Morgunblaðið - 26.10.1978, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978
ffeimsókn
að Brú í
Jökuldal
FRAM HEFUR komiö í fréttum, að í ráði er að
lóga öllu fé á bænum Brú í Jökuldal vegna
riðuveiki, sem upp hefur komið í fénu par, en
pað er samtals tæplega 800. Mbl. var á ferð
eystra fyrir stuttu og spjallaði við ábúendur á
Brú, en par er tvíbýli og búa par annars vegar
hjónin Sigríður Eydís Ragnarsdottir og
Stefán Halldórsson og hins vegar í félagsbúi
Sigvarður Halldórsson ásamt hjónunum
Önnu Halldórsdóttur og Einari Jónssyni.
Stefán bóndi Halldórsson
var um það bil að fara í
fjárhús ásamt konu sinni
Sigríði Eydísi Ragnarsdóttur,
en þau voru að undirbúa
fjárflutninga til Egilsstaða
daginn eftir og spurði Stefán
komumenn hvort' væru
ekki- tif'7’að standa á fjárbíl
með sér. Fátt varð um svör við
því, en talinu beint að því
vandamáli, sem þau standa nú
frammi fyrir ef lógað verður
fé þeirra:
— Öll afkoma okkar hér i
Efra-Dal byggist á fjárbú-
skap, því aðrar skepnur er
varla hægt að hafa hér. Flestir
hafa þó eina eða tvær kýr
svona fyrir heimilisnot, en
Jökuldælingar byggja allt sitt
á sauðfénu, sagði Stefán og
þau héldu út í fjárhúsið ásamt
Ragnari syni sínum og öðrum
syni aðeins 5 vikna, sem var
vel geymdur í vagni við einn
garðann á meðan þau voru við
Sigríður Eydís Ragnarsdóttir og Stefán Halldórsson huga að fénu.
Eðlilegar aðgerðir
ef þær eru raunhæfar
Er vitað hvernig riðan hefur
komizt hingað?
— Það er nú höfuðverkur-
inn, að það er eiginlega ekkert
um það vitað með vissu. Ekki
er óhugsandi að hún hafi
borizt hingað með héraðssýn-
ingarhrút, en þó er það talið
frekar ólíklegt. Það mun vera
ómögulegt að segja nokkuð til
um þetta meðan sýkillinn
finnst ekki.
Hversu margar kindur hafa
veikst?
— Við höfum þegar lógað
12 kindum, þeirri fyrstu í
vetur sem leið og hinum nú í
haust. Við tókum eftir því að
eitthvað óvenjulegt var við
hegðan einnar ærinnar og
sendum hana til dýralæknis sl.
vetur strax og fært var og
hafði okkur dottið í hug að um
riðu gæti verið að ræða.
Ekki var að heyra á þeim
hjónum neina uppgjöf þrátt
fyrir að útlitið væri ekki bjart
framundan, en þau hófu sinn
búskap fyrir rúmum 5 árum,
en Stefán er fæddur og uppal-
inn á Brú.
Við töltum yfir á hinn
bæinn, en þar voru ábúendur
að dytta að vélum og tókum
við þá tali.
- segir Stefán Halldórsson
vinnu sína. Við tókum þau tali
á milli þess sem þau drógu féð,
og næst var Stefán spurður
um hvað þeir hefðu ráðlagt,
sérfræðingarnir sem komu til
hans í heimsókn daginn áður,
þeir Sigurður Sigurðsson
ásamt fulltrúa landbúnaðar-
ráðuneytisins, Hauki Jörunds-
syni, og Kjartani Blöndal
framkvæmdastjóra Sauðfjár-
sj úkdómanef ndar:
— Þeir fóru hér um og
skoðuð búskapinn og það er
talið ráðlegast að rífa allt
tréverk innan úr fjárhúsunum
til þess að reyna að komast
fyrir veikina, og lögð er á það
áherzla að hér verði fjárlaust í
tvö ár, en féð, sem lógað
verður, verður lagt á reikning
eigenda.
En að hverju getið þið snúið
ykkur meðan fjárlaust er?
— Við megum hafa kálfa og
það eru líkur til þess að svo
verði, þannig getum við notað
heyið, sem við eigum nú í
hlöðunni og nýtt húsin að
einhverju leyti. Þó er ekki gert
ráð fyrir að kálfar komi strax,
enda verður það ærin vinna að
rífa allt út úr húsunum því
síðan þarf einnig að moka
skítinn úr kjallaranum.
Síðan var Stefán spurður
álits á fundinum, sem hafði
verið haldinn kvöldið áður og
þar sem bændur á Jökuldal
lýstu sig hlynnta niðurskurði
fjárins á Brú:
— Nú, þessi fundur fór eins
og ég hafði búizt við. Það er
ekki hægt að setja sig á móti
því sem óskað er eftir og
þarna náðist líka samstaða um
þessar aðgerðir, sem Sauðfjár-
sjúkdómanefnd lagði til. Ég vil
heldur ekki bera ábyrgð á því,
ef svo kynni að fara að riða
kæmi hér upp á næstu bæjum,
að hafa staðið í vegi fyrir að
útrýma henni.
Þú ert þá sammála þessum
aðgerðum?
— Eg tel aðgerðina eðlilega
ef hún er raunhæf og hægt
verður með henni að útrýma
riðu hér á þessu svæði og ef
þess verður gætt að fylgja
þessari aðgérð vel eftir t.d. ef
upp kemur riða á öðrum
bæjum í nágrenninu. Auðvitað
er erfitt að sjá á bak öllum
þessum 550 skepnum og ekki
annað að sjá en að þær séu
heilbrigðar, en það er ekki
hægt að standa á móti því ef
nágrannarnir óska þess og ég
ítreka að ég treysti mér ekki
til að taka þá ábyrgð á mig að
hafa staðið á móti þeim.
Telurðu að bændur verði
meira vakandi nú en áður
fyrir því hvernig ástatt er um
fé þeirra?
— Ég held að menn verði
hiklaust meira vakandi en
áður að fylgjast með fé sínu og
nú þegar menn átta sig á
hversu alvarlegt þetta er og
ólæknandi sjúkdómur og getur
farið að snerta fleiri, þá muni
menn jafnvel hafa meira auga
með riðunni en öðrum fjár-
pestum.
í fjárhúsunum eru fjögur brynningartæki, en aö sögn Stefáns er hugsanlegt aö emit berist milli kindanna
úr stömpunum.
Stefán og Sigríöur hafa 550 fjár og hafa fundizt 12 riöuveikar ær hjá peim og er pví taliö nauðsynlegt aö
lóga allri hjörðinni.