Morgunblaðið - 29.08.1978, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1978
17
FLUGDAGURINN:
Ein a( Þotum Loftleiöa í lágflugi yfir Reykjavíkurflugvelli.
búsundir Reykvíkinga íylg-
ust með dagskrá flugdagsins í
Reykjavík s.l. sunnudag, enda
var veður hið ákjúsanlegasta.
hlýr blær og bjartviðri. Dag-
skráin hófst með því að floti
lítilla flugvéla flaug yfir borg-
ina og lenti á Reykjavíkurflug-
velli. Síðan rak hvert atriði
annað. en alls tóku milli 50 og
60 flugvélar þátt í flugdegin-
um. Það voru íslenzka flug-
sögufélagið og Vélflugfélag
íslands sem stóðu fyrir degin-
um. en auk innlendra véla
komu til leiks vélar frá Noregi,
Danmörku. Vestur-Þýzkalandi
og varnarliðsvélar af Keflavík-
urflugvelli. bar sem dagskrá
flugdagsins var frestað um
einn dag vegna veðurs varð
ekki af því að brezki listflug-
maðurinn Tony Bianchi sýndi
listir sínar. því hann varð að
fara af landi brott á sunnu-
dagsmorgun til að sýna í
Bretlandi. Elíeser Jónsson flug-
stjóri hjá Flugstöðinni hljóp
hins vegar í skarðið og sýndi
þá fjölmörgu möguleika sem
listflugvélin Cap 10 býður upp
á. Var það eftirtektarverðasta
atriði flugdagsins.
Mikill f jöldi fólks var saman-
kominn innan flugvallargirð-
ingar hjá Loftleiðahótelinu og
þar kynnti Ragnar Ragnarsson
dagskrána, en sú kynning kom
ekki fyllilega til skiia því
hátalarakerfið náði ekki yfir
allt svæðið og kyrrstæðar vélar
sem voru í gangi á ílugbraut-
inni trufluðu einnig kynningu.
Það þótti mörgum heimilis-
legt þegar Dakotavélarnar
tvær flugu yíir völlinn í hring-
flugi, önnur íslenzk frá Land-
græðslunni, hin dönsk frá
danska flughernum. Þá komu,
m.a. tvær Lockheed P-3 Orion
kafbátaeftirlitsvélar, önnur frá
norska flughernum, hin frá
Varnarliðinu. Björgunarsveit-
in á Keflavíkurflugvelli sýndi
hvernig þyrla tekur eldsneyti á
flugi og einnig sýndi sveitin
björgun með þyrlu. Þá sýndu
þotur varnarliðsins fylkingar-
flug, fallhlífarstökk var, Fokk-
erar Flugfélags íslands sýndu
á milli áætlunarferða og sér-
staka athygli vakti sýningar-
atriði Ingimars flugstjóra á
Fokkervél. Þá sýndu Piper-Cup
vélar hópflug, Orion sýndi
stutt flugtak og vesturþýzkur
Transall C160 tók eina lotu
yfir svæðinu, en inn á milli
fastra dagskráratriða tóku
þotur Loftleiða, Flugfélags
Islands og Arnarflugs þátt f
Flugdeginum með hringflugi
yfir borginni.
bá gafst fólki kostur á að
skoða flugvélarnar á flugvell-
inum og sýndi fólk mikinn
áhuga í þeim efnum. Hvarvetna
kring um Reykjavíkurflugvöll
mátti sjá fólk fylgjast með
Flugdeginum og sérstaklega
margt fólk var í Öskjuhlíðinni.
- á.j.
Fólk flykktist að til aö skoða vélarnar.
Þyrla varnarliðsins sýnir hvernig hún tekur eldsneyti úr birgöavél.