Morgunblaðið - 15.02.1979, Side 41

Morgunblaðið - 15.02.1979, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979 41 félk í fréttum + Þetta er leikkonan Gloria Swanson, sem í gamla daga var tíðum á sýningartjaldi bíóanna. — Hún þykir bera háan aldur með eindæmum vel. Þakkar hún það m.a. réttu fæðuvali sínu. — Og einmitt vegna þess að Elli kelling hefur ekki náð á henni teljandi tökum enn þrátt fyrir háan aldur, hafði hún komið fram sem „sýningardama" á blaða- mannafundi, sem haldinn var í Los Angeles á vegum samtaka þar vestra, sem hafa á stefnuskrá sinni að stuðla að réttu fæðuvali fólks. — Með leikkonunni, sem verður 80 ára í lok marsmánaðar, er eigin- maður hennar, William Dufty. Hjartans kveöjur og þakkir sendi ég öllum vinum og vandamönnum mínum, sem glöddu mjg meö gjöfum og kveöjum á níræöis afmæli mínu. Guö blessi ykkur öll, vinir mínir. Kristín E. Björnsdóttir. Fellsmúla 22. Hjartans þakkir til allra þeirra er sýndu mér vinarhug og glöddu mig á 100 ára afmæli mínu 11. desember s.l. Guö blessi ykkur öll. Sigurrós Gudmundsdóttir frá Sauöeyjum. + HAMLET & OFELIA — Dönsku blöðin skýra frá því, að ákveðið hafi verið að í ágústmánuði n.k. verði sett á svið í Krónborgarkastala hið ódauðlega leikhúsverk Hamlet. Síðast var leikritið sett þar á svið fyrir 25 árum. Leikflokkur frá hinu brezka Old Vic leikhúsi kemur til að leika. Fer með aðalhlutverkið Derek Jacobi og með hlutverk Ofeliu leikkonan Jane Wymark. Derek er sá hinn sami og fcr mcð hlutverk Kládíusar í hinum mögnuðu sjónvarpsþáttum. Brezk blöð hafa farið mjög iofsamlegum orðum um þessa Hamletsýningu Old Vic-leikhússins, sem farið hefur víða um lönd með hana. Myndin hér að ofan er af aðalleikurunum tveimur, Jane og Derek, sem Ofelia og Hamlet. Tskcdtfreyðandi í afgreiðslu okkar að Þverholti 22 seljum við kalt ogfrískandiHvítöl beint úr tönkum okkar í brúsana ykkar - eins marga litra og þið viljið á aðeins 175 krónur lítrann. EGILS HVÍTÖL, drykkur fyrir alla fjölskylduna. HF. OLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON Þverholti 22

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.