Morgunblaðið - 22.12.1978, Page 43

Morgunblaðið - 22.12.1978, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22, DESEMBER 1978 43 Tómas Hallgríms- son - Minningarorð Nokkur fátækleg kveðjuorð um vin minn Tómas Hallgrímsson. Hann andaðist að heimili sínu á Sauðárkróki aðfaranótt 20. nóvem- ber, síðast liðinn, varð bráðkvadd- ur og borinn til grafar laugardag- inn 25. nóvember. Útförin var gerð frá Sauðárkrókskirkju að við- stöddu miklu fjölmenni. Tómas heitinn var fæddur í Reykjavík 22. febrúar 1925. Hann var sonur Hallgríms Tómassonar Hallgríms, sonur séra Tómasar frá Vöilum í Svarfaðadal og eiginkonu hans Guðrúnar Einarsdóttur. Systkini Tómasar eru Elín gift Sveini Guðmundssyni áður kaup- félagsstjóra við kaupfélag Skag- firðinga og þar áður við Kaupfélag Hallgeirseyjar sem nú er Kaupfé- lag Rangæinga; Dýrleif gift Gunn- ari Olafssyni frá Borgarnesi, hann var skipstjóri á Eldborginni og oft kenndur við það skip; Einar garðyrkjubóndi í Garði Hruna- mannahreppi kvongaður Sigur- björgu Hreiðarsdóttur frá Engi í Mosfellssveit. Einnig átti Tómas tvo hálfbræð- ur, því þau hjón Hallgrímur og Guðrún höfðu bæði verið gift áður, Jónas Hallgrímsson, mörgum Reykvíkingum að góðu kunnur, hann vann á manntalsskrifstof- unni og var mikill áhugamaður um frímerkjasöfnun. Jónas heitinn var kvæntur eftirlifandi konu sinni, Ingibjörgu Eyþórsdóttur. Jóhann Sigurðsson var einnig hálfbróðir Tómasar, hann var kvæntur Hrefnu Jensen. Hann fórst með togaranum Júlí frá Hornafirði frá fjórum ungum börnum þeirra hjóna. Er ég kynntist Tómasi vorum við ungir menn innan við tvítugt. Þá starfaði Tómas við nýlendu- vöruverzlun Jóns Hjartarsonar og hafði starfað þar frá þvi hann fór fyrst að vinna. Eigendur verzlun- arinnar voru ekkja Jóns heitins Hjartarsonar og börn þeirra. Umsvif verzlunarinnar voru mikil um þessar mundir. Það var mikið verzlun með kost til skipa, bæði íslenzkra og erlendra, þar sem stríðið geisaði í algleymingi í Evrópu um þessar mundir. Tómas var mikils metinn af vinnuveitend- um sinum, var nánast tekinn sem einn úr fjölskyldu þeirra og nutum við félagar Tómasar oft góðs af því, fengum lánaðan bílakost fyrirtækisins og jafnvel einkabif- reiðir fjölsk.vldunnar er við brugð- um okkur á skíði á veturna eða austur í Hrunamannahrepp á sumrin að hitta Einar bróður Tómasar og Sigurbjörgu. Þar var oft glatt á hjalla í þá daga, eða við skruppum austur á Hvolsvöll á fund Elínar og Sveins kaupfélagsstjóra og var okkur alltaf ve! tekið þar, eins og við værum að koma heim á eigið heimili. Heimili Tómasar var að Lauga- vegi 53. Þar hélt systirin Elín þeim bræðrum Tómasi og Einari hlýlegt heimili. Að vísu var Einar oftar austur í Hvammi í Hrunamanna- hreppi þar sem hann hafði verið strákur í sveit á sumrin og var svo komið að hann var orðinn nokkurs konar uppeldissonur Helga bónda í Hvammi og b.vggði sér nýtt býli í Hvammslandi nokkrum árum síð- ar er hann giftist Sigurbjörgu. Við félagar Tómasar vorum ég undirritaður og Einar Eyjólfsson, nú kaupmaður í Sunnukjöri. Att- um við marga glaða stund með þeim kátu og skemmtilegu systk- inum og varö það senn okkar annað heimili. Tómas var yngstur systkina sinná. Hann missti föður sinn mjög ungur og móður sína er hann var um fermingu, svo Elín var honum sem móðir og okkur félögunum einnig, þótt ung væri er þetta var. Svona gekk þetta nokkur ár þar til Elín giftist Sveini Guðmundssyni kaupfélags- stjóra og fluttist með honum að kaupfélagi Hallgeirseyjar á Hvols- velli. Um þetta leyti kvæntist Jóhann Sigurðsson Hrefnu Jensen og tóku við íbúðinni að Laugavegi 53 og þar bjó Tómas hjá þeim. Engin breyting varð á komu okkar félaganna á Laugaveg 53 og vorum við alltaf velkomnir á það heimili. Jóhann var glaðvær og þau hjón gestrisin og þau gott heim að sækja. Árið 1946 tók Sveinn Guð- mundsson við Kaupfélagsstjórn í Kaupfélagi Skagfirðinga og flutt- ust þau Elín norður á Sauðárkrók. Réðst það þá að Tómas gerðist starfsmaður kaupfélagsins og bjó hjá þeim hjónum tlf ársins 1953 er Tómas gekk að eiga eftirlifandi konu sína Rósu Þorsteinsdóttur hinn 31/12/52. Rósa er traust og góð kona sem studdi mann sinn í blíðu og stríðu, og eignuðust þau níu börn saman. En sorg og söknuður gekk ekki framhjá heimili þeirra hjóna. Misstu þau þrjú börn sín með skömmu millibili, dreng níu ára í umferðarslysi, stúlku tveggja ára og nýfætt meybarn. Þessi sorg lagðist þungt á þau hjón og ekki síður á Tómas, því hann var viðkvæmur maður í lund, þótt hann flíkaði ekki tilfinningum sínum rié bæri sorg sína á torg. Mönnum sýndist Tómas á yfir- borðinu vera opinskár og mesti æringi ef svo bar undir, en í raun og veru var hann mjög dulur og fáir vissu innstu hugarhræringar hans. Eg veit að hann syrgði alla ævi þessi látnu börn sín, en Rósa kona hans var traust og stóð þétt við hlið manns síns í þessum þrengingum. Tómas vann fljótt trúnað og traust yfirboðara og meðstarfs- manna sinna við kaupfélagið sem deildarstjóri í vefnaðarvörudeild og innkaupastjóri við kaupfélagið og kom hann venjulega tvisvar á ári til Reykjavíkur í innkaupaer- indum fyrir kaupfélagið og hitt- umst við þá oft við það tækifæri og héldum við gömlum kynnum og vinskap. Tómas tók mikinn þátt í félags- störfum á Sauðárkróki. Hann var félagi í Lionsklúbbnum á staðnum og um tíma þátttakandi í starf- semi leikfélagsins. Hann var alltaf jafn ráðagóður og hugvitsamur að leysa úr vanda er upp kom hverju sinni og var því oft leitað til hans er ráða þurfti fram úr slíkum vandamálum. Einn vina Tómasar á Sauðár- króki var Bjarni Haraldsson og sagði hann mér að hann sæi mikið eftir góðum vini og félaga og fyrir sér væri Sauðárkrókur ekki sá sami á eftir, og er ég viss um að svo var um fleiri vina hans. Tómas heitinn vann sér alls staðar vini hvar sem hann fór með gamansemi sinni og skemmtileg- um tilsvörum. Móðir mín Kristbjörg Jónsdóttir tók miklu ástfóstri við Tómas og vorum við félagar alltaf velkomnir heim til okkar og síðar kynntist hún Rósu konu Tómasar og varð mikil vinkona þeirra hjóna. Geta skal þess að Tómas eignað- ist son áður en hann gifti sig og hlaut hann nafnið Sigurður Ingi og starfar hann hjá Eimskipafé- lagi íslands og er vélstjóri á skipum þess. Sigurður Ingi er duglegur í sinni starfsgrein og vissi ég að þeir feðgar sáust nokkuð oft, þótt langt væri á milli þeirra. Vil ég að síðustu votta eiginkonu Tómasar heitins, börnum hans, systkinum, vinum og vandamönn- um mína inpilegustu samúð. Jón Ágúst Guðbjörnsson. Gólfteppi — Teppamottur Gólfdreglar í geysilegu úrvali GEÍ5IP H SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Fyrst eftir að ég varð trúaður maður, fannst mér Guð vera svo nálægur mér. Bænastundirnar voru yndisstundir, og það var dásamlegt að lesa Bihlíuna. En í seinni tíð hafa mér fundizt þessar helgistundir þreytandi. Já. ég er að því kominn að gefa þær upp á bátinn. Hvað veldur þessu? Ég er kvíðinn. Andlegum vexti er oft líkt við líkamlegan vöxt. Biblían segir, að við eigum að vaxa og þroskast, bæði andlega og líkamlega. Lystarleysi er eitt öruggasta merkið um lasleika í líkamanum. Læknar segja, að heilbrigður maður sé svangur, en sá, sem missi matarlystina, sé veikur. Hér eru nokkur ráð í vanda yðar: Gangið úr skugga um, að ekki hafi neitt gerzt í lífi yðar, sem hefur dregið úr andlegri matarlyst yðar. Þar getur ýmislegt komið til greina. Kannski hefur „heimurinn" læðzt inn og tekið eitthvað af því, sem tilheyrir Kristi. Líka gæti verið um að ræða leynda synd. Þá getur áhugi á bæn og lestri Biblíunnar dvínað vegna vanrækslu á bæn og lestri! Líf okkar fellur fljótt í ákveðinn farveg. Það er auðvelt að halda góðum venjum, en líka slæmum. Prófið nú þetta, sem ég hefi nefnt. Hefjizt svo handa um að lesa Biblíuna og biðja reglulega. Biðjið Guð að fyrirgefa yður kulda og kæruleysi. Biblían segir: „Nálægið yður Guði, og þá mun hann nálgast yður“ (Jak. 4,8). Sjónval Vesturgötu 11 Girmi vörur: Girmi sproti Kr. 18.500- Girmi mínútugrill Kr. 28.940- Girmi kaffivél Kr. 20.190- Girmi samlokubrauörist Kr. 10.130- Girmi ryksugur 800 wött Kr. 59.060- Girmi sjálfvirk brauörist Kr. 16.290- Girmi hakkavél og grænmetiskvörn Kr. 26.430- Girmi kaffikvörn Kr. 7.540- Girmi áleggshnífur Kr. 29.900- Girmi jógurtvél Kr. 10.960- Girmi ávaxtablandari Kr. 11.380- Girmi hárburstasett Kr. 15.380- Fidelity stereosamstæður: Gerö MC5 settiö Kr. 210.471- Gerö MC6 settiö Kr. 336.631 - Stereosamstæöan 4-40 Kr. 273.753- Hátalarasett 4-40 Kr. 74.676- Stereosamstæöan"5-50 Kr. 333.487- Hátalarasett 5-50 Kr. 102.808- Plötuspilarasett: Plötuspilarar UA10 Kr. 78.837- Plötuspilar^r UA8 Kr. 104.053- Plötuspila'rasett meö útvarpi Kr. 145.111- Útvarp M.R. 1 Kr. 59.030- Sjónvarpsspil Binatone 6 leikja í sv. hv. m. byssu Kr. 31.665- 8 leikja sv.hv. Kr. 32.770- 4 leikja í lit Kr. 34.000- 8 leikja í lit meö byssuleikjum f. tvo Kr. 44.885- Sjónval Vesturgötu 11 sími 22600.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.