Morgunblaðið - 15.02.1979, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 15.02.1979, Qupperneq 48
Lækkar hitakostnaðiiin Verzlið sérverzlun með litasjónvörp og hljómtæki. Skipholti 19, BUÐIN sími '— v 29800 FIMMTUDAGUR 15. FEBRUAR 1979 Verulegar stuðnings- aðgerðir við iðnaðinn í Noregi og Svíþjóð VERULEGAR styrktar- og stuðningsaðgerðir stjórnvalda við ýmsar greinar iðnaðarins viðgangast bæði í Noregi og Svíþj()ð þrátt fyrir takmarkaðar upplýsingar um þetta efni. Kemur þetta fram í skýrslu Efna- hags- og félagsmálanefndar EFTA, en fundi nefndarinnar lauk í gær í Genf í Sviss. Af íslands hálfu sat Davíð Sch. Thorsteinsson m.a. þennan fund og sagði hann í samtali við Mbl. að þrátt fyrir upplýsingar um stuðningsaðgerðir af þessu tagi væru mjög takmarkaðar hefði Vísitalan: Kauphækkunin 6,86 eða 7,18 % KAUPLAGSNEFND er nú á síðasta snúningi með að reikna út verðbótavísitölu, sem taka á gildi 1. marz. Endanleg tala mun ekki liggja fyrir og er það vegna þess að ekki er enn fullt samkomulag um það hvernig fara á með verðbótaviðaukann og einnig eru þar tiltekin matsatriði, sem menn verða að koma sér saman um. Sé ekki reiknað með verðbótaviðauka er kauphækkunin um mánaðamótin 6,86%, en sé hann tekinn með er hækkunin 7,18%. Þess var í gærkveldi jafnvel vænzt að í dag yrði unnt að gefa út tilkynningu um endanlega kauphækkun um næstu mánaðamót. engu að síður komið í ljós, að í Noregi nemur fjárhæð opinberra styrktaraðgerða til einstakra greina iðnaðarins eða fyrirtækja- hópa samtals 336,4 milljörðum króna (ísl.) í Svíþjóð hins vegar hefur t.d. skipaiðnaðurinn fengið á fjárlögum 1976—‘80 alls kr. 326 milljarða í styrki og hlutafé, stáliðnaðurinn alls 57 milljarða króna í hlutafé auk 65 milljarða króna í formi lána með sérstökum kjörum og vefjar- og fataiðnaður- inn hefur fengið liðlega 1,6 millj- arða króna í styrki Sjá „Norðmenn styrktu iðn- að sinn“ bls. 25. Daginn er nú tekið að lengja, og þá er freistandi að labba sig niður að sjó og kanna hvernig bátarnir líta út eftir köldustu vetrarmánuðina, jafnvel þótt höfnin sé enn full af klakahröngli. Flugmannasamningar: Ráðherrar höfðu ekki tíma til að sinna deilurati 2 togarar seldu erlendis TVEIR togarar seldu afla erlendis í gærmorgun. Ýmir frá Hafnar- firði seldi 135 tonn í Grimsby fyrir 46 milljónir króna, meðalverð 337 krónur, og Vigri frá Reykjavík 'seldi 235 tonn í Cuxhaven fyrir 63,5 milljónir, meðalverð 270 krónur. Uppistaðan í afla Ýmis var þorskur og ýsa en uppistaðan í afla Vigra var ufsi og karfi. ALLT SITUR við það sama í flugmannadeilunni og eru engar nýjar fréttir af þeim vettvangi, að því er Hallgrímur Dalberg formaður sáttancfndarinnar tjáði Morgunblaðinu í gær. I gær hafði verið ráðgerður fundur sáttanefndarinnar og þriggja ráð- herra, þeirra Ragnars Arnalds sam- göngumálaráðherra, Magnúsar H. Magnússonar félagsmálaráðherra og Ólafs Jóhannessonar forsætisráð- herra. Að sögn Hallgríms Dalberg gat ekki orðið af fundinum vegna anna ráðherranna, en fundurinn verður haldinn jafn skjótt og ráð- herrarnir hafa tíma til að taka á móti sáttanefndinni. Eins og komið hefur fram í frétt- um ákváðu flugmenn Flugleiða, þeir sem fljúga vélum Flugfélags Islands, að fresta verkfallsaðgerðum í hálfan mánuð. Var frestunin gerð að beiðni forsætisráðherra og í trausti þess að ríkisstjórnin reyndi að finna lausn á málinu á þessum tíma. Hafi sættir ekki tekizt fyrir 23. febrúar, sem er föstudagur, munu verkfallsaðgerðir hefjast að nýju. Geir Hallgrímsson: Vinstri stjórnin ákveð- ur kaup og kjör einhliða Sjálfstæðismenn vilja láta reyna á samninga um vísitölumál og kjörin í heild „STJÓRNARANDSTÖÐUNNI hefur ekki verið sýnd sú kurteisi, að vera fengið þetta frumvarp í hendur, sagði Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er Morgunblaðið spurði hann í gær um álit hans á frumvarpi Ólafs Jóhannessonar forsætisráðherra. Hins vegar kvað Geir fréttir hafa borizt af efni frumvarpsins, útdrættir hafi birzt úr því í blöðum. Hann kvað því ekki rétt að kveða upp dóm um einstök atriði frumvarpsins. wÞó kemur ljósiega fram,“ sagði Geir, „að bráðabirgðaráðstafanirnar í september og desember hafa gert vandann í efnahagsmálum, sem við var að glíma, enn meiri en þurft hefði að vera. Þetta er viðurkcnnt í frumvarpsdrögunum með því að ákveðið er að draga úr niðurgreiðslum að nýju, en aukning þeirra var meginatriði bráðabirgðaúrræðanna.“ „Þá eru mótsagnirnar ber- útkljái eins og unnt er vandamálin skjaldaðar í málflutningi stjórnar- liðsins," sagði Geir Hallgrímsson, „Alþýðuflokkur og Alþýðubanda- lag höfðu að kjörorði fyrir kosn- ingar: Samningana í gildi, en þeir hafa aldrei verið settir í gildi og síðan samningstíminn rann út 1. desember, hafa vinnuveitendur og launþegar ekki samið sín í milli og ekki setzt að samningaborði. Mér er til efs, að í annan tíma hafi kaup og kjör á íslandi verið ákveðið lengur með einhliða ákvörðunum stjórnvalda en undir núverandi ríkisstjórn. Er það algerlega gagn- stætt stefnu launþegasamtakanna, sem hafa lýst sig a.m.k. hingað til andvíga einhliða ákvörðun ríkis- valdsins um kaup og kjör í landinu. Við sjálfstæðismenn teljum það sjálfsagt og leggjum á það áherzlu, að aðilar vinnumarkaðarins sín á milli — gagnstætt því sem núverandi ríkisstjórn hefur stefnt að. Þá er það og athyglisvert, að eftir 8 vikna samningsþóf í sumar, var ekki komizt að annarri niður- stöðu en fólst í bráðabirgðaúrræð- unum í september. Borið var við að betur skyldi að gert fyrir 1. desem- ber. Enn var 1. desember um bráðabirgðaúrræði að ræða og þá borið við að betur skyldi gert við afgreiðslu fjárlaga. Það fór út um þúfur og þá var fresturinn sagður vera til 1. febrúar. Hann er kominn og liðinn og nú er lagt fram sem hálfgert laumuplagg frumvarp for- sætisráðherra, sem hann segir þó sjálfur að ekkert liggi á að af- greiða. Er þá 1. marz fyrirsjáan- lega ekki neitt takmark í augum stjórnarsinna. Er augljóst af yfir- lýsingum þeirra og ósamkomulagi, að lengi eiga þeir enn eftir að kljást og deila áður en ljóst verður, hvort þeir ná samkomulagi eða stjórnin fellur." Morgunblaðið spurði Geir Hallgrímsson um stefnumörkun Sjálfstæðisflokksins í efnahags- málum. Hann kvað hafa verið fjallað um efnahagsmál innan flokksins undanfarið og yrði mið- stjórnarfundur flokksins næst- komandi föstudag. A laugardag verður síðan sameiginlegur mið- stjórnar- og þingflokksfundur, þar sem rætt verður um stefnumörkun í efnahagsmálum. Þó kvaðst Geir vilja taka það fram að í stjórnar- myndunarviðræðunum í sumar hefði flokkurinn lagt fram stefnu, markmið og leiðir til lausnar efnahagsvandanum og viðhorf flokksins hefðu einnig komið fram í umræðum á Alþingi um úrræði ríkisstjórnarinnar í september og desember. Því kvað hann stefnu- mörkun flokksins ljósa, en hún fælist m.a. í því að berjast gegn skattpíningarstefnu núverandi stjórnar. Eftir helgina mætti síðan vænta þess að gerð yrði grein fyrir niðurstöðum fundanna, sem fyrir- hugaðir eru. Þá spurði Morgunblaðið, hvort Sjálfstæðisflokkurinn hygðist hverfa frá þeirri stefnu, sem hann hefði viðhaft á síðasta kjörtímabili að berjast gegn verðbólgu með því að skerða vísitöluákvæði kjara- samninga. Geir Hallgrímsson sagði, að flokkurinn teldi það höfuðnauðsyn, að ráða niðurlögum verðbólgunnar nú sem fyrr. í febrúar og maí í fyrra hefði í þeim tilgangi ekki verið um annað að ræða en að skerða vísitöluákvæði kjarasamninga að vissu marki til loka samningstímans. Reynslan hefði sannað það, en Geir undir- strikaði, að nú væru í raun engir samningar í gildi, og flokkurinn legði áherzlu á frjálsa samninga milli vinnuveitenda og launþega. Á slíka samninga hefði enn ekki reynt, hvorki að því er snerti fyrirkomulag vísitölubóta né samningana í heild. Hann kvað að vísu mega segja, að fulltrúar þess- ara aðila hefðu gert grein fyrir viðhorfum sínum innan vísitölu- nefndarinnar, en störfum hennar hefði þó lokið með allóvenjulegum hætti, þar sem fulltrúar launþega hefðu ekki skilað þar efnislegum athugasemdum — og ekki á grund- velli raunverulegra kjarasamn- inga, sem í gildi ættu að ganga. „Fyrst verður að vera útséð um það, hvort sú leið frjálsra kjara- samninga sé fær, áður en þessari spurningu er svarað," sagði Geir Hallgrímsson og bætti við, að sjálfstæðismenn hefðu ávallt talið, að um neyðarúrræði væri að ræða, þegar gripið væri inn í frjálsa samninga aðila vinnumarkaðarins. „Það er engu fremur til fyrirmynd- ar, að setja einhliða ákvæði um kaup og kjör eins og núverandi ríkisstjórn hefur gert án þess að reyna áður frjálsa samninga," sagði formaður Sjálfstæðisflokks- ins að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.