Morgunblaðið - 29.08.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1978
5
Lagarfljóts-
brúin var of
sleip fyrir
skeidhestana
IIESTAMENN á Héraði efndu
um helgina í rauninni til
tveggja kappreiða, því á laug-
ardag voru haldnar kappreiðar
á vegum félagsins á Iðavöllum
og á sunnudeginum átti að
keppa í skeiði á vegum félags-
ins á Lagarfljótsbrú, en vegna
þess hversu brúin var blaut og
sleip var minna úr þeim kapp-
reiðum en ætlað var. Voru
nokkrir skeiðhestar ræstir en
þeir kepptu þó einn og einn í
einu og náði Trausti, jarpur, er
Reynir Aðalsteinsson sat, best-
um tíma, 23,1 sek., en núver-
andi íslandsmethafi og sá
fyrrverandi, Fannar og Skjóni,
hlupu upp.
Á kappreiðunum á laugardag
á Iðavöllum var keppt í fjórum
greinum, 250 metra og 350
metra stökki, 250 metra skeiði
og 800 metra brokki. Þá voru
einnig sýndir 50 gæðingar í
firmakeppni og sigraði í henni
Randver Magnúsar Ármanns-
sonar, . knapi Ármann Guð-
mundsson, sem keppti fyrir G.
Albertsson, Reykjavík. í 250
metra stökkinu sigraði Reykur
Harðar G. Albertssonar á 18,5
sek, og í 350 metra stökkinu
sigraði Nös á 25,0 sek., önnur
varð Glóa og þriðja Mæja á 25,5
sek. I 250 metra skeiðinu sigraði
Fannar á 23 sek., annar varð
Skjóni á 23,3 sek, og Trausti á
23,6 sek. í 800 metra brokkinu
tókst ekki að láta Létti frá
Stórulág liggja en sigurvegari
varð Randver á 1.52,0 sek.
Á sunnudag mætti marg-
menni til að fylgjast með
Reynir Aðalsteinsson kemur hér
að marki á skeiðhestínum
Trausta en skeiðvöllurinn er
harla óvenjulegur eöa Lagar-
fljótsbrúin. Ljósm. Jóhann D.
Jónsson.
skeiðkeppninni á Lagarfljótsbrú
en vegna þess hversu brúin var
sleip þótti ekki. hættandi á að
ræsa hestana fleiri en einn í
einu og voru þeir því án képpni.
Alls voru sex hestar reyndir
þarna á brúnni og eins og fyrr
sagði náði Trausti bestum tíma
en aðrir sem lágu voru með
tímana 24,6 til 25,8 sek. en það
voru Máni, Villingur og Garpur
en Fannar og Skjóni lágu ekki.
Hestamennirnir að sunnan voru
í gær enn á Egilstöðum og
stendur til að reyna jafnvel í
dag að keppa í skeiði á brúnni
ef veður og aðstæður leyfa.
Nýr tónlistarskóli
undir stjórn Ragn-
ars Björnssonar
FYRSTA október n.k. hefur
göngu sína nýr tónlistarskóli í
Reykjavík, sem hlotið hefur
nafnið Nýi tónlistarskólinn en
hann verður til húsa í Breiða-
gerðiskólanum. Skólastjóri Nýja
tónlistarskólans verður Ragnar
Björnsson.
Kennslutilhögun verður með
öðrum hætti en tíðkast í tónlistar-
skólum hérlendis, sem felst í því
að í stað einkatíma í hljóðfæraleik
verða allt að fjórir nemendur
saman í tíma og fá tvær 60
mínútna kennslustundir í viku í
stað tveggja 30 mínútna kennslu-
stunda. Nemendunum er þannig
ætlað að læra hver af öðrum í
tímunum og venjast strax við að
spila fyrir áheyrendur. Þetta
fyrirkomulag mun gilda á fyrstu
stigum námsins, en á síðari stigum
verða færri í hverri kennslustund.
Þetta kennslufyrirkomulag gerir
það að verkum að skólagjöld verða
lægri en ella.
I forskóla fyrir börn á aldrinum
6—8 ára verða ekki notaðar
blokkflautur heldur verður börn-
unum strax kennt að syngja eftir
nótum og tónheyrn þeirra þannig
þjálfuð í gegnum sönginn. Enn-
fremur verða kennsluform eins og
hreyfingar og leikir notuð á því
stigi námsins.
Nemendum verða lánuð strok-
hljóðfæri endurgjaldslaust fyrstu
námsárin á meðan þeir eru að
kynnast hljóðfærinu og sjálfu sér
gagnvart því. F’yrsta starfsár
skólans verður kennt á strokhljóð-
líagnar Björnsson.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
heimilað reknetabátum að hefja
sfldveiðar n.k. laugardag 2. sept-
ember, en eins og kunnugt er
hefur sfldin verið það mögur
fram til þessa, að engan veginn
hefur þótt ráðlegt að hefja
veiðarnar. Sfldarsýni, sem hafa
verið mæld síðustu daga, sýna að
sfldin er að fitna. a.m.k. á sumum
svæðum. eins og t.d. við Vest-
mannaeyjar, en þaðan hefur
sfldin mælzt allt að 18% feit.
færi, píanó og orgel, en kennslu á
blásturshljóðfæri og ásláttar-
hljóðfæri verður ekki korrtið við í
byrjun.
Aðalkennarar skólans auk
Ragnars Björnssonár verða Árni
Arinbjarnarson, sem kennir á
fiðlu og hefur með höndum sam-
leiksþjálfun og Pétur Þorvaldsson
sem mun kenna á selló, en hann
keniiir einnig tónfræði og tón-
heyrn. Guðrún Birna Hannesdótt-
ir verður aðalkennari forskólans.
Umsóknarfrestur um skólavist
er frá 1. til 20. september og
verður tekið á móti umsóknum á
skrifstofu skólans í Breiðagerðis-
skóla frá mánudegi til föstudags á
milli kl. 5 og 7. (Fréttatilkynning).
Samtals eru það 87 bátar, sem
hafa fengið leyfi til síldveiða með
reknet á komandi síldarvertíð.
Hins vegar er enn allt í óvissu með
söltun á síld, bæði bíða menn eftir
aðgerðum næstu ríkisstjórnar og
ennfremur eftir samningum við
kaupendur erlendis, en nokkrar
þjóðir bjóða nú síld á mun lægra
verði en Islendingar gera og er sú
síld bæði stærri og feitari oft og
tíðum.
Síldveiðar leyfð-
ar 2. september
Kjartan Lárusson
Skipaður
forstjóri
Ferðaskrif-
stofunnar
KJARTAN Lárusson viðskipta-
fræðingur hefur af samgönguráð-
herra verið skipaður í stöðu
forstjóra Ferðaskrifstofu ríkisins
frá 1. september n.k. að telja.
Kjartan er fæddur 20. júní 1945.
Hann lauk kandidatsprófi frá
viðskiptadeild Háskóla íslands
vorið 1972.
Hann hóf að námi loknu störf
hjá samgönguráðuneytinu að
Ferðamálakönnun Sameinuðu
þjóðanna, en frá 1. sept. 1973 hefur
Kjartan starfað hjá Ferðaskrif-
stofu ríkisins, fyrst sem aðstoðar-
framkvæmdastjóri, en var settur
forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins
11. nóv. 1976.
Kona Kjartans er Anna Karls-
dóttir.
NÚ BJÓÐUM VIÐ FLAUELSBUXUR
VE1«> Klt. 8.900.-