Morgunblaðið - 22.12.1978, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 22.12.1978, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978 Ólafur Guðmundsson frá Nesi — Fa'ddur 27. októbcr 189fi. Dáinn 11. dcsember 1978. í daj; verður bálför Ólafs Guðmundssonar frá Nesi við Seltjörn j;erð frá Fossvogskirkju. Ólafur var næstyngstur 9 systkin- anna í Nesi, barna Guðmundar Einarssonar útvegsbónda þar og konu hans, Kristínar Ólafsdóttur. Guðmundur drukknaði á bát sínuni á leið suður í Leiru með fiskfarm árið 1906, en hann hafði frá Kiftingu þeirra hjóna stundað umfangsmikla útgerð. Kristín var fædd í Nesi og þar hafði frá upphafi hjónabands þeirra komist sú verkaskipting á, að hún sá um búreksturinn en hann um útgerð- ina. Kristín var því vön mannafor- ráðum ok stjórnaði búrekstrinum áfram eftir lát manns hennar allt þar til hún lést árið 1945 í hárri elli. Eftir lifa nú af systkinunum tvær systur, sem báðar giftust til Svíþjóðar, þær Lóa Vennerström í Karlstad, fædd 1889, og Guðrún Bergström í HálsinKborK, fædd 1892. Ölafur ólst upp á hinu fjöl- menna heimili í Nesi. Stundaði nám í búnaðarskólanum að Hvanneyri og lauk þaðan prófi. Um eitt skeið vann hann á togara, en síðan gerðist hann vinnumaður í Nesi ok síðar ráðsmaður móður sinnar þar til hún andaðist. Var þá búinu skipt ok jörðin seld. Eftir það stundaði hann verkamanna- vinnu, lengst af við fiskvinnslu ísbjarnarins á Seltjarnarnesi, að undanteknum árstíma er hann dvaldist á búi systur sinnar Lóu í Vármlandi í Svíþjóð. ÞeKarelli og sjúkleiki herjuðu á hann, lét hann deigan síga, fluttist á Hrafnistu og dvaldist þar síðustu árin uns hann lést. Líf Ólafs föðurbróður míns var ekki margbrotið. Hann kvæntist aldrei, gekk sína, leið um lífsins braut óáreitinn við aðra, leysti hlutverk sitt af hendi af reKlusemi, elju og heiðarleika. Hann var fróðleikshús, fylgdist vel með almennum málum, hafði mikinn áhuga á erlendum málefn- um, las mikið á Norðurlandamál- um auk íslenskra bóka, meðan sjón entist. Hann var síspyrjandi og góður áheyrandi, geymdi flesta hluti vel sér í minni og nærði sálina í umræðum. Eftir aö hann hætti að geta lesið, hlustaði hann mikið á útvarp, einkum fréttir og umræður. Þegar hann var heim- Minning sóttur, reis hann upp með spurn- ingar á vörunum um hin fjöl- breytileKustu efni, allt fram á síðustu ævidaga. Honum brást aldrei minni og fylgdist náið um vegferð sinna samverkamanna við fiskvinnsluna og annars staðar. Lá honum afar hlýtt orð til allra þeirra sem höfðu umgengist hann af jöfnuði og ekki skipt sér af lífi hans og háttum. Við Ólafur höfum verið sam- ferðamenn allt frá því er ég kom í þennan heim. Ég var í sveit í Nesi í 7 sumur, þótt kátlega hafi það hljómað þá ög enn furðulegar þegar litið er yfir Seltjarnarnesið nú. Ólafur var þar stjórnandi utan stokks, verkstjóri minn, kennari og sambýlismaður. Hann skipti sér ekki mikið af mér að fyrra bragöi, en tók mér vel þegar ég þurfti þess með. Hann gekk mér í föðurstað, án þess við gerðum okkur þess grein þá. Þær voru ófáar ferðirnar sem við gengum saman rekann um Suðurnes og Grandana, rerum út í þarann eða gerðum annað sem nauðsynlegt var og ánægjulegt, svo sem að hlynna að æðarvarpinu og búa kollunum hreiður. Það fóru ekki ýkja mörg orð á milli okkar þá, en þeim átti eftir að fjölga síðar. Heimilið í Nesi var fjölmennt á þeim árum, gestagangur mikill, fjöldi fyrri starfsmanna lögðu leið sína þangað þegar tími gafst til. Var oft mikið fjör þar og glettni. Óll gráglettni og stríðni var frænda mínum fjarri skapi og sjaldan hef ég séð honum mislíka eins og er hann varð vitni að stríðni við börn eða aðra sem fengu sig ekki varið. Hann skildi sennilega aldrei hvað hann var mér mikilsvirði í lífinu og lét stundum í Ijós furðu á að ég skyldi heimsækja hann á Hrafnistu. Hann skildi ekki að þær heimsóknir voru mér kærar, ég hafði hina bestu skemmtun af orðræðum við hann og að ég ætti honum líka skuld að gjalda. Kristín amma mín stjórnaði búi sínu af mikilli röggsemi alla tíð, þannig að olnbogarými ráðsmanns hennar var ekki alltaf ýkja mikið. En hann vann sitt starf af trúmennsku og kvartaði ekki. En þegar móðir hans var öll og að því kom að Ólafur skyldi taka við búinu, kom það ekki til mála. Hann stóð við stýrið svo lengi sem hans var þörf og varð lausa- mennskunni feginn og virtist aldrei sjá eftir þeim skiptum. Að + Eiginmaöur minn SIGURÐUR ÞÓRDARSON, endurskoðandi, Miðúni 19, varö bráökvaddur aö morgni 21. desember. Viglúsína Erlendsdóltir. Eiginmaöur minn, KARL ELDAR, Fornhaga 17, andaöist aö Borgarspítalanum 19. desember. Útför hans veröur gerö frá Fossvogskirkju 27. desember kl. 3 e.h. Fyrir hönd barna, móður hins látna og annarra ættingja. Jóhanna Ottósdóttir Móöir okkar + HERBJÓRG ANDRÉSDÓTTIR Kaplaskjólsvegi 65, andaöist 20. desember, Börnin. + Þökkum af alhug alla samúð og vináttu viö andlát og jaröarför eiginmanns míns og föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURJÓNS HAFDALS GUDJÓNSSONAR Ásgarói 95. Guófinna Steindórsdóttir börn, tengdabörn og barnabörn. vísu þótti honum sárt að sjá niðurníðslu Nesstofunnar, sem alla tíð hafði verið vel haldin, og útihúsanna sem hann hafði byggt. Þéttbýlið sótti á frjálsa náttúru nessins og breytti henni, hrakti brott æðarvarpið, sem hann hafði hlúð að, fuglunum fækkaði og hann gat sjálfur ekki lengur veitt skarf og svartbak og fært frænd- um og vinum í soðið. Ólafur kvæntist aldrei, eins og áður segir, og átti ekki börn. Hann sóttist eftir einveru og afskipta- leysi. Hann lét stundum þau orð falla að dýr sem gengju lengi undir niæðrum yrðu ólánsskepnur. Lán hans var að hann eignaðist nokkra góða og trygga vini, sem áttu kærleika hans og tryggð alla, eftir að systkini hans sem voru honum nátengdust féllu frá. Hann bast nánum vináttubönd- um við fjölskyldu Haralds Jóns- sonar og Ástu Þorvarðardóttur í Gróttu, þegar þau fluttust þaðan að Litlabæ í Neslandi, hús sem nú er löngu horfið. Einkum þótti honum vænt um yngri dóttur þeirra Nönnu, sem var honum sem dóttir alla tíð og reyndist sú fjölskylda honum öll sannir vinir. Ólafur átti um nokkurra ára skeið heima í Odda á Seltjarnarnesi. Tengdist hann fjölskyldu Elíasar Jónssonar vináttu sem entist ævina á enda. Jóhann Eiríksson ættfræðingur ólst upp í Ráðagerði á Seltjarnar- nesi. Hann taldi sig eiga Kristínu í Nesi og Ólafi gott að gjalda og sýndi hug sinn í verki og það því betur sem meira hallaði undan fæti fyrir frænda mínum. Öllu þessu fólki og fleirum þakka ég ræktarsemi þess. Fjölskylda mín og ég þökkum Ólafi frænda fyrir allt það sem hann hefur verið okkur. Eggert Asgeirsson. Minning: Sœmundur Sigurðs- son skipsijóri Fæddur 7. desember 1916. Dáinn 16. desember 1978. Laugardaginn 16. desember and- aðist Sæmundur á St. Jósepsspít- ala eftir stutta en erfiða legu. Sæmundur var ekki einn af þeim sem gafst upp fyrr en í síðustu lög, þótt á móti blési. Fæddur var Sæmundur á Hvassahrauni á Vatnsleysuströnd. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Sæmundsson og Kristrún Þórðardóttir, sem þar bjuggu í mörg ár. Eignuðust þau sex börn og eru þrjú á lífi. Sigurður faðir Sæmundar andaðist 12. janúar 1969, en móðir hans lifir háöldruð og farin að heilsu og verður nú að sjá á eftir syni sínum. Með þeim var ætíð mikill kærleikur eins og með öllum systkinunum. Ungur fór Sæmundur að stunda sjó og stefndi hugur hans fljótlega til að eignast bát og verða sinn eigin húsbóndi, sem og hann var alla sína lífstíð. Innan við tvítugt eignast hann með Þórði bróður sínum sinn fyrsta bát er hét Frosti, 20 lesta bátur, og reri Sæmundar marga vertíðina og fiskaði manna mest. Síðan lætur hann byggja nýjan 35 lesta bát sem hann skýrir Ársæl Sigurðs- son, í höfuðið á bróður sínum, sem lést í blóma lífsins, en með þeim var mikill kærleikur. Síðan eign- ast hann þrjú önnur skip sem öll báru sama nafn. Þau voru öll mikil happaskip. Sæmundur var ávallt sjálfur skipstjóri á skipum sínum. Sæmundur var landsþekktur afla- maður, aflahæstur á vetrarvertíð- um ár eftir ár. Sæmundur var með afbrigðum happasæll skipstjóri og vildu margir komast í skipsrúm hjá honum. Árið 1972 selur Sæmundur útgerð sína en er samt ekki á því að yfirgefa sjóinn og lætur smíða sér lítinn bát, sem hann stundaði á hrognkelsaveiðar og þorskanet, og má með sanni segja að hann hafi staðið á meðan stætt var og með sama happi og dugnaði og áður fyrr. Sæmundur var alla tíð hraustur maður, en síðastliðið sumar gekkst hann undir upp- skurð og allir vonuðu að hann mundi fá fullan bata, en sú von brást, en hann tók veikindum sínum með mikilli karlmennsku og æðruleysi, enda þótt honum væri fullljóst að hverju stefndi. Árið 1946 gekk Sæmundur að eiga eftirlifandi konu sína, Halldóru Aðalsteinsdóttir, ættaða frá Tjör- nesi, eignuðust þau þrjá syni, Aðalstein og Viðar, báðir skip- stjórar, ókvæntir, yngstur er Sigurður, kvæntur sænskri konu, Lisbeth, og eiga þau tvö börn. Halldóra átti eina dóttur áður en hún giftist Sæmundi og reynd- ist hann henni ekki síður en sínum eigin börnum. Hafdís er gift Eiríki Olafssyni og eiga þau þrjú börn, eru barnabörnin því orðin fimm. Þau voru alveg sérstaklega hænd að afa sínum, enda var Sæmundur með afbrigðum barngóður maður og er því söknuður þeirra mikill. Halldóra var alla tíð stoð og stytta manns síns og ekki hvað síst í veikindum hans síðustu mánuði, enda þótt hún sé ekki heil heilsu. Ég var í skipsrúmi hjá Sæmundi nokkur ár og líkaði mér vel að vera með honum, þar lærði ég margt sem mér hefur reynst heilladrjúgt. Góður drengur er genginn fyrir aldur fram og er hans sárt saknað af öllum, sérstaklega er harmur konu hans og barna og aldraðrar móður. Við hjónin sendum konu hans, börnum og fjölskyldum þeirra, einnig aldraðri móður svo og systkinum okkar innilegustu samúðarkveðjur og megi góður Guð styrkja þau og varðveita í sorg þeirra. Helgi Einarsson. Valdimar Árnason —Minningarorð Hinn 12. þessa mánaðar andað- ist að heimili sínu í Ástralíu Valdimar Árnason, bifreiðastjóri, fjörutíu og sjö ára að aldri, fæddur 15. 2. 1931. Valdimar var elstur sex barna hjónanna Ásdísar Kristinsdóttur og Árna Jóhannessonar, bifvéla- virkja í Kópavogi. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum í Reykjavík, en fluttist með þeim í Kópavog árið 1950 og átti þar heima til ársins 1969 er hann fluttist með fjölskyldu sína til Ástralíu. Valdi- mar kvæntist árið 1953 eftirlifandi eiginkonu sinni, Maríu Guðmunds- dóttur, ættaðri úr Ólafsvík, þau eignuðust þrjú börn, eina dóttur og tvo sýni, sem öll eru í Ástralíu. Dóttirin er gift íslenskum manni ættuðum frá Sauðárkróki, en synirnir eru heima hjá móður sinni. Þau hjónin stofnuðu heimili sitt í húsi foreldra Valdimars á Kópavogsbraut 84, en fljótlega hófust þau handa að reisa sitt eigið hús á Kópavogsbraut 79, og bjuggu þar uns þau fluttust til Ástralíu sem fyrr segir. Á uppvaxtarárum sínum og meðan hann var í skóla stundaði Valdimar ýmsa vinnu, aðallega hjá Reykjarvíkurborg á sumrin, síðar við byggingu írafossvirkjun- ar. Er þeim framkvæmdum lauk vann hann nokkurn tíma á Kefla- víkurflugvelli. Eftir það gerðist hann leigubifreiðarstjóri og stund- aði þá atvinnu þar til hann fluttist af landi burt. Valdimar var duglegur til allra verka og laginn vel, vinsæll af félögum sínum og vel látinn, og hef ég oft orðið þess var, ekki síst hjá fyrrverandi samstörfsmönnum á bifreiðastöð- inni Bæjarleiðum, en frá þeirri stöð stundaði hann atvinnu sína. Þótt þau hjón væru flutt til einnar fjærstu byggðar heims, frá okkur séð, lifði íslendingurinn í þeim góðu lífi. Kannski var þess skýrasti votturinn að þegar þau komu í heimsókn til gamla lands- ins um áramótin 1975—1976 úr hásumarhita Ástralíu, var hér allmikill snjór og vetrarríki og við vorum að tala um hve óheppin þau væru með að lenda í svo erfiðu tíðarfari hér, þá sögðu bæði að þetta væri einmitt það sem þau hefðu helst óskað, að sjá landið hulið snjó og finna svalan norðan- vindinn leika um sig. + Einlægustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúö og vinarhug viö fráfall og jaröarför eiginmanns, fööur sonar og bróöur okkar, RAGNARS ÞORKELSSONAR, flugvélttjóra. Sérstakar þakkir færum viö stjórn og starfsfólki Flugleiöa og Loftleiöaáhöfn- um. Vigga Svava Gíaladóttir, Reynir Mór Ragnaraaon, Gíali Ragnar Ragnarsson, Margrót Ragnarsdóttir, Arný Ágústsdóttir, Ásta Þorkelsdóttír, Heiða Swalm, Margrét Murray.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.