Morgunblaðið - 15.02.1979, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979
45
.11
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
I0100KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
ÆJmúESSLMlBUilL
foreldrana sem þá voru búnir að
biðja um að fara til Israels en
fengu ekki fararleyfi þar sem þau
eru tölvufræðingar.
Þegar Bandaríkjamaðurinn kom
í ibúð hjónanna í Moskvu blöskr-
aði honum. Ibúðin var á stærð við
hálfa dagstofu hans. Maðurinn
sem reyndar er dreifingarmálasér-
fræðingur í Pittsburgh bauðst til
þess að taka barnið og foreidrarnir
tóku því boði fegins hendi, en ekki
fékkst leyfi til að fara með barnið,
út úr landinu.
Bandaríkjamaðurinn gafst ekki
upp og hver maður sem fer frá
Bandaríkjunum til Moskvu fer
mað mat handa litlu stúlkunni.
Bandarískir læknar við sendiráðið
í Moskvu fá ekki að sjá barnið en
þeir vilja fá að rannsaka það til að
finna orsök sjúkdómsins.
Það er ekki Hitler sálugi sem nú
er að kvelja þessa Gyðingastúlku.
Kerfi sem býður upp á svona sér
að minnsta kosti ekki fyrir allra
þörfum. Sósíalisminn er svona, hjá
honum eiga allir að hlýða
möglunarlaust, þola þegjandi
hvers konar skort og harðræði, því
annars er það KGB sem tekur
völdin og alltaf er nóg pláss í
fangabúðunum. Er hægt að semja
við svona kerfi og loka augunum
fyrir öllum glæpum sem gerst hafa
og alltaf gerast aðeins af því þeir
eru gerðir í nafni sósíalismanns.
Húsmóðir.
• Um ferðastjórn
í Breiðholti
Breiðholtsbúar sem eiga leið
niður í bæ snemma á morgnana
hljóta allir að taka undir það sem
Markús Örn Antonsson sagði í
greininni hérna í blaðinu um
daginn: „Umferðarstjórn verður
að taka upp á Reykjanesbraut við
Breiðholt l.“ Þar bíða tugir bíla í
langan tíma við að komast inn á
götuna. Þetta er versti umferðar-
hhúturinn á leiðinni í bæinn, verri
en Miklatún. Aldrei sést lögreglan
þar á morgnana við að greiða úr
umferðinni. Það eina sem við
Breiðholtsbúar sjáum til lögregl-
unnar er að hún liggur stundum í
leyni við Breiðholtsbrautina við að
sekta menn fyrir of hraðan akstur.
Lögreglan verður að láta svona
vandræði til sín taka og leysa úr
þessu sem allra fyrst.
E.S.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á Skákþingi Reykjavíkur 1979,
sem nú er nýlokið, kom þessi staða
upp í B flokki í skák þeirra
Hilmars Hanssonar og Þorsteins
borsteinssonar, sem hafði svart
og átti leik.
• Útideildin og
unglingarnir
Okkur langar að spyrja
borgarráð hvort leggja eigi niður
útideildina. Þar sem hún er það
eina sem unglingar hafa erum við
mjög svekkt. Kannski teljumst við
ekki til barna en við erum þó
unglingar.
Föstudaginn 9. febrúar töluðum
við við 4 meðlimi útideildarinnar
og sögðust þau vilja starfa áfram.
Ef við ættum við einhver vanda-
mál að etja færum við fyrst og
fremst til útideildarinnar. Þau
hafa unnið sér traust langflestra
unglinga í miðbænum. Okkur
finnst mjög þvingandi að fara inn
á einhverjar stofnanir og leita
hjálpar. Þó svo það séu félags-
ráðgjafar í sumum skólum þá er
ekki þar með sagt að við leituðum
til þeirra t.d. af hræðslu við að það
fréttist til kennara eða skóla-
stjóra.
Væri ekki hægt að sleppa því að
hafa bílstjóra hjá einhverjum
ráðherranna og sleppa einhverjum
af þessum fínu veislum.
Einnig langar okkur til að þakka
Jóhanni Haukssyni fyrir góða
grein.
4 unglingar úr miðbænum.
Á borgarstjórnarfundi sem er í
dag verður tekin ákvörðun um það
hvað um útideildina verður en
hugmyndir hafa komið fram um
að leggja deildina niður frá 1. apríl
og ráðgert er að fella niður 18
milljón kr. fjárveitingu til starf-
semi hennar á þessu ári.
HÖGNI HREKKVÍSI
r!L 'AHo&F£/íoAhNA.'
Skákkeppni
stofnana og fyrirtækja 1979
hefst í A-riðli mánudag, 19. febrúar kl. 20 og í
B-riðli miðvikudag 21. febrúar kl. 20. Keppnin fer
fram aö Grensásvegi 46.
Keppnisfyrirkomulag verður með svipuðu sniði
og áður; tefldar verða 7 umferðir eftir Mon-
rad-kerfi og er hver sveit skipuð fjórum mönnum.
Skráning í keppnina fer fram í síma 8-35-40 á
kvöldin kl. 20—22. Lokaskráning í A-riöil verður
sunnudag 18. febrúar kl. 14—17 og í B-riðil
þriðjudag, 20. febrúar kl. 20—22.
Taflfélag Reykjavíkur,
Grensásvegi 44—46 R.
Símar 8-35-40 og 8-16-90.
(\\ V.* c&\° xAa"
\\ú9
io
stk.
í kassa
Unghænur 10 stk. í kassa aðeins....... 990 - kr. kg
Nautahakk 10kg. fkassa.............. 1.500-kr. kg
Folaldahakk 10 kg. íkassa............ 900-kr. kg
5 kg. nautahakk..................... 1.670- kr. kg
Hálfir, reyktir folaldaframpartar.... 950-kr. kg
Hálf og heil hamborgarareykt svínalæri. 2.390- kr. kg
Ungkálfahryggir...................... 650.-kr.kg
Sleppið ekki pessu sérstaka tækifæri.
Opið föstudaga 8—7
og laugardaga opið 7—12.
Lokað öll hádegi kl. 12:30—14.
Laupalaak 2. R€YKJAV*K. skmi 3 S* 3»
25. ..Rxc2! 26. Hfl? (Ekki 26.
Dxc2? — Rg3 mát, en bezt var 26.
He2) Re3! og hvítur gafst upp, því
að eftir 27. Dxe3 - f4, 28. Df2 -
Rg3+ verður hann að gefa drottn-
ingu sína fyrir riddarann. Þor-
steinn sigraði með yfirburðum í B
riðlinum, hann hlaut 10 vinninga
af 11 mögulegum.
HALDIÐ EKKI VEGINUM FYRIR YKKUR