Morgunblaðið - 05.12.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.12.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1978 11 SÍÐASTA HERFÖRIN DAVIDMORRELL David Morrell Síðasta herförin MacLean Svartagull Mexíkanskur skæruliðaforingi og upp- reisnarseggur rænir bandaríska landa- mærastöð. Bandaríkjamenn gera út refsi- leiðangur á hendur honum, gegn vilja mexikanskra yfirvalda. Það er engin misk- unn í Síðustu héftörinni eftir höfund bók- anna í greipum dauðans og Angtst sem seldúst upp jafnskjótt og þær komu út. Síðasta herförin hefur af bandarískum gagnrýnanda verið kölluó langbesta verk Morrells. METSOLU HuFUNDAR George Lucas Stjörnustríð Logi geimgengili ögraði stormsveitar- mönnum fjarlægs stjörnukerfis í hættu- legri sendiför — þar sem lífsmáttur varó að dauðaorku. Með hugrekki sitt eitt, að vopni ásamt geislasverði því, sem verið hafði í eigu föður hans, lendir Logi í grimmilegasta geimstríði, sem háð hefur verið — og á þá í höggi við öflugasta virki fjandmannanna, Helstirnið. Óstytt útgáfa — engu sleppt og engar endursagnir. Æsilegasta vísindaskáld- saga sem samin hefur verið. Hammond Innes Gulldíki Gulldíki gerist í Ástralíu. Gjaldþrota breskur námuverkfræðingur á flótta undan réttvísinni kemst á snoðir um gamla gullnámu. Spennan í sögunni magnast stig af stigi um leið og atburðir fortíðarinnar skýrast. Gullþorsti. Nikkel- æði. Og græðgin nær yfirhöndinni. Fáum höfundum er eins lagið og Hammond Innes að gefa sannfærandi lýsingar af staðháttum og atburðum í sögum sínum. Gulldíki hefur til að bera alla kosti þessa vel metna höfundar. Á vissum stöðum og hjá vissu fólki var nafnið Sænornin mjög illa séð. En að langmestu leyti beindist andúóin aó Worth nokkrum lávarói og milljónamæringi, sem var eig- andi olíuborpallsins Sænornarinnar... Æsispennandi skáldsaga um átök og spillingu í fjármála- heiminum — átök sem kunna að kosta líf milljóna. Hér er barist um auð og völd — og engum hlíft. Höfundurinn, Alistair MacLean, kann þá list að halda lesandanum í spennu fram á síðustu blaðsíðu — og taugum lesandans er ekki heldur hlíft í þessari bók hans, sem er ein sú magnaðasta sem hann hefur látið frá sér fara. Bræðraborgarstíg 16 simi 12923-19156 Brian Callison Banvænn farmur Okkur er hrint inn í æsilegustu atburði síðasta áratugs, þar sem samviskulausir ofstækismenn hafa tekið gerlavopn í þjónustu sína. Kaupskip klýfuröldur Mið- jarðarhafsins hlaðið átta þúsund tonnum af eitri. Atburðarásin veldur andköfum hjá lesandanum. í Banvænum farmi er líf heillar þjóðar lagt að veði og áhættan er eftir því. Brian Callison varð víðfrægur fyrir bók sína Hin feigu skip. Menn veltu því fyrir sér hvort honum tækist að skrifa aðra bók sem jafnaöist á við hana. Honum tókst það. Og miklu meira en það. PRISMA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.