Morgunblaðið - 22.08.1978, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978
21
2. deild bikarkeppni FRÍ:
Bikarkeppni FRÍ 2. deild iór fram á Húsavík í
blíðskaparveðri á laugardag og sunnudag. Til leiks
mættu lið írá eftirtöldum samböndum> UMSB, UMSE,
UMSS, HVÍ, UMÞ og HSÞ. Stigakeppnin var mjög hörð
og tvísýn og það var ekki fyrr en í síðustu greininni,
sem HSÞ tókst að tryggja sér sigur.
100 metra hlaup kvenna. Berxþóra
Benónýsdóttir HSb 12.02 sek.
Kúluvarp karla. Páll Dagbjartsson UMSS
13.47 m.
100 m. karla. Jakob Sigurólason HSÞ 11.3
sek.
Hástökk karla. Unnar Vilhjálmsson
UMSB 1.85 m.
400 metra kvenna. Hólmfrídur Erlings-
dóttir UMSE 60.00 sek.
400 m. karla. AÖalsteinn Bergmannsson
UMSE 51.4 sek.
Langstökk kvenna. Oddný Árnadóttir
UMb 5.32 m.
Spjótkast karla. Rúnar Vilhjálmsson
UMSB 57.58 m.
Kúluvarp kvenna. Sigurlín Heiðarsdóttir
UMSE 10.85 m.
1500 m kvenna. Sigurbjörg Karlsdóttir
UMSE 5.11 mín.
1500 m karla. Ágúst Þorsteinsson UMSB
4.37.7 mín.
Spjótkast kvenna. íris Grönfeldt UMSB
43.98 m.
Langstökk karla. Jón Benónýsson HSÞ
6.61 m.
4x100 m. karla. Sveit HVÍ 45.5 mín.
3000 m karla. Ágúst Þorsteinsson UMSB
9.42.7 mín.
100 m. grind kvenna. Bergþóra Benónýs-
dóttir HSÞ 16.2 sek.
Stangastökk karla. Þorsteinn Þórsson
UMSS 3.71 m.
Kringiukast kvenna. Sigurlína lleiðars-
dóttir UMSE 26.40 m.
110 m grind karla. Jón Benónýsson HSÞ
16.00 sek.
800 metra karla. Ágúst Þorsteinsson
UMSB 2.04.5 mín.
200 m kvenna. Bergþóra Benónýsdóttir
HSÞ 26.2 sek.
200 m karla. Jakob Sigurólason HSÞ
23.00 sek.
Hástökk kvennai íris Grönfelt UMSB 1.50
m.
Kringlukast karla. Þór Valtýsson HSÞ
40.41 m.
800 m kvennai Sigurbjörg Karlsdóttir
UMSE 2.28.3 mín.
Þrístökk karla. Rúnar Vilhjálmsson
UMSB 14,00 m.
500 mi Ágúst Þorsteinsson UMSB 16.42.0
mín.
4x100 m kvennai Sveit HSÞ 50.5 sek.
1000 m boðhlaup karla. Sveit HSÞ 2.06.5
mín. IleildarstÍKatalai Stig
HSÞ 123
UMSE 111.5
UMSB 115.5
UMSS 98
UMÞ 83
HVÍ 77
BA.
3. deild bikarkeppni FRI:
EINS og í 2. deildinni var KÍlurlega hörð keppni í 3. deild bikarkeppni
Frjálsíþróttasambandsins. Keppt var á Akureyri og var lið UÍA talið
sigurstranglegast enda árangur liðsins sérlega glæsilegur á landsmóti
UMFÍ á Selíossi í sumar. Lið KA kom þó öllum á óvart og með sigri
í tveimur síðustu greinunum tókst KA að tryggja sér sigur með
tveimur stigum.
Úrslit í þriðju deildinnii
KA
UÍA
HSH
USAH
100 m hlaup karla>
Hjörtur Gfslason KA 11,6 sek.
100 m hlaup karla,
Steindór Helgason KA 53.3 sek.
1500 m hlaup karlai
Steindór TryKgvason UÍA 4.12.2 mín.
5000 m hlaup karla.
Jónas Clausen KA 17.44.6 mín
100 m hlaup kvenna.
SÍKríóur Kjartansdóttir KA 12.5 sek.
800 m hlaup kvennat
Guðrún Sveinsdóttir UÍA 2.27.4 mín.
1000 m boðhlaup karla.
Sveit KA 2.06.3 mín.
4x100 m boðhlaup kvenna.
Sveit KA 52.9 sek.
Stig
55
53
45
37
Langstökk karlat
Sigurður Hjörleifsson HSH 6.25 m.
Hástökk karlai
Stcfán Friðleifsson UÍA 1.90.
Þrístökki
Sigurður lljörleifsson G HSH 12.79 m.
Langstökk kvcnna.
Anna Hannesdóttir UÍA 4.86 m.
Hástökk kvennai
María Guðnadóttir HSH 1.63 m.
Kúluvarp karla.
Pétur Pétursson UÍA 13.86 m.
Kringlukast karla.
Pétur Pétursson UÍA 41.78 m.
Spjótkast karla.
Ingibergur Guðmundsson USAH 54.30 m.
Kúluvarp kvenna.
María Guðnadóttir HSH 10.18 m.
Kringlukast kvenna.
Dýrfinna Torfadóttir KA 30.12 m.
Spjótkast kvenna.
María Guðnadóttir HSH 38.65 m.
HS/ÞR
íslandsmeistarar ÍBK í þriðja flokki 1978.
Keflvíkingar meist-
arar í þriðja flokki
Úrslitaleikurinn í 3. flokki í knattspyrnu fór fram á Selfossi um helgina. Keflavík og Breiðablik sem
skildu jöfn á Húsavik 1 úrslitakeppninni þurftu að endurtaka leik sinn. Keflvikingar sigruðu nú örugglega
4 — 1. Var sigur þeirra sanngjarn og höfðu þeir þó nokkra yfirburði í leiknum.
Framan af var í leiknum jafn-
ræði með liðunum, en smátt og
smátt tóku Keflvíkingar leikinn í
sínar hendur. Jón Gíslason skoraði
fyrsta mark Keflavíkur og eina
mark fyrri hálfleiksins. Breiða-
bliksmenn náðu að jafna í byrjun
síðari hálfleiks. Ólafur Magnússon
kom Keflavík síðan yfir með
fallegu marki, er hann skoraði
eftir mikið einstaklingsframtak.
Jón Gíslason breytti stöðunni í
3—1 og lokaorðið átti svo Sigurður
Isleifsson sem skoraði síðasta
markið með glæsilegum skalla
eftir fyrirgjöf frá Ólafi Magnús-
syni.
Yfirburðir Keflvíkinga voru
augljósir í leiknum. í lokin afhenti
Gylfi Þórðarson þeim sigurlaunin.
SS/ÞR
VETRARSTARF
TBRAÐ BYRJA
VETRARSTARF TBR hefst 1. september n.k. Að venju er starfsemin
umfangsmikil, en meginhluti hennar fer fram í húsi félagsins að Gnoðarvogi
1. Félagar í TBR eru nú um 900. Flestir þeirra eru fulloröið fólk, sem stundar
badminton sem trimmíþrótt, því helsti kostur badmintonsins er, að það skiptir
engu máli hve góöur þú ert, þú finnur alltaf einhvern við þitt hæfi til að keppa
við.
TBR-húsið verður í vetur opið allan daginn. Útleiga á föstum tímum er aö
hefjast, og hafa eldri félagar forgang aö tímunum til 24. ágúst.
Garðar Alfonsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri TBR-hússins.
Garöar var formaður félagsins um árabil. Hann hefur þjálfaö TBR-inga í áratug
og undir handleiðslu hans hefur badmintoníþróttin tekið stórt stökk fram á
við hér á landi. Garðar verður til viðtals í TBR-húsinu dagana 21,—24. ágúst
n.k. og tekur á móti tímapöntunum frá kl. 17.30—20.00.
JON
DIÐRIKS-
SON
Einn þeirra frjálsíþrótta-
manna sem vakið hafa
verðskuldaða athygli í sumar
og undanfarin ár er Borg-
firðingurinn Jón Diðriksson.
Jón hefur í sumar sett tvö ný
íslandsmet, í 800 m hlaupi
1.49,3 mínútur og í 1500 metra
hlaupi 3.44,4 mínútur, sett á
Reykjavíkurleikunum. Fullvíst
má telja að Jón láti hér ekki
staðar numið, og verður fróð-
legt að sjá hvernig honum tekst
til á Evrópumeistaramótinu (
frjálsum íþróttum sem fram fer
í Prag í Tékkóslavíu 29. ágúst
til 3. september n.k. en þar
keppir hann í þessum greinumi
Jón byrjaði fyrst að æfa
íþróttir undir handleiðslu
Vilhjáms Einarssonar í Reyk-
holti. Til að byrja með lék hann
eingöngu körfuknattleik, en
árið 1973 hóf hann að æfa
frjálsar (þróttir af miklum
krafti. Þá um haustið hafði
hann strax náð góðum árangri
í 800 metra hlaupi, 1.58,5 mín.
og 4.10,5 mín í 1500 metrum.
Jón hefur ávallt stundað æfing-
ar af kostgæfni siðan og verið
undir handleiðslu góðra þjálf-
ara. Guðmundur Þórarinsson
var honum mjög innan handar
til að byrja með er hann
dvaldist ( Reykjavík. Jón hefur
ávallt haldið tryggð við UMSB
og alltaf keppt undir þeirra
merki.
Framfarir Jóns hafa verið
örar nú síðustu ár. Um það
sagði Jóni — Ég hef æft
geysilega vel að undanförnu, ég
hleyp 75—80 km á hverri viku
yfir vetrartfmann, en er sumar
ið nálgast, æfi ég spretti, og
meira séræfingar. Síðastliðinn
vetur dvaldi ég í Englandi og
hafði góðan þjálfara, sem var
mér innan handar. Nú í sumar
hef ég dvalið í V-Þýskalandi við
keppni og æfingar og það hefur
gert mér gott, og þar mun ég
dvelja áfram.
Takmark mitt ( framtiðinni
er að komast á toppinn. Vera
einn af þeim bestu f heiminum
í mínum greinum. Til að ná því
þarf ég að ná þvíað hlaupa 800
metrana á 1.45,0 min. og 1500
metrana á 3.44,0 mín. Þetta
verður erfitt, það geri ég mér
alveg ljóst og gæti tekið fjögur
ár. Sem sagt á EM 1982 ætti ég
að verða bestur. Þá er það
draumur minn að keppa á
Ólympíuleikunum í Moskvu
1980, og komast þar í úrslit.
Þetta ætti mér að takast ef ég
fæ alla þá aðstoð sem ég þarf
á að halda.
Hvað með EM í Prag? — Þar
á ég enga möguleika. það er
ljóst. Hins vegar er það
ómetanleg reynsla að keppa á
svona stórmótum. Og það er
ekki síður mikilvægt að öðlast
reynslu. hún fleytir mönnum
alltaf langt ( (þróttakeppnum.
Víst verður skemmtilegt að
fylgjast með Jóni á hlaupa-
brautinni í framtiðinni og sjá
hvort honum tekst að ná
takmarki sínu. — Þr.
HANS
KRANKL
Sumum knattspyrnumönn-
um er það gefið að vera einkar
lagnir við að skora mörk.
Margir þeirra gera sér jaínvel
enga grein fyrir hversvegna
þeir hafa þennan eiginleika, og
eiga þar með erfitt mcð að bæta
úr ef þeim tekst ekki að skora
nokkra leiki í röð. Einn þeirra
knattspyrnumanna, sem hafa
mikla hæfileika til að skora, er
Austurríkismaðurinn Hans
Krankl. Síðastliðið knatt-
spyrnutímabil var hann marka-
hæsti knattspyrnumaður í Ev-
rópu, og hlaut að launum
gullskóinn hjá hina virta
franska knattspyrnublaði
France Football.
í heimsmeistarakeppninni (
Argentínu vakti Krankl mikla
athygli fyrir skotkraft, leikni,
og fyrir það hversu vel honum
gekk að skora mörk. Tilboðin
streymdu til hans úr öllum
áttum og ekki leið langur t(mi
þar til eitt af stórliðum Ev-
rópu, FC Barcelona, var búið
að fá hann í sínar raðir.
Upþhæðin sem hann fékk fyrir
að skrifa undir samning var
ekki gefin upp en þar munu
engir smápeningar hafa verið í
boði.
Hans Krankl er fæddur í
Vínarborg 14. febrúar 1953,
hann byrjaði snemma að
stunda íþróttir og strax i
barnaskóla vakti hann athygli
fyrir leikni sína í knattspyrnu.
Þegar hann lauk skólagöngu
17 ára gamall hafði austur-
ríska liðið Rapid Vín gert við
hann samning. Þar lék hann
með unglingaliðum félagsins,
og hóf aðeins ári síðar að leika
með meistaraflokki. — Mín
stærsta stund ( sambandi við
knattspyrnuna var fyrsti
landsleikur minn, þá var ég
aðeins tvftugur. Austurriki lék
á móti heimsmeisturunum
Brasilíu í Vínarborg. Okkur
tókst að ná jafntefli 1 —1, og ég
skoraði mark Austurríkis. Þá
er mér einnig minnisstætt er
mér tókst að skora sjö mörk f
landsleik. Var það gegn Möltu
í undankeppni heimsmeistara-
keppninnar er við sigruðum
11 — 1, sagði Krankl.
Krankl þykir með eindæmum
harðfylginn miðherji, og hefur
þann eiginleika að vera ávallt
á réttum stað á réttri stundu.
Það hefur fært honum mörg
mörk. Hann á verst með að
sætta sig við mótherja sem
reyna að klekkja á honum með
ólöglegum brögðum. Því miður
er of mikið af þeim segir
Krankl.
Ekki er ólíklegt að Krankl
komi í stað Cruyff hjá Barce-
lona. Á leiktímabilinu sem er
að hefjast stefnir Krankl aftur
að markakóngstitli Evrópu.
Hvort það tekst skal engu um
spáð, en eitt er víst að hæfileik-
arnir eru fyrir hendi. — ÞR.