Morgunblaðið - 22.08.1978, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978
23
Keflavíkinga er staðreynd. Pétur Pétursson, sem skoraði bæði mörkl
Sveinsson í loftinu af gleði. Svipur Keflvfkinga er ekki eins hressilegur.
lur farnir
irjöfnuðu
Eftir þessi úrslit er ekki annað
séð, en að íslandsbikarinn hafi
vistaskipti, frá Akranesi að Hlíð-
arenda, því að Valur þarf ekki
nema eitt stig út úr tveim síðustu
leikjunum til að tryggja sér
titilinn. Keflvíkingar, sem hafa
tekið mikinn sprett í síðustu 5
umferðunum eygja nú möguleika á
3. sætinu og vinna sér þar með rétt
til þátttöku í UEFA-keppni á
næsta ári.
Eins og áður er að vikið, þá léku
Keflvíkingar sinn besta leik á
sumrinu. Leikmenn börðust allan
tímann og gáfu hvergi eftir allan
leikinn. Olafur Júlíusson var besti
maður Iiðsins að þessu sinni, auk
þess áttu þeir Sigurður Björgvins-
son, Einar Á. Olafsson, Skúli
Rósantsson og Þorsteinn Bjarna-
son góðan leik.
Leikur Skagamanna var slakur
að þessu sinni. Karl Þórðarson var
langbesti maður liðsins ásamt Jóni
Alfreðssyni. Aðrir leikmenn léku
langt undir getu. Pétur Pétursson
sást ekki í fyrri hálfleik, en hann
náði sér heldur á strik í síðari
hálfleik, en hann skoraði tvö mörk
í lok leiksins og setti nýtt
markamet í 1. deild. Þá átti Árni
Sveinsson þokkalegan leik.
Óli Ólsen dæmdi ágætlega, en
mörgum fannst vítaspyrnudómur
hans nokkuð strangur.
f STUTTU MÁLl,
1. deild — Keflavíkurvöllur 19. ágúst 1978«
ÍBK - ÍA 2-2 (1-0).
MÖRKIN,
Steinar Jóhannsson fBK á 10. og 55. mín.
[’rtur Pétursson ÍA á 90. og 91. mín.
ÁHORFENDUR, 996.
1. DEILD 2. DEILD
Staðan 1 1. deild,
Valur 16 ; 16 o 0 43.8 32
Akranes 16 13 2 1 47.12 28
Víkinxur 16 8 1 7 25,28 17
Kellav. 16 6 4 6 25,23 16
Fram 16 7 2 7 20.25 16
IBV 15 6 2 7 23,22 14
KA 16 3 4 9 14.37 10
Þróttur 15 2 6 7 17,23 10
FH 16 2 6 8 21.33 10
Breiðabl. 16 2 1 13 15,39 5
Markhæstu leikmenn,
Pétur Pétursson. fA 19
Ingi B. Albertss., Val 14
Matth. Hallgrlmss., ÍA 11
Atli Eðvaldss., Val 9
Guðm. Þorbjörnss., Val 8
Gunnar ö. Kristjánss.. Víkingl 8
Kristinn Björnss., fA 8
Sigurlás Þorleiiss., ÍBV 8
Arnór Guðjohnsen, Víkingi 7
Janus Guðlaugss., FH ,7
Leifur Helgason, FH 7
Staðan f 2. deild,
KR 15 12 2 1 42.4 26
Reynir 17 7 4 6 22.20 19
ÍBl 15 6 5 4 23.18 17
Þór 15 6 4 5 13.13 16
Austri 15 6 4 5 14.15 16
Ilaukar 15 5 5 5 17,17 15
Þróttur 15 5 4 6 17,23 14
Fylkir 15 6 1 8 16.18 13
Ármann 15 4 2 9 14,22 10
VHlsungur 15 2 3 10 11,35 7
Markhæstu leikmenn,
Stefán ö. Sigurðss., KR 10
Sverrir Herbertss., KR 9
Birgir Guðjónss.,' KR 6
Hilmar Sighvatss., Fylki 6
Jón Láruss., Þór 6
Þráinn Ásmundss., Ármanni 6
Bjarni Kristjánss., Austra 5
Haraldur Leifss., fBÍ 5
Jón Oddss.. ÍBÍ 5
Sigurður Indriðas.. KR 5
Vilhelm Frederiksen, KR 5
Sanngjarn sigur
Hauka yfir Þór
HAUKAR sigruðu Þór frá Akureyri 1 —0 á Kaplakrikavelli síðastliðinn laugardag í 2. deild í knattspyrnu.
Var sigur Hauka sanngjarn og hefði vel getað orðið stærri. Tvö til þrjú núll hefði ekki verið ósanngjarnt
eftir gangi leiksins. Lið Þórs náði sér aldrei veruléga á strik.
Það var fátt um fína drætti í
fyrri hálfleik hjá liðunum, mikið
var um ónákvæmar sendingar, og
kýlingar út í loftið. Var furðulegt
hve lítið leikmenn reyndu að leika
knettinum með jörðinni, veður var
allan tíman gott meðan á leiknum
stóð svo að ekki var því um að
kenna. Leikmenn Þórs voru öllu
meira með knöttinn í fyrri hálf-
leiknum en fengu fá færi.
Staðan í hálfleik var 0—0. í
síðari hálfleiknum hresstust
Haukamenn og sóttu þá ákafar en
áður, og áttu ágæt færi. Oft skall
hurð nærri hælum við mark Þórs
en inn vildi knötturinn ekki.
Markiö lá í loftinu og á 26. mínútu
síðari hálfleiksins tókst Lárusi
Jónssyni að skora eftir ágæta
sendingu frá Árna Hermannssyni.
Var Lárus rétt utan við markteig
og afgreiddi sendinguna viðstöðu-
laust í netið með föstu skoti.
Haukar héldu áfram að sækja en
fleiri urðu mörkin ekki.
Besta tækifæri Þórs kom er
Sigþór skallaði á markið í góðu
færi. Axel markvörður Hauka
varði, en hélt ekki knettinum
missti hann frá sér, út á Þórsara
sem skaut yfir.
Áberandi besti maður Hauka í
þessum leik var Guðmundur Sig-
marsson, lék hann allan tíman vel,
og barðist af miklum dugnaði. Þá
átti Axel markvörður ágætan leik.
Lið Þórs var í heild dauft í
dálkinn og náði sér ekki á strik.
Var vörnin skársti hluti liðsins að
þessu sinni. Ekki var að sjá á liði
þess, að þeir væru að berjast fyrir
1. deildarsæti.
- ÞR
• Barátta í leik Ilauka og Þórs. (Ljósm. Kristinn).
AUSTRI FÉKK
HEPPNISSTIG
AUSTRAMENN máttu svo sannarlega þakka sínum sæla, íyrir stigið sem í þeirra
hlut kom úr viðureign þeirra við Völsung á Húsavík um helgina.
Völsungar náðu fljótlega góð-
um tökum á miðju vallarins og
sóttu stíft að marki Austramanna,
en þrátt fyrir það tókst Völsung-
um ekki að skora mark. Aftur á
móti voru það Austfirðingar sem
opnuðu markareikninginn með
marki Bjarna Kjartanssonar á 32.
mínútu. Það voru svo ekki liðnar
nema 3 mínútur af síðari hálfleik
þegar Magnúsi Hreiðarssyni tókst
að jafna metin fyrir Völsung.
Það sem eftir var leiksins, var
sama uppi á teningnum, Völsungar
sóttu án afláts, en uppskáru ekki
sem skyldi. Oft máttu Áustramenn
þakka góðri markvörslu Sigurjóns
Kristjánssonar að ekki fór verr.
En það var sem endranær að
mörkin gilda og því urðu Völsung-
ar að sætta sig við jafntefli.
Bestu menn liðanna, voru þeir
Kristján Olgeirsson, Völsungi og
Halldór Árnason, Austra. Leikinn
dæmdi Sævar Frímannsson og
virkaði óöruggurr
- BA
KR í ERFIÐLEIKUM,
EN VANN ÞÓ ÞRÓTTOG
DEILDINA UM LEIÐ
KR-INGAR voru að vonum kátir eftir að þeir höfðu unnið sigur á Þrótti á Neskaupstað á laugardaginn
með tveimur mörkum gegn engu. Sigurinn tryggði liðinu glæsilegan sigur í 2. deildinni í knattspvrnu
og það var ekki nema eðlilegt að þeir tækju þjálfara sinn, Magnús Jónatansson. og „tolleruðu" hann
að Ieiknum loknum. Reyndar má segja að Magnús hafi þarna verið á heimavelli því að í fyrra þjálfaði
hann Þrótt með góðum árangri og hinum megin við Oddskarðið er Austri, sem Magnús hefur einnig
þjálfað.
Sigur KR-inga var þó ekki meira
en svo að vera sanngjarn á
laugardaginn, því Þróttararnir
voru sízt lakari aðilinn í leiknum,
en KR-ingar voru heilsteyptari
eins og svo oft áður í sumar.
Fyrsta hálftímann sótti Þróttur
án afláts og þá átti Bjarni
Jóhannesson gott skot í þverslá og
Magnús Guðmundsson sýndi smilli
er hann varði vel frá Guðmundi
Ingvasyni og reyndar fleiri skot.
Eftir fyrsta hálftímann jafnað-
ist leikurinn og var svo þar til 30
mínútur voru eftir af leiktíman-
um. Þá tóku KR-ingar yfir og
Haukur Ottesen skoraði með
lúmsku skoti frá vítateig á 17.
mínútu seinni hálfleiksins. Þrótt-
arar gáfust þó ekki upp og
leikurinn var skemmtilegur allan
tímann. Átta mínútum fyrir leiks-
lok náðu KR-ingar skemmtilegri
sókn, vörn Þróttar var grátt leikin,
og Stefán Örn Sigurðsson skoraði
með góðu skoti frá vítateig.
Beztu menn KR í þessum ieik
voru miðverðirnir Ottó og Börkur,
en Vilhelm Fredriksen lék einnig
mjög vel. Af Þrótturum stóðu þeir
sig bezt Magnús Magnússon og
Guðmundur Ingvason. Þokkalegur
dómari leiksins var Hjörvar Jens-
son.
— II.Ben./— áij