Morgunblaðið - 24.06.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1978
31
„Iðnkynning inn á við”
Félag islenzkra iðnrekenda hefur tekið
upp þá nýbreytni að halda fræðslunám-
skeið fyrir félagsmenn sína á sviði
markaðsmála og fleiri þátta og hafa þeir
nefnt þessi námskeið „Iðnkynning inn á
við“. Námskeið þessi eru haldin í samráði
við ráðgjafafyrirtækið Hagvang. Að sögn
Péturs Sveinbjarnarsonar framkvæmda-
stjóra FÍI þá er þetta tilraun hjá félaginu
og gefist hún vel er í bígerð að halda áfram
á þessari braut.
A fyrra námskeiðinu voru mættir nokkrir
forsvarsmenn iðnfyrirtækja, sem ræddu um
markaðsstöðu íslenzks iðnaðar. — Á hinu
síðara voru mættir auk forsvarsmanna
iðnfyrirtækja nokkrir kaupmenn og fulltrú-
ar neytenda. Þar var rætt um samstarf
þessara aðila almennt, og lögð fram
sýnishorn af framleiðsluvöru þessara fyrir-
tækja þar sem rökrætt var um gæði, verð,
umbúðir og fleira. Bæði þessi námskeið
stóðu yfir í V2 dag.
Þessu var síðan fylgt eftir með heimsókn
í fyrirtækin og framleiðsluaðferðir og annað
skoðað og síðan fóru fram umræður.
Markmiðið með þessari tilraun er að hafa
áhrif á söluhlutdeild íslenzkra iðnaðarvara,
svo sem með kynningarstarfi, vöruþróun og
breyttum söluaðferðum. — „Þetta er
viðleitni í þá átt að styrkja tengslin milli
neytenda, kaupmanna og framleiðenda og að
tryggja aukna hlutdeild íslenzkrar iðnaðar-
vöru,“ sagði Pétur ennfremur.
Frá seinna námskeiðinu. þar sem ma'ttir voru íorráðamenn iðnfyrirtækja. kaupmenn og fulltrúar
neytenda...
Aukin fyr-
irgreiðsla
vegna olíu-
leitar í lög-
sögu Norð-
manna
í VIÐTALI við Bjartmar
Gjerde, olíu- og orkumála-
ráðherra Noregs, fyrir
skömmu, kom fram að Norð-
menn hyggjast í framtíðinni
veita erlendum fyrirtækjum,
sem hyggja á olíuvinnslu í
norskri lögsögu, aukna fyr-
irgreiðslu og aukin leyfi til
athugana.
Þá kom það fram að Gjerde
mundi hitta Anthony Wedge-
wood Benn orkuráðherra
Breta til að ræða frekari
samvinnu landanna um
vinnslu á landgrunni Norð-
manna. Búist er við því að
breski ráðherrann fari fram
á að Bretar fái frjálsar
hendur með athuganir á
svæðum í norsku lögsögunni
í Norðursjó, en þegar hafa
verið haldnir nokkrir fundir
vegna þeirra deilna. Einnig
munu ráðherrarnir ræða
saman um ýmis öryggismál
varðandi olíuvinnsluna í
Norðursjó.
— Verðlags-
loggjof
Framhald af bls. g
anda aðila til að tilkynna stofn-
uninni verðhækkanir.
Reynist samkeppni takmörkuð,
eins og nánar er tilgreint í IV.
kafla, eða samkeppni er ekki
nægileg til að tryggja sanngjarnt
verðlag eða horfur eru á ósann-
gjarnri þróun verðlags og álagn-
ingar, getur verðlagsráð ákveðið
eftirtaldar aðgerðir til að ná því
takmar.ki, sem getur í 1. gr.:
1. Hámarksverð og hámarks-
álagningu.
2. Gerð verðútreikninga eftir
ákveðnum reglum.
3. Verðstöðvun í allt að sex
mánuði í senn.
4. Aðrar reglur um verðlagningu
og viðskiptakjör, sem verðlagsráð
telur nauðsynlegar hverju sinni.
Hér fær verðlagsráð mun víð-
tækara vald en það hefur í
gildandi lögum til afskipta af
verðlagsmálum. Fjórði töluliður
gefur ráðinu nánast vald til þess
að gera hvað sem er, hvenær sem
er. Hins vegar er í 1. málsgrein
gefin viðmiðunarregla fyrir verð-
lagsráð að fara eftir í ákvörðunum
sínum, en engin leið er fyrir
verðlagsnefnd að geta sér til í dag,
hvernig gildandi lög ætlast til að
ákvarðanir um verðlagsákvæði
skuli teknar. Á því verður hins
vegar engin breyting — það er
verðlagsráð sem ákveður verðlags-
ákvæði og samkvæmt eigin mati,
hvort ástæða sé til að hafa slík
verðlagsákvæði. Þá falla úr gildi
fjölmörg úrelt lög um verðlagsmál
og einkasölur, m.a. á steinolíu, sem
eru frá 1917.
Þá er sérstakur bálkur um
samkeppni. Tilgangur sam-
keppnislöggjafar er að vernda
kaupendur gegn því að seljendur
bindist samtökum á markaði til
þess að ná fram hærra verði, betri
greiðsluskilmálum fyrir seljendur
eða útiloka samkeppnisaðila. Sam-
keppnislöggjöfin kemur fyrirtækj-
um ekkert til góða, nema að því
leyti, sem þau eru einnig kaupend-
ur á almennum markaði, hvort
heldur er að hráefnum eða
fullunnum vörum. í kaflanum um
óréttmæta viðskiptahætti eru
ýmis lagaákvæði, sem unnin eru
upp úr neytendalöggjöf annarra
Norðurlanda og þau sett saman
við gildandi lög um varnir gegn
óréttmætum verzlunarháttum,
sem sett voru árið 1933 fyrir
frumkvæði Verzlunarráðs íslands.
Þóttu þessi lög einskorðast um of
við hagsmuni fyrirtækja.
— Eini flokkurinn
sem hvetur ein-
staklinginn...
Framhald af bls. 25
fjarlægð, sagði þessi maður og
það var þungi í hverju orði:
„Ef við lítum til fugla himins-
ins sjáum við að þar eru alltaf
einhverjir sem fljúga hærra en
allir hinir. Það er skylda okkar
að leyfa þeim sem vilja fljúga
hærra að gera það, vegna þess
að það sem þeir bera úr býtum
er landi og þjóð ómetanlegur
fengur. í guðs bænum haldið
ekki aftur af þeim, heldur
þvert á móti hvetjið þá til
dáða.“
Hafi einhverjir efast um, um
hvað þessar kosningar snúast,
þá hafa úrslit borgar- og sveit-
arstjórnakosninganna tekið af
allan vafa. Við stöndum frammi
fyrir vali milli frelsis og sósíal-
isma.
Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum: ‘
VERÐTRYGGÐ SPARISKIRTEINI
RIKISSJOÐS:
Kaupgengi Yfirgengi
Pt kr. 100- miöað viö
innlausnar-
verð Seðla-
bankans
1967 2. flokkur 2530.14 36.9%
1968 1. flokkur 2204.09 21.2%
1968 1. flokkur 2072.72 20.5%
1969 1. flokkur 1545.55 20.6 %
1970 1. flokkur 1420.83 57.9 %
1970 2. flokkur 1037.25 20.7 %
1971 1. flokkur 977.04 56.8 %
1972 1. flokkur 851.48 20.8 %
1972 2. flokkur 728.84 56.8 %
1973 1. flokkur A 560.28
1973 2. flokkur 517.84
1974 1. flokkur 359.68
1975 1. flokkur 294.07
1975 2. flokkur 224.42
1976 1. flokkur 212.43
1976 2. flokkur 172.50
1977 1. flokkur 160.52
1977 2. flokkur 134.20
VEÐSKULDABRÉFX:
Kaupgengi
Pr- kr. 100-
1 ár Nafnvextir: 26% 79-
2 ár Nafnvextir: 26% 70-
3 ár Nafnvextir: 26% 64-
x) Miðaö er við auðseijanlega fasteign.
Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum:
HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF
RÍKISSJOÐS: Sölugengí
pr. kr. 100-
1974 — D 388.22 (10% afföll)
1974 — E 274.73 (10% afföll)
1974 — F 274.73 (10% afföll)
1975 — G 171.57 (19.3% afföll)
HLUTABREF:
Verslunarbankinn Kauptilboð óskast
NÁRPCninGARPCIAG ÍÍIAODJ HP.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Lækjargötu 12 — R (iSnaðarbankahúsinu)
Sími 2 05 80.
Opið frá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga. •í