Morgunblaðið - 29.08.1978, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.08.1978, Blaðsíða 22
22 Aldrei spurning hvort liðið var betra í úrslitum bikarkeppninnar SUNNUDAGURINN var aagur Skagamanna í íslenzkri knattspyrnu. Þeim tókst þá í 9. tilraun að bera sigur úr býtum í bikarkeppni KSÍ. Úrslitin urðu ltO og það voru Valsmenn sem biðu lægri hlut. Þetta var í fyrsta^ skipti síðan 1975 að Valur tapaði í bikarkeppni, þá tapaði liðið einnig 1.0 gegn Akranesi. Sigur IA var í hæsta máta verðskuldaður og hefði getað orðið stærri eftir gangi leiksins. Hetja Skagamanna í þessum leik var Pétur Pétursson, en þessi mikli markaskorari gerði út um leikinn með fallegu skoti á narkamínútu fyrri hálfleiksins. Eftir hornspyrnu Karls Þórðarsonar frá hægri náði Sævar Jónsson, varnarmaður hjá Val, aðeins rétt að snerta knöttinn, sem fór beint til Péturs Péturssonar. Pétur drap knöttinn niður á brjóstinu og skaut síðan hnitmiðuðu skoti viðstöðulaust í markhornið nær á milli varnarmanna Vals. Pétur stóð að þessu marki sínu eins og sá sem valdið hefur og snillina og 3f. mark hans á keppnistímabilinu var staðreynd. Sennilega dýrmætasta markið á ferli hans. Mark, sem færði bikarinn af Hlíðarenda, þar sem hann hefur verið í tvo vetur, og í knattspyrnubæinn Akranes. Er liðsskipan var tilkynnt áður kemmtilega spretti í fyrri hálf- að á köflum í fyrri hálfleiknum, en en leikurinn hófst á sunnudaginn vakti það athygli að fyrirliði IA í sumar, Jón Askelsson, og sá leikreyndi jaxl, Jón Gunnlaugsson, voru meðal varamanna ÍA. I stað þessara kappa byrjuðu þeir leikinn Sveinbjörn Hákonarson og Sigurð- ur Halldórsson, leikrr rnn, sem sjaldan hafa verið í byrjunarliði IA í sumar. Þes ir ungu menn sýndu þó að þeir voru traustsins verðir og S nbjörn átti stórleik á móti Val. Hann barðist eins og Ijón og byggði einnig upp margar sóknarlotur IA-liðsins eins og góður verkfræðingur. Bezti maður í A í leiknum var þó Jóhannes Guðjónsson, sem gegndi fyrirliðastöðunni að þessu sinni. Hann var alls staðar í vörninni þar sem mest á reið, bjargaði hvað eftir annað á sinn rólega og yfirvegaða hátt. Hreinsaði ekki aðeins útaf eða langt fram á völlinn, heldur reyndi alltaf að byggja upp ef það, var mögulegt. Snjall leikmaður, sem ævinlega leikur með höfðinu, ekki aðeins með fótunum. Lykilmenn í Skagaliðinu eins og Karl Þórðarson, Pétur Pétursson og Arni Sveinsson gerðu mjög góða hluti í leiknum og sérstaklega í fyrri hálfleiknum. Karl og Pétur höfðu ásamt Matthíasi sérstaka gæzlumenn á sér, en tókst eigi að síður að rífa sig lausa oftar en einu sinni í leiknum. Karl ætlaði sér helzt til mikið í þessum leik, en fór þó hvað eftir annað illa með varnarmenn Vals. Athyglisvert var í leiknum hve Pétur vann marga skallabolta, en er leið á seinni hálfleikinn var hann þó ekki öfundsverður af hlutverki sínu. Þá hugsuðu leikmenn ÍA fyrst og fremst um að halda sínum hlut og minna var hugsað um að leika Pétur upp. Leikmenn eins og Sigurður Halldórsson, Guðjón Þórðarson, Jón Alfreðsson og Jón Áskelsson, eftir að hann kom inn á í seinni hálfleik, stóðu vel fyrir sínu. Þessir spilarar eiga það þó allir sameiginlegt að þeir leika fyrst og fremst sjálfa sig, eru klúbbspilar- ar, sem sjaldan brugðust í leikn- um. Matthías Hallgrímsson átti leiknum, en hann varð að fara útaf í seinni hálfleik vegna meiðsla. Kristinn Björnsson barðist vel, en er heldur stirður í öllum aðgerðum sínum. Þá er aðeins ógetið Jóns Þorbjörnssonar markmanns ÍA. Hans hlutverk var óvenju rólegt í leiknum, en Jón barg þó nokkrum sinnum vel, t.d. frá Inga Birni í seinni hálfleiknum. Af leikmönnum Vals voru þeir sterkastir að þessu sinni Grímur Sæmundsen, sem sýnt hefur mikl- ar framfarir í ár, Sigurður Har- aldsson og Dýri Guðmundsson. Ingi Björn átti góða spretti í leiknum, en í heildina átti Valslið- ið ekki góðan dag. Skagamenn voru ofjarlar þeirra að þessu sinni og án þess að nokkuð sé að vera gera lítið úr Valsliðinu og afrekum þess í sumar, þá virtust leikmenn ekki koma með réttu hugarfari til leiksins. Miklu meiri baráttu vantaði í liðið og að auki var eins og leikmenn Vals væru mun taugaveiklaðri í byrjun leiksins, heldur en Skagamenn. Nokkuð sem undirritaður bjóst við að yrði þveröfugt farið. Valur varð ís- landsmeistari á Akureyri fyrir réttri viku og e.t.v. hefur gleðið yfir þeim titli og fleira í því sambandi setið í leikmönnum. Hver svo sem orsökin var, þá náði Valsliðið sér aldrei verulega á strik gegn IA á sunnudaginn og liðið hafði heldur ekkert með sér. heldur virtust leikmenn þess þó vera að hressast er leið að lokum hálfleiksins, en þá náðu Skaga- menn góðum sóknarlotum og úr einni þeirra skoraði Pétur markið, sem réð úrslitum. Það kom á 43. mínútu hálfleiksins, en skömmu áður átti Árni glæsilegt skot sem Sigurður varði í horn. Á 46. mínútunni átti Matthias Hall- grímsson hörkuskot innan á stöng Valsmarksins og knötturinn fór eftir marklínunni í Dýra Guðmundsson og út í teiginn. Matthías hafði leikið upp með Skagamenn um það fyrst og síðast að halda fengnum hlut og það tókst nokkuð auðveldlega. Akur- nesingar léku mjög upp á það að fá Valsmennina rangstæða og létu Valsmenn alltof oft grípa sig fyrir innan í leiknum þannig að ekkert varð úr annars vel upp byggðum sóknarlotum þeirra. ÍA-Valur 1:0 Textii Ágúst I. Jónsson Myndiri Ragnar Axelsson VALSMENN YFIRSPILAÐIR Á KÖFLUM í FYRRI IIÁLFLEIKNUM Svo vikið sé að gangi bikarúr- slitaleiksins þá byrjuðu Skaga- menn með miklum látum og á fyrstu fjórum mínútum leiksins skapaðist tvívegis hætta við mark Vals. I bæði skiptin urðu varnar- mönnum á mistök, en Pétur Pétursson var í bæði skiptin sekúndubroti of seinn að átta sig. Dýri Guðmundsson var aðþrengd- ur við eigin markteig á 17. mínútu og náði naumlega að skalla yfir slá eigin marks og í netþakið. Á 25. mínútu leiksins skoppaði knöttur- inn yfir tær Péturs og Kristins í vítateignum. Valsliðið var lireinlega yfirspil- endamörkum og skot hans kom öllum á óvart úr mjög þröngri aðstöðu en allir bjuggust við fyrirgjöf. I fyrri hálfleiknum fengu Skaga- menn sex hornspyrnur, en Vals- menn tvær og segir það sína sögu um gang leiksins. Þá var heldur aldrei ástæða til að lyfta minnis- bókinni og skrá atvik í teig ÍA-liðsins, þar skapaðist aldrei hætta fyrri 45 mínútur leiksins. í seinni hálfleiknum breyttist leik- urinn mjög og varð jafnari. Til marks um það má enn nefna hornspyrnur liðanna, en hvort liðið um sig fékk aðeins eina hornspyrnu. Það segir sitt um hvar leikurinn fór fram, nefnilega á miðju vallarins. Valur átti tvö skástu færi seinni hálfleiksins og Ingi Björn hefði hæglega átt að geta jafnað á 80. mínútu leiksins. Hann fékk knött- inn þá innfyrir vörn IA, en Jón Þorbjörnsson gerði sér lítið fyrir og varði laust skot hans. Skömmu síðar átti Atli Eðvaldsson skot í hliðarnetið úr ágætu færi. í fyrri hálfleiknum hafði ÍA leikið stífan sóknarleik og þegar liðið var ekki með knöttinn var pressað mjög stíft á Valsmenn, nánast hvar sem var á vellinum. I seinni hálfleiknum hugsuðu Að leiknum loknum fögnuðu Skagamenn sigri sínum ákaflega og undraði engan. Ekkert félag hefur áður gert eins margar tilraunir til að sigra í úrslitaleik bikarkeppni án árangurs. í áhorf- endastúku og -stæðum voru aðdáendur Skagamanna fjölmenn- ir og þeir kunnu sannarlega að hvetja. sína menn í leiknum og síðan að þakka þeim fyrir að honum loknum. Einar Ágústsson, utanríkisráð- herra og knattspyrnumaður með Víkingi í eina tíð, afhenti Skaga- mönnum verðlaunin. Það var Jón Áskelsson, sem tók við bikarnum þó svo að hann hefði verið varamaður í leiknum. Jón hefur hins vegar verið fyrirliði í öðrum leikjum sumarsins og því fannst Jóhannesi Guðjónssyni réttara að aðalfyrirliðinn tæki við gripnum. Skagamenn hlupu síðan heiðurs- hring með bikarinn langþráða um völlinn, þeir Jón Áskelsson og Jóhannes Guðjónsson fyrstir. George Kirby, þjálfari ÍA, var tolleraður eins og vera bar og er komið var í búningsklefana flaut kampavínið. Góður dómari þessa úrslitaleiks var Guðmundur Haraldsson og línuverðir með honum þeir Oli Olsen og Kjartan Ólafsson. Tveir leikmenn voru bókaðir, þeir Dýri Guðmundsson og Kristinn Björnsson. LIÐ ÍA. Jón borbjörnHHon, Jóhannen Guðjónsson, Guðjón Þórðarson, Karl bórðarson, Sveinbjörn Hákonarson, Matthías Hallgrtmsson, Árni Sveinsson, Jón Alfreðsson, Kristinn Björnsson, Sijfurður Halldórsson, Pétur Pétursson, Jón Askeis- son (vm). LIÐ VALSi Sigurður Haraldsson, Guðmund- ur Kjartansson, Albert Guðmundssoii, Jón Einarsson, Atli Eðvaldsson, Grímur Sæmundsen, Guðmundur Þorbjörnsson, Ingi Björn Albertsson, Dýri Guðmundsson, Hörður Hilmarsson, Sævar Jónsson, Ilálf- dán örlyitsson (vm). I níundu tilraun tókst Skagamönnum að sigra í bikarkeppninni og binda endi á veldi Vals í keppninni tvö síðustu árin • ÞRUMUSKOT Péturs Pétursso gerði ÍA að bikarmeisturum í f Álfreðsson. Dýri Guðmundsson, • Jón á Stað Alfreðsson bergir á 1 baki hans má sjá Helga Danielst DAUF stemming í búningskle drúpa höfði og ekki er annað s 23 MILI AFLOT ALLS borguðu 6746 áhorí endur sig inn á bikarúrslita leikinn á sunnudaginn Brúttó-innkoma í aðgangs eyri nam 8.7 milljónun króna, en hvort félag um sij fékk 2.3 milljónir í sinn hlut Sú upphæð er hærri en mörf félaganna í 1. deildinni fs fyrir allt íslandsmótið Félögin höfðu lagt í nokkuri kostnað vegna leiksins þannig að það sem kom þeirra hlut er ekki hreim gróði. KSÍ fær 25% af inn komunni og fer það fé m.a

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.