Morgunblaðið - 25.01.1979, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1979
17
r
Arni Helgason:
Ár bamsins
í Jesú nafni áfram enn, meö ári
nýju kristnir menn. Þetta sungum
við um hátíðina og vonandi hafa
landsmenn gert sér fulla grein
hvað bak við þennan söng er. Það
er veglegt nafn að vera kristinn en
oft vill það ekki verða nema
hálfkristni því miður, en þá
þurfum við að leita kraftar í
hæðir.
Þetta ár sem nú er hafið á að
helgast barninu, uppeldi þess og
sönnum þörfum. Þegar ég fór að
hugsa um barnaárið varð mér ef
til vill aldrei ijósara en nú hversu
barnauppeldi er mikilvægt hverju
þjóðfélagi, ekki einungis barna-
uppeldi, því það getur verið á svo
margvíslegan hátt, heldur það
uppeldi sem byggir á kristnum
grunni sjálfsfórn og sönnum aga.
Það er oft talað um að þurfi fleiri
barnaheimili. Þess er síður minnst
að það þurfi betri heimili þar sem
foreldrar gefa sér tíma til að
undirbúa börn sín undir hinn
mannlega heim, sem því miður
tekur stundum ótugtarlega á móti
ungviðinu sem þá er ekki stutt sem
vera ber þau skref sem geta ráðið
úrslitum um hamingju þeirra. Ég
hefi aldrei verið hrifinn af fjölgun
barnaheimila því árin sannfæra
mig um að þau koma aldrei í stað
heimilanna, hversu vel sem þau
eru gerð. Móðurástin er þar ekki
eins sterk og á heimilinu sjálfu.
Þetta held ég sé að verða þorra
manna ljóst. A meðan heimilin
voru og hétu með mömmu og
ömmu voru þau sá aflgjafi sem
mörgum manninum entist alla
ævi, jafnvel þótt veraldarþokan
hafi um skeið orðið þeim villu-
gjörn.
En ég hugsa til barnaársins. Um
mörg ár hefi ég átt þeirri ham-
injgu að fagna með aðstoð góðra
manna að vera með félagsskap
barna hér í kauptúninu og reynsla
mín af slíku er sú að tengsl við
þann hóp vildi ég síst missa. Þar
hefir reynsla mín sýnt það svart á
hvítu að harna- og unglingavanda-
mál blikna í sambandi við vanda-
mál hinna fullorðnu, sem eiga þó
að vera vegvísar ungviðisins fram
á veg.
Það er sorgleg staðreynd hvern-
ig jafnvel sæmilega góðar mæður
leyfa sér að reykja og spúa ólyfjan
yfir vöggu barna sinna og jafnvel
láta flöskuna sitja í fyrirrúmi
fyrir því næði sem barn og
unglingar þurfa á að halda og það
sérstaklega á skólagöngu sinni.
Við að horfa á slíka sjón gæti ég
mælt með fleiri barnaheimilum til
að taka við þeim börnum sem
þurfa að alast upp í slíku and-
rúmslofti. Aðgát skal höfð í
nærveru sálar, sagði skáldið.
Hversu margir taka slíkt alvar-
lega.
Við lesum í blöðunum. Aldrei
hafa verið fleiri morð framin en
hin seinustu ár. Saklausir menn
sviptir lífi. Hvað er að gerast. Ug
svo kemur viðbótin: Allt má þetta
rekja til áfengisnotkunar. Og svo
biðja heilbrigðir menn um meiri
bjór og brennivín, jafnvel þótt það
kosti fleiri manndráp. A hvaþa
vegi er sú þjóð sem þannig hugsar.
Læknarnir eru ekki í vafa um
„gildi“ bjórsins. Hann er vínandi
eins og brennivínið, en lúmskari.
Ég er oft að velta því fyrir mér
hvað komi mönnum með góða
dómgreind til að óska eftir viðbót í
þennan óheillapytt sem tekur
mannsævir að þurrka upp. Hvað
vakir fyrir þeim? Ég minnist
þeirra manna og ekki skorti þá vit,
sem voru vissir um að ástand
áfengismálanna og siðferðismál-
anna í landinu myndi taka stórum
stakkaskiptum til batnaðar ef
leyfð yrði sala sterkra vína. Og
jafnvel lögð æran að veði fyrir
sanngildi þessara orða. Margir
þessara manna eru nú gengnir á
vit feðra sinna. En hvað myndu
hinir sömu segja nú mættu þeir
líta yfir þjóðlífið í dag? Nei, þetta
fór á allt annan veg, og manndráp-
in bættust síðan ofan á allt saman.
Og enn vilja menn meira, jafnvel
ungir alþingismenn ætla að bæta
meinin með bjórflóði yfir lands-
lýðinn. Hvílík föðurlandsást.
En hvað sem þessu líður er ár
barnsins hafið. Hvað boðar nýárs
blessuð sól? Og hvar stöndum við í
þrepi siðgæðis og góðs barnaupp-
eldis í lok ársins? Eins og í
upphafi var sagt, getur ekkert
komið fuilkomlega í stað góðs
heimilis. Það hafa allar aldir sýnt.
Hrynji þau er voðinn vís. En því
Arni Ilelgason.
miður eru alltof mörg íslensk
heimili á veikum grunni og af
þeim súpa blessuð börnin seyðið og
síðar þjóðfélagið. Ábyrgðin þarf
að vaxa og hver og einn verður að
gera sér ljósa ábyrgð með stofnun
heimilis, sem er sú uppeldisstofn-
un sem framtíð þjóðanna veltur á.
Og því kemur sú spurning á
barnaárinu og á engan að láta í
friði: Hvað vilt þú gera fyrir
hamingju barns þíns? Vilt þú
fórna sígarettupakkanum og flösk-
unni og gefa þannig gott fordæmi?
Viltu leggja þeim mönnum lið sem
vilja eitrið burt, eða þeim sem eru
í þjónustu tóbaks- og áfengisauð-
magnsins og sjá ekkert nema í
gegnum krónugleraugun?
Svar þitt getur orðið gott lóð á
vogarskál velferðar lands og þjóð-
ar. Fleiri sterk og sönn og góð
heimili og gott fordæmi foreldra
er besta gjöfin til barnsins á
byrjuðu árí.
I Jesú nafni áfram enn, með ári
nýju kristnir menn.
Gleðilegt ár.
Stykkishólmi, 18. jan. 1978.
Arni Helgason.
Nyjir
afborgunarddlmálar
á Kanaríeyjaferðum
25% út
og eftirstöóvar á
5 mánuóum
Auglýsingin frá því í gær með gömlum, úreltum upplýsingum
Kíktu inn til okkar
og kynntu þér
Kanaríeyjafeió á kostakjörum
FLUCFÉLAC LOFTLEIDIR URVAL LANDSYN ÚTSÝN
ÍSLAIMDS
Lækjargötu 2 og Hótel Esju
Sími 27800.
v/Austurvöll
Sími26900
Austurstræti 12
Sími27077
Austurstræti 17
Sími26611