Morgunblaðið - 22.08.1978, Page 25

Morgunblaðið - 22.08.1978, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978 33 Eitt og annað Um samband f jölmiðla og hljómsveitar BLM: Sýna fjölmiðlar hljóm- sveitinni áhuga eður ei? Þorsteinni Ríkisfjölmiðlarnir standa sig betur en dagblöðin. Þau hafa, að því er virðist, lítinn sem engan áhuga á starfsemi hljómsveitarinnar. BLM: Er tíma hljómsveitar- innar vel varið í hljóðritanir fyrir hljóðvarp? Þjóna þær tilgangi sínum? Þorsteinni Þær gera það að nokkru leyti. Hljóðritanir þess- ar eru uppistaðan á flutningi hljómsveitarinnar á innlendri tónlist. Gunnari Fjölmiðlar eru ótrú- lega áhugastýrandi, bæði ríkis- fjölmiðlar og dagblöð. Hér fyrrum þóttu t.d. íþróttafréttir lítt áhugaverðar, en nú er ekki þverfótandi fyrir þeim í dag- blöðum. Sinfóníuhljómsveitin, og tónlistarfréttir almennt, gætu náð til miklu fleiri ef fjölmiðlar beittu sér fyrir því. Sigurður I.t Hljóðvarpið hef- ur staðið sig vel gagnvart hljómsveitinni, en Sjónvarpið sennilega ekki einu sinni nýtt þær endurgjaldslausu 140 mín- útur sem það hefur til umráða árlega til útsendinga með hljómsveitinni. Sigurður B.i Hjá Frétta- og fræðsludeild Sjónvarps kem ég oftast að lokuðum dyrum, og Lista- og skemmtideild hefur aðeins látið gera einn 45 mín- útna þátt síðan ég tók við framkvæmdastjórn. Dagblöðin birta sjaldnast fréttatilkynning- ar hljómsveitarinnar í heild. BLM: Er þá ekki full ástæða til að stofna embætti blaðafull- trúa S.Í.? Sigurður B.i Ég hef reynt að sinna þessu starfi sjálfur. Gunnari Ég lít svo á að kynningarstarfsemi fyrir hönd hljómsveitarinnar þurfi að vera í höndum sérfróðs manns. Það er varla hægt að ætlast til þess að framkvæmdastjórinn, hver sem hann er, sé sérfræðingur í auglýsingatækni og blaða- mennsku. Það vantar töluvert upp á að við gerum hljómsveit- ina og starfsemi hennar að- gengilega fyrir leikmenn. Hins vegar myndi slík viðleitni marg- borga sig á nokkrum árum. BLM: Framkvæmdastjórinn kvartar undan því að fréttastof- ur fjölmiðla, sýni Sinfóníu- hljómsveit íslands lítinn áhuga. En eru fréttatilkynningar S.í. þess eðlis að almennir frétta- menn, og þar með alþýða manna, hafi áhuga á því sem þar er á borð borið? Er upptaln- ing staðreynda fréttaefni sem líklegt er að vekja eftirtekt almennings? Sigurður B.i Ég skrifa þessar tilkynningar sjálfur eftir bestu getu. En því miður eru þær oft styttar af fréttamönnum. Kannski mætti standa að frétta- tilkynningum á annan hátt. BLM: Ér framkvæmdastjór- inn þá á þeirri skoðun að í raun þyrfti sérmenntaður blaðafull- trúi að annast þetta starf? Sigurður B.i Það má vel vera. En það er hætt við að fjöl- miðlarnir sýndu skrifum hans jafn lítinn áhuga. BLM: Hefur útvarpið sér- þjálfaðan mann á sínum snær- um sem gæti tekið starfið að sér? Þorsteinni Ekki það ég veit. Gunnari Þetta mál hefur oft komið til umræðu. Ég man sérstaklega eftir blaðamanna- fundi sem pólskur hljómsveitar- stjóri sat fyrir hönd S.í. Áhuga- leysi og doði tilkvaddra frétta- manna gekk svo fram af stjórn- andanum að hann gat ekki orða bundist. Hann sagði af þessu tilefni, að almenningur í Pól- landi vissi meira um Sinfóníu- hljómsveit íslands en fólk á íslandi! Þorsteinni Það sem þarf að gerast er það, að dagblöðin, og aðrar fréttastofnanir, ráði sér- fróða menn til starfa, en ekki að S.í. geri það. Sigurður I.i Mér finnst ekki fráleitt að S.í. leiti til einhverr- ar þeirra auglýsingafyrirtækja sem nú eru starfrækt með það fyrir augum að kynna starfsemi hijómsveitarinnar. Og það ræki- lega, til tilbreytingar.. Um útgáfu- starfsemihljóm- sveitarinnar BLM: Hvað er að frétta af útgáfustarfsemi á vegum hljóm- sveitarinnar, t.a.m. hljóðritanir og upplýsingarit hverskonar? Þorsteinni Fréttir á því sviði eru litlar. Þó hafa verið gefnar út tvær hljómplötur með tón- verkum eldri tónskálda okkar, og ein í undirbúningi með verkum þeirra yngri. Þetta er hins vegar fyrst og fremst mál Tónverkamistöðvarinnar, þó tæknimenn Útvarps, og hljóð- færaleikararnir sem allir gefa vinnu sína, komi þar einnig við sögu. Það eru uppi áform um að halda útgáfustarfsemi Tón- verkasmiðstöðvarinnar áfram í framtíðinni. BLM: Hvað um útgáfu á prentuðu upplýsingaefni um starfsemi hljómsveitarinnar? Væri ekki hugsanlegt að gefa út fréttabréf um hljómsveitina og/eða tónlist á íslandi al- mennt! Sígurður B.i Víst væri það hægt, eins og svo margt annað, ef tími og peningar leyfðu. Hins vegar sendum við fréttatilkynn- ingar til dagblaða og ríkisfjöl- miðla þar sem upplýsingar er að finna. Eins og áður sagði. Tónhvísl . eftir GUÐMUND EMILSSON Að stækka hljómsveitina BLM: Hvað hefur verið gert af hálfu yfirstjórnar til að fjölga starfsmönnum hljómsveitarinn- ar? Þorsteinni Við gerum það sem við getum til að stækka hljóm- sveitina. En fyrr en lögin um hljómsveitina ganga í gildi getum við ekkert gert. Festa í rekstri hennar, bæði í listrænu og fjárhagslegu tilliti, kemst ekki á fyrr. Það eru ótal hlutir sem ég hefði viljað minnast á í þessu viðtali, sem eru ótíma- bærir þar sem hljómsveitina skortir lagalegan grundvöll. Tónleikahöll BLM: Hvað hefur verið gert ai hálfu yfirstjórnarinnar til að flýta fyrir því að byggður verði tónleikasalur samboðinn hljóm- sveitinni, og vönduðum tón- listarflutningi almennt? Sigurður B.i Eins og kom fram áðan er ég ekki í yfirstjórn. hljómsveitarinnar, en sit hins vegar fundi hennar. Ekki veit ég til þess að „tónleikahöll" hafi þar verið til umræðu upp á síðkastið. Persónulega hef ég oftsinnis fært þetta í tal vi ráðamenn, sem aðra. Skortur á tónleikasal skýtur skökku við í borg þar sem ekki er þverfót- andi fyrir íþróttahúsum og völlum, verslunaröllum og öðr- um mannvirkjum. BLM: Hefur tónleikasalurinn verið „saltaður niður“? Sigurður B.i Að því er ég best veit — nema þá eitthvað hafi verið gert áður en ég tók við starfi fyrir hálfu öðru ári. Gunnari Það ætti að vera öllum ljóst að það gerist ekkert á þessu landi nema kveðið sé dyra, og það hraustlega. Vi stöndum aðgerðalausir gagn- vart þeirri staðreynd að á öllu landinu er ekki til einn einasti mannsæmandi tónleikasalur. Hljómsveitin leikur í kvik- myndahúsum, leikfimissölum, íþróttaskemmum, og kirkjum, sem í sumum tilfellum er eins fráleitt eins og að halda mál- verkasýningu í niðdimmum kartöflukjöllurum. Þrátt fyrir mótbárur sumra er Háskólabíó meingallaður tónleikasalur — og ég lít á það sem kvikmynda- hús einvörðungu. Ekkert hefur, að því er ég best veit, verið gert af hálfu yfirstjórnar hljóm- sveitarinnar til að knýja á í þessu máli. Enn einu sinni hefur yfirstjórn hljómsveitarinnar brugðist forystuhlutverki sínu. Ég hef sagt það áður á viðeig- andi vettvangi, að það er ekki hægt að reka Sinfóníuhljóm- sveit íslands í hjáverkum. Það ætti að vera meira en fullt starf að sjá til þess að málum hljómsveitarinnar sé borgið. Því finnst mér að í yfirstjórn ættu að sitja menn sem hefðu tíma og aðstöðu til að sinna þessum störfum. Sigurður I. Eg held ég fari rétt með, að í væntanlegum Útvarpshúsi sem nú er verið að hefjast handa við, sé ekki gert ráð fyrir að stærsti upptökusal- urinn sé hannaður sem tónleika- salur líkt og gert er víðast erlendis. Þorsteinni Það er í verka- hring fleiri aðila en yfirstjórnar S.í. að sjá til þess að hljómsveit- in eignist tónleikahöll. Og annað hitt: Ég tel meira aðkallandi að halda hljómsveitinni á floti fjárhagslega, því ekki vantar mikið á að hún sökkvi með allri áhöfn eins og nú er að staðið. Allir tónlistarmenn í landinu þurfa að leggjast á eitt í þessu efni og samtök hvers konar, t.d. kórar og hljómsveitir. Annars held ég að draumurinn um tónleikahöll sé einhvers staðar úti í grámóðunni. Um hlut innlendra tónlistarmanna BLM: Er hlutur innlendra tónskálda og einleikara í verk- efnaskrá hljómsveitarinnar nægilega stór? Þorsteinni Það má vafalaust deila um það til eilífðar. En ég UM SiNFÓNÍU- HLJÓMSVEIT ÍSLANDS Þriðja grein tel hann ekki óeðlilega lítinn. Hitt er víst, að öll hljómsveitar- verk á íslandi verða til-fyrir tilstuðlan S.Í., enda leikur hún þau flest. BLM: En hefur S.í. greitt tónskáldunum fyrir þessar skrautfjaðrir sem hún telur íslensk tónverk vera í hatti sínum? Þorsteinni Nei. Hljómsveitin hefur mér vitanlega aldrei falið tónskáldi að semja tónverk eða greitt fyrir slíkt. Gunnari Mönnum ætlar seint að skiljast að innlendir lista- menn eru miklu meiri „sölu- vara“, ef nota má svo óvirðulegt orðaval, en einhverjir óþekktir útlendingar sem sýknt og heil- agt er verið að troða upp á hljómsveitina og tónleikagesti. Og jafnvel þótt við eigum kannski ekki heimsins bestu einleikara og einsöngvara eru þeir engu að síður býsna góðir og eiga miklu meira 'erindi á pallinn hjá S.L en hinir. Aðsókn að tónleikum íslendinga á Lista- hátíð ‘78 bar því sem ég segi glöggan vott. Jákvæðasta hliðin BLM: Hver er að ykkar mati jákvæðasta hliðin á starfsemi Sinfóníuhljómsveitar íslands í dag? Gunnari Það að hún skuli yfirleitt vera til. Hljómsveitin hefur verið burðarás tónlistar- lífs, auk þess sem meðlimír hennar hafa haldið uppi hljóð- færakennslu í landinu. Hún er hornsteinn tónmennta íslands. Þorsteinni Ég tek undir orð Gunnars heilshugar. Sigurður I.i Við megum ekki vanþakka heimsóknir þeirra erlendu tónsnillinga sem S.í. hefur gengist fyrir að kæmu hingað, og þeirri mennt sem því hefur verið samfara. En merki- legasta við starfsemi hljóm- sveitarinnar er það, að henni skuli hafa tekist að vinna merkt brautryðjendastarf í blóra við ótrúlegt skilningsleysi utanað- komandi afla. Sigurður B.i Á meðan við viljum kallast menningarþjóð verðum við að eiga Sinfóníu- hljómsveit. Ég vona að hún eigi eftir að dafna og eflast í hvívetna. “1 Gunnar Egilsson. Þorsteinn Hannesson. Sigurður I. Snorrason og Sigurður Bjiirnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.