Morgunblaðið - 22.12.1978, Page 26

Morgunblaðið - 22.12.1978, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978 Við heimkomuna til Kaupmannahafnar lét Bjerregaard undan þrýstingi blaðamanna sem vildu spyrja ráðherrann um kostnaðinn vegna Parísarferðarinnar. og var þessi mynd tckin á biaðamannafundi sem Bjerregaard hélt í Konungsherberginu í flugstöðinni á Kastrup. Bjerregaard sagðist hissa á móttökum blaðamannanna við heimkomuna og sagði að móttökurnar bentu til þess að málið hefði verið blásið um of upp í fjöimiðlum. Danmörk: Jörgensen skipar Bjerregaard að borga rúman priðjung kostnaðar Kaupmannahöfn. 21. desember, frá fréttaritara Mbl. LJÓST þykir nú að ekki verða gerðar neinar breytingar á stjórn Danmerkur fyrir jólin a.m.k. í sambandi við mál það sem spunnist hefur upp í sambandi við ferð Ritt Bjcrre- gaard menntamálaráðhcrra til Parísar í haust. Anker Jörgensen forsætis- ráðherra, sem í fyrstu lýsti hátterni Bjerregaard í sam- bandi við Parísarferðina sem heimskulegu uppátæki, til- kynnti í dag að hann hefði krafist þess af ráðherranum að hún greiddi sjálf 20,000 dansk- ar krónur af kostnaðinum úr eigin vasa, og að málið væri þar með úr sögunni frá hans hendi. En Ritt Bjerregaard sættir sig ekki við þessi málalok og tilkynnti hún í dag, að málið væri ekki úr sögunni frá hennar hendi, þar sem henni hefði ekki gefist kostur á að verja sig stanzlausum ásökun- um í þingi og blöðum í sam- „ bandi við Parísarferðina. Hef- ur ráðhcrrann boðað greinar- gerð um málið. Bjerregaard segist ekki sjá neina ástæðu til þess að borga aukaherbergi á hóteli úr eigin vasa, en hún segist þó ætla að íhuga málið. Við komuna til Kaupmannahafnar úr opin- berri heimsókn til Kína og Thailands sagði hún að í þeirri upphæð sem nefnd hefði verið í sambandi við Parísaríerð henn- ar. 57,000 danskar krónur eða rúmar 3 milljónir íslenzkra króna, væri að finna einkaút- gjöld hennar sjálfrar, kostnað vegna einkaritara hennar og loks gjöld af ferðinni sem danska ríkinu bæri að borga. Sendiráð Danmerkur í París stóð straum af öllum útgjöidum ráðherrans í Parísarferðinni. Haft er eftir leiðtogum stjórnarandstöðunnar að ef Jörgensen lciði mál Bjcrre- gaard ekki til lykta hið fyrsta, muni andstaðan leggja fram vantrauststillögu á stjórnina í janúar. Rithöfundar og menntamenn í Danmörku hafa bundist sam- tökum og gagnrýnt alla um- fjöllun á máli Bjerregaard í fjölmiðlum. Segja rithöfund- arnir og menntamennirnir að öll meðferðin líkist einna helzt galdraofsóknum og norna- brennu. Larsen. Færeyingar-Rússar: Ræðaum gagn- kvæmar veidar Færeyjum. 21. des. frá fréttaritara Mbl. Carter veikur Washington. 21. desombor — Router EINKALÆKNIR Jimmy Carters skipaði forsetanum að hvíla sig í dag og slá öllum embættisvcrkum á frest þar sem hann cr nú illa haldinn vegna gyllinæðar. Carter hefur áður þjáðst ef þessu meini en óþægindin nú eru meiri en áður, og vangaveltur eru uppi um það að forsetinn verði að hætta við ferð til æskustöðva sinna í Georgíu-fylki um jólin. ÞAÐ samkomulag hefur náðst í viðræðum Sovét- manna og Færeyinga hér í Þórshöfn, að færeyskir sjómenn mega veiða 7,000 smálestir af þorski og ýsu á sovéskum veiðisvæðum á næsta ári. Er það eitt þúsund smálestum minni afli en heimilt var að veiða 1978, en þess ber að geta að færeyskir sjómenn hafa aðeins veitt um þriðjung af þeim kvóta. Ennfremur hafa Færeyingar fengið heimild til að veiða 2,000 tonn af rækju á Barentshafi á næsta ári. Einnig munu Færeyingar sækjast eftir leyfi til að fá að veiða á milli 25—30 þúsund tonn af loðnu á yfirráða- svæði Sovétmanna í Barentshafi. Til að koma á móti þessum veiðiheimildum færeyska sjómanna á sovéskum svæðum, hafa Færeyingar veitt Sovét- mönnum leyfi til að veiða 70—80 þúsund tonn af kolmunna í færeyskri lögsögu. Sovétmenn höfðu leyfi til að veiða 60 þúsund tonn af kolmunna við Færeyjar 1978, og hafa þeir fyrir löngu veitt upp í þann kvóta. — Arge. 20 fórust í árekstri Salamanea, Spáni, 21. deaember. AP. AÐ MINNSTA kosti 20 nemendur fórust og 36 særðust á Spáni í dag þegar skólarúta og járnbrautarlest rákust saman þar sem lestarteinar og bílvegur skárust. Um 80 nem- endur voru í rútunni og sluppu nokkrir þeirra sem aftast voru ómeiddir. Veður víða um heim Akureyri -9 léttskýjaó Amsterdam 0 léttskýjaó Apena -1 skýjaó Barcelona vantar Berlín 1 skýjaó Brilssel -1 skýjaó Chicago 3 skýjaó Frankfurt -1 snjókoma Genf 2 mistur Helsinki -14 skýjaö Jerúsalem 21 heiðskírt Jóhannesarb. 26 skýjaó Kaupmannah. 3 skýjaó Lissabon 10 rigning London 2 slydda Los Angeles 17 heiÓ8kirt Marríd 4 skýjaó Malaga vantar Mallorca vantar Miami 26 heióskírt : Moskva -14 skýjað New York 2 rigning Ósló -4 skýjaó París 3 skýjaó Reykjavík -8 léttskýjað Rio De Janeiro 31 heióskírt Rómaborg 13 heióskírt Stokkhólmur -5 skýjaó Tel Aviv 20 heiðskírt Tókýó 10 heióskírt Vancouver 4 skýjaó Vínarborg 0 skýjað Kanarí: Ferja sökk Corralejo. Kanarleyjum. 21. desember, AP. SPÆNSK íerja, sem flutti vest- ur-þýzka ferðalanga, strandaði á skeri við eyna Fuerteventura á miðvikudagskvöld og liðaðist í sundur. Alls voru 32 menn um borð í ferjunni og komust 20 þeirra af en átta er enn saknað. Fjögur lík hafa fundist. 1975 — Umsátrinu að aðalstöðvar OPEC í Vín lýkur; bryðjuverkamenn taka gísla, fá flugvél og fljúga til Miðaustur- landa. 1969 — Norður-Kóreumenn sleppa áhöfn „Pueblo", 11 mánuðum eftir töku skipsins. 1963 — „Lanconia" sekkur á Norður-Atlantshafi eftir elds- voða; 150 farast. 1956 — Síðustu hermenn Breta og Frakka fara frá Port Said. 1947 — Ný stjórnarskrá á Ítalíu. 1944 — Þjóðverjar krefjast uppgjafar McAuliffes hershöfð- ingja í Bastogne. 1943 — Roosevelt, Churchill og Chiang Kai-shek samþykkja ráðstafanir til að sigra Japani á fundi sínum í Kaíró. 1942 — Bandarískar loftárásir á Rangoon, Burma. 1941 — Churchill fer til Washington til stríðsviðræðna. 1929 — Ráðstefna um stofnun indversk samvéldisríkis hefst. 1905 — Uppreisn verkamanna í Moskvu= Uppreisn hefst í Persíu. 1894 — Dreyfus dæmdur fyrir landráð og til fangavistar á Djöflaeyju. 1790 — Rússar taka Ismail af Tyrkjum. 69 — Rómverski keisarinn Vitellius ráðinn af dögum. Afmæli dagsins> Jean Racine, franskur lcikritahöfundur (1639-1699). Innlenti Landsyfirrétti slitið í siðasta sinn 1919= Magnús Guðmundsson tekur aftur við embætti dómsmálaráðherra og ólafur Thors fær lausn 1932= Jóhann Sæmundsson skipaður félagsmálaráðherra 1942= Pafi endurreisir biskupsdóm á ís- landi 1968= F. Þorlákur Guðmundsson alþm. 1834= Arni Friðriksson 1898. Orð dagsins! Blessaður sé landbúnaðurinn ef við höfum ekki of mikiö af honum — Charles Dudley Warner, banda- rískur ritstjóri (1829) Sovézkt geimfar áVenusi Moskvu, 21. des. AP SOVÉZKT geimfar lenti mjúkri lendingu á Venusi klukkan 03Æ3 að íslenzkum tíma í nótt og sendi vísindalegar upplýsingar í 110 mínútur til jarðar, áður en hinn mikli hiti á yfirborði plánetunnar gerði tækin óvirk. Áður hefur sovézkt geimfar lent á Venusi og sent vísindalegar upplýsingar til jarðar, en þá aðeins í 53 mínútur. Geimfarið lenti á þeirri hlið Venusar, sem snýr frá jörðu, eftir 98 daga ferð. Von er á öðru sovézku geimfari að Venusi á jóladag. Verkfall hjáBBC London, 21. desember, AP-Reuter. Breskir sjónvarpsáhorfendur urðu á láta sér lynda að horfa aðeins á útsendingar sjálfstæðu sjónvarpsstöðvanna (ITV) í gær- kvöldi, því í þann mund sem kvöldfréttir voru að hefjast á tveimur rásum ríkisreknu sjón- varpsstöðvarinnar (BBC) lögðu starfsmenn stöðvarinnar niður vinnu. Tæknimennirnir hafa um nokk- urra vikna skeið átt í launadeilum við stjórn BBC, en upp úr sauð í gær þegar ríkisstjórnin neitaði stjórn BBC um leyfi til að bjóða 8% hækkun launa, þar sem það samræmdist ekki stefnu stjórnar- innar í efnahagsmálum. Talið er líklegt að starfsmenn BBC-sjónvarpsstöðvanna kunni að grípa til aðgerða um jólahátíðina til að leggja áherzlu á launakröfur sínar. í fangelsi fyrir njósnir Ilamborg, 21. desember, AP Fyrrverandi formaður félags vestur-þýzkra rannsóknar- lögreglumanna Rolf Grunert, var í dag dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir njósnir í þágu Austur Þýzkalands. Grunert af- henti leynilögreglu Austur-Þýzkalands upplýsingar um öryggismál Vestur-Þýska- lands á árunum 1971 — 1977. ------------- IATA mótmælir Montreal, Kanada, 21. desember. AP. ALÞJÓÐASAMTÖK flugfélaga (IATA) lýstu því yfir í dag að þau væru mótfallin áætlunum banda- rískra stjórnvalda um að banna bandarískum flugfélögum að taka þátt í verðákvörðunum IATA á flugfargjöldum á alþjóðlegum flugleiðum. Mótmæli IATA eru fram komin í framhaldi af þeirri yfirlýsingu bandarísku flugmálastofnunarinn- ar, að þátttaka flugfélaga í verðákvörðunum IATA samræmd- ist ekki hagsmunum neytenda. ■ ■■ W ERLENT,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.