar frá Rotary International
og fulltrúi Rotaryklúbba á
Norðurlöndum. Leiðbeinandi á
fræðslumótinu er Eve Malmquist
frá Svíþjóð.
Núverandi umdæmisstjóri Rot-
ary er Jón R. Hjálmarsson, félagi
í Rotaryklúbbi Rangæinga, Hvols-
velli. Kristinn G. Jóhannsson í
Rotaryklúbbi Ólafsfjarðar mun
taka vlð umdæmisstjórn á þing-
inu.
Brotizt inn
hjá Æskunni
BROTIZT var inn í Bókabúð
Æskunnar Laugavegi 56 í Reykja-
vík í fyrrinótt og peningakassar
verzlunarinnar tæmdir, en ekki lá
fyrir í gær hversu mikil upphæð
hafði verið í þeim. Þá var farið um
allt hús í frekari leit að fjármun-
um en ekkert hafðist upp úr henni.
Rotaryklúbbar á landinu eru nú
22 með um 850 félaga samtals.
Sveinn Björnsson er nýkominn
heim frá Danmörku þar sem hann
hélt stóra málverkasýningu. Laug-
ardaginn 24. júní opnar hann
sýningu á hluta af þeim myndum,
sem hann sýndi í Danmörku.
Myndir hans eru margar mjög
stórar svo ekki nægir honum einn
Steingrímur
sýnir á
ísafirði
STEINGRÍMUR Sigurðsson list-
málari Hvilft I, Önundarfirði,
opnar í dag 37. málverkasýningu
sína í sjálfstæðishúsinu Uppsölum
á Isafirði.
Steingrímur sýnir þarna 21
mynd sem að mestu eru málaðar
úti á sjó í vikuútilegu fyrir
Vestfjörðum og tileinkar Stein-
grímur sýninguna bátnum ÍS 13,
sem hann fór með, og skipstjóran-
um Rafni Oddssyni og konu hans.
Sýningin verður opin til klukkan
23 í kvöld og frá 10—23:30 á
morgun.
Kvenfélagið verður með kaffi-
veitingar í sambandi við sýning-
salur, hann verður því með myndir
bæði í kjallara Norræna hússins
og í Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Alls eru 74 myndir á sýningunni,
54 í Norræna húsinu og 20 í
Bogasalnum. Þetta eru myndir
sem Sveinn hefur gert á síðustu
tíu árum, en hann hefur verið að
mála í 30 ár. Má segja að þetta sé
30 ára afmælissýning Sveins. Á
sýningunni eru olíumálverk, olíu-
patel og vatnslitamyndir.
Sveinn er skipstjóri að mennt,
en eitt ár var hann við Akademí-
una í Kaupmannahöfn og kynnti
sér málaralist. Kynni Sveins við
sjóinn koma fram í sumum verk-
um hans og mikið er um huldufólk.
Sýningin stendur til 3. júlj. Hún
er opin frá kl. 14—22 um helgar,
en virka daga frá kl. 16—22.
Kosninga-
skrifstofa á
Eyrarbakka
SJÁLFSTÆÐISMENN á Eyrar-
bakka verða með kosningaskrif-
stofu í Dagsbrún á kjördag og er
síminn 99-3289.
Uppsafnaður söluskattur;
Síðustu greiðslur
frá f jármálaráðu-
neyti þessa dagana
„ÉG GERI ráð fyrir því að við
ljúkum við að ganga frá
greiðsluskjölum í dag og þá eru
tilbúnar síðustu greiðslurnar
af uppsöfnuðum söluskatti frá
1977, en við höfum verið að
senda greiðslurnar til fyrir-
tækja eftir því sem við höfum
komið í verk að undirbúa
greiðsluskjöl,“ sagði Höskuld-
ur Jónsson ráðuneytisstjóri í
fjármálaráðuneytinu í samtali
við Mbl. í gær. Sagði Höskuld-
ur að samtals væri um 275
milljónir króna að ræða og
væri meðaltalið 3,6% af útflutn-
ingsverðmæti viðkomandi fyr-
irtækis, en meðaltalið fyrir
hverja iðngrein væri á bilinu
1-5%.
Þessar greiðslur eru í fram-
haldi af yfirlýsingu fjármála-
ráðherra Matthíasar Á. Mathie-
sen í fjárlagaræðu á Alþingi á
sl. hausti. Höskuldur sagði, að
1975, þegar slíkar greiðslur
fóru fram vegna uppsafnaðs
söluskatts 1974, hefði verið
notuð svokölluð 2,5% meðaltals-
regla, en nú hefði verið reiknað
út meðaltal fyrir hverja iðn-
grein fyrir sig og væru þau á
bilinu 1—5%. Sagði Höskuldur
að kísilgúriðnaðurinn fengi
mest en einnig væri ullar- og
skinnaiðnaðurinn fyrir ofan
meðallag, en meðaltal allra
iðngreina væri 3,6%.