Morgunblaðið - 15.02.1979, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 15.02.1979, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiösla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2500.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið. V erkalýðsleiðtogar i hár saman Fyrir ári brann vinátta eldi heitara með verkalýðsleið- togum Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. Kjörorðið um „samningana í gildi“ var sett fram ásamt þeirri kenningu, að verðbólgan og vandi efnahagslífsins hyrfi eins og dögg fyrir sólu, einungis ef menn „vinveittir v-erkalýðshreyfingunni“ væru við völd í landinu. Svona sáraeinfaldur var sá boðskapur. Upp úr þessu kom til mikilla átaka í þjóðfélaginu, sem lyktaði á þann veg, að þessir sömu verkalýðsleiðtogar tóku ábyrgð á nýrri ríkisstjórn í landinu, en samningarnir tóku ekki gildi, heldur voru sett ný „kaupránslög". Nú er sem sé ár liðið síðan vináttan eldi heitari kviknaði, en hefur nú slokknað og versnað allur vinskapur. Þannig lýsa verkalýðsleiðtogar Alþýðubandalagsins því yfir, að frumvarp Olafs Jóhannessonar, sem soðið er upp úr hugmyndum krata, sé „hnefahögg í andlit verkalýðshreyf- ingarinnar", feli í sér „kjaraskerðingu og kauplækkun" eða að „nýjar aðstæður og ný viðhorf fyrir verkalýðssamtökin" hafi skapazt og trúlega harðni „nú sú varnarbarátta, sem þau hafi staðið í“. Svo djúpt er tekið í árinni, að forsætisráðherra hafi slitið störfum vísitölunefndar með frumvarpsdrögum sínum. Verkalýðsleiðtogar krata sitja eftir með sárt ennið og hafa látið bóka eftir sér í miðstjórn Alþýðusambandsins, að þeir telji „ástæðulaust og óþarft að gera nýja samþykkt um málefni vísitölunefndar" og leggja „áherzlu á, að vísitölunefnd ljúki störfurp á eðlilegan hátt“. Jón Helgason, formaður Einingar á Akureyri, talar um, að „það sé bezt fyrir alla aðila að vera ekki að leggja dóm sinn á hluti fyrr en þeir eru búnir að kynna sér þá til hlítar“ og Guðríður Elíasdóttir formaður Verkakvennafélagsins Framtíðar í Hafnarfirði tekur í sama streng. Reiðin bitnar á Olafi Arásir verkalýðsleiðtoga Alþýðubandalagsins beinast fyrst og fremst að Olafi Jóhannessyni forsætisráð- herra. Guðjón Jónsson, formaður Málm- og skipasmiða- sambandsins, tekur svo djúpt í árinni að segja, að hann geti ekki ályktað annað „en að Olafur Jóhannesson sé að stefna samstarfinu í hættu og að hann sé bara að sprengja". Annað markmið kveðst hann ekki sjá, enda gangi frumvarpið þvert á allt, sem gert hafi verið til þessa. Hann segir ennfremur: „... þannig standa málin, þegar forsætisráðherra leggur fram einkafrumvarp sitt, sem mér virðist mundu leiða til verulegs samdráttar og alvarlegs atvinnuleysis, ásamt skerðingu á kaupmætti vinnulauna vegna hinnar stórfelldu skerðingar á ákvæðum um verðtryggingu launa, sem frumvarpið gerir ráð fyrir.“ Miðstjórn Alþýðusambandsins og stjórnir Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Farmanna- og fiskimanna- sambandsins segja í ályktunum sínum, að forsætisráð- herra hafi í reynd slitið störfum vísitölunefndar. „Með þessu tekur forsætisráðherra verkefnið af borði vísitölu- nefndar og færir það yfir á annað svið,“ segir orðrétt í ályktunum og Eðvarð Sigurðsson, formaður Dagsbrúnar, talar um „athæfi forsætisráðherra" í þessu sambandi. Loks telur Haraldur Steinþórsson, framkvæmdastjóri BSRB, að forsætisráðherra hafi „stefnt stjórnarsamstarf- inu í hættu“ og talar eins og sá sem valdið hefur. Eins og þessi ummæli sýna, dylst engum, að Olafur Jóhannesson forsætisráðherra er sá maður, sem verkalýðs- leiðtogar Alþýðubandalagsins telja, að allt hið illa stafi frá. Einskis eru nú metnir tilburðir hans til þess að færa vald Alþingis „út á götuna", undanlátssemi hans höfð að háöi og spotti og við því að búast, að forsætisráðherra brosi beisklega við þeim þanka sínum, að illa launi kálfur ofeldi. Hart snúizt gegn tillögum embættismannanefndar , um að loka Æfingaskóla KHÍ ALMENNUR fundur haldinn að tilhiutan foreldrafélags Æfinga- og tilraunaskóla KHÍ, þriðjudaginn 13. febrúar 1979, samþykkir: • „Við andmælum kröftuglega framkomnum tillögum um að skólinn verði lagður niður. • Við vörum eindregið við einhæfu verðmætamati í þessu máli. Meta þarf aðra þætti en rekstrartölur líðandi stundar. • Við óttumst að það hafi alvariegar afieiðingar í för með sér að sundra bekkjardeildum og rífa börnin úr tengslum við félagahópinn, jafnframt því að þau yrðu að laga sig að nýju umhverfi og breyttum kennsluháttum. • Verði skólinn lagður niður, fara forgörðum mikil verðmæti sem eru fólgin í ört vaxandi tilrauna- og nýbreytnistarfi. Samhentir kennarahópar myndu tvístrast áður en nokkur tilraun hefur verið til lykta leidd og niðurstöður færðar í letur. • Þótt of snemmt sé að draga víðtækar ályktanir af nýbreytnistarfinu, blasir nú þegar við almenn vellíðan barnanna og ánægja þeirra með skólann.“ Þannig hljóðar sú fundarsam- þykkt, sem gerð var á hinum fjölmenna fundi í Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraháskól- ans við Háteigsveg í fyrrakvöld. En frá honum var sagt hér í blaðinu í gaer. Var hann haldinn á vegum Foreldrafélags skólans. Fundargestir voru í hinu rúm- góða anddyri og í sal. Margar ræður voru fluttar, sem allar hnigu í þá átt að snúizt yrði af hörku gegn hverri tilraun til að skólinn yrði lagður niður. Tveir borgarráðsfulltrúar voru meðal fundarmanna, báðir úr Alþýðu- bandalaginu. Er fundurinn hafði verið sett- ur, tók fyrstur til máls skóla- af tillögunum að hér væri um að ræða stjórnunarlegt mál, hag- ræðingar- og sparnaðarspekúla- sjónir: Að fá sem bezta nýtingu skólahúsnæðisins í borginni á hverjum tíma og eftir þörfum. Einnig yrði að skoða þær í ljósi kröfunnar frá stjórnvöldum um fyllstu nýtingu skólahúsnæðis og skilyrðislaust yrði framfylgt kröfunni um 28 nemendur í hverri bekkjardeild skólanna. Þá hefði það komið fram á þessum fundi í menntamála- ráðuneytinu að þegar búið væri að leggja skólann niður fengi Kennaraháskólinn húsnæðið til ráðstöfunar, en það myndi bæta ingar, skoða þetta mál á hlut- lægan hátt. En mér er það ekkert launungarmál, að ekki mun ég taka neinn þátt í því að leggja þennan sk.óla niður. Það verða aðrir að gera.“ Hófust síðan almennar um- ræður um málið. Meðal þeirra, sem fyrstir tóku til máls, voru Baldur Jónsson rektor Kennara- háskólans. Hann sagði, að Kennaraháskólinn vænti mikils af Æfingaskólanum í framtíð- inni. „Og ég undirstrika í fram- tíðinni," sagði Baldur og sagði síðan: „Það er ekkert álitamál hver er skoðun Kennaraháskól- ans.“ Hluti fundarmanna í sal Æfingaskólans á fundinum í fyrrakvöld. Alls munu fundarmenn hafa verið um 400. stjórinn Jónas Pálsson. Hóf hann mál sitt með þeim orðum að segja, að oft hefði verið komið saman þar í skólanum af skemmtilegra tilefni. Hann kvað það vera í samræmi við þá stefnu sem ríkt hefði í skólanum að greina foreldrum nemenda frá málefnum skólans, en ég vil um leið, sagði skólastjórinn, undirstrika að skólinn er ekki að efna til andstöðu eða til æsinga með fundi þessum. Síðan hóf skólastjórinn frásögn sína: Hann hefði verið boðaður á fund niður í menntamálaráðu- neyti á fimmtudagsmorguninn í síðustu viku, til fundar við nokkra embættismenn frá ríki og borg. Þar hefðu honum verið kunngerðar framkomnar tillög- ur frá embættismannanefnd þess efnis að leggja bæri niður Æfinga- og tilraunaskólann. Nemendum hans yrði dreift yfir á þrjá skóla: Álftamýrarskóla, Hlíðaskóla og Austurbæjar- skólann. Fastráðnir kennarar við skólann myndu trúlega verða færðir yfir í Kennara- háskólann. Upplýsti skólastjóri, að nú væru nemendur hartnær 600 talsins, sem skipta ætti niður á skólana þrjá. Sér virtist úr brýnni þörf skólans fyrir aukið húsnæði. Kvaðst Jónas skólastjóri þó fullvíst telja að þessar embættismannatillögur hefðu komið fram áður en upp- steyturinn hófst meðal nemenda, og væri ekkert samband þar á milli. Skólastjóri fór síðan nokkrum orðum um sögu Æfingaskólans og æfingadeildanna. Enginn gæti neitað því að skólinn ætti sér merkilega sögu og hefði sérstöðu meðal skóla í borginni. Hún væri meir og minna tengd sögu kennaramenntunarinnar í landinu allt frá árinu 1908, í formi æfingadeilda, en síðar, eða þegar skólinn flutti í þetta hús árið 1968, þegar starfsemi hans var breytt í hverfisskóla. I seinni ræðu sinni, er skólastjóri flutti undir lok fundarins, en hann stóð framundir miðnætti, útskýrði skólastjórinn námið og þá nýbreytni og tilraunastarf sem unnið er og hefði verið í skólanum og lagði á það ríka áherzlu, að hann legðist ein- dregið gegn þessum embættis- mannatillögum. Gegn því að allt þetta starf yrði fyrirvaralaust lagt í rúst. „Við skulum gæta fyllstu still- Síðan tóku til máls fundar- menn úr hópi foreldra og nem- enda, kennarar og fulltrúi kenn- aranema, en þeir höfðu fjallað um málið og samþykkt harðorð mótmæli gegn tillögunum um lokun skólans. Báðir borgarfull- trúarnir frá Alþýðubandalag- inu, Adda Bára Sigfúsdóttir og Guðrún Helgadóttir, tóku til máls. Báðar lýstu þær mikilli undrun sinni á þessum tillögum embættismannanefndarinnar. Báðum höfðu þær komið þeim á óvart. Þær héfðu haft samband við ýmsa af forystumönnum flokks síns, sem hefðu að því er ræðumenn lýstu, litla eða enga hugmynd um tilurð málsins. — Jú, menntamálaráðherra hafði það, en hafði lagt á það áherzlu, að ákvörðunartakan væri langt undan og skoða þyrfti málið allt mjög gaumgæfilega. Þær lýstu því báðar yfir þarna á fundin- um, að ef þessar tillögur kæmu til kasta borgarstjórnar Reykja- víkur, sem þær reyndar kváðust hreinlega efast um, svo fárán- legar væru þær, mættu fundar- menn vita það að þær myndu segja nei. Samþykktin hér að ofan var borin upp undir lok fundarins, sem stóð framundir miðnætti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.