Morgunblaðið - 22.08.1978, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 22.08.1978, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978 21 2. deild bikarkeppni FRÍ: Bikarkeppni FRÍ 2. deild iór fram á Húsavík í blíðskaparveðri á laugardag og sunnudag. Til leiks mættu lið írá eftirtöldum samböndum> UMSB, UMSE, UMSS, HVÍ, UMÞ og HSÞ. Stigakeppnin var mjög hörð og tvísýn og það var ekki fyrr en í síðustu greininni, sem HSÞ tókst að tryggja sér sigur. 100 metra hlaup kvenna. Berxþóra Benónýsdóttir HSb 12.02 sek. Kúluvarp karla. Páll Dagbjartsson UMSS 13.47 m. 100 m. karla. Jakob Sigurólason HSÞ 11.3 sek. Hástökk karla. Unnar Vilhjálmsson UMSB 1.85 m. 400 metra kvenna. Hólmfrídur Erlings- dóttir UMSE 60.00 sek. 400 m. karla. AÖalsteinn Bergmannsson UMSE 51.4 sek. Langstökk kvenna. Oddný Árnadóttir UMb 5.32 m. Spjótkast karla. Rúnar Vilhjálmsson UMSB 57.58 m. Kúluvarp kvenna. Sigurlín Heiðarsdóttir UMSE 10.85 m. 1500 m kvenna. Sigurbjörg Karlsdóttir UMSE 5.11 mín. 1500 m karla. Ágúst Þorsteinsson UMSB 4.37.7 mín. Spjótkast kvenna. íris Grönfeldt UMSB 43.98 m. Langstökk karla. Jón Benónýsson HSÞ 6.61 m. 4x100 m. karla. Sveit HVÍ 45.5 mín. 3000 m karla. Ágúst Þorsteinsson UMSB 9.42.7 mín. 100 m. grind kvenna. Bergþóra Benónýs- dóttir HSÞ 16.2 sek. Stangastökk karla. Þorsteinn Þórsson UMSS 3.71 m. Kringiukast kvenna. Sigurlína lleiðars- dóttir UMSE 26.40 m. 110 m grind karla. Jón Benónýsson HSÞ 16.00 sek. 800 metra karla. Ágúst Þorsteinsson UMSB 2.04.5 mín. 200 m kvenna. Bergþóra Benónýsdóttir HSÞ 26.2 sek. 200 m karla. Jakob Sigurólason HSÞ 23.00 sek. Hástökk kvennai íris Grönfelt UMSB 1.50 m. Kringlukast karla. Þór Valtýsson HSÞ 40.41 m. 800 m kvennai Sigurbjörg Karlsdóttir UMSE 2.28.3 mín. Þrístökk karla. Rúnar Vilhjálmsson UMSB 14,00 m. 500 mi Ágúst Þorsteinsson UMSB 16.42.0 mín. 4x100 m kvennai Sveit HSÞ 50.5 sek. 1000 m boðhlaup karla. Sveit HSÞ 2.06.5 mín. IleildarstÍKatalai Stig HSÞ 123 UMSE 111.5 UMSB 115.5 UMSS 98 UMÞ 83 HVÍ 77 BA. 3. deild bikarkeppni FRI: EINS og í 2. deildinni var KÍlurlega hörð keppni í 3. deild bikarkeppni Frjálsíþróttasambandsins. Keppt var á Akureyri og var lið UÍA talið sigurstranglegast enda árangur liðsins sérlega glæsilegur á landsmóti UMFÍ á Selíossi í sumar. Lið KA kom þó öllum á óvart og með sigri í tveimur síðustu greinunum tókst KA að tryggja sér sigur með tveimur stigum. Úrslit í þriðju deildinnii KA UÍA HSH USAH 100 m hlaup karla> Hjörtur Gfslason KA 11,6 sek. 100 m hlaup karla, Steindór Helgason KA 53.3 sek. 1500 m hlaup karlai Steindór TryKgvason UÍA 4.12.2 mín. 5000 m hlaup karla. Jónas Clausen KA 17.44.6 mín 100 m hlaup kvenna. SÍKríóur Kjartansdóttir KA 12.5 sek. 800 m hlaup kvennat Guðrún Sveinsdóttir UÍA 2.27.4 mín. 1000 m boðhlaup karla. Sveit KA 2.06.3 mín. 4x100 m boðhlaup kvenna. Sveit KA 52.9 sek. Stig 55 53 45 37 Langstökk karlat Sigurður Hjörleifsson HSH 6.25 m. Hástökk karlai Stcfán Friðleifsson UÍA 1.90. Þrístökki Sigurður lljörleifsson G HSH 12.79 m. Langstökk kvcnna. Anna Hannesdóttir UÍA 4.86 m. Hástökk kvennai María Guðnadóttir HSH 1.63 m. Kúluvarp karla. Pétur Pétursson UÍA 13.86 m. Kringlukast karla. Pétur Pétursson UÍA 41.78 m. Spjótkast karla. Ingibergur Guðmundsson USAH 54.30 m. Kúluvarp kvenna. María Guðnadóttir HSH 10.18 m. Kringlukast kvenna. Dýrfinna Torfadóttir KA 30.12 m. Spjótkast kvenna. María Guðnadóttir HSH 38.65 m. HS/ÞR íslandsmeistarar ÍBK í þriðja flokki 1978. Keflvíkingar meist- arar í þriðja flokki Úrslitaleikurinn í 3. flokki í knattspyrnu fór fram á Selfossi um helgina. Keflavík og Breiðablik sem skildu jöfn á Húsavik 1 úrslitakeppninni þurftu að endurtaka leik sinn. Keflvikingar sigruðu nú örugglega 4 — 1. Var sigur þeirra sanngjarn og höfðu þeir þó nokkra yfirburði í leiknum. Framan af var í leiknum jafn- ræði með liðunum, en smátt og smátt tóku Keflvíkingar leikinn í sínar hendur. Jón Gíslason skoraði fyrsta mark Keflavíkur og eina mark fyrri hálfleiksins. Breiða- bliksmenn náðu að jafna í byrjun síðari hálfleiks. Ólafur Magnússon kom Keflavík síðan yfir með fallegu marki, er hann skoraði eftir mikið einstaklingsframtak. Jón Gíslason breytti stöðunni í 3—1 og lokaorðið átti svo Sigurður Isleifsson sem skoraði síðasta markið með glæsilegum skalla eftir fyrirgjöf frá Ólafi Magnús- syni. Yfirburðir Keflvíkinga voru augljósir í leiknum. í lokin afhenti Gylfi Þórðarson þeim sigurlaunin. SS/ÞR VETRARSTARF TBRAÐ BYRJA VETRARSTARF TBR hefst 1. september n.k. Að venju er starfsemin umfangsmikil, en meginhluti hennar fer fram í húsi félagsins að Gnoðarvogi 1. Félagar í TBR eru nú um 900. Flestir þeirra eru fulloröið fólk, sem stundar badminton sem trimmíþrótt, því helsti kostur badmintonsins er, að það skiptir engu máli hve góöur þú ert, þú finnur alltaf einhvern við þitt hæfi til að keppa við. TBR-húsið verður í vetur opið allan daginn. Útleiga á föstum tímum er aö hefjast, og hafa eldri félagar forgang aö tímunum til 24. ágúst. Garðar Alfonsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri TBR-hússins. Garöar var formaður félagsins um árabil. Hann hefur þjálfaö TBR-inga í áratug og undir handleiðslu hans hefur badmintoníþróttin tekið stórt stökk fram á við hér á landi. Garðar verður til viðtals í TBR-húsinu dagana 21,—24. ágúst n.k. og tekur á móti tímapöntunum frá kl. 17.30—20.00. JON DIÐRIKS- SON Einn þeirra frjálsíþrótta- manna sem vakið hafa verðskuldaða athygli í sumar og undanfarin ár er Borg- firðingurinn Jón Diðriksson. Jón hefur í sumar sett tvö ný íslandsmet, í 800 m hlaupi 1.49,3 mínútur og í 1500 metra hlaupi 3.44,4 mínútur, sett á Reykjavíkurleikunum. Fullvíst má telja að Jón láti hér ekki staðar numið, og verður fróð- legt að sjá hvernig honum tekst til á Evrópumeistaramótinu ( frjálsum íþróttum sem fram fer í Prag í Tékkóslavíu 29. ágúst til 3. september n.k. en þar keppir hann í þessum greinumi Jón byrjaði fyrst að æfa íþróttir undir handleiðslu Vilhjáms Einarssonar í Reyk- holti. Til að byrja með lék hann eingöngu körfuknattleik, en árið 1973 hóf hann að æfa frjálsar (þróttir af miklum krafti. Þá um haustið hafði hann strax náð góðum árangri í 800 metra hlaupi, 1.58,5 mín. og 4.10,5 mín í 1500 metrum. Jón hefur ávallt stundað æfing- ar af kostgæfni siðan og verið undir handleiðslu góðra þjálf- ara. Guðmundur Þórarinsson var honum mjög innan handar til að byrja með er hann dvaldist ( Reykjavík. Jón hefur ávallt haldið tryggð við UMSB og alltaf keppt undir þeirra merki. Framfarir Jóns hafa verið örar nú síðustu ár. Um það sagði Jóni — Ég hef æft geysilega vel að undanförnu, ég hleyp 75—80 km á hverri viku yfir vetrartfmann, en er sumar ið nálgast, æfi ég spretti, og meira séræfingar. Síðastliðinn vetur dvaldi ég í Englandi og hafði góðan þjálfara, sem var mér innan handar. Nú í sumar hef ég dvalið í V-Þýskalandi við keppni og æfingar og það hefur gert mér gott, og þar mun ég dvelja áfram. Takmark mitt ( framtiðinni er að komast á toppinn. Vera einn af þeim bestu f heiminum í mínum greinum. Til að ná því þarf ég að ná þvíað hlaupa 800 metrana á 1.45,0 min. og 1500 metrana á 3.44,0 mín. Þetta verður erfitt, það geri ég mér alveg ljóst og gæti tekið fjögur ár. Sem sagt á EM 1982 ætti ég að verða bestur. Þá er það draumur minn að keppa á Ólympíuleikunum í Moskvu 1980, og komast þar í úrslit. Þetta ætti mér að takast ef ég fæ alla þá aðstoð sem ég þarf á að halda. Hvað með EM í Prag? — Þar á ég enga möguleika. það er ljóst. Hins vegar er það ómetanleg reynsla að keppa á svona stórmótum. Og það er ekki síður mikilvægt að öðlast reynslu. hún fleytir mönnum alltaf langt ( (þróttakeppnum. Víst verður skemmtilegt að fylgjast með Jóni á hlaupa- brautinni í framtiðinni og sjá hvort honum tekst að ná takmarki sínu. — Þr. HANS KRANKL Sumum knattspyrnumönn- um er það gefið að vera einkar lagnir við að skora mörk. Margir þeirra gera sér jaínvel enga grein fyrir hversvegna þeir hafa þennan eiginleika, og eiga þar með erfitt mcð að bæta úr ef þeim tekst ekki að skora nokkra leiki í röð. Einn þeirra knattspyrnumanna, sem hafa mikla hæfileika til að skora, er Austurríkismaðurinn Hans Krankl. Síðastliðið knatt- spyrnutímabil var hann marka- hæsti knattspyrnumaður í Ev- rópu, og hlaut að launum gullskóinn hjá hina virta franska knattspyrnublaði France Football. í heimsmeistarakeppninni ( Argentínu vakti Krankl mikla athygli fyrir skotkraft, leikni, og fyrir það hversu vel honum gekk að skora mörk. Tilboðin streymdu til hans úr öllum áttum og ekki leið langur t(mi þar til eitt af stórliðum Ev- rópu, FC Barcelona, var búið að fá hann í sínar raðir. Upþhæðin sem hann fékk fyrir að skrifa undir samning var ekki gefin upp en þar munu engir smápeningar hafa verið í boði. Hans Krankl er fæddur í Vínarborg 14. febrúar 1953, hann byrjaði snemma að stunda íþróttir og strax i barnaskóla vakti hann athygli fyrir leikni sína í knattspyrnu. Þegar hann lauk skólagöngu 17 ára gamall hafði austur- ríska liðið Rapid Vín gert við hann samning. Þar lék hann með unglingaliðum félagsins, og hóf aðeins ári síðar að leika með meistaraflokki. — Mín stærsta stund ( sambandi við knattspyrnuna var fyrsti landsleikur minn, þá var ég aðeins tvftugur. Austurriki lék á móti heimsmeisturunum Brasilíu í Vínarborg. Okkur tókst að ná jafntefli 1 —1, og ég skoraði mark Austurríkis. Þá er mér einnig minnisstætt er mér tókst að skora sjö mörk f landsleik. Var það gegn Möltu í undankeppni heimsmeistara- keppninnar er við sigruðum 11 — 1, sagði Krankl. Krankl þykir með eindæmum harðfylginn miðherji, og hefur þann eiginleika að vera ávallt á réttum stað á réttri stundu. Það hefur fært honum mörg mörk. Hann á verst með að sætta sig við mótherja sem reyna að klekkja á honum með ólöglegum brögðum. Því miður er of mikið af þeim segir Krankl. Ekki er ólíklegt að Krankl komi í stað Cruyff hjá Barce- lona. Á leiktímabilinu sem er að hefjast stefnir Krankl aftur að markakóngstitli Evrópu. Hvort það tekst skal engu um spáð, en eitt er víst að hæfileik- arnir eru fyrir hendi. — ÞR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.