Morgunblaðið - 29.08.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1978
21
• Wilkins heíur mikið álit á óskari Jakobssyni og segir að hann hefði
gott af að koma til æfinga og keppni í Bandaríkjunum. (Ljósm. Mbl.i
RAX)
ólympíuleikunum í Montreal í
Kanada?
— Jú, reyndar, en það var mikið
stapp að standa í því. Ég og
kúluvarparinn A1 Feuerbach vild-
um ekki fara til ólympíuþorpsins
strax í upphafi leikanna, við
vildum vera um kyrrt í æfingabúð-
um liðsins sem voru skammt frá
og koma svo til sjálfrar keppninn-
ar. Við fengum ekki leyfi til þess,
en tókum þá ákvörðun að láta ekki
segjast og fórum okkar fram.
Vakti þetta miklar deilur og
skapaði viss leiðindi. Samt þakka
ég sigur minn á síðustu ólympíu-
leikum þessari ákvörðun minni.
En þó svo að ég hafi sigrað, var ég
óánægður með árangur minn. Ég
setti nýtt ólympíumet í undanúr-
slitunum, kastaði 68,32 metra, en
í sjálfri aðalkeppninni mældist
sigurkast mitt aðeins 67,50.
Hef tvívegis
fengið matar-
eitrun í Moskvu
— Stefnirðu á sigur í næstu
leikum sem fram fara í Moskvu?
— Já, það geri ég. Þar ætla ég
mér að sigra, það má gjarnan
koma fram. Samt er ég þeirrar
skoðunar að ólympíuleikarnir í
Moskvu geti mistekist algerlega.
Það vantar svo margt upp á í
svona þjóðskipulagi til að hægt sé
að halda svona leika svo að vel
takist. Fæðan hjá þeim er t.d.
alveg voðaleg. Ég hef tvívegis
fengið matareitrun er ég hef verið
þar á keppnisferðalagi. Ég er
hræddur um að ólympíuleikarnir
séu að tapa gildi sínu, þeir eru
orðnir of pólitískir og of mikil
auglýsingabrella. Nú koma Sovét-
• menn til með að reyna að sanna
kerfi sitt með því að halda góða
leika og sanna styrk sinn í
íþróttum.
— Hversu langt ætlar þú að
kasta kringlu í framtíðinni?
Framför
um 20 m
á 9 árum
Árangur Mac Wilkins í
kringlukasti
1970- 49.00 metrar
1971- 53.50 -
1972- 59.70 -
1973- 64.76 -
1974- 65.14 -
1975- 66.78 -
1976- 70.86 — Heimsmet.
1977- 69.30 -
1978- 70.02 - NáAi þessum
árangri á Laugardalsveili.
1979- ? ? ?
— Ég hef hugsað mér að keppa
í tvö ár enn. Ég veit að ég á að geta
kastað kringlunni 74—75 metra,
og að því stefni ég.
— En hversu langt er hægt að
kasta kringlu í framtíðinni?
— Það er möguleiki á að kasta
80 metra, en þá verður vindur að
vera hagstæður, en engu að síður
verður kastið að vera gott.
Óskar er eitt
mesta efni sem
ég hef séð
— Hvernig líst þér á þá Hrein
Halldórsson og Óskar Jakobsson?
Telurðu að þeir eigi eftir að ná enn
lengra?
— Hreinn er geysilega sterkur.
Ef hann lagar kaststil sinn kastar
hann 21.50 metra, en eftir það
getur verið erfitt að bæta sig.
Tæknin er mun mikilvægari en
margir gera sér grein fyrir. Óskar
er stórkostlegt efni, eitt það mesta
sem ég hef komist í kynni við. Að
vísu skortir hann tækni eins og
Hrein en það kemur. Það myndi
gera Óskari gott að koma til
Bandaríkjanna um tíma til æfinga
og keppni, en hann hefur fengið
gott tilboð frá nokkrum háskólum
þar. Óskar á hæglega að geta
kastað 68—69 metra í framtíðinni
með einbeitni við æfingar og
samviskusemi.
— Hvert er nú minnisstæðasta
atvik sem hent hefur þig í
íþróttakeppni?
— Minnisstæðasta atvik sem
hent hefur mig í keppni, látum
okkur sjá. Árið 1973, í mikilli
háskólakeppni. Til þess að skólinn
minn sigraði varð ég að sigra í
kúluvarpinu. Ég átti langt frá því
bestan árangur keppenda, en með
því að bæta mig um 1.15 metra í
þessari einu keppni tókst mér að
sigra, og jafnframt færa skóla
mínum sigur í keppninni. Þetta
verður mér ávallt minnisstætt.
— Nú hefur þú látið svo um-
mælt að þú munir koma hingað
aftur til keppni næsta sumar,
hvernig er að keppa hér á landi?
— Það er stórkostlegt. Ég er
mjög þakklátur fyrir að hafa
fengið tækifæri á að koma hingað.
Landið ykkar er mjög fallegt og
fólkið gott. Ég fékk tækifæri á að
fara til Gullfoss og Geysis og um
Suðurlandsundirlendið og verður
það mér ávallt minnisstætt. Þá vil
ég nota tækifærið og þakka Erni
Eiðssyni og Erni Clausen fyrir alla
þá hjálp sem þeir veittu mér
meðan á dvöl minni hér á landi
stóð. Ég vonast eindregið til þess
að fá tækifæri á að koma hingað
aftur næsta sumar.
- þr.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
rJóhann
! Ingi
i Gunnars-
! son
Nú er ekki langt í að
I handknattleiksvertíðin hefjist.
' Mörg verkefni bíða landsliðs-
| manna í handknattleik, og fer
I undirbúningur senn að hefjast.
1 Það er Jóhann Ingi Gunnars-
I son sem fær það verkefni að
| undirbúa landsliðið undir átök-
in. Er þetta hans fyrsta. þol-
I raun sem landsliðsþjálfari
I karla. og verður fróðlegt að sjá
, hvernig honum tekst upp.
Jóhann Ingi Gunnarsson er
| fæddur 21. maí 1954. Hann hóf
I snemma afskipti af íþróttum því
að fimm ára gamall byrjaði
I hann í knattspyrnu hjá Val. Níu
I ára gamall hóf hann æfingar í
, handknattleik og hefur hann
I verið viðloða hann alla tíð síðan.
Jóhann Ingi var fyrirliði
íslenska unglingalandsliðsins
I árið 1973, en i því liði voru
I leikmenn sem nú hafa gert
. garðinn frægan, svo sem Gunn-
' ar Einarsson, Þorbjörn Guð-
| mundsson, o.fl. Þá lék Jóhann
■ með mfl. Vals í fimm ár. Jóhann
lék um tíma með svissneska
liðinu HC Horgen sem er í 2.
| deild.
Með liði þessu lék Jóhann
I meðal annars 11 manna hand-
knattleik og var þá leikið á
] Gordon
1 McQueen
' ÞAÐ ERU ekki mörg ár siðan
I Gordon McQueen kom fyrst
| fram á sviðsljósið sem ungur,
óreyndur, en efnilegur mið-
I vörður hjá Leeds United, nú er
| hann í röðum Mancchester
• United og talinn af mörgum
' vera fremsti miðvörður Evr-
| ópu.
I McQueen fæddist í Kilbirnie í
Skotlandi árið 1952 og þegar
I hann varð 17 ára, hóf hann að
I leika knattspyrnu með stráka-
. liði í Largs, sem er skammt frá
I Glasgow. Eins og flesta stráka
| á þeim slóðum dreymdi hann
I um að verða frægur knatt-
1 spyrnumaður hjá Celtic, Rang-
| ers — eða jafnvel Manchester
| United. í þá daga var Gordon
McQueen vinstri útherju þótt
I ótrúlegt sé, en þegar hann fór að
I vaxa upp úr öllu valdi, ráðlögðu
. honum margir að færa sig aftar
' á völlinn, í vörnina. Meðan
| kappinn dvaldi hjá Largs var
I honum boðið til Liverpool, þar
sem Bill Shankly gerði mikið úr
I því hversu efnilegur hann væri
| og allt það. Framtíðin virtist
. blasa við McQueen, en heimþrá-
I in reið ekki við einteyming og
| hann flýði heim. Því næst lá
• leiðin til Ibrox Park, þar sem
hann æfði hjá Rangers í tvær
| vikur. En félagið virtist í vafa
‘knattspyrnuvelli, og mörkin af
sömu stærð og knattspyrnu-
mörk, kvað Jóhann þetta hafa
verið skemmtileg reynsla. Regl-
urnar eru að vísu frábrugðnar
venjulegum handknattleiksregl-
um og mega til dæmis aðeins 6
leikmenn vera í sókn í einu.
Jóhann hóf þjálfarastörf sín
hjá Val 15 ára gamall. Þjálfaði
hann fyrst 5. flokk félagsins, en
síðar tók hann virkan þátt i
þjálfun kvennaflokka. Aðspurð-
ur um þjálfaramenntun sagði
Jóhann:
— Ég notaði til að byrja með
kunnáttu þá sem ég hafði fengið
hjá hinum kunna þjálfara Þór-
arni Eyþórssyni. Hann hef ég
alltaf metið mikils sem þjálfara.
Ég fór í þjálfaraskóla í Júgó-
slavíu og dvaldist um tíma hjá
félaginu Dynamo Pansivo, þá
fylgdist ég með æfingum lands-
um hvort hann væri þess verður
að haldið væri í hann og gat í
hvorugan fótinn stigið. Þess
vegna var McQueen þeirri stund
fegnastur er hann yfirgaf Ibrox.
Hann var varla farinn að leika
með Largs á ný, er útsendari frá
St. Mirren kom auga á hann og
bauð honum samning. McQueen
var fljótur að slá til og fór til
Mirren, enda taldi hann þá
mikla möguleika á því að stóru
félögin myndu frekar taka eftir
sér. Það fór líka svo, að einn af
mörgum njósnurum Leeds í
Skotlandi sá til piltsins og leist
vel á hann. Og McQueen hafði
undirritað samning næstum
áður en að hann var lagður á
borðið. Salan gekk þó ekki upp
í fyrstu tilraun, þar sem St.
Mirren lagði í byrjun fram
kröfu um fjárhæð sem Leeds
hafði engan áhuga á að greiða.
liðsins og var þetta mjög lær-
dómsríkt fyrir mig. Ég hef ekki
síður gaman af því að þjálfa en
að leika handknattleik sjálfur.
Jóhann Ingi hefur þjálfað ungl-
ingalandslið íslands með góðum
árangri og einnig náði hann
athyglisyerðum árangri með
landslið Islands 21 árs og yngri.
— Jóhann, ertu bjartsýnn á
góðan árangur í handknatt-
leiknum í vetur?
— Já, ekki get ég sagt annað.
En það verður að halda rétt á
málum, og þetta fer svolítið
eftir því hvernig næstu stjórn
HSÍ tekst upp. Það þarf að kalla
menn til starfa, það eru alltof
margir sem sitja út í horni og
vilja vinna en eru ekki nýttir.
— Hvenær hefjast landsliðs-
æfingar?
— Fyrstu æfingar landsliðs-
ins hefjast snemma í september.
Fyrstu landsleikir okkar verða
um miðjan september úti í
Færeyjum. Síðan sækja þeir
okkur heim í október og þá er
von á Pólverjum hingað til lands
í lok sama mánaðar.
— Ert þú sjálfur farinn að
undirbúa þig?
— Já ég er þegar byrjaður á
undirbúningsvinnu, núna er ég
að lesa mér til um atriði og svo
fer ég hugsanlega á þjálfara-
námskeið fljótlega til Aust-
ur-Þýzkalands. — þr.
Síðar urðu Skotarnir samnings-
liprari og McQueen var seldur
suður á bóginn fyrir smápen-
inga. Til að byrja með var ekki |
reiknað með að McQueen myndi
komast í liðið, enda var Jack
Charlton að því er virtist
óhagganlegur í stöðu miðvarðar
í liðinu og hafði verið um langt
skeið. Það var í september 1972
sem McQueen fór til Leeds og
aðeins 6 mánuðum síðar lék
hann sinn fyrsta leik með
aðalliðinu og þá í stöðu vinstri
útherja. Hann lék 6 leiki það
keppnistímabil og hefur síðan
verið fastamaður, fyrst hjá
Seeds, síðar í skoska landsliðinu
og síðastliðið vor var hann síðan
seldur fyrir ógrynni fjár til
Manchester United. McQueen
kunni vel við sig undir stjórn
Don Revie hjá Leeds, en þegar
hann tók við landsliðinu, Jimmy
Armfield tók við Leeds og seldi
Joe Jordan, besta vin McQueen,
fannst honum mælirinn vera
orðinn fullur. Dave Sexton,
nýtekinn við stjórninni hjá
Man.Utd., var fljótur að bjóða í
miðvörðinn sterka sem var enn
fljótari að skrifa undir, enda
hafði hann dreymt um það sem
unglingur að leika einhvern
tíma með Manchester United.
Selfoss sjötta
liðiðí úrslit
þriðju deildar
SELFYSSINGAR urðu sjötta og
síðasta liðið til að tryggja sér sæti
í úrslitakeppni þriðju deildar.
sem hefst á fimmtudaginn. Sel-
fyssingar sigruðu Víði úr Garði
3il í aukaleik í Kópavogi á
föstudagskvöldið og höfðu Sel-
fyssingar umtalsverða yfirburði í
leiknum. Liðin sem leika til
úrslita eru Sclfoss. Víkingur
Ólafsvík, KS Siglufirði, Einherji
Vopnaíirði, Njarðvík og Magni
Grenivík.
Leikirnir í úrslitunum verða
sem hér segir:
Sauðárkrókuri
Magni — Einherji 31.8.
Einherji — Njarðvík 2.9.
Njarðvík — Magni 4.9.
Varmárvöllur, Mosf.sveit.i
Selfoss — Víkingur 31.8.
Víkingur - KS 2.9.
KS - Selfoss 4.9.
Úrslitaleikurinn í þriðju dcild
fer síðan fram 9. septcmber og er
það breyting frá því sem var í
fyrra. Þá voru Fylkismönnum
afhent sigurlaunin eftir að
Austra hafði fyrst verið tilkynnt
að þeir væru sigurvegarar í
deildinni. Liðin léku aldrei saman
fyrr en í sumar, en þá vann
Austri báða leiki liðanna í 2.
deild.
-áij.
LYFTINGAMENN
ÆFA FYRIR NM
Nú fer í hönd keppnistímabil í
kraftlyftingum, sem hefst með
Noróurlandameistaramóti í Borgá í
Finnlandi dagana 23. og 24. septem-
ber n.k. Sex keppendur æfa nú fyrir
mótið. Það eru Skúli Óskarsson
UÍA, Helgi Jónsson KR, Friörik
Jósepsson ÍBV, Sverrir Hjaltason
KR, Óskar Sigurpálsson ÍBV og
Arthur Bogason. ÍBA.
Þessu næst verður Heimsmeist-
aramót í kraftalyftingum haldiö í
Finnlandi 1. til 5. nóvember n.k. Þeír
sem stefna að pátttöku par eru:
Skúli Óskarsson ÚIA, Friðrik
Jósepsson ÍBV og Óskar Sigurpáls-
son IBV.
Á næsta ári er stefnt að pví, að
Norðurlandameistaramótið í kraft-
lyftingum verði haldið hér á landi.