Morgunblaðið - 22.12.1978, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978
Nú á dögunum birti kvik-
myndadreifihringurinn
United Artist (umboösaöili
hérl: Tónabíó) lista yfir þær
myndir sem hann er með í
framieiðslu. Til þess dugði
hvorki meira né minna en
20 síðna kálfur í Variety!
Ekki nema hluti þessara
mynda kemur þó til með að
verða sýndur, því hér er
einnig um að ræða myndir
sem fyrirtækið dreifir
eingöngu í vissum heims-
hlutum. Nú, og svo verða
sumar myndir aldrei til
nema á pappírnum. En nú
verður rennt lauslega yfir
þær myndir sem koma tíl
með að verða sýndar í
Tónabíói á næstu árum:
• Fyrsta skal fræga teija
hina umtöluðu stríðsmynd
(Viet-Nam) Francis F'.
Coppola, APOCALYPSE
NOW, en frumsýningardegi
er frestað æ ofaní æ. Nú er
talað um páska. Með aðal-
hlutverkin fara Marlon
Brando, Robert Duvall og
Martin Shenn.
• Stórvestrar gerast ærið
sjaldséðir en nú er von á
einum, gerðum af gamla
glæsibragnum. Nefndist
hann COMES A HORSE-
MAN, leikstýrður af Jlan J.
Pakula, með súperstjörnun-
um James Caan, Jane
Fonda og Jason Robards í
aðalhlutverkum.
• THE BRINK’S JOB
nefndist nýjasta mynd"
Williams Friedkin, og var
hún frumsýnd í þessum
mánuði erlendis við ágæta
dóma (nýtt fyrir Friedkin!)
Myndin er byggð á sönnum
atburði, einu glæfralegasta
bankaráni fyrr og síðar.
Með aðalhlutverk fara
Peter Falk, Warren Oates
og Peter Boyle.
Pcter Falk í THE BRINK’S JOB
• CORKY nefnist mynd
sem lætur lítið yfir sér, en
er athyglisverð fyrir þær
sakir að hún er fyrsta mynd
kvikmyndatökumannsins
ágæta (tekið m.a. flestar
nýrri myndir Woody
Allen), Gordon Willis.
Örvæntingin heíur gripið um sig — úr myndinni
INVASION OF THE BODY SNATCHERS
Caan, Fonda og Robards í vestranum COMES A HORSEMAN
handritið- eftir eigin met-
sölubók. Með meginhlut-
verk fara þeir Sean
Connery og Donald
Sutherland.
• Og þar kom að því að
hinn sögufrægi söngleikur
HAIR var kvikmyndaður.
Óþarft er að skeggræða
hann nánar, hann var hluti
af menningu þeirra sem
„lifðu vel“ í kringum 1970.
Myndin er sú fyrsta sem
Milos Forman gerði eftir
hina vel heppnuðu ONE
FLEW...
• Þá er búið að endurgera
eina frægustu vísindaskáld-
sögumvnd allra tíma,
INVASION OF THE BODY
SNATCHERS, en fyrri
myndin var gerð árið 1956
af Don Siegel. Það orð sem
af þeirri mynd fer ber að
þakka frábærri leikstjórn
Siegels, sem hóf þessa
„B“-mynd á æðra plan
ásamt sérstaklega vel
skrifuðu og skynsamlegu
handriti Daniels Main-
waring. Hvorugs þeirra
nýtur við í þessari mynd-
gerð, og verður því fróðlegt
að sjá árangurinn — sem
kemur í ljós núna um jólin.
Látum þetta nægja að
sinni.
Sean Connery og Lesley-Anne Down í myndinni THE
GREAT TRAIN ROBBERY
Hvað er á prjónun
nm hiá WUmtedArtists 9
^| III ||| d lllHl ATransamerica Company u
• THE GREAT TRAIN
ROBBERY nefnist nýjasta
mynd Michael Chrictons, en
hann skrifaði jafnframt
Ilárið
Tvö D fyrir Dolby
Stórmál er á döfinni hjá
kvikmyndahúseigendum og
forráðamönnum í Reykja-
vik, en það eru kaup á
Dolby-tækjum. Þeir Islend-
ingar eru sjálfsagt orðnir
fjölmargir sem notið hafa
slíkrar tækni erlendis á
undanförnum árum (auk
þeirra fjölmörgu sem hafa
yfir sömu tækni að ráða í
sínum eigin hljómburðar-
tækjum), því Dolby er
komið í öll helstu kvik-
myndahús erlendis. Allar
dýrari myndir eru undan-
tekningarlaust orðið frarn-
leiddar með notkun tækj-
anna í huga, en þetta er ör
þróun þar sem að fyrsta
myndin með Dolby er að-
eins u.þ.b. tveggja ára
gömul.
Tilkoma Dolby-tækjanna
er bylting í hljómburði.
Tónninn er miklu skýrari,
öll aukahljóð og suð úr
sögunni. Munurinn er
geysilegur.
Astæðan fyrir því að
þessi framtíðartækni er
ekki fyrir löngu komin í
hvert kvikmyndahús hér-
lendis er í fyrsta lagi
verðið, en uppsett kostar
Dolby-tæki (mögulega tals-
verðar breytingar á tón-
kerfi flestra kvikmynda-
húsanna að auki) ekki
undir 6—7 millj. króna. Og
í öðru lagi setur fyrirtækið,
sem framleiðir tækin, upp
þá lágmarkskröfu að ekki
verði færri en fimm tæki
keypt strax til landsins. Sú
krafa er sett fram til að
unnt verði að sérþjálfa
viðgerðarmann og veita
nauðsynlega þjónustu.
En eins og fyrr greinir,
þá eru þessi mál komin á
talsverðan rekspöl og full
ástæða til að ætla að af
þessum kaupum verði inn-
an tíðar.
Og í beinu framhaldi má
geta þess að snemma á
næsta ári mun íslendingum
gefast kostur á að njóta í
fyrsta sinn nýrrar tækni í
kvikmyndagerð, sem notið
hefur mikilla vinsælda
erlendis undanfarin ár, og
nefnist SENSURROUND.
Er það Laugarásbíó sem
hyggst innleiða þessa
nýjung, enda er kvik-
myndahúsið umboðsaðili
fyrir Universal, en það
kvikmyndaver hefur verið
langiðnast við að frámleiða
kvikmyndir með þessari
tækni.
SENSURROUND-tæknin
byggist á öflugum hljóm-
flutningi, aðallega sterkum
bassa, og áhrifin eru slík að
það er sem kvikmyndahúsið
leiki á reiðiskjálfi þegar
tækninni er beitt! Það segir
sig því sjálft að SENSUR-
ROUND hefur einkum ver-
ið notað við gerð stríðs- og
haffaramynda (AIR-
PORT-myndaflokkurinn,
EARTHQUAKE, THE
BATTLE OF MINWAY,
ofl.). Að öllum líkindum
ríður Laugarásbíó á vaðið
með vísindaskáldsögu-
myndinni BATTLESKIP
GALACTICA.
□□ DOLBY ®STEREO