Morgunblaðið - 05.12.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1978
33
Íj3k * •%■ :>:■ .
E5> *■ *■ >: >:
T ♦ « «4 * <
»**%*««
»* »♦♦ 4 ía
fu- 'Uf,*-!;:****,
y. . ..........
A . -v.v '
.»* »’*Í
' V** w* * *fw* *■
- ♦ *XX* ♦ ♦
,»**•%** >*JT« **
***♦•♦! *%♦♦♦♦♦*
Markmiöinu náö: Lifandi beinagrind.
lítt færa til vinnu. Þetta voru
fangar, sem að áliti nasistanna
mundu sennilega bæta ráð sitt.
Þeir voru sendir til fangabúðanna
í Dachau, Sachsenhausen eða til
Auschwitz I.
Flokkur I: fyrir alla þá fanga,
sem bornir voru lítilfjörlegurh
sökum (oftast var þá átt við fólk,
sem nasistar höfðu flutt
nauðungarflutningi frá heimkynn-
um sínum); þetta fólk þótti
heppilegt til vinnu í kálgörðum og
var flest sent til Dachau.
Flokkur II: Fyrir alla þá gæzlu-
fanga, sem bornir voru þyngri
sökum, en kynnu þó ef til vill að
bæta ráð sitt. Þessu fólki var
ætluð vist í Buchenwald-fanga-
búðunum eða í Flossenburg,
Neuengamme eða þá í Auschwitz
II (þ.e. Birkenau).
Flokkur III: Var ætlaður þeim
gæzluföngum, sem bornir voru
þyngstu sökum, og var þessi
tegund fangabúða jafnt ætluð
glæpamönnum og alls konar utan-
garðsmönnum þjóðfélagsins,
þ.e.a.s. fólki, sem tæpast var búizt
við, að unnt væri að beina inn á
réttar brautir aftur. Þessum flokki
fangabúða tilheyrði Mauthausen.
Aö ferðarlokum
Eg hefi verið spurður hvaða
áhrif svona heimsókn hafi haft á
mig og þá, sem dvöldu í þessum
illræmdu fangabúðum — okkur,
sem höfðu orðið vitni að þessum
hroðalegu atburðum, séð menn
hengda eða skotna og sjálfir fengið
að reyna ýmislegt. Ég segi fyrir
mitt leyti, að ég á mjög erfitt með
að finna réttu orðin til að lýsa
tilfinningum mínum eftir svona
heimsókn — á stað sem óneitan-
lega hafði mikil áhrif á líf mitt og
framtíð. Vegna þess hve yfirferðin
var mikil á tiltölulega stuttum
tíma, að sjá Neuengamme —
Natzeiler — Dachau og svo
Sachsenhausen að lokum; það var
hreinlega ekki hægt að meta þetta
allt í einu — þess vegna urðu
áhrifin mest eftir á. Við vorum
mjög þreyttir — en okkur var
mikilli léttir að hafa lokið þessu
ferðalagi — náð settu marki að
upplifa fangabúðirnar — en sem
frjálsir menn.
.5
Markmiðinu náð: Örmagna af hungri og veikindum.
Dagskammtur fyrir
þessa PHILCO
þvottavél!
a(og hún þvær það!)
Tíu manna fjöl-
skylda þarf aö eiga
trausta þvottavél,
sem getur sinnt dag-
legum þvottaþörfum
fjölskyldunnar.
Þessi tíu manna
fjölskylda sést hér á
myndinni meö dag-
skammt sinn af þvotti.
Og þetta þvær Philco
þvottavélin daglega,
mánuöum og árum
saman.
Þvottavél, sem
^ stenst slíkt álag
| þarfnast ekki frekari
f meömæla.
Þvottavél í þjónustu
tíu manna fjölskyldu
veröur líka aö vera
sparsöm. Philco
þvottavél tekur inn á
sig bæöi heitt og kalt
vatn, sem sparar raf-
magn og styttir
þvottatíma.
Philco og fallegur
þvottur fara saman.
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
f Lítið barn hef ur lítið sjónsvið