Morgunblaðið - 29.08.1978, Side 41

Morgunblaðið - 29.08.1978, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1978 41 5*|iTiÍjií I * 1 \ !' ! ’) ir&rr- mm*? VELVAKANDt SVARAR í SÍMA 0100 KL 10 — 11 FRÁ MANUDEGI ^ M (UATnFK-LUJ'l) II Keyptum við tvo miða og hugðumst sitja undir 6 ára göml- um tvíburum okkar. Það var rifið af miðunum eins og venja er og settumst við inn. Þá kom einhver maður, sennilega dyravörður eða eitthvað í þá áttina, og sagði að við yrðum að kaupa tvo miða til viðbótar fyrir börnin því ekki væri leyfilegt að sitja undir þeim. Við buðumst til að kaupa eir.n miða fyrir bæði börnin, hver miði kostaði 500 krónur, en það kom ekki til mála og sagði hann okkur að þau, sem miða hefðu, mættu vera inni, hin miðalausu (börnin) yrðu að fara út. Við kváðumst öll ætla út og fá miðana tvo endur- greidda, en það kom ekki til mála þar sem reglur hússins leyfðu það ekki. Þetta var á sjösýningu og gestir hússins svo fáir að telja mátti á fingrum sér, en við urðum heim að snúa miðunum fátækari. Við höfðum hins vegr farið í öll‘ kvikmyndahús borgarinnar áður nema í Nýja Bíó og allst staðar fengið að sitja undir börnum okkar, hvort sem húsin hafa verið full eða tóm. Einhver liðlegur maður hefði leyft þetta eða hins vegar endurgreitt okkur utan- bæjarfólkinu miðana, svo maður tali ekki um að hægt hefði verið að láta sér nægja einn miða á 500 krónur fyrir börnin, nei 1000 krónur fyrir 6 ára börn eða út. Svo mörg voru þau orð, en það voru ekki fyrst og fremst peningarnir sem skiptu máli, heldur liðlegheit- in. Þess má líka geta að á barnasýningu kostar miðinn 250 krónur fyrir börn. Guðrún Benediktsdóttir, Hjallavegi 3K, Ytri-Njarðvík. • Gömul þjóðar- íþrótt Velvakanda hefur borist fjöldinn allur af lausavísum en gallinn við þær flestar er að ekki fylgir þeim nafn höfundar, og þá er ekki hægt að birta þær. Nafnið þarf þó ekki að birtast í blaðinu, þótt það sé að öllu leyti æskilegra. Að setja saman stöku er gömul þjóðaríþrótt íslendinga og þætti því Velvakanda gaman að fá sendar vel ortar stökur, en vin- samlegast gleymið ekki að láta nafn og símanúmer fylgja, en ekki þarf að birta það í blaðinu, sé þess óskað. Eftirfarandi ferskeytla barst frá „sjálfstæðum útvarpshlustanda": Útvarpið stefnir í andleica mola ok aldrei í rauninn skilið ég íæ það virðinKarieysi að verða að þola vælið ok ruKlið í Ása í Bæ. ÞeSvSÍr hringdu . . . skömmtun Ferðamaður, sem hyggst bregða sér til útlanda, hringdi til Velvakanda og vildi fá að koma eftirfarandi á framfæri: „í janúar síðastliðnum þurfti ég að bregða mér til útlanda og fékk þá fullan gjaldeyrisskammt í bankanum, eins og lög gera ráð fyrir. Nú hef ég í hyggju að bregða mér aftur út fyrir landsteinana og lagði ég því inn gjaldeyrisumsókn í bankann og hélt að þetta gengi s fyrir sig á sama hátt og það gerði * í janúar. En viti menn, þegar ég kom til að sækja gjaldeyrinn, var mér sagt að ég fengi aðeins hálfan skammt, þar sem ég hefði farið áður út á árinu. Eg varð vissulega alveg undrandi, því ég get ekki séð að það sé neitt ódýrara fyrir mig að halda mér uppi erlendis, þó ég sé að fara út í annað sinn á árinu, matur og annað sem kaupa þarf hlýtur að kosta það sama í janúar, ef ekki meira. Frá mínu sjónarmiði er þetta fyrirkomulag aðeins til að örva gjaldeyrissölu á svörtum markaði, því það gefur auga leið að enginn getur undir venjulegum kringum- stæðum komist af með hálfan gjaldeyrisskammt í þrjár vikur eða jafnvel lengur. Fólk reynir bara að afla sér þess sem upp á vantar hjá gjaldeyrisbröskurum og það hljóta allir að sjá. Það er því undarlegt að hið opinbera reyni með lögum og reglum að ýta undir ólöglega starfsemi í landinu.“ Ferðamaður. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á skákmóti í Belgíu í fyrra kom þessi staða upp í skák þeirra Defosse og Francks, sem hafði svart og átti leik. 12.... Dh4!! 13. Rf3 (Eða 13. gxh4 — Hg6+ 14. Khl — Rxf2 mát) Rg5! 14. gxh4 og hvítur gafst upp um ieið. Eftir 14. ... Rxf3+ 15. Kg2 - Rel++ 16. Kg3 - Hg6+ 17. Kf4 - Hg4+ 18. Ke5 — Rf3 er hann mát. HÖGNI HREKKVÍSI Aðalsteinn Sigurðsson að störfum hjá Ilafrannsóknarstofnun. „Einstakt tækifæri að fylgjast með þróun dýralífs” Rætt við Aðalstein Sigurðsson fiskifræðing hvaða röð þau koma og hver afstaða þeirra er innbyrðis. Svif var alltaf til staðar þarna þannig að fyrstu dýrin sem komu voru svifætur. Síðan fóru að koma fast sitjandi þörungar og þar næst dýr sem annaðhvort lifðu á þeim eða höfðu þá til ásetu. Þar á eftir koma svo dýr sem lifa á öðrum dýrum. Þetta er þróunin sem búast mátti við og sýndi sig einnig að kom fram.“ — Hvernig hafa rnnsóknirnar gengið fyrir sig? „Eg hef haft froskmenn til þess að taka fyrir mig myndir neðansjávar og til þess að taka sýni. Það er að mínu mati bezta aðferðin til þess að fá sýni af svo hörðum botni sem þar er. Það er búið að vinna mikið við þetta en það er enn eftir að vinna úr þeim gögnum sem ég tók í sumar. Það er ástæðan til þess að ég sótti um styrkinn og ég ætla að fá menn til þess að frumvinna þau sýni sem enn eru óunnin. Vegna vinnu minnar hér á Hafrannsóknarstofnuninni hef ég haft lítinn tíma til þess að vínna að þessu sjálfur. Fyrstu fjögur árin vann ég um soðinn fisk og annað því um líkt í þessu sambandi. En vegna mikillar blöndunar sjávarins mældist ekki nein veruleg hita- breyting nema fast upp við eyna. Eftir að gosinu lauk hefur þróunin við Surtsey verið hæg. Að vísu hef ég ekki unnið úr síðustu gögnunum. Fyrst í stað tók ég sýni einu sinni á ári og þá sáust breytingar í hvert skipti. Síðan hefur þróunin hægt á sér og nú tek ég ekki sýni nema þriðja hvert ár. Það er ósköp eðlilegt að þróunin hægi á sér. Fyrst í stað var nóg rými fyrir þær tegundir sem komu en síðan minnkaði rýmið og sam- keppnin kom til sögunnar. Manni getur líka sézt yfir eina og eina tegund — það er ekkert alveg öruggt.“ — Er eitthvað í þessum rannsóknum sem hefur komið þér á óvart? „Það er nú ekki mikið sem hefur vakið undrun mína. Það er þá helzt að við Surtsey hef ég fundið tegundir sem ekki hafa fundizt við Island áður, bæði marflær og mosadýr." R.M.N. Aðalsteinn Sigurðsson íiski- fræðingur hefur um árabil stundað rannsóknir á dýrah'fi í sjónum við Surtsey. Nýlega var honum veittur styrkur til Vís- indasjóðs til þessara rann- sókna. Við komum að máli við Aðalstein og inntum hann fyrst eftir því í hverju rannsóknir hans væru fólgnar. „Þessi hluti rannsóknanna, sem nú er unnið að, hófst árið 1967 og er fyrst og fremst fólginn í því að fylgjast með því hvaða dýr setjast að í neðan- sjávarhlíðum Surtseyjar. Þar var ekkert dýralíf eftir gosið svo að þetta er einstakt tækifæri til þess að fylgjast með þróun dýralífsins þarna. Ég tók þann kostinn að hugsa einungis um grynnri hlutann þ.e.a.s. frá fjöruborði og niður á 40 metra dýpi. Tilgangurinn með þessum rannsóknum er að sjá hvernig dýralíf byggist upp á áður dauðu svæði, hvaða dýr koma fyrst, í mikið við rannsóknirnar og þá að mestu leyti hjá Surtseyjarfé- laginu en síðan hafa þær gengið fremur seint vegna tímaskorts- ins. Þetta er mikið starf. Það koma fram margar tegundir og sumar þeirra er erfitt að greina. Þess vegna hef ég haft samband við starfsbræður mína erlendis og hafa þeir greint fyrir mig ýmsa flokka. I kringum gosið, u.þ.b. ‘h mánuði eftir að það byrjaði, hóf ég rannsóknir við Surtsey en þær rannsóknir voru allt annars eðlis og beindust í aðra átt. Gögnin voru þá tekin með það fyrir augum að sjá hvaða áhrif gosið hefði á dýralífið í sjónum í kringum eyna. Það hafði nú ekki mikil áhrif í byrjun, ekki fyrr en gosefnin lögðust yfir botninn — það hafði að sjálf- sögðu sín áhrif á dýralífið því þá breyttist botninn úr leirbotni í sandbotn. Menn óttuðust mest að sjórinn myndi hitna af völdum gossins og töluðu jafnvel Kræklingabreiða í neðansjávar- hlíðum Surtseyjar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.