Morgunblaðið - 26.10.1978, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1978
47
ÞESSAR myndir eru úr filmu sjónvarpsins af úrslitaleik Vals og
Víkings í Rcykjavíkurmótinu í handknattleik og sýna atvik, sem
varð eftir að leiknum lauk. Atvik þetta hefur verið mikið til
umræðu en það sýnir þegar Viggó Sigurðsson leikmaður Víkings
hljóp á Ilannes Þ. Sigurðsson dómara og felldi hann. Hannes
hefur sagt í samtali við Mbl. að þarna hafi verið um vítaverða
framkomu að ræða og vegna þess muni hann ekki dæma fleiri
leiki hjá Víkingi. Viggó hefur hins vcgar sagt hér í blaðinu að um
óviljaverk hafi verið að ræða. Hér verður ekki lagður dómur á
þetta atvik en það hefur kveikt umræður um samskipti leikmanna
og dómara, sem eru m.a. gerð að umtalsefni í grein hér á síðunni.
Skotar rett
mörðu Noreg!
SKOTUM gengur illa að príla upp úr þeim öldudal sem þeir flatmaga
ofan í þessa dagana. Þrátt fyrir sigur gegn Noregi, getur hinn nýi
þjálfari Skota vart verið í skýjunum yfir framgöngu sinna manna. því
að sigurinn hljóðaði upp á 3—2 og mark var dæmt af Norðmönnum
auk þess sem þeir fengu nokkur góð marktækifæri sem ekki nýttust.
Norðmenn tóku forystuna þegar honum stóra sínum, er varnar-
á 3. mínútu, þegar Aase skallaði í
netið hornspyrnu Sven Mathiesen.
Það var ekki fyrr en um miðjan
hálfleikinn, sem Dalglish tókst að
jafna eftir undirbúning McQueen.
Þannig var staðan i hálfleik. Báðir
markverðirnir urðu að taka á
menn gerðu mistök á hálum
vellinum.
Á 64. mínútu náði Noregur
forystunni á ný, er Arne Okland
skallaði glæsilega í netið eftir
fyrirgjöf Mathiesens, sem rétt
áður hafði skorað rangstöðumark.
Nokkrum mínútum síðar átti
Johagsen þrumuskot í þverslá. En
Skotar sóttu allan tímann mun
meira og þegar 8 mínútur voru til
leiksloka, tókst Dalglish að þvæla
knettinum yfir marklínuna og
jafna. 3 mínútum fyrir leikslok var
Graham síðan brugðið innan
vítateigs og Archie Gemmell
skoraði sigurmarkið úr víti.
LIÐ SKOTLANDSi Stewart. Donachie. F.
Grey, Souness, McQueen. Buchan, Dalulish.
Gemmel. A. Gray. Hartford ok Graham.
Jafntefli erkif jenda
ENGLENDINGAR standa nú mjög
vel að vígi í riðli sínum í Evrópu-
keppni landsliða í knattspymu.
Þeir sóttu írska lýðveldið heim í
gærdag og höfðu þaðan á brott með
sér eitt stig. Englendingar eru nú
efstir í riðlinum. en hafa þrátt fyrir
það ekki leikið nema á útivöllum til
þessa. Lokatölurnar í ieiknum urðu
1 —1 og voru bæði mörkin skoruð í
fyrri hálfleik.
írarnir réðu gangi leiksins lang-
tímum saman, með þá Liam Brady
og Dave 0‘Leary mjög sterka. Það
var einkum framan af fyrri hálfleik,
sem Englendingarnir mölduðu í
• Bob Latchford skoraði mark
Englands í gær.
móinn og á 8 mínútu skoruðu þeir
eina mark sitt, en þá skallaði Bob
Latchford í netið eftir hornspyrnu
Trevor Brooking. Brooking var besti
leikmaður Englendinga og var
maðurinn að baki flestra sóknarlota
Englendinga. Irar náðu smám sam-
an góðum tökum á leiknum og rétt
fyrir hlé tókst Gerry Daly að jafna
metin með góðu skoti. Þar við sat.
LIÐ ENGLANDS. Clcmmcncc. Ncal, Mills,
Watson, IIuKhes. Wilkins. Coppcl. Brook-
ing. KeeKan. Latchford og Barncs.
LIÐ ÍRLANDSi Kcarncs. Mulligan. Holmcs.
Lawrencon. Daly. Brady. Gilcs, McGhcc.
Givens og Ryan.
Par lágu Danir
NORÐUR-írar virðast ætla
að vera sterkir í sínum
riðli í Evrópukeppni lands-
Nýliðinn skoraði 4 mörk!
MALTA fékk skell að venju í
landsleik í knattspyrnu og nú
voru það Walesbúar sem léku sér
að þeint eins og köttur að mús.
Mörkin urðu 7, þar af skoraði
nýliðinn, Ian Edwards frá
Chester, 4 mörk og annar nýliði,
Pcter O'Sullivan. skoraði einnig.
Annars var maðurinn að baki
sigrinum Micky Thomas, útherji
frá Wrexham. sem lék á heima-
velli sínum. Ilann átti þátt í
I>AÐ ER illt í efni þegar
dómarar eru farnir að gefa
út yfirlýsingar um að þeir
dæmi ekki hjá vissum lið-
um eins og fram kom í Mbl.
í gær er einn af okkar
þekktari og reyndari dóm-
urum í mörg ár Hannes Þ.
Sigurðsson lýsti því yfir að
hann myndi ekki dæma
framar leiki Víkinga í
handknattleik.
Það verður ekki dregið í efa, að
eitt vanþakklátasta starf, sem
unnið er í þágu íþróttanna, er
dómarastarfið. Fáir eru gagnrýnd-
ir jafn harðlega, jafnt í dagblöðum
sem af leikmönnum og áhorfend-
um. Hve oft eru ekki gerð hróp að
dómurum við störf sín og fyrir
kemur aö þeir verða fyrir aðkasti.
flestum marka Wales, auk þess
sem hann skoraði eitt sjálfur.
O’Sullivan skoraði fyrsta mark-
ið á 18. mínútu eftir fyrirgjöf frá
Thomas og 2 mínútum síðar
skoraði Edwards fyrsta mark sitt,
einnig eftir fyrirgjöf Thomas. Og á
45. minútu skoraði Edwards annað
mark sitt, einnig eftir fyrirgjöf
Thomas.
I síðari hálfleik hélt barningur-
inn áfram og þegar aðeins 6
minútur voru liðnar af síðari
hálfleik, hafði Edwards skorað tvö
mörk í viðbót. Á 68. mínútu var
röðin komin að Thomas sjálfum að
skora og 3 mínútum síðar skoraði
Brian Flynn síðasta markið.
Lið Walesi Davies, Stevenson, Jones.
Phillips, Page, Thomas, Harris, Flynn,
Edwards, James og Cartwrijfht. Varamaðun
O'Sullivan.
Dómari leiksins var enginn annar en
Magnús V. Pétursson nordan af fróni og
hefur hann vonandi staðið sig vel.
liða, a.m.k. ef marka má
sigur þeirra gegn Dönum í
Belfast í gær. Leiknum
lauk með sigri Norður-íra
2—1, eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 1 — 1.
Danir hafa sýnt það í fyrri
leikjum sínum í keppninni til
þessa að lið þeirra hefur á að skipa
mörgum snjöllum framherjum og
fljótlega náðu þeir forystunni gegn
Irunum í gærdag, en Henning
Jensen skoraði. Jensen leikur sem
kunnugt er með Real Madrid, en
hann var einn af fáum atvinnu-
mönnum sem lék með danska
landsliðinu í gær. Fyrir hlé tókst
Derek Spence að jafna metin, en
hann hafði rétt áður komið inn
sem varamaður. Sigurmarkið
skoraði síðan Trevor Anderson
nokkru fyrir leikslok, en hann
hafði komið inn á sem varamaður
fyrir Spence, sem meiddist nokkru
eftir að hafa jafnað fyrir Irana.
Adamson til Leeds
ENSKA félagið Leeds Utd. réð í
gær til sín þriðja framkva*mda-
stjóra sinn á árinu, en eins og frá
hefur verið skýrt, hætti Jock
Stein eftir aðeins fárra daga
úthald, er honum bauðst að taka
við skoska landsliðinu. Áður var
hjá félaginu Jimmy Armfield.
Hefur virðingaleysi
við dómara aukist?
Það vill oft gleymast að þeir sem
leggja íþróttahreyfingunni lið með
störfum sínum sem dómarar eru
ólaunaðir og verja til þess miklu af
tíma sínum. Á undanförnum árum
er sem virðingarleysi við dómara
hafi aukist. Þess er skemmst að
minnast, að ráðist var á línuvörð
við störf sín i íslandsmótinu í
knattspyrnu síðastliðið sumar.
Dómari í körfuknattleik fékk
mikið spark í afturendann frá
leikmanni að leik loknum hér í
móti fyrir skömmu og fleira mætti
nefna.
Það má ekki gleymast, að
dómarar eru mannlegir og geta
gert sín mistök, og vissulega getur
það komið niður á liðum í
kappleikjum, en það bætir ekki úr
skák er íþróttamenn láta skapið
hlaupa með sig í gönur, og svala
sér á dómurum leiksins. Það má
ekki koma fyrir.
Undirritaður minnist þess að
eitt það fyrsta sem pólski lands-
liðsþjálfarinn Janus Cervinski
lagði mikla áherslu á fyrir kapp-
leiki var að starf dómarans yrði
virt og borin væri virðing fyrir
Kappinn sem nú fær að reyna sig
er Jimmy Adamson, sem síðustu 6
árin heíur verið stjóri hjá
Burnley. Hann hefur áður fengist
við þjálfun hjá Sunderland og
hollenska liðinu Spörtu. en í
Hollandi var hann aðeins í fáa
daga. gafst upp og fór heim.
honum. Mótmæla aldrei dómi
hversu rangur sem hann gæti
virst. Það voru lög að segja ekki
orð við dómarann. Nákvæmlega
það sama kom fram í viðtali, sem
undirritaður átti fyrir skömmu við
hinn nýja pólska þjálfara Vikings-
liðsins. Hann sagðist leggja
áherslu á að leikmenn mótmæltu
ekki dómum, hvorki með orðum
eða öðrum hætti.
Oft stafa mótmæli leikmanna og
áhorfenda af hreinu þekking-
arleysi á reglum leiksins. Væri
ekki úr vegi að dómarar ættu
fundi með leikmönnum liöa í 1. og
2. deild og kynntu þar reglur og
ræddu um ýmis atriði sem hugsan-
lega orka tvímælis.
Vissulega verður að gera kröfur
til dómara um þekkingu á öllum
reglum leiksins út í æsar, en öll
gagnrýni á störf þeirra verður að
vera sanngjörn. — ÞR.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
t
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
t
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
<
<
i
i
i
i