Morgunblaðið - 04.04.1979, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.04.1979, Blaðsíða 24
friðurí 30 ár MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 1979 56 Tryggir s j álfstæði ÍSLANDS MAGNÚS ÞÓRÐARSON er íulltrúi Upplýsingadeildar Atlantshafsbandalagsins á íslandi, en deildin hefur sérstaka skrifstofu í Reykjavík. Við spurðum Magnús fyrst, hvenær skrifstofan hefði verið stofnuð. — Það var 1. des. 1961. Upplýsinga- skylda — Og hver voru tildrögin? — Oft hefur verið sagt, að íslenzk utanríkisstefna hvíldi á fjórum meginstoðum, þ.e. þátttöku okkar í Sameinuðu þjóðunum, Atlantshafsbandalaginu, Norð- urlandaráði og Evrópuráðinu. Við erum lögmætir aðilar að þess- um fjórum alþjóðasamtökum, og því hvílir sú skylda á stjórn- völdum og samtökunum sjálfum að kynna þau almenningi, enda hafa öll þessi alþjóðasamtök rekið hér alls konar upplýsinga- og kynningarstarfsemi, haft hér skrifstofur og fulltrúa, þótt langmest hafi borið hér á Norður- landaráði að þessu leyti, enda mestu fé og mannafla verið varið til þess hér af þess hálfu. í Upplýsingadeild NATO eru sérstakir fulltrúar fyrir öll aðildarríkin 15, en það var ekki fyrr en í júní 1961, að þáverandi framkvæmdastjóri bandalagsins, Dirk Stikker, kom hingað í heim- sókn, að ákveðið var að setja þessa skrifstofu á stofn. Dirk Stikker þekkti vel hér til manna og málefna og var Islendingum sérstaklega vinveittur, enda hafði hann áður verið sendiherra Hol- lands á Islandi (með aðsetri í Lundúnum) og oft komið hingað. Samstarf við SVS og Varðberg — En hvað um tengsl áhugamannafélaganna tveggja, Varðbergs og Samtaka um vestræna samvinnu við skrifstoíuna? — Þau voru ákveðin þegar í upphafi, eins og þá var skýrt frá í blöðum. SVS voru stofnuð 19. apríl 1958 og Varðberg 18. júlí 1961, en undirbúningur að stofnun þess hafði verið hafinn nokkru áður en Stikker kom hingað. Þótt þau hafi bæði víðtækar stefnuskrár um að efla skilning á gildi lýðræðislegra stjórnarhátta og auka þekkingu á alþjóðastjórnmálum og alþjóðlegu samstarfi, hafa þau bæði í lögum sínum ákvæði um að vinna að kynningu á markmiði og störfum Atlantshafsbandalagsins. Sambærileg félög starfa í öllum aðildarríkjum NATO og hafa með sér heildarsamtök. Það var því sjálfgefið í upphafi, að náið sam- starf yrði milli áhugamannafélag- anna og skrifstofunnar. enda hefur það verið ómetanlegur stuðningur í starfi mínu og annarra, sem veitt hafa þessari skrifstofu forstöðu, að geta unnið með áhugasömu og fórnfúsu fólki, sem vill leggja mikið starf á sig til þess að vinna að hugsjónum sínum og málstað bandalagsins hvert það gagn sem það má. Þjóðleg eða alþjóðleg? — En fyrst skrifstofan og félögin eru svona alþjóðleg, geta þau þá verið þjóðleg? — Að sjálfsögðu eru þau það hvort tveggja. Sönn þjóðrækni getur aldrei byggzt á einangrunar- stefnu og innilokunarhyggju. Það er enn vonlausara á okkar dögum en áður fyrir nokkra þjóð, sem vill búa í sjálfstæðu ríki, að ætla sér að reyna að loka sig inni og þykjast ekki vilja sjá það, sem er að gerast umhverfis hana, hvort sem það er talið þægilegt eða óþægilegt. Hlutleysi? Nei! — Þú telur þá ekki, að íslandi væri bezt borgið með því að fylgja hlutleysisstefnu? — Bezt borgið? Nei, hreint ekki. I fyrsta lagi er nú tómt mál um það að tala í heimi nútímans, þó ekki væri nema af landfræðileg- um ástæðum, í öðru lagi væri það stórhættulegt sjálfstæði íslenzka lýðveldisins og íslenzku þjóðerni til lengdar, og í þriðja lagi er það alls ekki æskilegt siðferðilega. Óraunhæft — Hvernig viltu rökstyðja þessar fullyrðingar? — Við skulum taka fyrstu fullyrðinguna fyrst. Til þess að geta haldið uppi raunhæfu hlutleysi, sem reikna má með, að verði virt í styrjöld (öfugt við það, sem gerðist á Islandi, í Danmörku, Noregi, Hollandi, Belgíu og Lúxemborg 1940) verður viðkomandi ríki í fyrsta lagi að vera á svæði, sem hefur lítið eða næsta takmarkað gildi fyrir hugsanlegan stríðsaðilja. og í öðru lagi að vera svo vígbúið og sjálfu sér nægt um vopnabúnað, að styrjaldaraðiljar telji það ekki svara kostnaði að leggja til atlögu við það. Hér er hvorugu til að dreifa. Land okkar er á einhverju mikilvægasta svæði jarðkringl- unnar frá hernaðarlegu sjónar- miði séð, þar sem það liggur við siglingaleið sovézka flotans, sem á að skera á líftaugina milli Norður-Ameríku og Vestur-Evr- ópu, og þjóðin, sem landið bygg- ir, hefur hvorki vilja neð getu til þess að hafa eigin varnir svo traustar, að það verði óárenni- legt í augum þeirra, sem hingað kynnu að renna hýru auga við upphaf stríðsátaka. Þess vegna verðum við, eins og aðrar þjóðir, sem svipað er ástatt um, þótt í minna mæli sé, að tryggja öryggi okkar með því að hafa hér fráfælandi kraft með tilstyrk vinveittra bandalagsþjóða, sem ekki þarf að tortryggja um löngun til yfirráða eða ítaka hér, svo að hugsanlegur árásaraðili viti mætavel fyrirfram, að hér er ekki okkur einum að mæta, heldur fimmtán bandalagsþjóðum. Þennan styrk fáum við í Atlantshafsbandalaginu, sem er ekki annað en samþjóðlegt (ekki yfirþjóðlegt) tryggingarfélag fimmtán fullvalda lýðræðisríkja, sem eiga samleið stjórnarfarslega, sögulega, ménningarlega, viðskiptalega og landfræðilega, og þetta tryggingarfélag, sem ég leyfi mér að kalla svo í þessu samhengi, á að tryggja gagnkvæmt öryggi allra ríkjanna sameiginlega og hvers um sig. Værum við einir á báti hér í Norður-Atlantshafinu, myndi þegar hefjast kapphlaup um ítök hér og aðstöðu, sem erfitt yrði fyrir okkur að standast gegn einskipa. Þjóðir verða að velja sér félaga fyrirfram, meðan þær eru frjálsar, en ekki bíða, þangað til þær eru neyddar til félags við ógeðfelldan kumpán, sem kann að hafa kylfu í annarri hendi, þótt hann reiði fram gull í hinni. Trygging fyrir sjálfstæðu Islandi — Og hvað þá um næstu fullyrðingu? Skerðir það ekki fullveldi íslands að einhverju leyti að vera aðili að NATO? — Nei, þvert á móti, það er einmitt trygging fyrir raunveru- legu sjálfstæði þess. Ríki, sem hefur engar varnir og ætlar að treysta á heppni sína og friðsemi annarra, er í raun ekki fullvalda ríki. Það er ekki tekið fullkomlega mark á því samfélagi ríkjanna, því að það hefur ekkert afl á móti hvers konar þrýstingi, áleitni, áreitni, ögrunum, hótunum um valdbeitingu eða beinu ofbeldi. Það stenzt ekki til lengdar. Vitneskja annarra um einmanaleik og máttleysi viðkomartdi ríkis, og að enginn muni koma því til hjálpar, gerir aðstöðu þess ríkis óþolandi á alþjóðavettvangi. Samningsað- Bandarískir landgönguliðar koma til Reykjavíkur 1941. í baksýn er Ægisgarðurinn. Kveldúlfstogararnir eru lengst til hægri á myndinni, seglskipið Atlantic fyrir miðju. cn til vinstri er strandferðaskipið Esja. Fulltrúar íslands á ráðherrafundi hjá Atlantshafsbandalaginu — Tómas A. Tómasson og ólafur Egilsson. Eftir að Frakkar hættu þátttöku í hernaðarlegu samstarfi aðildarríkja NATO fluttust bækistöðvar bandalagsins til Briissel frá París, en þar höfðu þær verið frá stofnun. Flutningurinn fór fram fyrirvaralítið og húsnæði því sem í fyrstu var einungis ætlað til bráðahirgða, var komið upp á sex mánuðum. Eftir tólf ár bendir ckkert til þess að aðalstöðvarnar verði fluttar á næstunni, enda hafa byggingar þær, sem sjást hér á mvndinni verið auknar og endurbættar eftir þörfum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.