Morgunblaðið - 26.10.1978, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.10.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978 13 — Við höfum nú svo sem áður verið í fréttum, enda er svolítið um þingeyskt blóð í Jökuldæl- ingum svo að okkur þykir þetta ekki endilega sem verst, sagði Sigvarður Halldórsson, annar bóndinn á tvíbýlinu á Brú á Jökuldal. — En að öllu gamni slepptu, þá er hér mikil alvara á • ferðum og þessi niðurskurður, ef af honum verður, kemur sér verulega illa fyrir okkur, ekki sízt þar sem mágur minn, Einar Jónsson, og kona hans, Anna Halldórsdóttir, hafa nýlega hafið hér búskap og ætluðu einmitt í haust að stækka fjárstofninn. Við erum stödd í eldhúsinu hjá Sigvarði og hjónunum Einari Jónssyni og Önnu Halldórsdóttur, og búa foreldrar þeirra Önnu, Stefáns og Sigvarðar hjá þeim, Halldór Sigvarðsson og Unnur Stefáns- dóttir. Meðan drukkið var kaffi Heimilisfólkið á öðrum bænum á Brú, f.v.i Einar Jónsson, Unnur Stefánsdóttir, Anna Halldórsdóttir, Sigvarður Halldórsson og Halldór Sigvarðarson. Leggjum áherzlu á að fullar bætur komi fyrir — segir Sigvarður Halldórsson og með því var rætt um ýmsar hliðar þessa riðumáls, og tóku þátt í þeim umræðum Sig- varður, Anna og Halldór, en Einar var úti við að brynna lömbum. — Við höfum haft féð í gömlum fjárhúsum, torfhúsum, sem komin eru til ára sinna og lögðu sérfræðingarnir til að þau yrðu hreinlega jöfnuð við jörðu, því ekkert annað er hægt að gera við þau. Það er líka ein af ástæðum þess að þessi niður- skurður og aðgerðir í framhaldi af honum koma svo illa við okkur. Hefur verið rætt um hvers konar bætur koma fyrir húsin? — Það liggur ennþá ekkert fyrir um það, en það er ljóst að við getum í raun ekki samþykkt þennan niðurskurð nema ljóst verði hvernig þeim málum verður háttað og við getum ekki leyft að rokið verði til niður- skurðar með ekkert slíkt í höndunum. Komið hafa fram hugmyndir um að við yrðum aðstoðaðir við að byggja upp ný fjárhús sem við erum örlítið byrjaðir á og myndi það líka verða til þess að búsetan hér breyttist ekki, því hér er ungt fólk nýkomið hingað og vill ekki fara héðan strax. Anna sagði að þau Einar, maður hennar, hefðu selt íbúð sem þau hefðu átt á Akureyri í fyrra og ákveðið að snúa sér að búskapnum. Þau fluttust að Brú í fyrrahaust, byrjuðu fjár- búskap og ætluðu að stækka stofninn í haust, en verða líklega að hverfa frá því af skiljanlegum ástæðum. Saman- lagt hafa þau og Sigvarður rúmlega 200 fjár þannig að á Brú eru nærri 800 fjár, sem ráðgert er að slátrað verði í haust. Heimamenn voru spurðir um ákvörðun þessa og hvernig fundurinn með bændum af Jökuldal hefði lagst í þá: — Við þolum þetta alveg og verðum að sætta okkur við þessi sjónarmið, sem eru ekki óeðli- leg. Krökkunum finnst það kannski leiðinlegast þegar þarf að lóga þeirra kindum. En með þessu fé fer nokkuð góður stofn, gamli Brúarstofninn, sem löng- um hefur þótt vænn og sami Fjárhúsin á Brú. Gömlu húsin, þar sem Sigvarður og Einar hýstu fé sitt, eru lengst til vinstri, en húsin til hægri eru í eigu Stefáns, þau sem rífa á úr allt tréverk, en gömlu húsin verða líklega jöfnuð við jörðu. stofninn verður ekki fáanlegur aftur. Lítið hefur að vísu farið í hinn nýja stjörnuflokk en hlut- fallslega hefur Brúarstofninn lagst einna þyngst. Ein af tillögum Sauðfjársjúk- dómanefndar miðaði að því að heyflutningar milli svæða yrðu bannaðir og voru þau spurð hvernig það kæmi við Jökuldæl- inga: — Það gæti orðið erfiðara með he.v og það er nokkuð erfitt hér á efstu bæjum, en þó er ekki líklegt að það hafi verulega varanleg áhrif. »Þau voru einnig spurð hvort þau hefðu einhverja hugmyndir um hvernig riðan hefði borizt að Brú: — Það mun vera erfitt að gera sér einhverjar hugmyndir um það, riðan hefur enn sem komið er að minnsta kosti aðeins komið fram í fé Stefáns, en nefna má að hingað koma stundum flækingar t.d. frá Vopnafirði, Möðrudal og víðar og vera má að hún berist með þeim eða frá hrútasýningum, eins og nefnt var á fundinum, þótt fátt eitt sé hægt að segja með vissu í þessu sambandi. Svipaður tónn var í umræðum þeirra á þessum helmingi býlis- ins á Brú og á hinum helmingn- um, þrátt fyrir aðsteðjandi erfiðleika var ekki að heyra neinn uppgjafar- eða vonleysis- tón. . — Á það verður að leggja ríka áherzlu að fullar bætur komi fyrir niðurskurðinn og annað tjón, sem við hér á Brú verðum fyrir með þessum aðgerðum og benda má á þá hættu, að verði þær ekki sann- gj'arnar er vissulega sú hætta fyrir hendi að byggðin hér kunni að þynnast. Hér á Efra-Dal verða bændur að treysta mikið hver á annan, við erum á vissan hátt hver upp á annan komnir þegar eitthvað bjátar á, e.t.v. í ríkara mæli en annars staðar, og því getur ástandið orðið alvarlegt ef einhverjir þurfa að yfirgefa byggðina. Hér á bæjun- um í kring er ungt fólk víða að hefja búskap og því ekki fyrir- 1 sjáanlegt annað en byggðin eigi eftir að haldast hér um langa framtíð meðan hægt er að leysa þau vandamál, t.d. af þessu tagi, er upp koma. j. Það er eins með osta og ástir - það tekur langan tíma að kynnast þeim í öllum sínum fínu blæbrigðum. Og menn verða að gefa sér góðan tíma til að njóta þeirra til fulls. Rétta umhverfið hefur líka mikið að segja. Þeir sem vilja gefa sér tíma til að lenda í ostaævintýri ættu að heimsækja ostavikuna í Blómasalnum á Hótel Loftleiðum vikuna 26. okt. til 2. nóvember. Ótal tegundir osta og ostarétta verða þá boðnir gestum sem ábætisréttur. Til hátíðabrigða býður hótelið upp á sérstakan matseðil, mat og kynningu á þeim Ijúfu veigum sem hæfa innilegu ostasambandi. ,,Salatbar“ verður á borðum. Og um salinn berst Ijúf tónlist frá bíóorgeli Sigurðar Guðmundssonar. Velkomin á ostakvöld Borðpantanir í síma 22321 Matseöill Kiötseyði, Celestine Innbakaður skelfiskur með humarsósu Gufusoðin smálúðufíök, Mornay Blandaðir kjötréttir á teini með krydduðum hrisgrjónum og paprikusósu. Nautabuffsteik, Bordelaise Matargestum boðnir blandaðir ostaréttir af hlaðborði. HÓTEL LOFTLEIÐIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.