Morgunblaðið - 26.10.1978, Page 32

Morgunblaðið - 26.10.1978, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978 Jón Þ. Árnason: Lífríki og lífshættir XXVII Uppgjöf er dauði, drottnun líf Aðvörun og Bjartsýnismað- Þrjár góðar áminning ur sér svart bækur um tilfinn- Egyptans og játar anlega kreppu Mostapha Tolba ,JSökum offjölgunarinnar, fólksflóttans til borganna og útþenslu iðnaðarins, mun sérhver einstaklingur aðeins hafa 0.16 hektara til lífsframfæris um aldamótin — ef hann á annað borð verður á lífi — i stað 0.31 hektara nú, þrátt fyrir allar ræktunaráætlanir. Ef einhver segir mér, að þessir 0.16 hektarar muni gefa jafn mikið af sér og 0.31 hektaramir nú, þá hefi ég sem vísindamaður mínar efasemdir.“ — Mostapha Tolba. Ákjósanleg örbirgð Aö undanteknum ofbeldis- og hryðjuverkum, bardögum og blóðsúthellingum víðs vegar um heim, skipar nánast ekkert gildara rúm í daglegum fréttaflutningi en árekstrar og illindi út af kaupi og kjörum. Allir sérplægnishópar eru á einu máli um, að þeir hafi verið leigðir of lágt, geti ekki lengur lifað af laununum og beri ekki nægilegt úr býtum til þess að seðja þarfir sínar. Til áherzluauka er gjarnan bent á einhverja aðra stétt eða starfshóp, sem njóti hagstæðari skilyrða. Niðurstaðan verður vanalega sú, að allir fá „kjarabætur", þeir síðustu þó ekki sé til annars en „samræmingar" til að „dragast ekki aftur úr hinum“ eins og það heitir á stéttabaráttu- máli. Ef síðan „kjarabæturnar" verði ekki annað en ímyndun áður en varir, og skyldu hrökkva til fullnægju tiltekinna þarfa, verða samstundis til nýjar þarfir, sem máski ennþá brýnna telst að mæta; þá hefst leikurinn á ný og síðan koll af kolli, því að sú hagfræðilega staðreynd er gamal- kunn, að sérhver fullnægð þörf eða „þörf“ fæðir af sér tvær nýjar. Kröfugerðir eru því í tölu eilífðar- mála — án hliðsjónar af því, hvort getan til að verða við óska- draumunum er hugsanlega fyrir hendi eða ekki. Hér er ekki vakin athygli á öðru en því, sem alkunna er, og ekki heldur gefið í skyn, að allar kaupkröfur séu óréttmætar. Hins vegar hlýtur að vera umhugsunar- vert, að hvergi eru gerðar hávær- ari lífskjarakröfur en einmitt í löndum, þar sem almenn neyzla er mest, sums staðar óhófleg, og efnahagslegar framfarir hafa orð- ið mestar og víða komnar yfir þau mörk, er skynsamleg arðnýting setur. Þetta undirstrikar því það, sem áður er drepið á, og sannar auk þess hið fornkveðna, að „ágirnd vex með eyri hverjum." Um þarfir má endalaust deila og er enda gert hvíldarlaust. Þær eru að mestu háðar mati einstaklings- ins hverjd sinni og breytilegar úr einum tíma í annan. Það, sem einn telur þarft, telur annar óþarft. Eitt eiga þó allar kröfur um aukinn eyðslumátt sameiginlegt: Gjaldandann. Hann er ævinlega sá sami, nefnilega náttúruríkið. Ekki er betur vitað en að frumþarfir allra manna séu í meginatriðum þær sömu, og sem viðmiðun óraskanlegar, ef frjótt og gróandi líf er framtíðarmark- mið. Ef lífsskilyrðin fullnægja þeim ekki ellegar lífshættirnir misbjóða þeim eða spilla á áþreifanlegan hátt, bíður tor- tímingin á næsta leiti; undir fyrrnefndu kringumstæðunum nær, undir hinum síðarnefndu eitthvað fjær. Allsherjarkröfur um sívaxandi lífsþægindi í efnis- legum skilningi, út og yfir eðlislæg og náttúrubundin skilyrði, þjóna þess vegna engu fremur en munaði, óhófi og bruðli, sem ekki fæst nema um takmarkaðan tíma á kostnað móður jarðar — og niðjanna. Þeir, sem ekki eiga alltof erfitt með að samsinna svona þurrum hugleiðingum, munu einnig fallast á, að náttúruránskapur hljóti því ávallt að bitna á manneskjunni sjálfri fyrr eða síðar, hún hljóti að bíða tjón á sálu sinni ekki síður en líkama. Enn eru þeir þó í hverf- andi, máttlausum minnihluta. Fjöldinn hyllir fyrirheit þeirra, sem boða honum viðstöðulausar kjarabætur á grundvelli töfra- máttar vísinda og tækni, og ómældrar blessunaruppskeru af auknum áhrifum hans á þjóð- félagsmál yfirleitt og löggjöf alveg sérstaklega, sem innan tíðar muni gera draum hans um Paradís á jörðu að veruleika. Þessi marxiska fávísi hefir ekki aðeins megnað að slæva skapandi sjálfsbjargarviðleitni. Henni hefir að auki tekizt að dauðsvæfa meðvitund manneskjunnar um þau ævarandi sannindi, aö hamingja og sönn Iífsgleði þrífst ekki í skauti peningahyggju, heldur fær aðeins dafnað í skjóli frelsis undan ágirnd og öfund, sem m.ö.o. táknar, að fýsnafátækt er ætíð auðlegðin mesta og bezta. Hátt kaup og atvinnuleysi „Ef heimurinn vill lifa fram yfir árið 2000, verða ríku þjóðirnar að breyta lífsháttum sínum,“ segir Mostapha Tolba, egypzkur gerla- fræðingur, fyrrverandi samstarfs- maður Sadats forseta, og nú yfirforstjóri Umhverfisverndar- ráðs Sameinuðu þjóðanna, er aðsetur hefir í Nairobí í Kenía, hinn 3. þ.m. í viðtali við „Europa“, sem heimsblöðin „Die Welt“, „The Times", „Le Monde" og „La Stampa" gefa út í sameiningu. „Við verðum þess vegna að snúa við, takmarka neyzlu okkar við það allra nauðsynlegasta til þess að geta jafnnýtt möguleika okkar á komandi árum, og umfram allt annað verðum við að forðast að eyðileggja ræktunarlönd og óskyn- samlegum aðgerðum," bætir hann við. Undir ummæli Tolba geta víst flestir raunsýnismenn tekið, enda eru þau ekki annað en endurtekn- ing þess, sem fjöldi lærdóms- og vísindamanna Vesturlanda hefir margsagt og lagt þunga áherzlu á við óteljandi tækifæri — og ítreka stöðugt. En þó að „ríku þjóðirnar", þ.e. Vesturlandabúar, hafi vissu- lega fulla þörf fyrir góð ráð og áminningar, jafnvel úr örbirgðar- heiminum, fer því víðsfjarri, að þeim einum veiti ekki af hollráð- um. Það staðfestir Tolba líka hreinskilningslega í viðtalinu. Hann tekur sérstaklega fram, að mestu fátæktarlöndin standi allra landa mestar tortímingarógnir af náttúruránskap. Sú staðreynd þarf ekki að koma á óvart, m.a. vegna þess, að gengdarlaust arð- rán þrælstjórnarríkjanna á fyrr- verandi nýlenduþjóðum Evrópu- ríkja blasir við öllum, sem sæmi- lega fylgjast með heimsviðburð- um. Þótt enginn raunsýnismaður telji, að Tolba hafi tekið of djúpt í árinni, hljóta aðvaranir hans og annarra að mega skoðast dávænn löðrungur framan í þá, sem trúaðastir hafa verið og eru á hamingjuheim „framfaranna", efnishyggju óstöðvandi hagvaxtar í krafti tækniafreka. Á því leikur ekki minnsti vafi: Hagvaxtartrúin hefir borið sigurorð af fyrirhyggju og raunsýni, vísindin hafa fært tækninni kynnimagnaða töfra- sprota og tæknin hefur leyst hlutverk sitt næstum óaðfinnan- lega. Hún hefir náð takmarki því, sem henni var ætlað: að margfalda framleiðslu og spara vinnuafl. Á engum öðrum 100 árum en þeim síðastliðnu, allt frá því að mann- eskjan hóf feril sinn á jörðinni, hafa efnahagsframfarir orðið ör- ari og meiri. Á þessari einu öld, sem er aðeins- stundarkorn í samanburði við fortíðina, hafa stórbrotnari uppfinningar og upp- götvanir, nýjungar og umbætur séð dagsins ljós, en á liðnum árþúsundum samanlagt. Þrátt um það, virðist sortinn framundan aldrei hafa verið svartari en einmitt nú. Svo svartur og nálægur, að tvær grímur eru m.a.s. teknar að renna á heims- þekkta bjartsýnismenn. Þannig lét t.d. þýzki kjarnorku- vísindamaðurinn og heim- spekingurinn, prófessor Carl Friedrich von Weizsácker, þá skoðun sína í ljós í blaðaviðtali fyrir tæpu ári („Evangelische Kommentare“, Stuttgart 3. janúar þ.á.), að trygg atvinna væri óskadraumur. Hátt kaup taldi hann hafa knúið fram viðstöðu- lausa hagræðingu, þ.e. aukna framleiðslu á vinnustund, sem nú hefi náð því marki, að sér virtist „vonin um að auka eftirspurn eftir vinnuafli með því að örva hagvöxt vera draumórakennd". Hins vegar taldi hann hagvöxt geta dregið úr fjölgun atvinnuleysingja og bætti við: „Sá árangur, sem við höfum raunverulega náð, er það, sem við höfum keppt að, þegar við tókum nútímatækni í þjónustu okkar, nefnilega vinnusparnaður." Hugsjónakreppa og leiðtogaskortur Ég hefi aldrei dregið ágæti vísinda og tækni í efa, og mun sjálfsagt seint gera. Aftur á móti hefi ég verið og er á þeirri skoðun, að visindi og tækni hafi náð margfalt meiri árangri en hin vanþroskaða, staðnaða þjóðfélags- skipun, sérstaklega stjórnmálahlið hennar, samfara öfgakenndum hagvaxtarhugmyndum, hafi haft nema afar takmörkuð skilyrði til að nýta mannkyninu á viturlegan og réttlátan hátt. Þessi skoðun mín er aðallega reist á þeirri nöturlegu staðreynd, að til þjóðaforystu veljast — með nokkrum undantekningum þó — helzt ekki annað en undirmáls - og meðalmenn í frjálsræðisríkjum heims, og skálkar og illmenni í þrælaríkjunum. Ástæðulaust er að fara nánar út i þessa sálma nú, en hins vegar þykir mér rétt að nota tækifærið til þess að benda þeim fjölhyggjumönnum, sem hvað ákafast leitast við að fela stjórn- málalegt hugsjónagjaldþrot sitt og heldur óglæsilegan árangur af frammistöðu sinni í keppninni við kommúnismann á bak við skamm- ir um Platon og Hegel, á þrjár eftirtaldar bækur þeim til nokkurs skilningsauka: 1. Joachim H. Knoll: „Fúhrungs- auslese in Liberalismus und Demokratie", Stuttgart 1957, 2. Dino Del Bo: „La crisi dei dirigenti" í þýzkri útgáfu „Die Krise der politischen Fúhrungs- schicht", Freiburg im Breisgau 1966, og 3. Júrgen Eick: „Das Regime der Ohnmáchtigen", Frankfurt 1976. Um höfundana skal tekið fram til þess að firra ótta, að þeir eru

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.