Morgunblaðið - 22.12.1978, Page 2

Morgunblaðið - 22.12.1978, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978 »v.. í Jism Jólablað Lesbókar er komið út og hefur að undanförnu verið borið til fastra áskrifenda. í blaðinu er m.a. eftirfarandi efni: „En það bar til um þessar mundir“. Um Rómverjana, sem koma við sögu í sjónvarpsþáttunum „Ég Cládíus". I. grein af þremur. Trúarþörfin. Greinar eftir Harald Ólafsson lektor, Björn Björnsson prófessor og viðtal við séra Ólaf Skúlason. Ilópsálin. Grein eftir Kristján frá Djúpalæk. Ilugur manns jólahugvekja eftir Árna Óla. Smásögur eftir Hrafn Gunnlaugsson og Guðmund L. Friðfinnsson. Trú og vísindi grein eftir Vilhjálm Skúlason. Myndir frá Pétursborg eftir Braga Ásgeirsson. Um myndlist í kirkjum grein eftir séra Gunnar Kristjánsson. Áhrifamesta tónlistarupplifun ævi minnar var að sjá og heyra Toscanini stjórna. Rætt við Þórð Kristleifsson, fyrrum söngkennara á Laugarvatni. Myndmál Einars Jónssonar. Eftir Geir V. Vilhjálmsson, Franz Schubert, hinn einlægi snillingur Hugleiðingar á 150. árið tónskáldsins. Nóvemberdagur á Bali Ferðafrásögn eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur. Blésu þeir í söngiúðra. Húsvitjun á aðventu í Fossbrekku hjá hjónunum Gígju Kjartansdóttur og Roar Kvam. Eftir séra Bolla Gústafsson í Laufási. Hógværi Daninn er orðinn íslendingur Sveinn Ásgeirsson skrifar um Aage Nielsen-Edwin, myndhöggvara. Þegar Jólin komu til Víkur. Endurminning eftir séra Óskar J. Þorláksson. Ljóð í tilefni af jólum eftir Hannes Pétursson, Sveinbjörn Beinteinsson, Jakob Jónsson, Ingólf Sveinsson, Maríu Skagan, Ingibjörgu L. Harðardóttur, Einar Benediktsson, Davíð Stefánsson og Jónas Guðmundsson. Forsíðumynd eftir Atla Má og teikningar eftir Eirík Smith, Kjartan Guðjónsson, Jónas Guðmundsson, Alfreð Flóka, Árna Elfar og Gísla Sigurðsson. Hækkun verðjöfn- unargj aldsins sam- þykkt í neðri deild Tilboði Gunnars Thoroddsens um niðurskurð á f járlögum ekki svarað Á fundi neðri deildar í gær var samþykkt með 19 atkvæðum gegn 18 að hækka verðjöfnunargjald á rafmagni úr 13% í 19%, sem gefur 700 millj. kr. í tekjur. Gunnar Thoroddsen, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, bauð það fram, að Sjálfstæðisflokkurinn ynni ásamt rikisstjórninni að lækkun fjárlaga sem næmi tekjum af hækkun verðjöfnunargjaldsins á næsta ári, þannig að ekki þyrfti til hækkunarinnar að koma, en Raf- magnsvcitur ríkisins og Orkubú Vestf jarða misstu einskis í tekjum. Hjörleifur Guttormsson iðnaðar- ráðherra svaraði þessum tilmælum ekki, en áður hafði hann talað um hækkun verðjöfnunargjaldsins sem jólagjöf fyrir fólk úti á landi. Við 3. umræðu flutti Ellert B. Schram breytingartillögu þess efnis, að hækkun verðjöfnunargjaldsins rynni óskipt til þess að minnka þann mismun, sem nú er á heimilistaxta hjá Rafmagnsveitum ríkisins og Orkubúi Vestfjarða annars vegar og öðrum rafveitum hins vegar, en það er meira en helmings munur, þar sem mest er. Kvaðst þingmaðurinn flytja tillöguna til að tryggja, að hækkun verðjöfnunargjaldsins rynni ekki í fjármagnskostnað eða til nýrra framkvæmda, svo sem verið hefði. Þessir þingmenn greiddu atkvæði með hækkun verðjöfnunargjaldsins við 2. umræðu neðri deildar: Ingvar Gíslason, Benedikt Gröndal, Eiður Guðnason, Finnur Torfi Stefánsson, Garðar Sigurðsson, Halldór E. Sigurðsson, Hjörleifur Guttormsson, Skúli Alexandersson, Kjartan Ólafs- son, Lúðvík Jósepsson, Magnús H. Magnússon, Matthías Bjarnason, Páll Pétursson, Pálmi Jónsson, Sighvatur Björgvinsson, Stefán Valgeirsson, Steingrímur Her- mannsson, Tómas Árnason og Þórar- inn Sigurjónsson. Þessir þingmenn greiddu atkvæði gegn hækkun verðjöfnunargjaldsins: Albert Guðmundsson, Eðvarð Sigurðsson, Eggert Haukdal, Einar Ágústsson, Ellert B. Schram, Friðjón Þórðarson, Friðrik Sóphusson, Geir Hallgrímsson, Gunnar Thoroddsen, Gunnlaugur Stefánsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Jósef H. Þorgeirsson, Lárus Jónsson, Matthías Á. Mathiesen, Ólafur G. Einarsson, Svava Jakobsdóttir, Sverrir Her- mannsson og Vilmundur Gylfason. Árni Gunnarsson sat hjá, en Gils Guðmundsson og Svavar Gestsson voru fjarstaddir. Pálmi Jónsson gerði þá grein fyrir atkvæði sínu, að þar sem ekki hefðu komið fram vilyrði frá ríkisstjórn- inni um að verða við tilmælum Gunnars Thoroddsens um framlög úr ríkissjóði í stað verðjöfnunar- gjaldsins væri hann með hækkun verðjöfnunargjaldsins. Sverrir Hermannsson kvaðst vera andvígur hækkun verðjöfnunar- gjaldsins í fullu trausti þess, að ríkisstjórnin sæi sér fært að verða við boði stjórnarandstöðunnar, þannig að fjárhagshliðinni yrði borgið með beinum framlögum úr ríkissjóði og skírskotaði Eggert Haukdal til þessarar greinargerðar fyrir sinni afstöðu. Níu þingmenn Alþýðuflokksins: Skattvísitalan verði 151 stig NÍU ÞINGMENN Alþýðuflokks ins fluttu í gærkvöldi breytingar- tillögu við fjárlagafrumvarpið um að skattvisitalan 1979 verði 151 stig í stað 150 eins og samkomúlag varð um í ríkis- stjórninni. ÞEGAR Morgunblaðið spurði einn tillögumanna að því í gær, hvort þeir flutningsmenn myndu draga tillöguna til baka áður en til atkvæðagreiðslu um hana Heildartekjur borgarinnar hækka milli ára um tæp 55% I fjárhagsáætluninni er hvorki reiknað með 6,12% vísi töluhækkun 1: des né visitöluhækkunum á næsta ári FRUMVARP að fjárhagsáætlun Reykjavikurborgar fyrir árið 1979 var iagt fram á fundi borgarstjórn- ar Reykjavíkur í gær og fylgdi Egill Skúii Ingibergsson borgar- stjóri því úr hlaði með ítarlegri ræðu um fjármál borgarinnar. Helztu þættir f fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir næstu ár erui • Heildartekjur borgarsjóðs á næsta ári eru áætlaðar 24 milljarðar króna, en í fjárhagsáætlun frá í fyrra að meðaltalinni hlutdeild í launahækkanafjárveitingum voru heildartekjurnar 15,5 milljarðar króna. í nýju áætluninni eru engar vísitöluhækkanir meðtaldar frá og með 1. desember 1978. Hækkunin er 54,9%, en var í fyrra 38,2%. • Rekstrargjöld borgarinnar næsta ári eru áætluð tæplega lc milljarðar króna, en voru í fyrra 10,7 milljarðar króna. Hækkunin er 39.3%, en var í fyrra 37,8%. • Áætlað er að verja til gatna og holræsagerðar 3,7 milljörðum króna, en í fyrra var áætlunin 2,3 milljarð- ar króna. Milli áranna hefur því orðið 60,8% aukning. • Framlög til svokallaðra eigna- breytinga, þ.e. til framkvæmda og ýmissa annarra þarfa, nema tæplega 7 mdljörðum króna, en námu í fyra 3,6 milljörðum. Hækkunin er 92,6%. • Ef nýbygging gatna og holræsa (sem talin er með rekstrarútgjöld- um) er tekin sérstaklega ásamt framkvæmdalið eignabreytinga, kemur í ljós, að áætlað er að verja til verklegra framkvæmda 9,1 milljarði króna, en í fyrra 4,8 milljörðum. Hækkun milli ára er 89,9%. Er þetta 60,7% af heildarútgjöldum borgar- innar, en var í fyrra 44,9%. Aðaltekjustofn borgarinnar eru útsvörin, sem nú er áætlað að nemi 11,6 milljörðum króna, en í fyrra voru útsvörin á fjárhags- áætlun 7,8 milljarðar króna. Hækkunin milli ára er því 49,1%. Hækkunin í fyrra milli ára nam 41,4%. í ræðu borgarstjóra, Egils Skúla Ingibergssonar, kom m.a. fram, aðj gert væri ráð fyrir því að nýta í lögum heimild um 10% álag á útsvör, en sú hækkun er háð samþykki ráðherra. Að öðru leyti byggist áætlunin á spá Þjóðhags- stofnunar um tekjuhækkun ein- staklinga milli ára, 51%, og er einnig stuðzt við skýrslur kjara^ rannsóknarnefndar í því efni. I áætluninni er hins vegar gert ráð fyrir skattvísitölu 143 stig en ekki 150 stigum. Fasteignagjöld eru áætluð að nemi 3,5 milljörðum króna, en í fyrra voru þau áætluð 1,8 milljarð- ar. Hækkunin milli ára er því 92,2%, en var árið áður 34,9%. Borgarstjóri gat þess að heildar- mat fasteigna hefði hækkað um 2% vegna fjölgunar bygginga, en matið í heild hefði hækkað um 42% vegna verðbreytinga. Áætlað er að aðstöðugjöld verði 3,9 milljarðar króna, en voru í fyrra 2,2 milljarðar. Hækkunin er 81,9% en hækkun frá árinu áður nam 36,3%. í áætluninni er reiknað með að lögleyfður gjald- stigi verði nýttur til fulls, en álagningarstofn hefur hækkað um 47% milli ára. Til fræðslumála er nú áætlað að fari 2,9 milljarðar, en voru 2,3 í fyrra, hækkun 24,2%. Hækkunin í fyrra nam 36,9%. Til heilbrigðis- og hreinlætismála fer nú 2,1 milljarðar, en 1,3 í fyrra. Hækkun er 62,1% en var í fyrra 33,6%. Til félagsmála fara nú 4,8 milljarðar króna, en 3,3, í fyrra. Hækkun er 45,7%, en var í fyrra 32,4%. Til lista, útiveru og íþrótta er nú varið 1,6 milljörðum, en var í fyrra 1,2 milljarðar. kæmi, svaraði hannt „Það er ekki satt, en við erum að athuga okkar mál.“ Einnig flytja þeir tillögur um lækkun á ræktunarframlögum að fjárhæð 543 milljónir og 500 þúsund krónur sem skuli þess í stað verja til framleiðni í landbún- aði, hliðarbúgreina og orlofs bænda. Þeir flytja einnig tillögu um að útflutningsuppbætur séu skornar niður um einn milljarð króna, sem renni til að bæta samkeppnisað- stöðu iðnaðarins. Fyrsti flutningsmaður er Árni Gunnarsson en auk hans standa að tillöguflutningnum Jóhanna Sig- urðardóttir, Eiður Guðnason, Bragi Níelsson, Ágúst Einarsson, Ólafur Björnsson Finnur Torfi Stefánsson, Vilmundur Gylfason og Gunnlaugur Stefánsson. Sjómannasambandið: Sjómenn skrái sig ekki á fiskiskipin FRAMKVÆMDANEFND Sjó- mannasambands íslands samþykkti á fundi sínum í gær að beina þeirri eindregnu áskorun til sjómanna- stéttarinnar að fara eftir áskorun kjaramálaráðstefnu sjómanna, sem fjallaði um að sjómenn skráðu sig ekki á fiskiskip eftir áramót, fyrr en viðunandi fiskverð lægi fyrir. Frá þessu er skýrt í fréttatilkynningu, sem Morgunblaðinu barst í gær. VSÍ, LÍÚ, FÍI og SF um skattalög ríkisstjórnarinnar: V erðbólguhvet jandi og leiða til lækkunar launa „LAGASETNING sem þessi hindr- ar eðlilega og nauðsynlega upp- byggingu atvinnuveganna og dreg- ur þannig niður lífskjör þjóðarinn- ar allrar í framtíðinni,“ segir í fréttatilkynningu, sem Morgun- blaðinu barst í gær frá Vinnuveit- endasambandi Isiands, Landssam- bandi íslenzkra útvegsmanna, Félagi fslenzkra iðnrekenda og Sambandi fiskvinnslustöðvanna, en þar er fjailað um hin þrjú laga- frumvörp rfkisstjórnarinnar, sem Iiggja fyrir Alþingi og miða að því að auka útgjöld atvinnuveganna um 6 milljarða króna. I fréttatilkynningunni segir: „Markmið hverrar ríkisstjórnar hlýtur að vera að bæta hag al- mennings með því að efla atvinnu- fyrirtæki landsmanna og auka sam- keppnishæfni þeirra, þannig að þau geti greitt sambærileg laun og greidd eru í nágrannalöndum okkar. Skattlagning þessi mun hins vegar hafa þveröfug áhrif, það er auka enn umsvif ríkisins, auka verðbólguna og leiða óhjákvæmilega til lækkandi launa.“ Þeir, sem standa að útgáfu frétta- tilkynningarinnar, segja, að þessar álögur séu lagðar á atvinnurekstur- inn, „enda þótt ríkisstjórninni sé ljóst að staða atvinnuveganna er slík að þeir þola engar nýjar álögur. — I frumvörpunum er gert ráð fyrir að tekjuskattshlutfall fyrirtækja hækki úr 53% í 65% af skattgjaldstekjum. Jafnframt er myndaður falskur skattskyldur hagnaður með því að felld er niður verðstuðulsfyrning (verðbólgufyrning) og hlutfall flýti- fyrninga lækkað úr 6% í 2% á ári. — Frumvörpin gera ennfremur rao fyrir, að eignaskattur fyrirtækja verði tvöfaldaður, að sérstakur skattur verði lagður á verzlunar- og skrifstofuhúsnæði og að nýbygginga- gjald verði lagt á öll mannvirki í atvinnurekstri." Því segja útgefendur fréttatil- kynningarinnar, að lagasetningin hindri eðlilega og nauðsynlega upp- byggingu atvinnuveganna og muni hafa þau áhrif að draga niður lífskjör þjóðarinnar allrar í framtíð-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.