Morgunblaðið - 22.12.1978, Side 1
80 SÍÐUR
294. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Jólaboðskapur
páf a ekki birt-
ur í Póllandi
Varsjá, 21. desember. AP.
JÓLABOÐSKAPUR Jóhannesar Páls páfa II. til fyrrverandi
sóknarbarna hans í Kraká í Póllandi var harðlega gagnrýndur af
þarlendum yfirvöldum í dag og vikuritið „Roman weekly“ sem
venjulega birtir jólaboðskap páfa neitaði því að þessu sinni að því
er áreiðaniegar heimildir í Varsjá herma.
Annar aðalritstjóri blaðsins,
Krysztof Kozlowski, sagði í
viðtaii við AP-fréttastofuna í
dag, að ástæðan fyrir því að
jólaboðskapur páfa til fyrrver-
andi sóknarbarna hans hefði
ekki verið birtur væri einfald-
lega sú, að búið hefði verið að
vinna blaðið áður en boðskapur
páfa birtist. — í þessu sambandi
vekur það nokkra furðu að
kveðja páfa til allra lands-
manna sameiginlega sem barst
blaðinu á sama tíma var birt i
heild án allra styttinga sem
koma þó venjulega til við slík
tækifæri.
Talið er fullvíst að pólsk
yfirvöld hafi viljað koma í veg
fyrir að ummæli páfa um
heilagan Stanislaw sem var
myrtur í Kraká árið 1079
kæmust til íbúa svæðisins. — Þá
er búist við því að páfi muni í
maí næstkomandi heimsækja
Pólland í tilefni þess að 900 ár
eru liðin frá því að heilagur
Jóhannes Páll páfi II
Staníslaw var myrtur. Um 90%
Pólverja eru kaþólskir.
Pólsk yfirvöld hafa til þessa
ekki viljað viðurkenna nein
afmælishátíðarhöld nema í
sambandi við valdatöku
kommúnista í landinu 1944.
Blátt bann hefur verið lagt við
hátíðarhöldum vegna byltingar-
innar 1918 og minningar um
Stanislaw sem talið er stríða
gegn þjóðerniskennd lands-
manna.
Farþegavél
TWA rænt
Marion, Ulinois, 21. des. AP
DC-9 FARÞEGAÞOTU banda-
ríska flugfélagsins Trans World
Airlines TWA, var rænt í innan
landsflugi í Bandaríkjunum f dag
af konu, vopnaðri þremur dyna-
mítsprengjum. Með vélinni voru
89 farþegar auk áhafnar, 8
manns að sögn bandarfskra flug-
málayfirvalda í dag.
Flugræninginn skipaði flug-
stjóranum að fljúga til flugvallar
utan við Illinois rétt við ríkis-
fangelsið þar og krafðist þess að
tveimur föngum yrði sleppt
lausum.
Þremur klukkustundum eftir að
vélin lenti átti bandaríska alríkis-
lögreglan FBI enn í samningaþófi
við flugræningjann sem við nánari
athugun reyndist heita Robin
Oswald, dóttir flugræningja sem
var skotinn er hún reyndi flugrán
Einhliöa samningurvið
ísrael ekki til umræðu
— aðeins heildarsamningur allra aðila kemur til greina, segir Sadat
Damiette, Egyptalandi, 21. des. AP
ANWAR Sadat Egypta-
landsforseti ásakaði í dag
ísraelsmenn fyrir að villa
vísvitandi um fyrir
umheiminum þegar þeir
fullyrtu að Egyptar hefðu
breytt Camp David-sam-
komulaginu í meðförum
Mikki fór á
700 þús. kr.
London, 21. desember. Reuter.
MIKKI mús, íimmtugur á
þessu ári, var í gær ásamt
konu sinni, Minny, seldur á
uppboði gamalla leikfanga f
London fyrir 1200 sterlings-
pund eða sem nemur rúmlega
700 þúsundum íslenzkra
króna.
Þau hjónakornin voru ofan
á 40 ára gamalli klukku sem
framleidd var í Þýzkalandi og
gengur eins og „klukka“ þrátt
fyrir háan aldur.
sínum í síðustu umferð
friðarumleitananna sem
síðar leiddi til þess að
málið sigldi í strand, að því
er fréttir frá Damiette í
Egyptalandi herma f dag.
Sadat sagði ennfremur,
að Jimmy Carter Banda-
ríkjaforseti hefði þurft að
fylgjast betur með því sem
fram fór að tjaldabaki í
samningaviðræðum land-
anna. — Forsetinn sakaði
ísraelsmenn um að vilja
leika nokkurs konar stór-
veldi í samskiptum land-
anna og vilja ráða alger-
lega um stefnu Bandaríkj-
anna í málinu, því gætu
þeir með engu móti þolað
það, að Bandaríkjamenn
„héldu með“ Egyptum
þessa stundina.
í ræðu sem Sadat flutti á
flokksfundi í dag varaði hann
Israelsmenn við því að búast við
Anwar Sadat
einhliða samningi milli ísraels-
manna og Egypta, slíkt kæmi ekki
til greina. Egyptar vilja engan
sérfrið, heldur heildarfrið í þess-
um heimshluta þar sem m.a. mál
Palestínumanna yrðu til lykta
leidd.
Moshe Dayan utanríkisráðherra
ísraels, sem um þessar mundir
fundar með starfsbræðrum sínum
í EBE, sagði í Brússel í dag, að
nauðsynlegt væri að höggva á
þann hnút sem nú væri í
samningaviðræðum ísraelsmanna
og Egypta og reyna til hlítar að
semja endanlegan frið milli land-
anna. Ráðherrann sagðist óttast,
að ef málið yrði ekki tekið upp
mjög fljótlega yrði löng bið eftir
friði í Miðausturlöndum.
á síðasta ári í þeim tilgangi að fá
þessa sömu fanga látna lausa.
Fangarnir voru báðir dæmdir í
ævilangt fangelsi fyrir flugrán á
árinu 1972 þegar þeir kröfðu Trans
World Airlines flugfélagið um 360
þúsund dollara lausnargjald. Er
síðast fréttist hafði alríkislögregl-
unni FBI ennþá ekki tekist að ná
samningum við ungfrú Oswald.
Enn frekari
olíuhækkun
á næsta ári?
Kuwait. 21. desember. AP.
RENE Ortiz, aðalfram-
kvæmdastjóri OPEC sam-
taka olíuframleiðsluríkja,
sagði á fundi með frétta-
mönnum í dag, að ef dollar-
inn héldi áfram að síga og
verðbólgan áfram að auk-
ast væri óhjákvæmilegt að
hækka verð á olíu á næsta
ári umfram það sem ákveð-
ið var á ráðherrafundi
samtakanna í Abu Dhabi
nýverið.
Sagði framkvæmdastjórinn að
staða dollars og verðbólguþróunin
í heiminum yrðu endurskoðuð
fyrir árlegan júnífund ráðherra-
nefndar samtakanna sem haldinn
verður í Genf á næsta ári.
í tilkynningu frá OECD, Efna-
hags- og framfarastofnun Evrópu,
í dag segir, að nýtilkynnt hækkun
olíu um 14.5% á næsta ári muni
ekki válda neinni kollsteypu hjá
ríkjum í hinum vestræna heimi en
muni kosta ríkin óhemjufjárhæð-
ir, eða a.m.k. um 19 milljarða
dollara sem jafngildir um 6000
milljörðum íslenzkra króna. —
Einnig segir í tilkynningunni að
hækkunin hafi komið
OECD-mönnum nokkuð á óvart
því þeir hafi ekki búist við meiri
hækkun en 10%.
3 hermenn myrtir
á Norður-Irlandi
Crossmaglcn, NorÖurírlandi,
.21. desembcr. Reuter.
ÞRÍR breskir landamærahermenn
voru skotnir niður við landamæri
Norðurírlands og írska lýðveldis-
ins f morgun af norðurírskum
skæruliðum. Hermennirnir þrír
létust allir á leið í sjúkrahús að
sögn breskra hernaðaryfirvalda í
dag.
Árás þessi á landamærastöð hers-
ins kemur í beinu framhaldi af
sprengjutilræðum skæruliða víðs
vegar í Bretlandi í gærdag. Að sögn
sjónarvotta ók rauður sendiferðabíll
upp að landamærastöðinni og aftur-
dyr hans opnuðust og hófst mikil
skothríð. Þremur landamæravarð-
anna tókst að henda sér niður í tíma
og sluppu ómeiddir.
Hinir þrír voru fluttir í skyndingu
með þyrlu áleiðis til Belfast en létust
allir af skotsárunum á leiðinni eins
og áður sagði. Árás þessi á breska
hermenn er sú blóðugasta á þessum
slóðum í þrjú ár að sögn talsmanna
hersins. Tala fallinna hermanna er
þá komin í 14 frá áramótum.
Morðið í Dallas 1963:
Fjórum kúlum var
skotið aðKennedy
Grand Rapids, Michigan,
21. desember, AP.
BÁNDARÍSKI þingmaðurinn
Harold Sawyer skýrði frá því í
dag, að sérfræðingar hefðu
komist að þeirri niðurstöðu að
fjórum skotum hefði verið
skotið að John F. Kennedy
fyrrum Bandaríkjaforseta,
þegar forsetinn var myrtur í
Dallas í Texas 22. nóvember
1963. Stangast þessar nýju
niðurstöður umfangsmikilla
rannsókna á við niöurstöður
Warrennefndarinnar, sem
komst að þeirri niðurstöðu, að
aðeins tveimur skotum hefði
verið skotið að forsetanum.
Sawycr er í þingskipaðri nefnd
sem falið var að yfirfara alla
þætti rannsóknarinnar á morði
Kennedys.
Niðurstöður Warren-nefndar-
innar voru þær, að tveimur
'kúlum hefði verið skotið að
Kennedy frá skólabókageymslu
og að Lee Harvey Oswald hefði
verið einn að verki við morðið.
Þingmaðurinn sagði hins vegar,
að nýjasta rannsókn bergmáls-
sérfræðinga leiddi í ljós að
skotið hefði verið úr tveimur
áttum að Kennedy. Komust
sérfræðingarnir að þeirri niður-
stöðu, að þriðju kúlunni af
fjórum hefði verið skotið frá
hinum svonefnda Grassy Knoll.
Sérfræðingarnir komust að
niðurstöðu sinni um að fjórum
kúlum hefði verið skotið að
Kennedy með því að rannsaka
hljóðmerki á segulbandsupp-
töku í fjarskiptastöð lögregl-
unnar í Dallas, en sendir á
talstöð lögregluþjóns á mótor-
hjóli, sem ók við hlið bifreiðar
forsetans, var í gangi þegar
Kennedy var myrtur. Bergmála-
sérfræðingar búa nú yfir þeirri
tækni að geta með góðri vissu
sagt um úr hvaða glugga á stórri
byggingu kúlum var skotið.