Morgunblaðið - 15.02.1979, Síða 11
i
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979
11
Eisenhower og Kay Summersby
Nútt um ástamál Ikes:
Vildi Mamie
tilsmoghugði
ekki á skilnað
Baltimore, AP.
í SÍÐASTA bindi af fjórum með skjölum og bréfum Eisenhowers,
fyrrv. Bandaríkjaforseta, sem er að koma út um þessar mundir er
bréf birt sem vekur upp efasemdir um sönnunargildi þeirrar
fullyrðingar að Eisenhower hafi á sínum tíma ætlað að skilja við
Maimie eiginkonu sína og ganga að eiga Kay Summersby eins og
álitið hefur verið.
Kay Summersby var bílstjóri hans og einkaritari í stríðinu og í
allnokkra mánuði eftir að styrjöldinni var lokið. Fjögur bindi af
pappírum Eisenhowers, bréfum og plöggum eru gefin út á forlagi
John Hopkins University Press og þar er m.a. birt bréf frá
Eisenhower sem er ritað í júni 1945 til George C. Marshall
hershöfðingja, þar sem hinn fyrrnefndi biður um að kona hans fái
að koma til hans í Evrópu.
Louis Galambos prófessor, sem hefur annast útgáfu þessara
binda, sagði að bréfið og ýmis önnur gögn í bréfasafni Eisenhowers
hefðu sannfært sig um að Eisenhower hefði aldrei skrifað Marshall
um að hann hygði á skilnað frá Mamie konu sinni. Vangaveltur um
þetta efni hófust 1973 þegar Merle Miller birti samtalsbók sína við
Truman, fyrrv. forseta, um ævi hans. Þar talar Truman um að
hann hafi heyrt um þetta bréf. Ævisaga ástkonunnar, Kay
Summersby) sem var gefin út að henni látinni varð síðan enn til að
kynda undir þessar sögusagnir. Nú segir Galambos að augljóst sé
að þarna hafi minni Trumans brugðist honum illilega þar sem í
umræddu bréfi hafi Eisenhower einmitt látið í ljós vilja sem gekk í
þveröfuga átt við það sem sögur höfðu fyrir satt í bréfi
Eisenhowers er beiðnin orðuð svo að konur yfirmanna fái að koma
til eiginmanna sinna og segir síðan að hann telji að eftir langan
aðskilnað hjóna, eða allt upp í þrjú ár, vænti hann þess að
viðkomandi aðilar sem hafi með mál þetta að gera sýni skilning í
málinu og verði við þessari beiðni. Marshall neitaði bæði
persónulegri beiðni Eisenhowers og ósk hans fyrir hönd yfirmanna,
þar sem slíkt þótti ekki samrýmast heraga og þeim reglum sem
höfðu gilt í þessu efni.
Pakistan:
Afengisneyzla
hardbönnud
— bod Kóransins skuli gilda í flestu
Islamabad. 14. feb. — Reuter.
ÚTLENDINGAR í Pakistan mega ekki neyta áfengis á almanna-
færi og þeir, sem brjóta það bann, eiga yfir höfði sér þriggja ára
fangelsisúóm 0g sekt. Um hríð hefur undanþáa gilt á stærstu
hótelum í Pakistar. um að útlendingar megi kaupa sér vín, en nú
var öllum slíkum stöðum lokað um helgina. Stjórnin getur gefið út
sérstakt leyfi fyrir diplómata og aðra útlendinga en sérstakar
„bannsveitir" munu settar á laggirnar og hafa þær vald til að
ráðast inn á heimili múhameðstrúarfólks og leita þar að víni.
Þá var tekið fram, að enn harðari viðurlög giltu vitaskuld við því,
ef múhameðstrúarmenn yrðu uppvísir að þessu. Zia forseti
Pakistans kynnti einnig fleiri atriði í þessum nýju lögum, sem miða
að því að nálgast sem mest boð þau sem fram eru sett í Kóraninum.
Zia sagði að múhameðstrúarmenn sem dæmdir yrðu fyrir hórdóm
og svik yrðu grýttir en þó mætti hlífa glæpamanninum við að vera
alveg grýttur til bana og yrði hann skotinn þegar verulega væri af
honum dregið. { lögunum er ekkert nefnt um að útlendingar séu
undanþegnir þessum lögum. ítrekað er að því verði nú fylgt eftir af
fullri hörku að höggnar verði hendur eða fætur af þjófum.
Austurstræti 22. simi fra skiptiborði 28155 'íöp'löi'^ji'
Austurstraetí 22
2. haeö
Sími 28155
Loksins
koma
fermingarföt
d markaðinn,
sem hægterað
nota
ferminguna
Við höfum
á boðstólum
núna strax
og á næstunni:
□ Drengja tweed-jakka,
meö riffluöum
flauelsbuxum.
□ Drengja tweed-föt
□ Drengja skyrtur
□ Stúlkna tweed-dragtir,
meö buxum eöa pilsi
□ Stúlkna blússur
□ Stúlkna kjólar og kápur
Bindi slaufur, tréflar, skór.
tfSZm. TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
WKARNABÆR