Morgunblaðið - 22.12.1978, Side 32

Morgunblaðið - 22.12.1978, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978 Halldór Jónsson, verkfræðingur: Háskólakantata 78 Þá er maður búinn að hlusta á háskólarevíuna 78, sem flutt er ár hvert hinn 1. desember. Ég hef nú hingað til tekið þetta sem hvert annað grín og með þeirri trú að þessir unglingar kunni að vitkast með árunum þegar þeir fara að vinna fyrir sér sjálfir, enda sé hér um lítinn minnihluta æskulýðsins að ræða, sem kemst í þessa bráðafyndnu útvarpsaðstöðu vegna skorts á hlutfallskosningum í 1. des. nefnd og litlum félagsmálaáhuga al- mennra námsmanna við háskól- ann. Þar sem ég vil stuðla að æðri menntun í landinu þá finnst mér, að þeir, sem eru sama sinnis, hljóti að spyrja sjálfa sig að því, hvaða áhrif svona prédikun hafi yfirleitt á háskólann? Er þetta honum til framdráttar og til þess fallið að efla æðri menntun í landinu! Dolfallinn varð ég, þá fyrst þegar einn háskólakennarinn hélt því blákalt fram í atriði sínu í miðri sýningunni, að það sé jafnan samkomulag milli kennara og nemenda hvað skuli lært. Ja hérna. Hvað segja kennarar í raunvísindagreinum um þetta? Geta verkfræðingar sloppið við að LOKUM 16.AUDAR f tsMSSSIsS SEINNA BINDI KOKIASÖGU ÍSIANDS EFTIR HARALD SIGURDSSON ER KDMIÐ ÚT ffl IBI ffl lil iTU IXI m —in_f Þetta er gullfalleg og vönduð bók, eitt af afrekum íslenskrar prentlistar og stórmerkur þáttur landfræðisögunnar. Seinna bindi hennar, sem nú er komið út, nær frá lokum 16. aldar til 1848, þegar Björn Gunnlaugsson lýkur mælingu íslands og kort hans eru gefiri út. Hefur bókin að geyma, auk textans, 165 myndir af landakortum og kortahlutum, og eru 146 myndanna svart-hvítar en 19 litmyndir. Er í bókinni rakin af mikilli nákvæmni saga íslands á kortum frá dögum Guðbrands biskups Þorlákssonar til miðrar 19. aldar og rækileg grein gerð fyrir þróun kortagerðar af norðvestanverðri kringlu heims á því tímabili. Fyrra bindi Kortasögu íslands kom út 1971 og nær frá öndverðu til loka 16. aldar. Rit þetta er stórviðburður í sögu íslenskrar bókaútgáfu. BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS Skálholtsstíg 7 Sími 13652 læra Fourierraðir af því þær séu leiðinlegar og lært róttæklu í staðinn? Geta læknar sleppt gyllinæð af því hún er á þessum stað og lesið Marx í staðinn? Annar kommi fáraðist hins vegar yfir peningaleysi og ófrelsi manna til náms í háskólanum. Háskólinn væri að framleiða markaðsgildi í staðinn fyrir mann- gildi, hagnýt fræði í stað frjálsra spekúleringa. Sé þetta réttara, þá er kannski of snemmt að láta loka háskólanum um nokkurra ára skeið eins og Mánudagsblaðið vill og hefur sjálfsagt fengið samúð margra revíugesta þennan dag. Til hvers er háskóli? Helst mátti skilja á boðskap kommakantötunnar 1. desember s.l., að háskóli ætti að vera einhvers konar manngildisfram- leiðslustöð, sem opnaði augu manna fyrir rangsleitni auðvalds- ins og hersetu Nato. Við hinir héldum að þarna væri verið að veita mönnum menntun, sem hægt væri að nota í þágu samfélagsins til þess að auka gróða þess. Þessi gróði væri svo eins og smér sem smurt er yfir allt þjóðfélagið því til hagsbóta, þó þessi andfélags- legu kommagrey haldi að hann drafli í byttum hinna fáu, eins og fram kom í revíunni. Vegna hins fyrrgreinda skilnings leggja skatt- greiðendur fram fé sitt. Vilji menn nota háskólamenntun til annars, svo sem flytja úr landi með hana, fara í hundana vegna yfirþyrm- andi gáfna sinna eða stunda frjálsa heimspeki, sem ekki getur talist beinlínis arðgæf, þá er það sjálfsagt að frelsi sé til þess. En þá er ekki sjálfsagt, að verkalýðurinn og aðrir skattborgarar leggi fram fé til slíks umyrðalaust. Eigi þjóðfélagið að kosta æðri menntun alfarið, þá hlýtur það að gera greinarmun á því hvað sé lært og hafa þar hönd í bagga. 1. des.-reví- an virðist hins vegar þeirrar skoðunar að nám séu einkaforrétt- indi námsmanna sjálfra og engan varði um það hvað þeir læri eða í besta falli sé það samkomulagsatr- iði við þá. Að því slepptu hafi þeir engar skyldur við samfélagið. Hins vegar hvíli framfærsluskylda á því síðarnefnda í formi atvinnu við þær greinar, sem hæstvirtum námsmönnum hefur þóknast að læra. Þarna er um grundvallaratr- iði að ræða. Sumum finnst, og ég hygg að þeir muni reynast fleiri, að þjóðfélagið eigi rétt til þess að beina námsmannastraumnum í þær áttir, sem mest er þörfin fyrir. Þetta má gera með mismunun í fyrirgreiðslu og styrkjum. Ég hygg að flestir hafi ákveðnar skoðanir á því hvor deildin sé arðgæfari fyrir þjóðfélagið, verkfræði- og raunvís- indadeild eða þjóðfélagsfræðideild Ó.R.G. og Co, lögfræði- eða læknadeild, málvísindi eða mat- vælafræði, o.s.frv. Það hlýtur að vera eigin áhætta námsmanna sjálfra hvernig þeir meta atvinnu- horfur að námi loknu. Þjóðfélagið skuldar engum þeirra neitt að námi loknu. Þeir skulda því hins 'vegar töluvert. Ég er eindregið þeirrar skoðun- ar og vona að svo sé um flesta, að æðri menntun sé þjóðfélaginu til hagsbóta. Því sé hún það ekki, þá er rétt að staldra við svo um munar. Ég tek undir það með formanni stúdentaráðs í útvarpinu þann 4. des., að nauðsyn ber til þess að efla .námslánasjóð sem mest, enda námslán verðtryggð eins og allra flest lán ættu að vera. Ég hef þá trú að háskólamenntað- ur maður sé ekkert verri en hver annar til þess að vinna og læra störf að námi loknu, fái hann ekki atvinnu við sitt fag. En mennta- hroki, sem lýsir sér í stanslausri kröfugerð á hendur þjóðfélaginu, er ekki einkenni menntaðs manns heldur heimskuvottur. Ég held að það sé bjarnargreiði við háskólann og málstað æðri menntunar í landinu að hleypa þvilíkum sirkus í útvarp árlega 1. des. og verið hefur undanfarið. Fólk gleymir því auðveldlega að hér er að verki lítill sértrúarsöfn- uður, sem túlkar sjónarmið harð- svíraðs ofstækishóps einhliða, vegna ólýðræðislegrar. kosningar í 1. des.-nefnd, rétt eins og 19 Alþýðubandalagsmenn geta talað með einni rödd fyrir 19.000 manns í Verkamannasambandinu í póli- tískum málum, vegna sömu kosn- ingaaðferða. Þar að auki held ég að þessi verkalýðsást og auðvalds- hatur, sem þessi hópur lofsyngur, verki öfugt. Hann uppsker í besta lagi aðeins vorkunn auðvaldsins (hvað sem það er nú) og liklega fyrirlitningu verkamanna á þeim beiningalýð, sem allt heimtar en ekkert býður i staðinn. 5.12.1978. Vaíasamur sparnaður að fá litlu flugfélögin til könnunarflugsins — segir Þröstur Sigtryggsson — TVO stór skip frá okkur verða úti um jólin og önnur tvö um áramótin þannig að helmingur af mannskapnum verður heima um jói og hinn helmingurinn um áramót, sagði Þröstur Sigtryggsson skipherra í stjórnstöð Land- helgisgæzlunnar í samtali við Mbl. Þröstur var spurður um þá hugmynd, sem komið hefur upp hjá sumum af minni flugfélögunum í landinu, hvort þau gætu annast hluta könnunarflugs fyrir gæzluna. Sagði hann að það væri að gróflega athuguðu máli lítill ávinningur áð því, litlar vélar hefðu lítið flugþol, gætu ekki athafnað sig nægilega í erfið- um veðurskilyrðum, koma þyrfti fyrir tækjum, t.d. lórantækjum, radar, tækjum til að ná sambandi við skip á miðunum og við Landhelgis- gæzluna o.s.frv. og sjálfsagt þyrfti að hafa menn frá okkur staðsetta á viðkomandi stöðum til að fara í þessi flug með flugmönnunum, þannig að ég held að sparnaður af þessu fyrirkomulagi yrði lítill þegar vel er að gáð. Hitt kæmi til greina að fá þessa aðila til að annast leiðbein- ingar fyrir skip gegnum hafís þegar um það væri að ræða, því það fer líka oft saman hafís og stillur þannig að þessar vélar ættu að ráða vel við slíkt verkefni og geta sparað Landhelgisgæzlunni að senda Fokker af stað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.