Morgunblaðið - 22.08.1978, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978
0
INNLENT
Moka Norðmenn
upp íslandsloðnu
við Jan Mayen?
NÚ MUNU um 10—15 norskir hringnótabátar vera á
leiðinni á loðnumið um 15—20 sjómflur vestur og
suðvestur af Jan Mayen eftir að norskur bátur fékk þar
nýverið rösklega þúsund tonn af loðnu. Fyrirsjáanlegt
þykir að fái þessir bátar góðan afla muni um 50 norskir
loðnubátar halda á miðin, en samkvæmt norskum
heimildum er þarna loðna á ferð af sama stofni og sú
sem veiðist hér við land. Þessar veiðar geta því skipt
íslendinga töluverðu en af hálfu stjórnvalda hér er beðið
nánari fregna af þessum veiðum.
Samkvæmt fréttum, sem Mbl.
hefur frá Noregi, á norskur
hringnótabátur að hafa mokað
upp loðnu rétt við Jan Mayen fyrir
fáeinum dögum. Fékk hann 13
þúsund hektólítra í 11 köstum á
þremur dögum, og þegar þessi
tíðindi spurðust til Noregs héldu
þegar í stað milli 10 og 15
hringnótabátar á þessi mið. Búizt
er við að 50 loðnubátar til
viðbótar þyrpist á miðin ef veiðar
þessara báta takast vel, og haft er
eftir fiskimálastjóra Norðmanna
að loðnan, sem þarna fæst, sé af
sama stofni og íslendingar hafa
verið að veiða úr en ekki af þeim
stofni sem Norðmenn hafa gengið
í en hann er úr Barentshafi.
Að sögn Jakobs Jakobssonar
fiskifræðings má gera ráð fyrir að
veiðist loðnan vestur eða suðvest-
ur af Jan Mayen sé hún af
íslenzka stofninum. Hann kvað
íslenzk rannsóknaskip við síldar-
rannsóknir hafa orðið vör við
loðnu á þessum slóðum en aldrei
mjög mikið. Jakob sagði, að væru
Norðmenn þarna að ganga í
íslenzka stofninn þýddi það
einungis að hluturinn, sem við
sjálfir mættum taka úr stofnin-
um, rýrnaði. Þórður Ásgeirsson
skrifstofustjóri kvaðst aðeins
hafa haft lauslegar fréttir af
þessum veiðum en fylgzt yrði með
framvindu þeirra og beðið nánari
upplýsinga frá Norðmönnum.
Þess má geta að ekki hefur verið
gengið frá samkomulagi þjóðanna
um skiptingu fiskveiðilögsögu
milli íslands og Jan Mayen.
Nýr raf-
strengur
tilEyja
UNNIÐ var i gær að því að leggja
nýjan rafmagnsstreng frá landi til
Vestmannaeyja, en Vestmanneying-
ar hafa búið við töluvert öryggis-
leysi í rafmagnsmálum allt frá þvf
fyrir gos, þar sem orðið hefur að
treysta á einn streng.
Norskt kapalskip annast lagningu
kapalsins, en hann er tekinn á land
á nokkuð öðrum stað en strengurinn
sem er fyrir. Lagning kapalsins
sóttist vel í gær, þrátt fyrir erfiðar
aðstæður á köflum, bæði vegna
straums og ójafns botns, en undir
kvöld var kapalskipið komið upp að
Vestmannaeyjum ásamt Lóðsinum,
sem var skipinu til aðstoðar í allan
gærdag. Ljósm. Sigurgeir
Frá útifundinum á Lækjartorgi f gær.
Lúðvík útilok-
ar viðræður við
Sjálfstæðisflokk
„ÉG myndi að sjálfsögðu
ekki neita að bjarga manni,
þótt ég yrði að gera það í
samvinnu við sjálfstæðis-
mann, eða þjóðinni, ef út í
það er farið, þótt það
kostaði samvinnu við Sjálf-
stæðisflokkinn.
Ég segi það
hins vegar að ég tel, að eins
og landið liggur nú séu
mjög litlar líkur til þess að
við og sjálfstæðismenn gæt-
um orðið ásáttir,“ sagði
Lúðvík Jósepsson formaður
Alþýðubandalagsins, er
Mbl. spurði hann hvers
vegna hann útilokaði nú
möguleikann á viðræðum
við Sjálfstæðisflokkinn, ef
upp úr viðræðum við Al-
þýðuflokk og Framsóknar-
flokk slitnaði.
Þegar forsetinn hafði falið
Lúðvík stjórriarmyndun úti-
lokaði Lúðvík ekki þann
möguleika að hann myndi
freista viðræðna við Sjálf-
stæðisflokkinn, ef viðræður
við Alþýðuflokk og Fram-
sóknarflokk leiddu ekki til
árangurs. I gær sagði Lúðvík
hins vegar að ef hann mæti
stöðuna þannig síðdegis í
dag að hann teldi ekki líkur
á því að viðræður Alþýðu-
bandalags, Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks leiði til
stjórnarmyndunar, þá myndi
hann skila umboði sínu til
stjórnarmyndunar aftur til
forseta íslands.
LÝÐRÆÐISSINNUÐ æska, en
það er ungt fólk úr Sjálfstæðis-
flokki, Alþýðuflokki og Fram-
sóknarflokki. stóð í gær fyrir
útifundi á Lækjartorgi og var
ætlunin með honum að minnast
innrásarinnar í Tékkóslóvakíu
fyrir 10 árum og að hvetja til
samstöðu við tékknesku þjóðina í
baráttu hennar fyrir frelsi.
Fundurinn hófst á Lækjartorgi,
framan við Útvegsbanka Islands,
klukkan rétt rúmlega hálfsex, en
skömmu áður hafði hópur fólks
safnast þar saman. Er dagskráin
hófst fjölgaði fundarmönnum til
muna og urðu hátt á annað
þúsund. Vel viðraði á fundarmenn
og ríkti mikill samhugur meðal
þeirra og virtist fólk hlusta á
ræðurnar af athygli.
Dagskráin hófst með því að þrír
tónlistarmenn léku fyrir fólkið, en
það voru þeir Magnús Kjartans-
son, Sigurður Karlsson og Sigurð-
ur Árnason. Tónverkið, sem þeir
léku var sérstaklega tileinkað efni
fundarins. Hófst það á rólegum
kafla og átti hann að sögn
Magnúsar Kjartanssonar að tákna
lífið í Tékkóslóvakíu áður en
innrásin var gerð. Þá kom heilmik-
ið stríð og læti, táknað með
tónlistinni, en það leystist síðan
upp í von og draum fólksins um
frelsi.
Ræðumenn á fundinum voru þau
Finnur Torfi Stefánsson, Jóhanna
Thorsteinsson, Jón Magnússon og
Jón Sigurðsson, en ræður þeirra
Fundarstjóri var Einar Guðfinns-
son nemi.
eru birtar á miðopnu Morgun-
blaðsins í dag. Á fundinum las
Tinna Gunnlaugsdóttir leikari
ennfremur tvö ljóð eftir Stein
Steinarr.
Fundinum barst ályktun frá
Vöku, félagi lýðræðissinnaðra
stúdenta, þess efnis að félagið tæki
heilshugar undir markmið fundar-
ins. Einnig barst fundinum skeyti
frá stjórn Sambands ungra sjálf-
stæðismanna (SUS), þar sem
Tinna Gunnlaugsdóttir
flutti Ijóð.
leikari
sambandið sendi útifundinum lýð-
ræðissinnaðar baráttukveðjur.
Fundarstjóri var Einar Guð-
finnsson nemi og sagði hann í lok
fundarins að hann vonaði að
fundurinn hefði orðið til þess að
efla frelsi og mannréttindi og að
hann mætti verða til þess að auka
skilning íslendinga á þeirri bar-
áttu, sem háð er í heiminum í
þessu efni í dag.
Góð loðnuveiði í gær -
10 skip með 6190 lestir
í FYRRINÓTT lægði á
loðnumiðunum vestur og
norður af landinu og þá
glaðnaði strax yfir loðnu-
veiðinni á ný. Um kl. 15 i
gær höfðu 10 skip tilkynnl
afla samtals 6090 lestir.
Fimm skipanna fóru meí
aflann til Faxaflóahafna og
Vestmannaeyja og þrjú fórvi
til Raufarhafnar. Ekki ei
vitað hvert tvö skipanna
fóru, en þau gátu valið um
að bíða eftir löndun á
Norðurlandi eða sigla til
Austfjarða.
Skipin, sem tilkynntu veiði
í gær, eru: Sigurður RE 135(
lestir, Pétur Jónsson RE 600
Ársæll KE 470, ísleifur VE
400, Kap 2. VE 680, Eldborg
GK 540, Ljósfari ÞH 350
Gígja RE 600, Huginn 570 oj
Hilmir SU 530 lestir.
Vel heppnaður útífund-
ur á Lækjartorgi í gær