Morgunblaðið - 07.04.1979, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
82. tbl. 66. árg.
LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1979
Prcntsmiðja Morgunblaðsins.
Stórtjón er
sprengja
sprakk í
iðnaðar-
verksmiðju
La Scync-Sur-Mer, Frakklandi,
6. aprfl. AP.
SKEMMDARVERKAMENN
sprengdu í dag iðnaðarverksmiðju
í loít upp í La Seyne-Sur-Mer í
Frakklandi, en í verksmiðjunni var
unnið að prófunum á kjarnakljúf-
um sem í framleiðslu voru fyrir
fraksmenn.
Sprengingin varð um þrjú-leytið í
dag og er fyrsta atlaga sem gerð er
að kjarnorkutilraunastarfsemi
Frakka frá upphafi. Talið er að
tjónið nemi tugum milljarða doll-
ara, eða þúsundum milljarða ís-
lenzkra króna.
Frönsk yfirvöld tilkynntu þegar í
stað að engin geislavirk efni hefðu
verið í verksmiðjunni eða rann-
sóknastofum hennar, svo engin
hætta væri á ferðum fyrir fólk í
nágrenni hennar.
Barn
tekid
Ljósm. OI.K.M.
SKÓLALÚÐRASVEIT Árbæjar og Breiðholts lók í gærdag n I starfsemi sinni. Margt var um manninn í mióborg Reykjavíkur
Lækjartorgi fyrir vegfarendur og seldi um leió kökur til styrktar | og menn huguöu aó útimarkaónum, sem starfræktur var í gær.
uppí
skuld
Manila, Filippseyjum. 6. aprfl. AP.
RÉTTUR á Filippseyjum hefur
komist að þeirri niðurstöðu, að
sjúkrahús og félagsmálastofnun
í Manila skuli afhenda foreldr-
um stúlkubarn eitt sem hefur
verið í þcirra umsjá frá því að
það fæddist fyrir þremur árum
vegna þess að foreldrarnir gátu
ekki greitt uppsettan sjúkra-
húsreikning á sínum tfma.
í dómsorðum réttarins segir,
að fráleitt sé að meðhöndla verur
eins og veraldlegar eigur manna.
Reikningurinn sem foreldrarnir
gátu ekki greitt á sínum tíma
hljóðaði upp á 735 bandaríkja-
dollara eða sem nemur um 240
þúsund íslenzkum krónum.
Idi Amin
Indland:
Mfldl átök vegna
aftöku Bhuttos
Islamabad, Nýja belhf, 6. aprfl. AP.
INDVERSKA fréttastofan skýrði frá því í dag, að í miklum átökum
sem brutust út í Khasmir-héraði f Indlandi hefðu a.m.k. fjórir látist og
væri tala látinna þá komin í tfu f landamærahéruðum Indlands.
Til mikilla átaka kom milli lögreglu og mótmælenda f flestum
stærstu borgum Pakistans þegar aftöku Zulfikar Ali Bhutto var
mótmælt þriðja daginn í röð, að því er segir í fréttum frá Islamabad í
dag.
Gífurlegar öryggisráðstafanir
voru á götum Islamabad, höfuð-
borgar Pakistans í gærkvöldi
vegna sívaxandi ólgu og hafði
lögregla beitt skotvopnum og tára-
gasi í viðureign sinni við mót-
mælendur fyrr um daginn.
Ekki hafa borist neinar áreiðan-
legar tölur um mannfall í átökum
mótmælenda og lögreglu í hinum
ýmsu borgum landsins, en að mati
sérfræðinga er það töluvert.
Líbýumenn hafa
yfirgefið Ajmin
Kampala nær mannlaus þridja daginn í röð
Nairobi, Kenya, 6. aprfl. AP.
HAFT VAR eftir áreiðanlegum heimildum í Nairoln í dag að Líbyumenn væru að
draga síðustu hermenn sína frá Úganda, en á sama tíma lýsti Idi Amin forseti landsins
því yfir í sjónvarpsávarpi, að hann væri trúr Úganda og myndi aldrei yfirgefa þjóð
sína í nauðum.
Sjónvarpsávarp Amins var
mjög óvenjulegt að því leyti að
hann var óvenju hógvær og flutti
„hjartnæmar" og hlýjar kveðjur
til landsmanna. Var það mál
manna að þarna kæmi Amin í
síðasta sinn fram opinberlega.
Þriðja daginn í röð sögðust
innrásarmenn mundu hertaka
höfuðborgina Kampala og fyrir-
skipuðu þeim fáu íbúum sem þar
dveljast að „hypja" sig á brott
fyrir klukkan 4 að staðartíma, því
að þá yrði lokainnrásin gerð. —
Ekkert gerðist hins vegar klukkan
4 og er Kampala nú að mestu
mannlaus borg, þriðja daginn í
röð.
I yfirlýsingu frá innrásarmönn-
um, sem birt var í Dar Es Salam í
Tanzaníu í kvöld, sagði að þeir
hefðu landið nær allt á sínu valdi
og að allir Líbýumenn væru farnir
þaðan. — Þar sagði ennfremur að
höfuðborgin myndi endanlega
falla þeim í hendur á morgun, það
væri aðeins formsatriði að her-
taka hana. Aðeins væri verið að
gefa þeim borgurum sem enn
væru í borginni tækifæri til að
forða sér.
Stokkhólmsströnd
mikið olínmenguð
Stokkhólmi, 6. aprfl,
frá önnu Bjarnadóttur
fréttaritara Mbl.
MÖRG þúsund tonn af olíu stofna
nú öllu lífríki skerjagarðsins
fyrir utan Stokkhólm í hættu.
Ekki er vitað hvaðan olían kem.tr
en sovézkt flutningaskip liggur
undir grun.
Olíunnar varð fyrst vart fyrir
nokkrum vikum sunnarlega í
Botnshafinu en síðan hefur hún
borist með straumum og vindum
að Finnlandsströnd og Álandseyj-
um og nú síðast að skerjagarðin-
um fyrir utan Stokkhólm.
Ástandið þar er svo slæmt, að
um helgina munu 3—4000 liðs-
menn sjóhersins vinna að því að
bjarga því sem bjargað verður frá
olíunni. Auk þess sem beðið hefur
verið um hjálp sjálfboðaliða úr
landi til að aðstoða eyjaskeggja
við hreinsun strandanna. í dag
fylgjast þyrlur strandgæzlunnar
með þróun mála, en aðeins hluti
olíunnar er á yfirborði hafsins.
Mestur hluti olíunnar hefur þegar
blandast sjónum eða er undir ís.