Morgunblaðið - 26.10.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978
3
Eimskip lækkaði vamar-
liðsf lutningana um 25%
— Hreint undirboð, segja Bifrastar-menn
— Lækkunin nauðsynleg til að mæta auk-
inni samkeppni, segir forstjóri Eimskips
EimskipafélaK íslands hcfur
lækkað farmRjöld sín á gámum
frá Bandarikjunum ok til íslands
um 25%. FarmKjöld félagsins á
flutninnum fyrir varnarliðið
lækkuðu samkvæmt þessu úr
1750 dollurum i 1312,50 dollara
ou flutningur fyrir íslcnzka aðila
iækkaði í 1750 dollara eða til
samræmis við þau flutningsKjöld
sem skipafélagið Bifröst hafði
skráð. Forráðamenn Bifrastar
segja að lækkun Eimskipafélags-
ins á varnarliðsflutningunum sé
hreint undirhoð af hálfu Eimskip
en forráðamenn Eimskip segja
lækkunina hafa verið nauðsyn-
lega til að mæta aukinni sam-
keppni. Samkeppni Eimskipa-
félagsins og Bifrastar hefur leitt
til þess að farmgjöld á varnarliðs-
flutningunum hafa lækkað úr
2309 dollurum á hvcrn gám í
liðlega 1300 dollara, en á hcilu ári
mun farmgjaldalækkun þessi
spara varnarliðinu um 900
milljónir króna.
Morgunblaðið sneri sér í gær til
Óttars Möller, forstjóra Eimskip,
og innti hann eftir ástæðum fyrir
þessari lækkun:
Erlend samkeppni
olli lækkuninni
„Eins og mönnum er kunnugt,
þá sigldu amerísk skipafélög með
vörur til varnarliðsins hér áður.
Eimskip fékk síðan þessa
flutninga árið 1966 og hefur haft
til ársins í ár. Þetta hefur aflað
þjóðinni mikilla gjaldeyristekna
og tryggt góða nýtingu skipa
félagsins, sem sigla til Bandaríkj-
anna með frystan fisk og því hefur
verið marglýst yfir, að varnarliðið
hefur verið mjög ánægt með þessa
flutninga.
Síðan gerist það, að skipafélagið
Bifröst kemst inn í þennan
flutning með 10% lægri flutnings-
gjöldum. A sama tíma skeður það
svo að varnarliðið gjörbyltir
pökkunaraðferðum sínum og lang-
mest af þeirra vörum ef ekki um
90% kemur í gámum. Þeir lesta
gámana sjálfir, taka við þeim hér
og losa þá sjálfir. Þeir greiða síðan
flutningsgjöldin mjög fljótt og vel
í erlendum gjalderyri. — Við
þessar breytingar sá Eimskipa-
félagið, að nauðsynlegt var að
lækka farmgjöld af gámum, því að
annars leyndist sú hætta, að
amerísk skipafélög yfirtækju
flutningana aftur. Eimskipafélag-
ið ákvað því að lækka farmgjöld á
gámaflutningum um 25%. En ekki
var um að ræða lækkun á öðrum
flutningi, hvorki fyrir varnarliðið
né Islendinga.
Bifröst lækkar
Bifröst brást þannig við, að þeir
lækkuðu farmgjöld á gáma-
flutningum fyrir varnarliðið og
lausavörum fyrir Islendinga.
Einnig eru dæmi þess að þeir hafi
lækkað vissar vörutegundir fyrir
sína velunnara. Því hefur verið
mætt með lækkun Eimskipafé-
lagsins á viðkomandi vörutegund-
um, svo að viðskiptavinir þess
sætu ekki við skertan hlut. Fyrir
hálfum mánuði síðan ákvað svo
Eimskipafélagið að mæta þessari
samkeppni, lækkaði alla vörur frá
Bandaríkjunum, lausavöru fyrir
varnarliðið og Islendinga og gáma-
flutninga um 25%.“
Þá gat Óttar Möller þess, að
Eimskipafélagið hafi í áratugi
verið undir verðlagsákvæðum með
flutning stykkjavöru. Hækkana-
beiðnir hafi hverju sinni verið
afgreiddar með hliðsjón af því
þjónustuhlutverki sem Eimskipa-
félagið gegnir. Sem dæmi um þetta
gat Óttarr þess, að vörur sem eru
skráðar á svokallaðar aöalhafnir
úti á landi og hefur verið safnað
saman í Reykjavík, eru fluttar á
þessa staði móttakendum að
kostnaðarlausu. Væri þetta
einungis einn margra þátta í
þjónustu félagsins sem væri tap-
rekstur á. Til þess að geta annað
þessu þjónustuhlutverki yrði ein-
hvers staðar að vera hagnaður. Ef
það færi í vöxt að menn ættu bæði
skip og vörur, færi ekki hjá því að
markaðurinn þrengdist og farið
gæti svo að Eimskipafélagið
neyddist til að draga úr hinni
ýmsu þjónustu sem veitt er í dag.
„Það er því ekki nóg að Eimskipa-
félagið þurfi að keppa við 36
innlend skip, heldur er það einnig
bundið af verðlagsákvæðum, sem
ákveða hámarksverð, en ekki
lágmarksverð. Því höfum við sagt
öllum okkar viðskiptavinum, að ef
þeir geti fært sönnur á, að aðrir
flytji vörur á lægra verði en við,
verðum við að mæta slíkri sam-
keppni, því að öðrum kosti mynd-
um við missa flutningana," sagði
Óttarr ennfremur.
Fullyrðingum
Bifrastarmanna
mótmælt
án þess að standa í blaðadeilum og
rifrildi við sína keppinauta á
opinberum vettvangi, en nú varð
ekki hjá því komist."
Eins og kunnugt er, flytur
Eimskipafélagið vöruna til
Reykjavíkur og aðalhafna úti á
landi. Það fær ekki flutningsgjöld-
in greidd fyrr en móttakendur
afgreiða vöruna í tolli og framvísa
frumfarmskírteini. Vegna þess að
flutningsgjöld eru greidd í íslenzk-
um krónum þá jafnvel ekki fyrr en
mánuðum eða árum eftir að varan
kemur til landsins, hefur Eim-
skipafélagið orðið fyrir verulegu
tjóni vegna lækkunar íslenzku
krónunnar. Sem dæmi um þetta
má geta þess að gengistap félags-
ins á þessu ári nemur um 500
milljónum íslenzkra króna vegna
lausaskulda erlendis. A þessu má
augljóslega sjá, að flutningsgjöld
fyrir varnarliðið og íslendinga eru
alls ekki sambærileg,“ sagði Ótt-
arr Möller, forstjóri Eimskipafé-
lags íslands, að síðustu.
„Verð SÍS-skipanna
ekki helmingi lægri“
„Það er auðséð, að forráðamenn
Sambandsins, hafa komist að raun
um, að það er mun hagkvæmara að
kaupa þessi ágætu skip í stað þess
að byggja ný. Samkvæmt heimild-
um sem við höfum þá voru þessi
skip boðin til sölu fyrir mánuði
síðan fyrir 8 milljónir danskra
króna. Eimskipafélagið keypti
þessi skip fyrir rúmlega einu og
hálfu ári síðan fyrir 13 milljónir
danskra króna. Það er mjög
algengt að skip lækki í verði í
erlendum gjaldeyri um 10 til 15%
árlega. Því er ekki óeðlilegt að
sambandsmenn fái þessi skip á
lægra verði en við á sínum tíma,
en ekki helmingi lægra,“ sagði
Óttarr Möller, vegna frétta um að
SÍS hefði keypt tvö flutningaskip
sömu tegundar og nýjustu skip
Eimskips nema hvað nú væri
verðið helmingi lægra.
Óttar sagði ennfremur, að sú
staðreynd lægi fyrir, að heilu
firðirnir væru fullir af ónotuðum
skipum á Norðurlöndunum sem
ekki væri hægt að selja, vegna
þess að markaðurinn hefur verið
mjög lágur að undanförnu.
Bifröst íhugar
viðbrögð
Þá sneri Mbl. sér til Finnboga
Gíslasonar, framkvæmdastjóra
Bifrastar, og innti hann eftir
viðbrögðum þeirra við lækkun
Eimskipafélagsins. — „Þessa
lækkun Eimskip bar nú svo brátt
að, að við höfum enn ekki gert
neina breytingu á okkar flutnings-
gjöldum fyrir herinn. Það verður
væntanlega tekin ákvörðun í
þessum málum á næstunni, en við
lítum auðvitað á þessa lækkun sem
augljóst undirboð gegn okkur,"
sagði Finnbogi.
Anna Moffo. (U6sm. Emilía)
Fyrri
tónleikar
• •
Onnu
Moffo
í kvöld
í gærmorgun kom Anna
Moffo, sópransöngkonan
heimsfræga. til Reykjavíkur.
Anna Moffo er hingað komin á
vegum Fulbrigt stofnunarinn-
ar á íslandi. sem um þessar
mundir á tuttugu ára afmæli.
og mun hún koma fram á
tvennum tónleikum i Háskóla-
bíói. Ilinir fyrri verða í kvöld
kl. hálfníu, en síðari tónleik-
arnir verða á sunnudaginn og
hefjast þeir klukkan hálfþrjú.
Aðgöngumiðar fást hjá
Happdrætti Háskóla íslands
Tjarnargötu 4.
„Úr því að farið er að ræða um
Bifröst, sem virðist ætla að reka
sitt skipafélag í dagblöðum, þá
skal það tekið fram, að þegar þeir
fullyrtu að frá komu m/s Bifrastar
hafi bílar lækkað um 600 milljónir
íslenzkra króna, þá segi ég, að það
er þvættingur. Þeir hafa engan bíl
flutt milli Evrópu og Islands. Þeir
hafa aðeins eftir því sem bezt er
vitað flutt nokkra Ford-bíla frá
Bandaríkjunum. Þess vegna lækk-
uðu flutningsgjöld af bifreiðum
ekki við komu Bifrastar. Hins
vegar komu innflytjendur bifreiða
fyrir fjórum árum siðan til
Eimskipafélagsins og bentu á að
þeir teldu, að miðað við aðra vöru,
væru flutningsgjöld á bílum of há.
Við höfðum á þeim tíma eignast
skip með sléttum dekkum, svo það
var til muna auðveldara að flytja
bílana en áður. Því ákváðum við
eins og svo oft áður varðandi aðra
vöru að lækka flutningsgjöld á
bifreiðum. Þetta kom því komu
m/s Bifrastar, sem kom nokkrum
árum seinna, ekkert við. Þetta
hefði kannski átt að koma fram
fyrr, en Eimskipafélagið hefur
haft nóg með að þjóna þessu landi
Lúxusbíllínn
ó lóga verdinu
MAZDA 9291 LEGATO
MAZDA 929 Legato býður upp á eitt sem flestum
framleiðendum lúxusbíla hefur ekki tekist að bjóða:
það er viðráðanlegt verð.
Verö
BÍLABORG HF.
SMIDSHÖFDA 23 símar: 81264 og 81299