Morgunblaðið - 07.04.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.04.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1979 5 „Oddur sterki” á bókauppboði Klausturhóla LISTMUNAUPPBOÐ Guðmund- ar Axelssonar, Klausturhólar, eína til 54. uppboðs fyrirtækisins í dag, laugardag að Laugavegi 71. Uppboðsefni er að þessu sinni bækur og rit, tímarit og fleira prentmál. Uppboðsskrá greinist eftir efni í flokka. Ýmis rit, rit erlendra höfunda, rit íslenzkra höfunda, afmælis- og minningar- rit, ljóð, orðasöfn, málfræðirit, blöð og tímarit, fornritaútgáfur og fræðirit, sagnaþættir og þjóð- sögur, ferða- og landfræðirit, saga lands og lýðs, æviminning- ar, æviskrár. Meðal fágætra og sjaldséðra bóka má nefna Landmælingu eftir Björn Gunnlaugsson, Kaupmh. 1868, Stjörnufræði Ursins, þýðing Jónasar Hallgrímssonar, Viðey 1842, eitt fárra rita, sem út komu eftir þýðandann í lifanda lífi. Arma Ley eftir Kristmann Guðmundsson, tölusett útgáfa, Rvík 1940. Kvöldræður Magnúsar Helgasonar, Rvík 1931, Dalarósir eftir Guðmund Hjaltason, Oddeyri 1885, Elenóra eftir Gunnstein Eyjólfsson, Winnipeg 1894, Illíons- og hómerskviður, þýðingu Svein- bjarnar Egilssonar, Kaupm.höfn og Reykjavík 1854 og 1857, Orða- bók Sigfúsar Blöndal, íslenzkt Kjörgripur týndist FYRIR um það bil þremur vikum tapaði kona silfurnælu, miklum kjörgrip, sem hinn þjóðkunni gull- og silfursmiður Baldvin Björnsson smíðaði. Konan er búin að eiga næluna frá því vorið 1945. — Var hún sérsmíðuð, kringlótt. Tvö börn standa saman í henni miðri, þá eru í nælunni sex silfurdropar og silfurflettingar á milli dropanna. Konan, Solveig Hjörvar, hefur auglýst eftir nælunni en án árang- urs. Telur hún að nælan, þó öryggislæsing væri á henni, hafi dottið er hún var stödd við stóra sýningarhúsið við Bíldshöfða. Þá stóð þar yfir „Súpermarkaður". Að sjálfsögðu verða fundarlaun greidd, en sími Solveigar er 36543. réttarfar eftir Björn Gíslason, hið fágæta rit Odds „sterka" Sigur- geirssonar 1—2, Rvík 1927, tíma- ritið Heima er best, Komplet, tímarit Máls og menningar, komplet, Þættir úr Árnesþingi 1—2 eftir Skúla Helgason, íslenzk- ar þjóðsögur Ólafs Davíðssonar 1—3, Rvík 1945, rit Þorvaldar Thoroddsen um íslenzku eldfjöllin á dönsku og þýzku, Saga Vest- mannaeyja 1—2 eftir Sigfús John- sen og siæðing úr Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Alls verða boðin upp 200 númer á uppboðinu. Bækurnar og ritin eru til sýnis að Klausturhólum í dag á verzlunartíma, en uppboðið hefst á laugardag kl. 2. Hvatarkonur með hluta af því góðmeti, er á boðstólunum verður á „góðmetismarkaðinum“ í dag. Góðmetismarkaður Hvatar í dag Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt gengst fyrir góðmetis- markaði í sjálfstæðishúsinu Valhöll, Háaleitisbraut 1, í dag og opnar markaðurinn kl. 13.30. Þórunn Gestsdóttir formaður fjáröflunarnefndar sagði, að mikil fjölbreytni væri í góðmet- inu sem á boðstólum yrði. Mætti þar m.a. nefna ljúffengar kökur, heimatilbúið marmelaði, auk ýmislegs annars, sem gott væri að eiga til páskanna og sumar- komunnar. Þórunn sagði að sjón væri sögu ríkari og vildi hún hvetja fólk til að líta við. „Þarna verður einnig leikin tónlist og finnst mér sjálfsagt að gera slíka markaðsferð að fjölskyldu- hátíð," sagði Þórunn að lokum. Tekið verður á móti góðmeti milli kl. 10.00—12.00 fyrir há- degið. Markaðurinn verður á jarðhæð í vestursal. Ófærð við Ólafsfjörð Ólafsfirði, 6.4. í GÆR skall hér á norðanátt með mikilli snjókomu. Hér eru allar samgönguleiðir lokaðar, höfnin og fjörðurinn fullur af ís, og sigling um fjörðinn óhugsandi eins og er. Múlavegur lokaðist í gærkvöldi af völdum mikillar snjókomu, þá hefur snjóflóð fallið á veginn á nokkrum stöðum. í dag er batnandi veður og snjóruðningstæki er að hefja mokstur á veginum fyrir Ólafs- fjarðarmúla. Jakob. At’GLYSINGA- SÍMINN EH: -ss^wl: Sparivelta mm # ■ J5 Jofngreiðslulónakerfi Ert þú í ferðahugleióingum? Þá er rétta tækifærið að sýna forsjálni og kynna þér nýja þjónustu Samvinnubankans, SPARIVELTU, sem byggist á mis löngum en markvissum sparnaði tengdum margvíslegum lánamöguleikum. f. Með þátttöku i Spari- * veltunni getur þú dreift / greiðslubyrð ... f# inni vegna ^ ferðakostnaðar u eða annarra tímabundinna útgjaldaáö—12 mánuði. Sparivelta Samvinnubankans auðveldar þér að láta drauminn rætast. Vertu með í Spariveltunni og þér stendur lán til boða. Upplýsingabæklingar liggja frammi hjá Ferðaskrifstofunni Samvinnuferðir / Landsýn og hjá kaupfélög- unum. SPARIVELTA A-FLOKKUR Sparnaðar- Mánaðarlegur Sparnaður Lán frá Ráðstöfunarfé Mánaðarleg Endurgr. tímabil sparnaður í lok tímabils Samvinnubanka með vöxtum endurgr._ tími 25.000 75.000 75.000 151.625 26.036 3 mánuðir 50.000 150.000 150.000 303.250 52.072 3 mánuðir 75.000 225.000 225.000 454.875 78.108 25.000 100.000 100.000 202.958 26.299 4 mánuðir 50.000 200.000 200.000 405.917 52.598 4 mánuðir 75.000 300.000 300.000 608.875 78.897 25.000 125.000 125.000 254.687 26.564 5 mánuðir 50.000 250.000 250.000 509.375 53.128 5 mánuðir 75.000 375.000 375.000 764.062 79.692 25.000 150.000 150.000 306.812 26.831 6 mánuðir • 50.000 300.000 300.000 613.625 53.661 6 mánuðir 75.000 450.000 450.000 920.437 80.492 Gert er ráð fyrir 19.0% innlánsvöxtum og 24.69% útlánsvöxtum svoog lántökugjaldi. Vaxtakjöreru háð ákvörðun Seðlabanka íslands hverju sinni. Samvinnubankinn og útibú um land allt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.