Morgunblaðið - 07.04.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1979
11
Þýzkur hár-
greiðslumeistari
heldur sýningu
Hárgreiðslumeistarinn þýzki Peter Gress mun
halda sýningu, ásamt nokkrum íslenzkum hargreiðslu-
meisturum í Sigtúni í dag kl. 16.00 og er sýningin
öllum opin.
Peter Gress er margfaldur verðlaunahafi í hár-
greiðsluiðn. Hann er frá Esslingen í Suður-Þýzkalandi
þar sem hann rekur tvær hársnyrtistofur ásamt föður
sínum. Hann er 28 ára og hefir ferðast mikið um
heiminn. Hann er hér á landi í annað sinn og er hér
staddur til að kenna íslenzku hárgreiðslufólki að vinna
með nýjustu vörur frá Swartsckopf fyrirtækinu, en
það framleiðir hársnyrtivörur. Umboðsmaður
Swartsckopf hér á landi er Pétur Pétursson heildverzl-
un, Suðurgötu 14, Reykjavík.
Peter Gress sýnir hér hárgreiöslufólki réttu handtökin.
Yfirlýsing
um áfengismál
A fundi í st. Andvara nr. 265,
var samþykkt svohljóðandi álykt-
un:
I tilefni af framkomnu laga-
frumvarpi um breytingar á áfeng-
islögum, á þingskjali 325, viljum
við taka fram:
I áðurnefndu frumvarpi eða
greinargerð þess, eru engin mark-
tæk rök færð fyrir því að það muni
stuðla að minni áfengisneyzlu en
nú er, heldur þvert á móti. Lenging
á opnunartíma veitingastaða og
fjölgun þeirra einstaklinga sem
heimiluð eru áfengiskaup, bendir
til rakleiðrar aukningar áfengis-
kaupa og um leið áfengisneyzlu, og
gengur 'þvert gegn tillögum Heil-
brigðisstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna, er telur hömlur á sölu og
takmörkun á veitingatíma og veit-
ingastöðum meðal virkustu áfeng-
isvarna er hvert lýðfrjálst þjóðfé-
lag hafi yfir að ráða.
I greinargerð frumvarpsins seg-
ir að leiða megi að því rök, að
núverandi lagasetning hafi stuðlað
að ómenningu. Þeirra raka er þó
ekki getið. Ennfremur segir, að
talið sé rétt, að neytendum sjálf-
um sé látið eftir að ákveða hvaða
reglur teljist skynsamlegar.
I ljósi framangreindra orða
mætti e.t.v. gera ráð fyrir, að
næsta tillögugerð þessara alþing-
ismanna yrði sú að fíkniefnaneyt-
endum, öðrum en áfengisneytend-
um, verði falin endurskoðun á
löggjöf um þau efniumeð nauðsyn-
legum rýmkvunum í átt til auð-
veldunar um útvegun og og neyzlu
annarra vím-ugjafa en áfengis.
Hver sú breyting á áfengislög-
unum er sjáanlega stuðlar að
aukinni áfengissölu, stríðir á móti
hagsmunum alþjóðar; þess vegna
skorar fundurinn á Alþingi að
fella umrætt lagafrumvarp.
Virðingarfyllst,
Sigríður Helgadóttir,
æðstitemplar.
Ragnar Þorsteinsson
ritari.
Hártízkusýning
í Sigtúni
í dag laugardaginn 7. apríl kl. 4.
Hárgreiðslumeistari Peter Gress („Champion") á
vegum Hárgreiðslumeistarafélags íslands.
Allar hárgreiðsluvörur eru frá
Schvarzkopf
Sýningarfólk frá Model ’79 sýnir hárgreiðslu og
fatnaö.
Húsið opnað kl. 15.30
Umboð Pétur Pétursson, heildverzlun
Suðurgötu 14, Reykjavík.
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AKiLYSINGA-
SÍMINN KR:
22480
GRISAVEISLA
Hótel Saga — Súlnasalur
Sunnudagskvöld 8. apríl
Húsið opnað kl. 19.00.
Hressing við barinn
Ókeypis happdrættismiðar afhentir.
SPÁNSKUR VEISLUMATUR
Grísasteikur og kjúklingar með öllu tilheyrandi. Sangria. Verð aðeins kr. 3.500
VEGLEG GJOF
Allar konur sem eru matargestir fá glæsilega gjöf frá Fegurðarsamkeppni íslands og
Ferðaskrifstofunni Sunnu. Gjöfin er glas af hinu ekta franska ilmvatni FARBERGE (spray)
cavale — BABY. Gjöf þessi er gefin í samvinnu við hinn franska ilmvatnsframleiöanda.
Búðarverð þessarar gjafar á íslandi er kr. 2.600-
FERÐAKYNNING — LITKVIKMYNDIR
Glænýjar litkvikmyndir frá eftirsóttum áfangastööum Sunnu, á Kanaríeyjum,
Mallorca, Costa del Sol og Grikklandi, og einnig af skemmtiferðaskipinu FUNCHAL,
sem Sunna leigir næsta sumar. Sagt frá mörgum spennandi ferðamöguleikum sem
bjóðast á þessu ári, brottfarardögum og verði ferða.
GLÆSILEGT FERÐABINGO
Vinningar 3 sólarlandaferðavinningar meö Sunnu eftir frjálsu vali.
SKEMMTIATRIÐI
Halli og Laddi meö nýjan sprenghlægilegan gamanþátt.
TÍSKUSÝNING
Feguröardrottningar íslands 1978 og 1977,
ásamt stúlkum frá Karon, sýna það nýjasta í
kvenfatatískunni.
FEGURÐARSAMKEPPNI ÍSLANDS
Kjörin fegurðardrottning Reykjavíkur 1979 úr hópi
þeirra stúlkna sem tekið hafa þátt í keppninni í
vetur.
DANS TIL KL. 1.00
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar ásamt
söngkonunni Þuríði Siguröardóttur leika
og syngja.
OKEYPIS HAPPDRÆTTI
Þeir matargestir sem mæta fyrir kl. 20.00
fá ókeypis happdrættismiöa, en vinningur
er Kanaríeyjaferö
Miasið skki af glnsilegri grísaveíslu á gjafverði. Okeypis Kanarieyjaferð í dýrtíðinni, fyrir pann
heppna. Pantíð borð tímanlega hjá yfirhjóni daglega frá kl. 16.00 í síma 20221.
HOT4L ÍAGA
SÚLNASALUR