Morgunblaðið - 26.10.1978, Síða 20
2 0 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978
Þórunn Elfa:
Lesandi góður, hefurðu tekið
eftir því, hvað mella er þægilegt
rímorð? Ella, mella, kúadella
o.s.frv. o.s.frv.
Þegar ég var unglingur hér í
Reykjavík heyrði ég minnst á
skipamellur, nafngiftin þarfnast
varla nánari skýringar, nú er
allt í einu komið nýtt og dýrt orð
á orðamarkaðinn: Eldhúsmellur!
Ekki gátum við verið svo slyng
hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu,
þar sem flest mun af tegundinni
að slampast á orðið, heldur sýna
Norðlendingar í þessu sem öðru,
að þeir eru flestum slyngari,
ungur Norðlingur hefur orðið
fyrstur manna til að flytja
löndum sínum nafnið, er það
heiti á nýútkominni bók, sem ég
hef lesið í inflúenzulegu og reyni
að láta hugann leika við stund-
arkorn, með þeim fyrirvara, að
veirur kunni að villa mér sýn,
eða gera mig glapskyggnari en
ella.
Ég hef löngum reynt, eftir því,
sem föng og tími gefast til, að
fylgjast með því, sem lesendum
býðst, síðustu misserin hef ég
lesið þó nokkrar skáldsögur þar
sem mér virðist, sem ungir
höfundar geri sér far um að
færa lesendum heim sanninn
um það, að maðurinn sé
viðbjóðslegasta skepna þessarar
jarðar, mannlífið botnlaust for-
ardýki. Við lestur soralegustu og
svartsýnustu kafla þessara
sagna vaknar sú spurning: Gera
þessir ungu höfundar sér ekki
neina grein fyrir því, hvílík
ábyrgð fylgir því að leggja lítt
þroskuðum, oft ungum lesend-
(im, til lestrar- og íhugunarefni?
Hverjir eru (auk jafnaidra)
sálufélagar þessara höfunda?
Eru það einkum hinir svoköll-
uðu„menningarvitar“.sem hafa
til þess fjárhagslegt afl og
hverja aðra aðstöðu, sem með
þarf til að efla brautargengi
þessara höfunda, sem væru illa
komnir berskjaldaðir í vályndri
veröld, „Ber er hver að baki
nema sér bróður eigi. “ En á
móti kemur, að höfundarnir
„makki rétt“. Stundum virðist
manni sem klæmst sé í gegnum
þá, svo að notuð sé hér hin
þekkta líking um dauðan fylli-
raft, sem nær tökum á lifandi
manni, sem veikur er fyrir og
drekkur í gegnum hann.
Ég hef minnst á, að ég hafi
lesið þó nokkrar bækur yngri
höfunda, sem eiga sitthvað
sameiginlegt um lýsingar á
óhugnanlegu mannlífi, fram-
setningarmáti og orðaval er að
sjálfsögðu í samræmi hvað við
annað. Tíminn leyfir mér ekki
að gera þessu efni skil nema í
einu tilviki, er þar um að ræða
síðustu skáldsöguna, sem ég hef
handa milli, en það eru Eldhús-
mellur Guðlaugs Arasonar. Eft-
ir myndum að dæma virðist
þetta vera gáfulegur og geð-
þekkur maður. Mér er því spurn:
Hvernig stóð á því, að þau ósköp
komu yfir hann, að skrifa svo
ókræsilega bók? Hefur ein-
hvergert honum þann illa grikk
að klæmast í gegnum hann? Að
öllu samanlögðu getur söguefnið
naumast hafa höfðað óum-
flýjanlega sterkt til hans.
Raunar mætti nefna fleira sem
fer boðskaparleið gegnum
höfundinn.
Sagan hefst með hjónabands-
nauðgun, síðar er sagt frá
hópnauðgunum í áfengis- og
hasssvalli.
Skipstjóri, svolamenni kemur
heim af sjónum til konu sinnar,
sem að honum fjarverandi er
orðin ein eftir í heimilinu,
börnin þrjú uppkomin og flogin
úr hreiðrinu, konan tæplega
hálffimmtug. Annar tveggja
sona lærir félagsfræði. Umsögn
föðurins: „Félagsfræðingar voru
ekkert annað en helvítis komm-
ar, snarvitlausir út í allt og
alla.“
„Hvað er að éta?“ spyr skip-
stjórinn, en kemur svo ekki
niður bita af beztu steik, svo
skyndilega verður hann sem
djöuflóður af kvensemi og
kvalalosta, tekur eiginkonu sína
frillutaki, dregur hana eftir
gólfum og stiga og nauðgar
henni grátandi og blæðandi í
sjálfum helgidóminum, hjóna-
sænginni. Krassandi lýsing af
því sem fram fer ásamt orð-
bragði, sem ekki fyrir margt
löngu hefði þótt óprenthæft.
Þetta er forréttur,sem á að
magna lyst lesandans.
Sagan býður upp á ýmsa
möguleika sem hægt hefði verið
að láta sér verða eitthvað úr, t.d.
er vikið að einmanaleika Önnu
Dóru. Hana hrjáir verkefna-
skortur, einhvern til að annast,
finnst „... það eitt skipta máli
að einhver þurfi á henni að
halda ... lofaði henni að finna,
að hún væri einhvers virði."
Einmanaleikinn er að verða
eitt hið mesta átumein
nútímans, að finna ráð til að
lina þessa kvöl væri gáfuðum
höfundi, sem vildi verja hæfi-
leikum sínum vel, verðugt við-
fangsefni. Ur einmanaleika má
Þórunn Elfa.
t.d. draga með góðri og
skemmtilegri bók.
— Fanney, ung frænka
Guðmundar skipstjóra, kemur í
heimsókn og veitir konu hans,
Önnu Dóru, mikfa ánægju,
þegar hún er heima frá vinnu
sinni í frystihúsinu á Seyðis-
firði, en jafnframt flökuninni
vinnur hún kappsamlega að því
að kenna fólkinu að þekkja sinn
vitjunartíma, skilja, að það er
þrælar djöfuls auðvaldsins, en
ætti sjálft að eiga öll fyrirtæki
og vera allsráðandi, framtak,
stjórnunarhæfileikar og annað
eins „dótarí" kemst ekki á
umræðustig. Kynlíf Krists
þekkir hún eins og puttana á sér
hann var bæði „hommi og
kommi", þar um víðtækari
fræðsla og ekki sápuþvegin.
Hjónabandið fær sinn skammt
svo og margt fleira að sjálf-
sögðu.
Mikil vinátta tekst með Önnu
Dóru og Fanneyju, sem heillast
hvor af annarri, svo að til ásta
dregur. Fátt get ég til mála lagt
um þessa hlið mannlífsins en
finnst höfundi takast þokkalega
að gera þessum innileik kvenn-
anna skil. Þarna örlar á ein-
hverju, sem er ekta, skilið af
næmleik.
Aftur á móti er afmælishóf
kvennaklúbbsins Nálin ekki
einu sinni „farsi“, of fáránlegt
og skemmtanasnautt til þess,
tæplega trúi ég því að nokkur
sambærileg samkunda eigi sér
stað, þegar konur koma saman,
svo að höfundur hefur ekki einu
sinni getað haft leynilega segul-
bandsupptöku við að styðjast.
Hugstæðast virðist þessum
seyðfirsku klúbbkonum, sem eru
að keppa við „læonið" og
„kíóvanið", vera kynlíf sitt og
annarra, þær eru löðrandi af
holdsvessum hið ytra og hold-
legum þenkingum hið innra.
Mikið er talað um þunganir og
óvissar feðranir og karlarnir
standast glúrheitum kvennanna
ekki snúning. Miklar uppljóstr-
anir! Fanney gerir þó sina
játningu í einrúmi með Önnu
Dóru. Sú reynsla, sem hún
skýrir frá gæti verið efni í mikla
og tímabæra harmsögu. Hér
verður aðeins stiklað á nokkrum
staksteinum. Fanney drekkur
sig ölvaða í partíi þar sem henni
er boðið upp á hass, þó tekið
fram að reykblandan sé sterk,
en Fanney sem hefur aðeins
einu sinni borið við að reykja
veika hassblöndu og ekki fundið
fyrir áhrifum lætur aðvörunina
sem vind um eyrun þjóta. Hún
finnur óljóst fyrir því að hún er
svipt klæðum og síðan velt eftir
gólfinu, leiksoppur þriggja
dólga, sem hún veit engin deili á
og veit ekkert um það, hvað oft
þeir níðast á henni, (endursögn
þessarar frásagnar að mestu
mitt orðfar). Þegar Fanneyju
verður fullljóst að hún hefur
orðið þunguð í vín- og hassvím-
unni verður hún í fyrstu gjör-
samlega ráðvillt, hún hefur ekki
kært, hefur því ekkert læknis-
vottorð í höndum, hún hefur
veigrað sér við að komast í
blöðin sem unga stúlkan í
Breiðholti, sem hefur ekki „lyft
litla fingri“ sér til varnar, þegar
dólgarnir þjörmuðu að henni.
Þegar langt er um liðið hefur
hún ekki kjark til að leita til
lögreglunnar, heldur engar
sannanir, óttast yfirheyrslur,
tortryggni. „Vildi hún þetta ekki
sjálf?“
Eftir neitun um fóstureyðingu
og árangurslausar eigin tilraun-
ir kemst hún til útlanda, þar
sem fæðing fimm mánaða fóst-
urs er framkölluð. Óbærileg
andleg kvöl leiðir hana út í
eiturlyfjanotkun, sem hún getur
þó rifið sig upp úr. Hún sér
ímynd barns síns fyrir sér
hverja vökustund meðan hún
þjáist mest, ófullburða barns-
mynd, en barn þó, blóðug augu
þess stara á hana hjarta barns-
ins slær í glærum líkama.
Tveimur árum eftir fæðingu
barnsins kemur hún til Seyðis-
fjarðar, líkamlega hraust, hitt
getur valdið nokkrum vafa. —
Lítið er borið í frásögn um
kunningsskap Fanneyjar við
hrjáðan einstæðing, sem hún
verður óbeint að bana með
skilningsleysi sínu.
Aftur á móti er miklu sögu-
rúmi eytt í pólitískt kjaftæði
hennar, sem ekki getur talizt
sönnum sósíalista heppilegur
boðskapur enda er hún kommi.
Skoðanaofstæki gerir fólk
ómanneskjulegt, tiltinningalífið
brenglast. Aumingja börnin hér
og þar í veröldinni eiga samúð-
ina, enda bágindi þeirra mikil,
við eigið barn engar skyldur
ræktar. Fanney á nefnilega litla
dóttur, sem, hvílík skömm! mun
vera hjónabandsbarn, guðsfegin
eftirlætur hún föðurnum,
„Baldri sáluga", telpuna, svo að
hún geti sjálf valsað um og lagt
alla lífs- og sálarkrafta í að
frelsa bandbrjálaða veröld okk-
ar. Aumingja Fanney með
kommúnu og kommúnisma á
heilanum. Jafnvel það, sem
breyta mætti í skynsamleg
pólitísk rök verður að sápu-
kúlum í meðferð hennar.
Eldhúsmellur! 99% giftra
kvenna, hver er eina prósentið?
Kannski seyðfirsk kvinna, því að
Seyðisfjörður er sögusvæðið.
Hvað með eiginmenn fyrr-
greindrar stéttar? Er það
kannski óskhyggja þeirra að
sænga hjá mellu, hvenær sem
tækifæri gefst? Hentar þeim
ekki betur að eiga konu, sem
umber þá, þegar þeir eru ekki
mellufærir en eru þó að basla
við einhverja tilburði, þegar tvö
skaut mætast.
Eftir myndum að dæma gæti
höfundur lumað á ýmsu, en
hann er enginn ritklaufi, þrátt
fyrir fremur hversdagslegan
frásagnarmáta, tímaskorti
kanna að vera um að kenna að
persónur virðast í fáum tilvik-
um hafa samsamast höfundi
sínum.
Þess er að vænta að tíminn
gangi í lið með honum, og hann
haldi vöku sinni, hvað dóm-
greind um eigin verk snertir.
Ég óska þess að hann verði
heppinn með næsta söguefni
sitt, það verði honum nærstæð-
ara og hann vinni það sjálfstætt
og samvizkusamlega. Ymislegt,
sem ég hef ekki viljað beina
athygli að, bendir til að ofanrit-
að sé honum þörf hvatning.
Með Félagskveðju
Þórunn Elfa.
Mella
H ug] íeiðing um 1 3Ók
rímar á móti della...
Fréttabréf úr
Breiðavíkurhreppi
13. október 1978
Tíðarfar og heyskapur
Síðan í ágúst, er ég skrifaði
síðasta fréttabréf, hefur veðrátta
verið mjög góð. Urkomulítið, hlýtt
og ekki vindasamt. Fjórar frost-
nætur hafa komið. Heyskapur var
lengi á döfinni vegna stopulla
þurrka og voru sumir að heyja
fram undir septemberlok. Heyin
munu vera mjög góð hjá bændum,
þó misjöfn eins og alltaf.
Sums staðar var gras í minna
lagi þegar byrjað var að heyja, en
þá spratt vel á því sem fyrst var
slegið, og slógu sumir há í vothey.
Göngur og réttir
Gangnamenn fengu góð veður
við smölun og réttahald. Suma
bændur vantar margt af fjalli en
aðrir eru búnir að heimta vel.
Lömb munu vera í meðallagi væn.
Útgerö
Mjög lítið hefur verið róið síðan
í ágúst frá Hellnum og Stapa, 2 og
3 trillur farið nokkra róðra og
fremur tregur afli þá róðra sem
farnir hafa verið.
Jarðir
Nú hefur L.Í.Ú. fest kaup á
jörðinni Skjaldartröð við Hellna,
en jörðin verður höfð í ábúð.
Jóhann Hjörleifsson frá Hrísdal í
Miklaholtshreppi fær lífstíðar-
ábúð á jörðinni og hyggst hann
flytja þangað í vor, en hann þarf
að byggja þar nýtt íbúðarhús.
Jörðin Brekkubær við Hellna
hefur nú verið seld. Bóndinn sem
selur, Örn Hjörleifsson, flytur á
Hellissand og hefur hann fest
kaup á húsi þar. Sá sem kaupir
Brekkubæinn er Jón Jónsson frá
Akranesi, fjölskyldumaður. Hann
ætlar að búa á jörðinni og flytja á
hana í haust. Hann mun vera
búinn að kaupa eitthvað af kindum
og heyi.
Bóndinn á Felli, Kristgeir
Kristinsson, er að flytja burtu af
jörðinni í haust og hefur hann fest
kaup á íbúð á Akranesi og flytur
þangað. Jörðin Fell er á Arnar-
stapa. Landið er ríkiseign en öll
hús á jörðinni á Loftur Jónsson
forstjóri í Reykjavík.
Byggingar
Nú er verið að byggja véla-
geymslu á jörðinni Bjargi á
Arnarstapa. Þar búa Högni
Högnason, synir hans þrír byggja
húsið. Þeir byrjuðu á byggingunni
nú í haust.
Nú er hafin bygging íbúðarhúss
hér á Hellnum í Hleinarplássi á
Melabúðartúni. Það eru ung hjón
sem standa að þessari byggingu,
Kristján Gunnlaugsson og Sigríð-
ur Helgadóttir. Þau ætla sér að
búa þarna og hafa í hyggju að
kaupa jörðina Barðarbúð.
Það má segja, að í þessari sveit
Kína-Bandaríkin:
Tókýó, 25. október. AP.
TENG Hsiao-ping varaforsætis-
ráðherra Kína sagði í dag að vel
miðaöi á viðræðufundum Kín-
verja og Bandaríkjanna um að
löndin tækju upp eðlilegt stjórn-
málasamhand og tengsl sín á
milli, samkvæmt Shanghai til-
kynningunni frá 1972.
séu töluverðar byltingar en það
hlýtur að vera öllum sveitungum
gleðiefni, ef svo vel tekst til að
jarðir fara ekki í eyði og eins það,
að ungt fólk setjist að í sveitunum.
Sú ósk er mín, að á íslandi megi
haldast blómleg byggð í sveitum
landsins um alla framtíð.
— Finnbogi G. Lárusson.
Teng sagði að meginhindrunin
væru tengsl Bandaríkjanna við
Formósu, en Kínverjar halda enn
við þann ásetning sinn að Banda-
ríkin kalli herlið sitt þar heim,
slíti stjórnmálasambandi við
eyjuna og slíti jafnframt varnar-
sáttmála sínum við Formósu.
Vel midar í átt að
eðlilegri sambúð