Morgunblaðið - 15.02.1979, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 15.02.1979, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979 2 7 Bókun ráðherra Alþýðubandalagsins: Kauplækkun —atvinnuleysi MORGUNBLAÐINU barst í gœr bókun sú. sem ráðherrar Alþýðu- bandalagsins lögðu fram á fundi rikisstjórnarinnar síðastliðinn þriðjudagsmorgun — daginn eft- ir að frumvarp ólafs Jóhannes- sonar hafði verið lagt fram í rikisstjórninni. Bókun ráðherr- anna Svavars Gestssonar. Hjör- leifs Guttormssonar og Ragnars Arnalds, er svohljóðandi: I frumvarpi því um efnahags- mál, sem forsætisráðherra lagði fram á fundi ríkisstjórnarinnar í gærmorgun eru fjölmörg atriði, sem við ráðherrar Alþýðubanda- lagsins, erum andvígir og höfnum algerlega. I þessari bókun viljum við sérstaklega mótmæla nokkrum meginþáttum sem lögfesting þessa frumvarps hefði í för með sér. ______1. Kauplækkun________ Með 7. kafla frumvarpsins er gert ráð fyrir því að lögbinda sjálfvirka kauplækkun. Þar er einnig ákvæði um að breytingar á óbeinum sköttum verði teknar út úr vísitölunni. Þessi ákvæði og 7. kaflinn í heild, brjóta algerlega í bága við samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna. I kaflanum felst bein ögrun við verkalýðs- hreyfinguna og þó alveg sérstak- lega fulltrúa hennar í vísitölu- nefndinni. _______2. Atvinnuleysi_________ Við höfum margoft bent á það á fundum ríkisstjórnarinnar, að hér á landi geti nú verið hætta á atvinnu'eysi. Þá hafa fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar eindreg- ið varað við slíkri hættu á fundum með ráðherrum í samráðsnefnd- inni. Þrátt fyrir þessar aðvaranir er ljóst að nokkur ákvæði frum- varpsins fela í sér tillögur um samdrátt, sem leitt gæti til at- vinnuleysis. Nægir í því sambandi að nefna 9., 12. grein og 25. grein, svo og 6. kafla frumvarpsins. I þessum ákvæðum er gert ráð fyrir hættulegri takmörkun á framlög- um til félagslegra framkvæmda, jafnvel framlögum sem verkalýðs- hreyfingin hefur samið um í kjarasamningum. Þar er einnig að finna ákvæði um stóraukinn fjár- magnskostnað atvinnuveganna og bindingu peningamagns, sem leitt gæti til keðjuverkandi samdráttar. I frumvarpinu eru varasöm ákvæði um bindingu fram- kvæmdastigs 1980, enda þótt þegar blasi við hætta á atvinnuleysi strax á.þessu ári, 1979. Atvinnuöryggi, samráð við sam- tök launafólks og varðveisla þess kaupmáttar, sem um var samið í kjarasamningunum 1977, hafa verið og hljóta að vera hornsteinar núverandi stjórnarsamstarfs. Frumvarp forsætisráðherra snið- gengur þessar forsendur í veiga- miklum atriðum. Hér hafa aðeins verið nefndir tveir mikilvægir þættir frum- varpsins. Við viljum einnig lýsa sérstakri andstöðu okkar við II. kafla frumvarpsins og ákvæðið um að flýta gildistöku verðlagsmála- laganna. Þá er í frumvarpinu háskalegt ákvæði um heimildir til að gengisbinda hvers konar inn- lenda viðskiptasamninga, sem gæti jafngilt því að íslenskur gjaldmiðill væri í reynd lagður niður. Auk þeirra greina í frumvarpi forsætisráðherra sem Alþýðu- bandalagið telur að séu í andstöðu við þau grundvallaratriði sem ríkisstjórnarsamstarfið er byggt á, skortir algerlega í frumvarpið ákvæði um þær aðgerðir sem Alþýðubandalagið lagði til í ráð- herranefndinni að yrðu megin- uppistaðan í efnahagsstefnu ríkis- stjórnarinnar. Skal hér getið nokkurra þeirra atriða úr tillögum Alþýðubandalagsins sem hvergi er að finna í frumvarpi forsætisráð- herra: A. Tillögur um nýtt skipulag á fjárfestingarstjórn og víðtæka áætlanagerð, sem tæki í senn til umsvifa opinberra aðila, einkaaðila og starfsemi banka og fjárfestingarlánasjóða. I frum- varpinu er nær eingöngu um að ræða ákvæði um eins konar endur- lögfestingu ríkjandi ástands og virðist því hafnað tillögum Al- þýðubandalagsins og þriggja manna nefndar stjórnarflokkanna um nýskipan fjárfestingarmála. B. Tillögur um víðtækar breytingar á framleiðslukerfi landsmanna og sérstaka sókn til framleiðniaukningar og endur- nýjaðs rekstrarskipulags í sjávar- útvegi og almennum iðnaði í því skyni að treysta grundvöll at- vinnulífsins og skapa skilyrði til bættra lífskjara. Alþýðubandalag- ið telur að víðtækar aðgerðir í atvinnumálum séu frumforsenda þess að varanlegur árangur náist í baráttunni gegn verðbólgunni. Engin þeirra fjölmörgu tillagna sem Alþýðubandalagið gerði í þessu skyni birtist í frumvarpi forsætisráðherra. C. Tillögur um margvíslegan sparnað og hagræðingu í hagkerf- inu, bæði í ríkisrekstri, milliliða- starfsemi og skipulagi inn- flutningsverslunarinnar. Þessar tiliögur fólu í sér verulega grisjun þeirrar dýru yfirbyggingar, sem á undanförnum árum hefur tekið til sín æ meiri fjármuni og á mörgum sviðum verið uppspretta gróða- myndunar og spillingar. Alþýðu- bandalagið hefur og lagt fram tillögur um breytt skipulag olíu- verslunar, fækkun trygginga- félaga, samræmdan innflutning á vörum til notkunar hjá opinberum aðilum og skipulagsbreytingar á innflutningsversluninni og stjórn gjaldeyrismála. Enga þessara til- lagna er að finna í frumvarpi forsætisráðherra. Þess í stað er lagt til að flýta gildistöku laga um óhefta verslunarálagningu sem ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar lögfesti. D. Tillögur um þróun samráðs ríkisstjórnarinnar við samtök launafólks í því skyni að gera það víðtækara og virkara og skapa grundvöll fyrir umræðu í félögum launafólks um mótun efnahags- stefnunnar. Þessar tillögur mið- uðu að því að treysta enn frekar tengsl ríkisstjórnarinnar við samtök launafólks en eins og kunnugt er, eiga slík tengsl að vera hornsteinn ríkisstjórnarsam- starfsins. Þessum tillögum er hafnað. I stað þess birtir forsætis- ráðherra i tillögum sínum laga- kafla um svonefnt „kjaramálaráð", sem er í reynd afturgengið gamla Hagráð Viðreisnarstjórnarinnar. Við teljum að frumvarp for- sætisráðherra sé í veigamiklum atriðum ekki í samræmi við þá samstarfsyfirlýsingu sem lögð var til grundvallar ríkisstjórnar- mynduninni, ekki í samræmi við þau efnisatriði, sem samstaða var um í ráðherranefnd ríkisstjórnar- innar í lok janúarmánaðar og enn síður í samræmi við þau grund- vallaratriði sem verkalýðs- hreyfingin telur að eigi að móta stefnu stjórnvalda í efnahags-, atvinnu- og kjaramálum. Til nánari staðfestingar ofan- greindra viðhorfa leggjum við fram samþykkt aðalfundar verka- lýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins; dags. 11. febrúar, þar sem skýrt kemur fram eindreginn stuðningur við viðhorf, sem hér hafa verið rakin. Aðalfund verka- lýðsmálaráðsins sátu á annað hundrað forystumenn samtaka launafólks úr öllum landshlutum. Samstaða ríkisstjórnarfl’okk- anna er lítt vænleg á grundvelli þess frumvarps sem forsætisráð- herra hefur lagt fram. Eigi sam- staða að nást um efnahagsstefn- una innan ríkisstjórnarinnar er nauðsynlegt að viðræður fari fram og tillögur séu mótaðar á grund- velli upphaflegrar samstarfsyfir- lýsingar ríkisstjórnarflokkanna, sameiginlegs álits þeirra í ráð-^. herranefndinni og með sérstöku tilliti til viðhorfa samtaka launa- fólks. Svavar Gestsson. Hjörleifur Guttormsson. Ragnar Arnalds. Vitni vantar að árekstri ÁREKSTUR varð milli tveggja fóiksbifreiða á gatnamótum Miklubrautar og Háaleitisbraut- ar klukkan 11.35 í gærmorgun. Ágreiningur er um stöðu um- ferðarljósa og óskar rannsókna- deild lögreglunnar í Reykjavík eftir vitnum vegna þess. Tildrög slyssins voru þau að græn Toyota-bifreið ók austur Miklubraut og beygði norður Háa- leitisbraut en Fiat 127 bifreið, rauð, ók vestur Miklubraut á vinstri akgrein. Skullu bílarnir saman. Minning: Jóhanna Ólafsdóttir frá Breiðholti Fædd 25. okt. 1878 Dáin 9. febrúar 1979 Jóhanna Ólafsdóttir, sem í dag verður kvödd hinztu kveðju varð hundrað ára hinn 25. okt. s.l. Af því tilefni birtust afmælisgreinar um hana og ætla ég ekki að endurtaka að neinu ráði það sem þá var skrifað, heldur aðeins stikla á stóru. Jóhanna fæddist að Tjaldbrekku — mjög afskekktu býli við botn Hítardals. Þaðan var 3—4 tíma lestargangur tii næstu bæja, hvort heldur farið var til bæja í Hítardal eða Dalasýslu. Að Tjaldbrekku var búið um hálfrar aldar skeið á árunum 1840—90 og hefur Guðlaugur Jónsson, fyrrverandi lögregluþjónn, skrifað þátt um bændur þar í bók sinni „Bóndinn á heiðinni". Eftir fermingu var Jóhanna í vinnumennsku á ýmsum stöðum, eins og algengast var á þeim árum, unz hún giftist manni sínum Þor- leifi Jónssyni. Þau hófu búskap í Hítardal árið 1901 og bjuggu síðan á ýmsum stöðum á Snæfellsnesi og í Dölum, þar til þau fluttust til Reykjavíkur 1934. Þar bjuggu þau fyrst að Vestra Langholti, en tveim árum seinna fluttust þau að Breiðholti þar sem þau bjuggu með Guðmundi syni sínum til ársins 1954, en 19. okt. það ár lézt Þorleifur. Þau hjónin, Jóhanna og Þor- leifur, eignuðust níu börn og komust sjö þeirra til fullorðinsára. Þau eru, talin í aldursröð: Guðmundur, Þorkell, Kristján, Jón, Sólveig, Jóhanna og Kristín. Öll eru systkinin á lífi og búsett í Reykjavík nema Guðmundur, sem lézt 8. apríl 1960. Auk sinna barna ólu þau upp tvö fósturbörn, Þórar- in Ólafsson, bróðurson Jóhönnu, sem þau tóku að sér u.þ.b. árs- gamlan og Þorgerði Hönnu Haraldsdóttur sem ólst upp hjá þeim frá sex ára aldri. Eftir lát Þorleifs dvaldist Jóhanna lengst af á heimili Hönnu, fósturdóttur sinnar, en fyrir rúmu ári fór hún á Land- spítalann og þaðan á hjúkrunar- deildina í Hátúni 10 B, þar sem hún andaðist 9. þ.m. Ein öld er löng mannsævi og ekki er að furða þótt Jóhanna hafi verið orðin þreytt og þráð hvíld- ina. Hún var orðin alveg rúm- liggjandi, — svo til blind og heyrnin var farin að dvína. Þegar svo er komið hljóta dagarnir að verða langir og erfitt er það duglegri konu að geta ekki einu sinni haft sokk eða vettling á prjónunum. Lengst af hafði Jóhanna stálminni og þótt það væri farið að minnka undir það síðasta, gat hún þó enn veitt margvíslega fræðslu, ekki sízt um löngu liðna tíma. Hún fylgdist furðu vel með, ekki aðeins sínum nánustu, heldur og gömlum vinum og kunningjum og spurði margs um þeirra líðan og hagi. Fyrir nokkrum vikum spurði hún mig t.d. frétta af einum frænda mín- um. Þegar ég sagði honum frá því, kom á daginn að þau höfðu aldrei sézt, en Jóhanna hafði þekkt móður hans sem dó fjörgömul ellefu árum áður. Seinast þegar ég kom til Jóhönnu sagði hún mér frá afmælinu sínu. Hún var mjög þakklát öllum þeim er þá höfðu minnst hennar og ekki sízt starfs- fólkinu í Hátúni 10 B sem hafði gert henni daginn eftirminnilegan eftir því sem ástæður leyfðu. Fjörutíu ár eru nú liðin síðan ég, sem krakki kynntist Jóhönnu, er ég kom fyrst á heimili hennar í Breiðholti með móður minni, en þær voru kunnugar frá því hún var í kaupavinnu hjá þeim Jóhönnu og Þorleifi vestur í Dölum. Mér verður það alltaf í minni með þvílíkri alúð og gestrisni okkur var tekið og hve mér leizt strax vel á þessa lágvöxnu, góðlegu konu. Margoft kom ég að Breiðholti eftir þetta, og líka til Jóhönnu eftir að hún hætti að halda heimili og alltaf var manni tekið með sömu gestrisninni og alúðinni. Nú að leiðarlokum vil ég bera fram mínar beztu þakkir fyrir áratuga vináttu og alla góðvild og greiðasemi við okkur mæðgurnar. Jóhanna Ólafsdóttir er ein af þeim manneskjum sem ég er þakklát fyrir að hafa kynnzt. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Vald. Briem. Jóhanna Bjórnsdóttir. í dag kveðjum við Jóhönnu Ólafsdóttur fyrrum húsfreyju í Breiðholti við Reykjavík. Með henni er horfinn af sjónarsviðinu minnisstæður persónuleiki umburðarlyndis og hjartahlýju, sem við finnum gjarnan í sögum Halldórs Laxness, hinnar óbrotnu almúgakonu. Hún var síðasti fulltrúi þeirrar kynslóðar sem ég þekkti sem komin var til vits og ára um aldamótin. Minnisgóð og fjölfróð um liðna atburði, arfur genginna kynslóða. Fyrir rúmum 25 árum tengdist hún fjölskyldu minni þá komin á efri ár, er hún fluttist á heimili fósturdóttur sinnar og bróður míns. Mér er efst í huga hin hógværa, lágvaxna kona sem allt færði til betri vegar. Það stóð aldrei neinn styr eða gustur um hana, hennar staður var heimilið. Umhyggja fyrir börnum, fósturbörnum og afkomendum þeirra sat í fyrir- rúmi. Þessi umhyggja náði einnig til fjölskyldu minnar, konu og dætra. Eg minnist hennar einnig á hátíðarstundum á heimili bróður míns í stórum hópi vina og vanda- manna. Fyrir þetta allt viljum við þakka nú að leiðarlokum. Löngum og gifturíkum vinnudegi er lokið. Aðstandendum öllum færum við innilegar samúðarkveðjur. ólafur Jónsson. Jarðarförin hennar ömmu okkar fer fram í dag. Við vissum vel að hverju dró en samt er alltaf sárt að kveðja. Amma var ósköp venjuleg al- þýðukona, venjuleg í þeim skiln- ingi að lífsferill hennar var á engan hátt stórbrotinn og verður ekki færður á spjöld sögunnar. En saga hennar er ekki ómerkilegri fyrir það. Þeir taka stundum sterkast á árinni sem minnst láta á sér bera. Frá því að við munum fyrst eftir okkur var það amma sem fyllti svo stórt rúm í okkar lífi, sagði sögur, kenndi vísur og leiðbeindi á ýmsa vegu. Hún var fædd fyrir rúmum hundrað árum á Tjaldbrekku í Mýrasýslu, nánar tiltekið 25. októ- ber 1878. Hún ólst upp í stormum þeirrar tíðar sem við þessa tíma böfn eigum bágt með að skilja. Þrátt fyrir þau gjörólíku kjör í bernsku hennar og okkar örlaði aldrei á fordómum hjá henni. Hún var frjálslynd og skilningsrík. Nýjungar á atómöld voru henni margar að skapi og hún leit á breytta tíma með bjartsýni. Það gegndi furðu hvað vel henni tókst að fylgjast með hraða nútímans. Sum okkar ólust upp á sama heimili og hún dvaldi á eftir að afi dó. Hin höfðu nánast daglegt samband. Þegar við hugsum til þessara björtu bernskudaga fylgir myndin af ömmu næstum hverri minningu. Hún átti alltaf konfekt- mola, hún vissi hvað litlu fólki þótti best. Reyndar var hún öllum gestrisin. Það sáum við best þegar við urðum eldri og eignuðumst sjálf börn. Þá endurtók sig sagan. Sama alúðin og áhuginn á hverju spori og gleðin yfir hverri framför. Amma átti börn, fósturbörn, tengdabörn, barnabörn, barna- barnabörn og hóp annarra vina. Allt þetta fólk átti nóg rúm í huga hennar. Við kveðjum hana með söknuði og þökkum henni sam- fylgdina. Auður, Anna, Hrafnhildur, Þorleifur, Jóhanna og Helga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.