Morgunblaðið - 25.01.1979, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1979
37
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
um að vernda börnin, eigi ekki
erindi til okkar og hvort við ættum
ekki að taka þátt í því, að vernda
börnin í umferðinni, með því að
vera þeim þar til fyrirmyndar:
Það þarf sterkan vilja hjá ungu
barni, að fara eftir því, sem því
hefur verið kennt, í sambandi við
umferðina, þegar það sér fullorðna
fólkið brjóta þær reglur, sem því
hefur verið kennt að fara eftir.
Óskar Ólason.
• Yfirheyrslan
Nýlega sýndi sjónvarpið ágætan
þátt „Yfirheyrslan" sem snart mig
mjög. Kona kom inn á lögreglustöð
í Argentínu til að fá upplýsingar
vegna handtöku dóttur sinnar. í
sakleysi sínu hélt hún að það væri
hægt en komst brátt að því að hún
var sjálf orðin fangi og mátti
þakka fyrir að sleppa gegn mútum.
Að sjálfsögðu er allsekki rétt að
tilgreina Argentínu sérstaklega
því alls staðar þar sem einræði eða
herforingjastjórn ríkir eru mann-
réttindi fótum troðin án minnsta
hiks. Haldið þið til dæmis að
nokkur Moskvu-búi léti sér detta
það í hug að fara inn í aðalstöðvar
Mosvkulögreglunnar og spyrjast
fyrir um handtekinn son eða
dóttur. Nei, alls ekki, því að sá sem
vogaði sér slíkt ætti vísa dvöl á
þeim hræðilega stað. Ailir vita að
mannréttindi eru ekki virt í
kommúnistalöndunum eða öðrum
einræðisríkjum og er því verk
Amnesty International mjög þarf-
legt og það ættu allir íslendingar
að styðja.
En er ekki allt fullkomið hjá
okkur? Það er það því miður alls
ekki. Handtekinn maður er strax
réttlaus. Oft kemur það fyrir að
lögreglan sækir menn á vinnustað
þó að það sé oft vegna gruns og
yfirleitt eru þessir menn um ieið
atvinnulausir. Rétt fyrir jólin 1977
var starfsmaður banka handtek-
inn vegna gruns og nú rétt fyrir
síðustu jól var annar maður
handtekinn. Ég spyr, skiptir rann-
sókn þessa máls svo miklu máli að
jólin hefðu ekki mátt líða áður en
handtakan fór fram?
Ég er á þeirri skoðun að það
þyrfti að bæta töluvert í þessum
efnum. Til dæmis ætti að banna að
sækja menn á vinnustaði. Einnig
ætti ekki að vera leyfilegt að
handtaka menn úti á flugvöllum
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á minningarmótinu um hinn
látna stórmeistara A. Tolush, sem
haldið var í Leningrad í sumar,
kom þessi staða upp í skák þeirra
Polovodins, sem hafði hvítt og átti
leik, og Rutmans.
þegar komið er úr fríi. Hví mega
menn ekki fara heim til sín áður,
slíkt getur ekki skipt máli fyrir
rannsókn. Ég varð því miður vitni
að því að lögreglan beið manns úti
á flugvelli þegar hann var að koma
erlendis frá. Það var hræðilegt að
sjá grátandi börn og ættingja.
Vonandi mun hinn ungi dóms-
málaráðherra stöðva slíkar gerðir.
Ég skora líka á Amnesty Inter-
national að líta einnig á heima-
slóðir.
P.J."
• „Öll börn bíða
eftir teikni-
myndunum“
Kæri Velvakandi.
Ég er tíu ára og heiti Glódís.
Mig langar mjög til þess að
barnaárið verði ár barnanna. Það
er ekki nóg að segja það, þið verðið
að standa við það, kæru Islending-
ar.
Ég vil fá ævintýri í barnatíma
sjónvarps og útvarps. Það er ekki
rétt það sem sagt er í Þjóðviljan-
um uni Krukkuborg. Krukkuborg
er ævintýri og það skemmtilegt.
Raunveruleiki er raunveruleiki og
við börnin erum búin að fá nóg af
honum. Hvernig kona eignast
barn, hvernig það er að fara til
tannlæknis og hvernig það er að
fara á spítala.
Hvenær er eiginlega komið að
teiknimyndasögunum í barnatíma
sjónvarpsins? Öll börn bíða eftir
Línunni, Bleika Pardusnum, Jóka,
Skipper skræk og Mikka mús. Af
hverju megum við ekki fá eitthvað
fyrir okkur til að slappa af við eins
og rektor Háskólans sem les
Andrés önd?
Ykkur finnst kannski skrýtið að
ég skuli tala svona en við börnin
erum búin að fá nóg af bókum um
spítala- og tannlæknaferðir. Við
viljum þetta ekki lengur.
Guðrún Glódís Gunnarsdóttir.
10 ára.
HÖGNI HREKKVÍSI
SKIPAUTGCRB RIKISINS
m/s Baldur
fer frá Reykjavík þriðjudaginn
30. þ.m. til Breiðafjarðarhafna.
Vörumóttaka alla virka daga til
hádegis á þriðjudag — nema
laugardag.
Útsala
Allskonar fatnaöur. Gömlu fötin eru nú nýjasta
tískan. Notiö tækifæriö. Ungir sem eldri, dömur
og herrar.
Andrés Skólavörðustíg 22.
m
<
Sætaáklæði
Framleiöum sætaáklæöi á allar tegundir bíla.
Lada Sport — Skota Amigo — Ford Cortina —
Toyota Corolla — Toyota Crown — Citroen DS.
Eflið íslenzkan iðnaö.
Sendum í póstkröfu.
Valshamar h.f.,
Lækjargötu 20, Hafnarfiröi,
sími 51511.
JQ
(0
■
lfi. Rxc6! - bxcfi (16... Rb3+
hefur auðvitað engin áhrif á gang
mála eftir 17. Kdl!) 17. IIxofi+ —
Kd7, 18. Hxcfi - De7, 19. Kdl
(Leikið til þess að opna hinum
biskupnum útgönguleið)
Hab8, 20. Bf4 og svartur gafst
upp.
ÚTSKÝRIÐ TILGANG BÍLBELTA FYRIR BÖRNUM.